Tíminn - 22.03.1977, Blaðsíða 18

Tíminn - 22.03.1977, Blaðsíða 18
18 Þri&judagur 22. marz 1977 Stórsigur varaliðs KR — þegar það mætti Breiðabliki í 1. deildarkeppninni í körfuknattleik ☆ Símon Ólafsson slasaðist illa Varalið KR i körfuknattleik sigraöi (105:69) Breiðablik um helgina. Einar Boliason og Birgir Guðbjörnsson — meiddir, léku ekki með KR-liðinu og þá fengu þeir Kolbeinn Pálsson og Kristinn Stefánsson ekkert aö fara inn á. Þrátt fyrir aö þessir fjórir leik- menn voru ekki með, þá voru yf- irburöir KR-liðsins miklir. Jóa- kim Jóakimsson skoraöi flest stig KR eða 29, en Gisli Gisiason 22 stig. Armenningar léku án Simons Ólafssonar, en hann meiddist illa á laugardaginn, þegar liðbönd i ökla slitnuðu, gegn Fram. Þrátt fyrir þetta áfall vann Armann sigur — 91:84 og átti Atli Arason stærstan þátt i honum — skoraöi 22 stig. Njarðvikingar unnu (105:60) Val með yfirburöum. Kári Mariusson var gömlu félög- unum sinum úr Val erfiöur hann skoraöi 29 stig. Valsmenn létu þetta tap ekki á sig fá, þegar þeirsvo mættu Blik- unum — sigruðu örugglega 103:67. Ríkharður Hrafnkelsson skoraði þá 32 stig fyrir Val. Skíðafólk frá Akur- eyri sigur- sælt — í punktamótinu Akureyringar, urðu sigursælir i punktamótinu á sklðum, sem fór fram i Bláfjöllum um helgina. Haukur Jóhannsson varð sigur- vegari i stórsvigi og alpatvi- keppni karla, en félagi hans — Arni óðinsson — varð sigurvegari i svigi. Margrét Baldvinsdóttir varö sigurvegari I alpatvikeppni kvenna. Ung stúlka frá Reykjavik vakti athygli — það var hin 14 ára Asdis Alfreösdóttir, sem varð sigurveg- ari i svigi, en Kristin Olfsdóttir frá Isafirði varð sigurvegari i stórsvigi. Annars urðu úrslit þessi i punktamótinu: á skíðum í Bláfjöllum Konur: Stórsvig: Kristin Úlfsd. Isaf...125.96 Margrét Baldvinsd. A..126.01 Guðrún Leifsd. Akureyri... 126.85 Svig: Asdis Alfreðsd. Rvik..134.57 Margrét Baidvinsd. A..136.77 Marla Viggósd.Rvik.. 141.62 Karlar: Stórsvig: Haukur Jóhanns Akureyri 118.79 Hafþór Júlluss. Isaf.119.46 Einar V. Kristjánss. Isaf. .. 120.56 Svig: ArniÓðinsson,Akureyri ...113.88 Valur Jónatanss. Rvik.114.50 Haukur Jóhannss. Akureyri 116.09 Jóhann sigursæll Jóhann Kjartansson badmint- onspilarinn ungi úr TBR varö sig- ursæll á „úrtökumótinu” sem fór fram um helgina á Akranesi. Jd- ITann tryggði sérrétt tilaö keppa I HM-keppninni I Sviþjóð, með þvl að leggja alla andstæöinga sína aö velli. Hann sigraöi tslands- meistarann Sigurö Haraldsson, sem Einnig keppir I HM, I úrslita- leik — 15:11 og 15:13. HAUKUR JÓHANNSSON. Keflvíkingar í æfingabúðir til Englands ★ Víkingar hafa gert tveggja ára samning við Bill Haydock ★ Kristinn opnaði markareikning sinn uppi á Skaga ★ Ingi Björn og Guðmundur á skotskónum Keflvlkingar hafa nú ákveöiö aösenda 1. deildarlið sitt I knattspyrnu til Englands um páskana, þar sem leikmenn liðsins verða I æfingabúðum I London um viku tlma. — Þetta er liður I undirbúningi okkar fyrir bar- áttuna I sumar, sagði Jón Ólafur Jónsson, formaður Knattspyrnuráðs Keflavikur, I stuttu spjalli við Tlmann. Keflvikingar fara með 25 manna hóp til Lundúna 1 boði ut- andeildarliðsins Maiden.head, sem hefur aðstööu i útjaðri Lond- on. Keflvikingar fá góða aðstöðu til að æfa daglega, og þar að auki leikur liðið þrjá æfingaleiki — gegn Maidenhead og 3. deildarlið- inu Reading, en ekki er búið að á- kveða mótherjana i þriðja leikn- um. Þar sem viö erum að byggja upp nýtt lið, sjkipað ungum leik- mönnum, ákváðum við að senda liðið i æfingabúðir, þar sem leik- mennirnir fá tilvaliö tækifæri til aö kynnast betur og æfa við topp-aðstæöur, sem viö getum ekki boöið upp á strax, þar sem grasvöllurinn okkar er ekki til- búinn fyrir átök sumarsins, sagði Jón ólafur. KEFLVIKINGAR léku gegn Breiðabliki i Litlu-bikarkeppninni á laugardaginn i Kópavogi, Leiknum sem fór fram á erfiöum velli, lauk með jafntefli 1:1. Kefl- vikingar áttu mun meira i leikn- um, sem bauö upp á tvö mörk frá ódýramarkaðnum. Blikarnir urðu fyrri til að skora — Heiöar Breiðf jörð skoraöi með máttlausu