Tíminn - 22.03.1977, Page 3
ÞriOjudagur 22. marz 1977
3
NORÐMENN HYGGJAST LEYFA VEIÐAH
Á NORSK-ÍSLENZKA SÍ LDARSTOFNINUM
SJ-ReykjavIk. — A fundinum
veröa rædd öll helztu mál, sem
varða sjávarútvegsmál Noröur-
landanna, sagöi Jón Arnalds
ráöuneytisstjóri i sjávarútvegs-
ráðuneytinu i viðtali við Tlm-
ann, en hann fór I morgun til
Kaupmannahafnar á fund sam-
starfsnefndar Norðurlandanna
um sjávarútvegsmál.
Jón fer þangað fyrir hönd
Matthiasar Bjarnasonar
sjávarútvegsráðherra, en flest-
ir sjávarútvegsráðherrar
Norðurlandanna sækja fundinn.
Auk þess fór Agúst Einarsson
frá LIÚ á fundinn.
— Dagskráin er I ellefu liðum,
sagði Jón, og er of flókið mál að
fara aö rekja hana. Þarna verð-
ur rædd afstaða gagnvart al-
þjóðanefndum og Efnahags-
bandalaginu, svo og samstarf
Noröurlandaþjóðanna.
— Þá ber eflaust á góma þá
fyrirætlun Norðmanna aö leyfa
norskum sjómönnum veiðar á
norsk-Islenzka sildarstofninum.
Húnerekkiopinbert mál ennþá.
Norges Fiskerlag hefur farið
fram á að fá að veiða 15.000 tn af
sild, og frétzt hefur að sjávarút-
vegsráöherra Norðmanna
hyggist heimila veiöar á 10.000
tn. Þaö var hins vegar rang-
hermt hér i útvarpsfréttum að
Norðmenn ætluöu aö leyfa
Rússum slldveiöar.
— Viö erum á móti þessari
fyrirætlan Norömanna og mun-
um aö sjálfsögðu láta það I ljós,
sagði Jón Arnalds ráöuneytis-
stjóri.
Trillubátaútgerð frá Dyr-
hóla-
ey
SJ-Reykjavik — Ég ætla aö
róa frá Dyrhólaey I vor og
framan af sumri og reyna að
fá i soðið fyrir byggöarlagið,
sagði Reynir Ragnarsson i
Reynisbrekku i Mýrdal i við-
tali við Timann I gær. Reynir
er búinn að fá sér plastbát,
sem rúmar um tonn af fiski,
og hyggst róa á honum frá
Kirkjufjöru. Ahugamanna-
hópur hefur bætt nokkuö veg-
inn niöur aö Dyrhólaey og
unnið hefur veriö að þvi að
rjúfa skarð niöur I f jöruna, svo
auöveldara verði að athafna
sig I lendingunni. Tveir aðrir
bátar eru i eigu Mýrdælinga,
en ekki verður róið á þeim aö
staðaldri.
Reynir Ragnarsson er
framkvæmdastjóri Ræktunar-
sambandsMýrdælinga, en var
áöur á sjó og er áhugamaður
um fiskveiðar. Nýr fiskur er
sjaldséður á borðum Mýrdæl-
inga og Vikurbúa svo eflaust
verður þessari framtakssemi
Reynis vel tekið. Ætlar Reynir
sér að sækja sjóinn við annan
-........;
«@1
■
■ ■
Stutt er á miðin frá Kirkjufjöru á Dyrhólaey, þau eru skammt undan Reynisfjalli, sem hér sést á myndinni. A þessi miö ætlar Reynir
Ragnarsson 1 Reynisbrekku að róa einhvern næstu daga. Timamynd Kóbert
mann.
Við spuröum Reyni hvernig
honum litistá hugmyndina um
álver við Dyrhólaey. Hann
vildi fátt um það segja enda
ekki timabært. Hann kvaöst
þó ekki telja aö nokkur maður
á þessum slóðum væri i raun-
inni fylgjandi álveri þótt ýms-
ir vildu kannski fórna ein-
hverju ef álveri fylgdi aö höfn
yröi gerö viö Dyrhólaey.
Guðbjartur Pálsson látinn:
„Saksóknara að
taka ákvörðun
um áframhald
r annsóknar ’ ’
— segir Erla Jónsdóttir,
fulltrúi i Sakadómi
HV-Reykjavik. — Dauði Guð-
bjarts Pálssonar hefur þau áhrif
á rannsókn okkar á fjármálum
hans, að nú er þaö ákvörðun sak-
sóknara hvort henni veröur hald-
iðeitthvaöáfram. Viðmunum að-
eins ganga frá málinu eins og það
stendur nú hjá okkur, ganga frá
skjölum og lögregluskýrslum,
sem teknar hafa verið, og senda
saksóknara. Hans ákvöröun verð-
ur aö koma til áöur en meira
verður að gert hjá þessu embætti,
sagði Erla Jónsdóttir, fulltrúi hjá
Sakadómi Reykjavikur, i viðtali
við Timann i gær.
