Fréttablaðið - 12.02.2006, Page 12
12. febrúar 2006 SUNNUDAGUR12
timamot@frettabladid.is
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
Soffía Jónsdóttir
Dalbraut 27, áður Laugarásvegi 41,
verður jarðsungin frá Áskirkju mánudaginn 13. febrúar
kl. 13.00.
Gylfi Sigurjónsson Valgerður Ólafsdóttir
Sif Gylfadóttir Haraldur Sigurjónsson
Sigurjón Gylfason
og langömmubörn.
IMMANUEL KANT (1724-1804)
LÉST ÞENNAN DAG.
„Það er ekki aðeins vilji
guðs að við séum ham-
ingjusöm, heldur að
við gerum okkur sjálf
hamingjusöm.“
Immanuel Kant var þýskur heim-
spekingur.
Á þessum degi árið 1999, eftir
fimm vikna lögsókn, ákvað
öldungaþing Bandaríkjanna að
sýkna Bill Clinton Bandaríkjafor-
seta af ákærum um meinsæri og
því að hafa hindrað réttlætið.
Í nóvember árið 1995 hóf
Clinton framhjáhald með Monicu
Lewinsky, 21 árs lærlingi í Hvíta
húsinu. Samband þeirra varði í
eitt og hálft ár en í apríl árið 1996
var Lewinsky flutt yfir í Pentagon.
Það sumar trúði hún samstarfs-
konu sinni, Lindu Tripp, fyrir því
sem gerst hafði. Sú brást við með
því að taka upp öll samtöl þeirra
vinkvenna.
Á svipuðum tíma ákærði Paula
Jones forsetann fyrir kynferðis-
lega áreitni. Lögfræðingar hennar
reyndu að fá Lewinsky til liðs við
sig en hún neitaði því að hafa átt
í sambandi við forsetann. Þá gaf
Linda Tripp sig fram við Kenneth
Starr, sem sá um rannsókn máls-
ins, til að ræða upptökurnar sem
hún hafði í fórum sínum. Lewin-
sky var yfirheyrð og lofað friðhelgi
ef hún játaði, sem hún gerði.
Clinton neitaði staðfastlega
öllum ásökunum þar til vitnis-
burður Lewinsky var gerður opin-
ber. Þá játaði hann brot sitt.
Að fimm viknum liðnum tók
öldungaþingið ákvörðun um
hvort víkja ætti forsetanum úr
embætti. Mikill meirihluti var þó
á móti því og Clinton var sýknað-
ur af öllum sökum.
ÞETTA GERÐIST > 12. FEBRÚAR 1999
Clinton fundinn saklaus
BILL CLINTON
MERKISATBURÐIR
1912 Síðasti keisari Kína afsalar
sér völdum.
1918 Útgáfa Dags á Akureyri
hefst.
1924 Verk tónskáldsins George
Gershwin, Rhapsody in
blue, er frumflutt í New
York.
1940 Staðfest eru lög um friðun
Eldeyjar undan Reykjanesi.
1986 Mannréttindasinnanum
Anatoly Scharansky er
sleppt úr haldi í Sovétríkj-
unum eftir átta ára fangels-
isvist.
1989 Rafmagn fer af öllu landinu.
Sums staðar kemst straum-
ur ekki á fyrr en eftir tvo
sólarhringa.
1994 Málverkinu Ópinu eftir
Edward Munch er stolið af
listasafni í Osló.
Kaupfélag Eyfirðinga tók í gær í notk-
un nýtt firmamerki og nýja vefsíðu en
hvoru tveggja er ætlað að endurspegla
nýjar áherslur í starfi félagsins. KEA
er ekki lengur verslunar- og fram-
leiðsluveldi heldur öflugt fjárfest-
ingafélag sem ætlað er að vinna í þágu
eigendanna, félagsmanna, að eflingu
atvinnulífs og bættum búsetuskilyrð-
um á starfssvæði félagsins. Starfs-
mannafjöldi KEA slagar ekki lengur í
eitt þúsund, eins og þegar starfsmenn
félagsins voru flestir, heldur eru þeir
aðeins fjórir. Í lok þessa mánaðar
munu félagsmenn í KEA fá í pósti fríð-
indakort sem veita mun þeim afslætti
hjá samstarfsaðilum KEA og í vor mun
félagið flytja skrifstofur sínar í eigið
húsnæði.
Gamli KEA-tígullinn hefur verið
fjarlægður af skrifstofuhúsnæði
KEA og gylltur ferningur kominn í
hans stað. Halldór Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri KEA, segir að ekki sé
vitað hver hannaði gamla KEA-merkið
en það var áberandi í miðbæ Akureyr-
ar og hluti af bæjarmyndinni í rúm 75
ár. „Við höfum reynt ákaft að grafa upp
hver hannaði merkið og erum með tvö
nöfn sem koma hugsanlega til greina
en vantar staðfestingu.“
Bakgrunnur KEA-tígulsins var
grænn þegar hann var tekinn niður
en svo hefur ekki alltaf verið. „Tígull-
inn hefur verið í ýmsum litum í gegn-
um tíðina, til dæmis blár, svartur og
rauður. Við munum tryggja að merkið
falli ekki í gleymsku því ætlunin er að
koma upp eins konar minjasafni um
langa og mikilvæga sögu KEA. Félag-
ið var stofnað fyrir 120 árum og saga
þess, fram til 1986, hefur verið skráð
og gefin út og á döfinni er að láta skrá
sögu KEA frá 1986 til 2002,“ segir
Halldór.