skoti, sem hoppaði inn i mark Keflvikinga. Goerg „Bangsi” Georgsson jafnaöi siöan fyrir Keflvikinga, þegar hann fékk knöttinn frá ólafi Hakonarsyni, markverði Blikanna, sem tók út- spark. ólafur spyrnti knettinum frám — hann hafnaði fyrir fram- an „Bangsa”, sem spyrnti honum strax að marki Blikanna. Knött- urinn fór yfir Ólaf, sem var kom- inn of framarlega — og hafnaði i markinu. VíKINGARhafa gert tveggja ára samning við þjálfara sinn Billy Haydock. Þetta hefur vakið þó nokkra athygli, þvi að þetta er I fyrsta skipti sem Islenzkt knatt- spyrnulið gerir svo langan samning við þjálfara — yfirleitt hefur aðeins veriö samið um eitt ár I einu. Vikingar léku æfingaleik gegn unglingalandsliöinu á sunnudag- inn, og lauk leiknum, sem var mjög harður — með sigri (1:0) Vikinga. Lárus Jónsson skoraði mark Vikings. KRISTINN BJÖRNSSON.fyrrum leikmaður Valsliðsins, opnaði markareikning sinn hjá Skaga- mönnum, þegar þeir unnu sigur (3:1) yfir FH-ingum i Litlu-bikar- keppninni, þegar liðin mættust uppi á Akranesi á laugardaginn. Kristinn skoraði fyrsta mark leiksins, sem var leikinn á frekar slæmum velli — blautum og þungum. Skagamenn voru betri aðilinn I leiknum og sýndu þeir oft skemmtileg tilþrif — sérstaklega Pétur Pétursson.sem er nýkom- inn frá Glasgow, þar sem hann æfði með Glasgow Rangers. Pét- ur skoraöi2 mörk I leiknum. ólaf- ur Danivaldsson skoraöi mark FH-inga. Þess má geta að Jón Þorbjörnsson, fyrrum leikmaöur Knatt- spyrnu punktar KRISTINN.... skoraöi gott mark uppi á Skaga. Þróttar, lék í marki Skagamanna og varði vel. GEORGE KIRBY.þjálfari Akur- nesinga er væntanlegur til lands- ins nú I vikunni. Ingi Björn Albertsson og Guð- mundur Þorbjörnsson voru held- ur betur á skotskónum þegar Valsmenn unnu stórsigur (8:0) yfir Haukum i æfingaleik á laug- ardaginn. Þeir skoruöu 4 mörk hvor. Valsmennmæta Akurnesingum I fyrsta leik Meistarakepppni K.S.l. i kvöld á Melavellinum kl. 8.30- Porbergur sýndi góða leiki — með unglingalandsliðinu Unglingalandsliðið I handknatt- leik, skipað leikmönnum undir 21 árs aldri, stóð sig ágætlega I keppnisferð I V-Þýzkalandi um helgina, þar sem liöið lék tvo landsleiki gegn V-Þjóðverjum, tslenzku strákarnir töpuðu þeim báðum — fyrst 15:18 og siðan 7:14. Fyrri leikurinn var afar jafn og var staöan nær alltaf jöfn ■ upp I 13:13, en þá náðu V- Þjóöverjar að sýna góða kafla og sigruðu á lokasprettinum — 18:15. Þorbergur Aðalsteinsson úr Vikingi vakti mikla athygli i þessum leik — skoraði 8 mörk, en hann var tekinn úr umferð i siðari hálfleiknum. Konráð Jónsson (Þrótti) skoraði 4, en Steindór Guðmundsson (Val) 2 og Hannes Leifsson 1. Mörkin i siðari leiknum skoruðu: Þor- bergur 3, Slmon Unndórsson (KR) 2, Hannes 1 og Gústaf Björnsson (Fram) 1. 11 NÝ ÍSLANDSMET í sundi sáu dagsins ljós á Meistara móti íslands um helgina Það var sannkallað meta- regn í Sundhöll Reykjavík- ur um helgina, þar sem AAeistaramót Islands í sundi fór fram. Hvorki meira né minna en 11 Is- landsmet fengu þó að sjá dagsins Ijós, og þar að auki var eitt met jafnað. Þórunn Alfreðsdóttir (Ægi) setti 3 met. Hún byrjaöi meistaramótið með þvi að setja met I 800 m skriðsundi — 9:51.2 min. Þá setti hún einnig met i 400 m fjórsundi (5:24.9) og slöan i 400 m skriösundi — 4:46.4 mln. Siguröur ólafsson (Ægi) setti met i 400 m skriðsundi — 4:16.0 min., og siðan jafnaði hann met Finns Garöarssonar i 100 m skrið- sundi, þegar hann synti vega- Iengdina á 54.9 sek. Bjarni Björnsson (Ægi) setti met I 200 m baksundi — 2:23.2 og sló þar með út sex ára met Guö- mundar Gislasonar. Sonja Hreiöarsdóttir (Ægi) setti met I 200 m bringusundi — 2:50.5 min. Axel Alfreðsson (Ægi) setti met i 400 m fjórsundi, þegar hann synti vegalengdina á 4:55:6 min. Þá voru sett met I öllum boö- sundunum. Kvennasveit Ægis i 4x100 m fjórsundi (5:00.7) og 4x100 m skriðsundi — 4:30.6 min. Þá setti karlasveit Ægis met i 4x100 m fjórsundi (4:19.5) og 4x200 m skriðsundi — 8:21.3. ÞÓRUNN ALFREÐSDÓTTIR. SIGURÐUR ÓLAFSSON.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.