Tíminn - 10.03.1977, Síða 11
Fimmtudagur 10. marz 1977
11
Ctgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Kitstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri:
Steingrfmur GIslason.Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu
við Lindargötu, sfmar 18300 — 18306: Skrifstofur i Aðal-
stræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — auglýsingá-
' simi 19523.. Verð i lausasölu kr. 60.00. Askriftargjald kr.
1.100.00 á mánuði. Blaöaprenth.f.,
1 . .. 1 " 1 ——. .. IBL "j
Er þörf fyrir stór-
iðju útlendinga?
A valdatima viðreisnarstjórnarinnar var mjög
magnaður sá áróður, að íslendingar kæmust ekki
af, án stóriðju. Landið væri svo harðbýlt og fátækt
af náttúruauðlindum. Þess vegna yrði að nota ork-
una, sem væri helzta auðlindin, til að koma upp
stóriðju, sem landsmenn sjálfir væru þó ekki fjár-
hagslega færir um að koma upp, heldur yrðu er-
lendir auðhringir að gera það. Þótt nokkuð hafi
siðan dregið úr þessum áróðri, ber enn verulega á
honum.
En er Island eins fátækt land og ætla mætti af
þessum áróðri? Litum fyrst á sjávarútveginn.
Botnfiskaflinn var á siðastliðnu ári 437 þús. smá-
lestir en Hafrannsóknastofnunin telur, að varanleg-
ur meðalafli af botnfisktegundum geti i framtiðinni
orðið 900 þús. smál., ef veiðum verði skynsamlega
stjórnað. Spærlingur er þá meðtalinn. Sildveiði var
litil á siðastl. ári, en ekki er órökstutt að vona, að
hún geti aukizt verulega á næstu árum. Sennilega
getur loðnuaflinn einnig aukizt verulega. Það er þvi
ekki fjarri að áætla, að hæglega megi tvöfalda fisk-
aflann, ef beitt er skynsamlegri stjórnun. En þetta
er þó ekki öll sagan. Við getum eflt margvislegan
fiskiðnað og aukið verðmæti fiskaflans stórlega á
þann hátt. Þar biða okkar miklir möguleikar.
Otfærsla fiskveiðilandhelginnar i 200 milur hefur
aukið svo stórkostlega möguleika sjávarútvegs og
fiskiðnaðar, að þjóðin er tæpast farin að gera sér
það ljóst.
Landbúnaðurinn býr einnig yfir miklum mögu-
leikum. Það er vafalitið hægt að framleiða allan
fóðurbæti i landinu og spara þannig stórlega er-
lendan gjaldeyri. Batnandi hagur þróunarþjóðanna
mun brátt greiða fyrir útflutningi landbúnaðar-
vara.
Þá er það nýtanleg orka, sem vafalaust er miklu
meiri en menn gera sér ljóst nú. Hún á eftir að
spara stórlega oliuinnflutning og leggja grundvöll
að margvislegum iðnaði. M.a. er ekki fjarri lagi að
ætla, að Islendingar geti af eigin ramleik komið sér
upp minni stóriðjufyrirtækjum i stil við áburðar-
verksmiðjuna og sementsverksmiðjuna.
fsland býður þjóðinni þannig vissulega mikla
möguleika til góðrar afkomu, ef hana brestur ekki
framtak til að hagnýta þá. Þeir þurfa vissulega ekki
að gerast háðir erlendri stóriðju á neinn hátt.
Aukin félagshyggja
í viðtali sem Timinn átti við Eystein Jónsson i til-
efni af 75 ára afmæli SÍS, komst hann m.a. svo að
orði:
„Hugsjónabarátta samvinnumanna hefur haft
mikil áhrif. Ekki aðeins innan samvinnu-
hreyfingarinnar, þar sem hún hefur orðið undirrót
mikilla framkvæmda i viðskipta- og atvinnulifi og
bróðurleg samskipti hafa sett sitt mót á lifsviðhorf
mikils fjölda manna, — heldur einnig i öllu þjóðlifi
okkar. Þetta kemur meðal annars fram i löggjöfinni
og þeim úrræðum, sem menn gripa til, þegar ráða
þarf fram úr vandasömum málum. Þá kemur oft
fram sú tröllatrú á mætti samtakanna, sem ís-
lendingum er orðintöm.Hvert sem litið er blasir
þetta við. Nálega allur útflutningur sjávarafurða
okkar er á félagslegum grundvelli. Allir þekkja
byggingarsamvinnufélögin — margir af eigin raun.
Þannig mætti lengi telja upp einstök dæmi. Við-
horf félagshyggju, mannúðar og trúin á mátt sam-
takanna hafa náð að festa allvel rætur með
þjóðinni, og samvinnuhreyfingin á stórfelldan þátt i
þvi.” Þ.Þ.
0 ERLENT YFIRLIT
Indira stendur
höllum fæti
Ands tæðingar hennar herða sóknina
Indira Gandhi
SENNILEGA er þaö nokkur
uppörvun fyrir Indiru Gandhi,
aö fiokkur Bhuttos vann mik-
inn sigur I kosningunum, sem
fóru fram i Pakistan á mánu-
daginn var, þótt þvi heföi
veriö spáö, aö úrslitin gætu
oröiö tvisýn. Allir borgara-
legir andstæöingar Bhuttos
samfylktu gegn honum, niu
flokkar talsins. Borgaralegir
andstæöingar Bhuttos sam-
fylktu gegn honum, niu
flokkar talsins. Borgaralegir
andstæöingar Indiru hafa
gripiö til hliöstæöra vinnu-
bragða. En til viöbótar hefur
hún kommúnista vinstra
megin viö sig, og þeir geta
oröið hinni borgaralegu sam-
fylkingu óbeint mikill
styrkur, ef þeir ná verulegu
fylgi vinstrasinnaðs fólks, sem
ella hefðu kosiö Kongressflokk
Indiru.
