Fréttablaðið - 12.02.2006, Side 8
8 12. febrúar 2006 SUNNUDAGUR
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00-18.00 og laugardaga kl. 12.00-16.00
SKIPT_um væntingarPATROL
NISSAN
ENDIST ENDALAUST
Veiðikortið 2006 fylgir
öllum 4x4 Nissan bílum
Patrol Luxury Beinskiptur 3.990.000 kr.
Patrol Luxury Sjálfskiptur 4.090.000 kr.
Patrol Elegance Beinskiptur 4.390.000 kr.
Patrol Elegance Sjálfskiptur 4.490.000 kr.
Tegund Verð
Rúmgó›ur og árei›anlegur vinnufljarkur sem hefur s‡nt
og sanna› a› hann á heima á Íslandi. Nissan Patrol er
einfaldlega alvöru jeppi fyrir alvöru fólk!
33" dekk, toppbogar og dráttarbeisli
250.000 kr. kaupauki
Bíll á mynd er 35" breyttur
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
1 dálkur x 100mm
Allt til
flutninga
����������������������������
Kerrur
�����������
SKYNDIHJÁLP Guðrún Björk Sigur-
jónsdóttir, skjalavörður á Lækna-
setrinu í Mjódd, var í gær útnefnd
skyndihjálparmaður Rauða kross-
ins árið 2005.
Guðrún bjargaði þriggja ára
dreng og stúlku frá drukknun
þegar þau lentu í sjónum skammt
frá Grundarfirði á Snæfellsnesi.
Guðrún hafði tvisvar sinnum farið
á skyndihjálparnámskeið og telur
hún það hafa skipt sköpum. „Við
vorum á gangi í fjörunni og ég leit
út á sjóinn og sá höndina á strákn-
um og gerði mér grein fyrir því að
mikil hætta var á ferðum.“
Guðrún fann strax fyrir mikilli
ónotatilfinningu þegar hún gerði
sér grein fyrir að því krakkarnir
tveir væru augljóslega í lífshættu.
„Ég óð út í og tíu ára gömul dóttir
mín kom á eftir mér og tók strák-
inn, sem var með meðvitund, í
fangið og óð með hann í land. Ég
náði svo í stúlkuna og gerði mér
strax grein fyrir því að hún andaði
ekki. Ég byrjaði því að blása eftir
þeim aðferðum sem ég hafði lært
á námskeiðunum. Til allrar ham-
ingju byrjaði hún að anda aftur.“
Lögregla og björgunarlið kom
síðan fljótt á staðinn og flutti
krakkana tvo á sjúkrahús. Guðrún
er sannfærð um að skyndihjálpar-
námskeiðin hafi bjargað manns-
lífi í þessu tilfelli. „Það skiptir
miklu máli að geta beitt réttum
aðferðum þegar að þessu kemur
og ég hvet alla til þess að sækja
skyndihjálparnámskeið.“ -mh
Guðrún Björk Sigurðardóttir skyndihjálparmaður ársins:
Bjargaði dreng og
stúlku frá drukknun
GUÐRÚN BJÖRK SIGURJÓNSDÓTTIR TEKUR VIÐ VERÐLAUNUM Guðrún er hér ásamt Birni
Bjarnasyni, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Mareyju Þóru Guðmundsdóttur, Írenu Líf
Hafsteinsdóttur og Þóru Björgu Ingvarsdóttur, sem Guðrún bjargaði. FRÉTTABLAÐIÐ/
KJARAMÁL Á átt-
unda hundrað
starfsmanna Akur-
eyrarbæjar fengu
greidda allt að 12 til
13 prósenta launa-
hækkun um síð-
ustu mánaðamót en
hækkunin gildir frá
1. janúar. Kristján
Þór Júlíusson bæjarstjóri segir að
Akureyrarbær sé fyrsta sveitarfé-
lagið sem greiðir starfsmönnum
launahækkun sem byggir á heim-
ild launanefndar sveitarfélaga um
tímabundnar launaviðbætur við
gildandi samninga.
Alls taka launabreytingarnar
til um 1.200 starfsmanna bæjarins
en þeir sem ekki fengu hækkunina
greidda um síðustu mánaðamót
eiga von á henni um miðjan mán-
uðinn þegar þeir fá greidd hefð-
bundin laun.
Launahækkanirnar eru mis-
miklar eftir starfsstéttum en
lægstu launin hækka mest. Kostn-
aður bæjarins í tengslum við
launabreytingarnar er áætlaður
um 200 milljónir króna. - kk
Launahækkanir taka gildi hjá Akureyrarbæ:
Laun tólf hundruð
starfsmanna hækka
KRISTJÁN ÞÓR
JÚLÍUSSON
STÚDENTAPÓLITÍK Forsvarsmenn
Háskólalistans hafa hug á því að
halda áframhaldandi breiðfylk-
ingu í Stúdenta- og háskólaráði
Háskóla Íslands. Háskólalistinn
er áfram í oddastöðu eftir kosn-
ingarnar sem fram fóru í vikunni,
en Vaka og Röskva fengu fjóra
fulltrúa kjörna og Háskólalistinn
einn. Aðeins fjórum atkvæðum
munaði að Vaka næði hreinum
meirihluta.
Í tilkynningu frá Háskólalist-
anum segir að stefnt sé að áfram-
haldandi breiðfylkingu. „Stúd-
entaráðsliðar Háskólalistans hafa
engan áhuga á því að útiloka ann-
aðhvort hvort Vöku eða Rösku frá
virku starfi í stúdentaráði með því
að mynda meirihluta með annarri
hvorri fylkingunni. Háskólalist-
inn vill virkja alla fulltrúa stúd-
enta með því að mynda meirihluta
með báðum fylkingunum,“ segir í
tilkynningunni. -mh
Samstarf allra samtaka í HÍ:
Breiðfylking
áfram við völd