Sem kunnugt er hefur undan-
farið staðið yfir rannsókn á
hugsanlegu f jármálamisferli
Guðbjarts Pálssonar, og hefúr
Erla haft umsjón meö þeirri
rannsókn hjá sakadómi. Viröist
rannsókn málsins nú stöövast, að
minnsta kosti i bili, þar sem Guð-
bjartur lézt á heimili sinu aöfara-
nótt mánudags.
— Ég veit ekki hvert framhald-
ið veröur að öðru leyti en þessu,
sagði Erla i gær, en þaö má benda
á, að til er embætti sem heitir
skiptaráöandi, sem fer með f jár-
mál látinna manna.
Tlminn hafði I gær samband við
Steingrim Gaut Kristjánsson,
setudómara I handtökumálinu
svonefnda, og innti hann eftir þvi
hvort lát Guöbjarts myndi hafa
einhver áhrif á gang þess, en sem
kunnugt er tengdist Guðbjartur
þvi máli sem mikilvægt vitni.
— Ég fæ ekki séð aö lát hans
hafi nein áhrif, sagði Steingrlmur
Gautur, þvi hann var búinn aö
gefa sina skýrslu og rannsóknin
beinist jú að handtöku bifreiða-
stjóra hans, en ekki handtöku
hans sjálfs.
Losun Varnarliðsins á úrgangsefnum i sjó
Slíkt verður
ekki látið
endurtaka sig
— sagði utanrikisráðherra á Alþingi í gær
MÓ-Reykjavik — Vegna
aðildar okkar að Oslóar-
samningnum og Londonar-
samningnum um varnir
gegn mengun sjávar, ber að
sækja um leyfi til losunar úr-
gangsefna i sjó til réttra yfir-
valda. Það var ekki gert þeg-
ar varnarliðið lét fleygja
hylkjum i sjóinn út af Kefla-
vík sl. fimmtudag og hefur
þessu þvi verið mótmælt,
sagði Einar Agústsson utan-
rikisráðherra á Alþingi i
gær. Tilefni þessara um-
mæla var fyrirspurn frá Gils
Guömundssyni utan dag-
skrár.
Utanrlkisráöherra sagði
aö óskað heföi verið eftir
fullri greinargerö um þetta
mál frá varnarliöinu, og var
hún væntanleg I gær. Erfitt
væri að gera málinu full skil
fyrr en hún hefði borizt.
Utanrikisráöherra tók skýrt
fram, að þetta tilvik yrði
kannað nánar og komið I veg
fyrir að slikt endurtæki sig.
Ólafur Jóhannesson dóms-
málaráöherra sagði að ekki
hefði verið haft samband við
Landhelgisgæzluna út af
þessu máli, og hún hefði ekki
gefið neitt leyfi til þess aö
fleygja þessum efnum I sjó-
inn, enda væri það ekki i
verkahring gæzlunnar að
gefa sllkt leyfi.
Þjóðaratkvæði um
afnám prestkosninga
Mó-Reykjavik — Lögð hefur
veriö fram á Alþingi tillaga til
þingsályktunarum að fela rlkis-
stjórninni að láta fara fram
þjóðaratkvæði jafnhliöa næstu
alþingiskosningum um þaö,
hvort afnema skuli beinar og al-
mennar prestkosningar. Flutn-
ingsmenn tillögunnar eru Þor-
valdur G. Kristjánsson forseti
efri deildar, Asgeir Bjarnason
forseti sameinaös þings og
Ragnhildur Helgadóttir forseti
neðri deildar Alþingis.
1 greinargerð með tillögunni
kemur fram, að fast hafi verið
sótt af hálfu kirkjuþings að af-
nema prestkosningar. Hins veg-
ar hafi lltiö fariö fyrir stuðningi
viö þaö mál á Alþingi og enginn
kirkjumálaráöherra hefur tekið
máliö aö sér með þvi að flytja
um það stjórnarfrumvarp
Nokkrum sinnum hafi málið þó
komiö til kasta Alþingis og ætlð
lyktað svo, aö annað hvort væri
umræðum ekki lokið eða málinu
vlsað til rikisstjórnarinnar, en
það var gert 1974.