Þaö hlýtur aö vekja Indiru
nokkurn ugg, aö þetta er i
fyrsta sinn, sem allir
borgaralegir andstæöingar
hennar eru sameinaöir. Sigrar
Kongressflokksins i
kosningum til þessa, hafa
öðrum þræöi byggzt á
klofningi andstæðinga hans. I
þeim fimm þingkosningum,
sem hafa farið fram i Indlandi
siöan landiö varð sjálfstætt,
hefur Kongressflokkurinn
aldrei fengið yfir helming
greiddra atkvæða i öllu
landinu. I siöustu þing-
kosningum, þegar Kongress-
flokkur Indiru hlaut tvo þriöju
hluta þingsætanna, fékk hann
ekki nema 43,6% af heildar-
magni greiddra atkvæöa.
Kosiö er i einmennings-
kjördæmum og naut Kon-
gressflokkurinn yfirleitt þess,
aö andstæöingar hans voru
svo sundraðir, aö frambjóö-
endurhans náöu kosningu þótt
þeir næöu oftast ekki helmingi
atkvæöanna i viökomandi
kjördæmum.
Ef flokkur Indiru á aö veröa
öruggur um sigur nú, þegar
borgaralegir andstæöingar
hans eru sameinaðir, þarf
hann helzt aö fá a.m.k.
helming greiddra atkvæöa eöa
meira fylgi en nokkru sinni
fyrr.
ÞAÐ ER talinn Indiru
slæmur fyrirboði, aö fundar-
sókn hefur veriö mjög góö hjá
andstæðingum hennar. Þaö
var hún reyndar einnig hjá
andstæðingum Bhuttos.
Annaö, sem ekki spáir heldur
góöu fyrir Indiru, er aö fleiri
og fleiri af fyrri áhrifa-
mönnum i flokki hennar hafa
gengiö til liös viö Ram, fyrrv.
landbúnaöarráöherra, sem
varð fyrstur af forustu-
mönnum flokksins til aö
snúast gegn henni. Hann og
fylgismenn hans leggja
megináherzlu á aö deila á
Indiru fyrir aö hafa gripiö til
neyðarástandslaganna og
haldið uppi einræöisstjórn i
skjóli þeirra i 19 mánuöi.
Þetta hafi verið óþarft, en
þetta sé hins vegar glögg vls-
bending um þaö, sem koma
muni, ef Kongressflokkurinn
vinnur kosningarnar. Þá muni
Indira og Sanjay, sonur
hennar, taka sér einræöisvald.
Indira hafi meö þessu
einræöisbrölti slnu sameinaö
andstæöinga sina, en þaö hafi
verið taliö óhugsandi áöur.
Þaö má segja, aö þetta sé
aöalatriöiö i ræöum andstæö-
inga Indiru Þeir leggja allt
kapp á, aö kosningarnar
snúist um einræöishneigö
hennar og ræöa þvi minna um
einstök málefni, enda eru þeir
ósammála um flest þeirra. Þá
beina þeir mjög spjótum
sinum gegn Sanjay og deila
hart á kenningar hans um aö
draga beri úr fólksfjölgun. Sá
má 1 f1utningur fellur
Múhameöstrúarmönnum vel i
geð, en þeir eru um 70
milljónir i Indlandi.
Múhameöstrúarmenn eru
mjög andvigir takmörkun
barneigna, einkum vönun.
Fyrir Indiru var þaö
verulegur hnekkir, þegar
fööursystir hennar, Vijaya
Lakshmi Pandit, snerist gegn
henni og mætti á stórum úti-
fundi i New Delhi, þar sem
hún deildi hart á einræöis-
hneigð bróöurdóttur sinnar
Pandit hefur notiö mikils álits,
en heldur kalt hefur veriö milli
hennar og Indiru aö undan-
förnu.
ÞAÐ skortir ekki á, aö
Indira reyni aö veita and-
stæöingum sinum hart
viönám. Hún segir þaö
afsanna bezt ásakanir um
einræðishneigö hennar, aö hún
hafiefnttilkosninga einsfljótt
og hægt var. Jafnframt ver
hún af kappi þá ákvöröun sina
aö gripa til neyöarástands-
laganna og bendir á þann
árangur, sem hafi náöst
meöan þau voru i gildi. Þannig
leggur hún aöaláherzlu á
sundurlyndi andstæöinga
sinna. Þeir hafi aö visu
sameinazt gegn henni i kosn-
ingunum, en þeir eigi hins
vegar ekki neitt sameiginlegt,
ef þeirættu að fara aö stjóma.
Þá myndi skapast hreint
upplausnarástand i landinu og
þá fyrst myndi skapazt
jarövegur fyrir einræöi og
harðstjórn. Andstæöingar
Indiru reyna aö mæta þessum
áróöri, en sá málflutningur
þeirra viröist ekki sann-
færandi. Þess vegna leggja
þeir meira kapp á aö vara viö
einræöishneigö hennar.
En þótt Indira standi sig all-
vel i kosningabaráttunni,
bendir sitthvaö til aö hún
standi höllum fæti. Minni
aösókn er aö fundum hennar
en venýulega hefur verið.
Spádómur margra ganga
gegn henni. Hún veröur aö
treysta á, aö þá sé ekki að
marka frekar en spádómana
um fall Bhuttos.
Þ.Þ.
Jagjiwan Ram