Nýja merkið var hannað af Ásprenti
Stíl á Akureyri en það er gylltur fern-
ingur á ljósum grunni. „Merkið getur
haft margvíslega skírskotun og líta
má á ferninginn sem ramma utan um
félagssvæðið og félagsmenn. Gyllti
liturinn táknar traust og fjárstyrk,“
segir Halldór.
Ný vefsíða KEA var einnig hönnuð
af Ásprenti Stíl en hún er í senn einföld
og stílhrein, líkt og merki félagsins.
Í lok febrúar fer fríðindakort KEA
í dreifingu til félagsmanna en það
mun veita þeim margvíslega afslætti.
„Félagsmenn í KEA eru núna um
10.500 og hefur fjölgað um 3.000 frá
því í nóvember. Félagsmenn fá KEA-
kortið sent í pósti og verður það þeim
að kostnaðarlausu,“ segir Halldór.
Skrifstofur KEA eru í húsnæði sem
er í eigu Stoða en með vorinu verða
skrifstofurnar fluttar. „Við munum
væntanlega fara í húsnæði sem stend-
ur að Glerárgötu 36 og er í eigu KEA
en þar verður rýmra um starfsmenn
félagsins en í því húsnæði sem við nú
erum í,“ segir Halldór. kk@frettabladid.is
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA: KVEÐUR FORNA ÍMYND
Frá fortíð til framtíðar
NÝTT UPPHAF Á LANGRI SÖGU Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA telur að gamla merki félagsins muni ekki falla í gleymsku. Ætlunin er að koma
upp einskonar minjasafni um langa sögu KEA en félagið var stofnað fyrir 120 árum. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
Klassísk messa með greg-
orslagi verður haldin í Hall-
grímskirkju í kvöld klukkan
20.00. Lux Aeterna, áhuga-
hópur um klassíska messu
og iðkun gregorssöngs,
stendur fyrir slíkum mess-
um með gregorslagi annan
sunnudag hvers mánaðar í
Hallgrímskirkju og er kynn-
ing og æfingar á messunum
hálfri klukkustund fyrir
messuna sjálfa eða klukk-
an 19.30. Hópurinn kallar
til ýmsa presta en að þessu
sinni mun Kristján Valur
Ingólfsson sjá um helgiþjón-
ustu.
Klassísk messa
með gregorslagi
HALLGRÍMSKIRKJA Gregorssöngur
mun hljóma um kirkjuna í kvöld.
Jón B. Jónasson lögfræð-
ingur og skrifstofustjóri
í sjávarútvegsráðuneyt-
inu verður skipaður ráðu-
neytisstjóri sjávarútvegs-
ráðuneytisins og tekur við
starfinu þegar Vilhjálmur
Egilsson lætur af því 15.
mars næstkomandi. Jón
hóf störf í ráðuneytinu árið
1974 og hefur verið skrif-
stofustjóri í ráðuneytinu í
25 ár og staðgengill ráðu-
neytisstjóra.
Vilhjálmur hættir
VILHJÁLMUR HÆTTIR Vilhjálmur Egilsson lætur af starfi ráðuneytisstjóra
þann 15. mars.
AFMÆLI
Franz Gunnarsson
tónlistarmaður er
31 árs
Védís Jónsdóttir
tískuhönnuður er
41 árs
Mjöll Snæsdóttir
fornleifafræðingur er
56 ára
María Guðmunds-
dóttir ljósmyndari er
64 ára
Baldvin Tryggvason
fyrrverandi sparisjóðs-
stjóri er áttræður
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1809 Abraham Lin-
coln Bandaríkjaforseti
1809 Charles Darwin
náttúrufræðingur
1567 Thomas Camp-
ion tónskáld
Bridgehátíð Bridgesam-
bands Íslands hefst mið-
vikudaginn 15. febrúar
með stjörnutvímenningi á
Hótel Loftleiðum. Þar taka
þátt erlendir boðsgestir
auk valinna íslenskra para,
landsliðspör og fyrrverandi
heimsmeistarar.
Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra setur
tvímenning Bridgehátíðar
fimmtudaginn 16. febrúar
klukkan 19.00. Sveitakeppni
hefst á laugardaginn en
mótinu verður slitið sunnu-
daginn 19. febrúar.
122 pör og 64 sveitir hafa
skráð sig til leiks að þessu
sinni en aldrei hafa fleiri
erlendir keppendur komið
á eigin vegum. Fimmtíu
til sextíu keppendur koma
frá Danmörku, Svíþjóð,
Noregi, Bandaríkjunum og
Englandi.
Bridgehátíð 2006
hefst í vikunni
SPÁÐ Í SPILIN Bridgehátíð 2006
hefst í vikunni.