Fréttablaðið - 12.02.2006, Page 16
12. febrúar 2006 SUNNUDAGUR16
Mikið hefur verið rætt
um ofbeldi í miðbæ
Reykjavíkur enda ber-
ast okkur sífellt fleiri
fregnir af hrottafengn-
um ofbeldisbrotum
þaðan. Lögreglan segir
hins vegar að ofbeldis-
brotum í miðbænum
hafi fækkað stöðugt frá
árinu 2000.
Jón Sigurður Eyjólfsson
og Haraldur Jónasson
kíktu á næturlífið á
laugardagskvöldi og
urðu vitni að líkams-
árás. Þeir könnuðu
viðbrögð lögreglu og
viðbúnað hennar.
Nýleg rannsókn, sem Rann-veig Þórisdóttir, Helgi Gunnlaugsson og Vilborg
Magnúsdóttir gerðu fyrir Ríkis-
lögreglustjóra og Háskóla Íslands,
leiddi í ljós að mörgum stendur
stuggur af miðbæ Reykjavíkur
um helgar. Til að mynda sögðu
rúm áttatíu prósent kvenna að þær
væru óöruggar einar á gangi þar
að kvöldi og á sömu lund svöruðu
tæp 44 prósent karla. Í sömu rann-
sókn kemur fram að þátttakendur
voru almennt ánægðir með það
hvernig lögreglu hefði tekist að
stemma stigum við afbrotum í sínu
hverfi og aðeins 2,5 prósent þeirra
sem tilkynntu um ofbeldi eða
hótun gagnrýndu lögregluna fyrir
að hafa verið lengi að koma sér á
vettvang. Um síðustu helgi sagði
vaktstjóri á hjúkrunar- og slysa-
deild frá því í sjónvarpsfréttum
að ofbeldisbrotum virtist vera að
fjölga og yrðu sífellt grófari. Þetta
stangast hrapalega á við það sem
lögreglumenn sögðu Jóni Sigurði
og Haraldi sem hættu sér í bæinn
til að forvitnast um hvað það er
sem fólk óttast og gagnvart hverju
lögreglan stendur og hvernig hún
stendur sig í þeirri baráttu.
Ofbeldisbrotum hefur stórfækkað
Umræðan um ofbeldi í miðbæn-
um hefur að undanförnu frekar
hnigið að því að ofbeldisbrotum
sé að fjölga og líkamsárásir verði
sífellt grófari. Rannsóknir sýna
hins vegar að þessu sé öfugt farið.
Staðreyndin er sú að frá árinu
2000 til 2004
hefur ofbeld-
isbrotum sem
framin eru
árlega fækkað
úr 429 í 265
eða um tæp 40
prósent.
„Það er
tvennt sem
getur útskýrt
þessa fækkun
ofbeldisbrota,“
segir Geir
Jón Þórisson
yfirlögregluþjónn. „Það er ann-
ars vegar lengri afgreiðslutími
skemmtistaða og hins vegar mynd-
arvélarnar sem við höfum sett upp
hér og þar um bæinn. Nú vita menn
að við sjáum hver átti upptökin ef
slagsmál verða og við getum rakið
ferðir þeirra svo við missum þá
ekki úr sigtinu. Við í lögreglunni
hefðum því viljað sjá einhverjar
tölulegar upplýsingar frá þeim á
slysadeild sem telja að ofbeldis-
brotum hafi fjölgað og þá líka upp-
lýsingar um það hvar þau eiga sér
stað,“ bætir hann við.
Nú er unnið að því að fækka
þessum brotum enn frekar. „Hlut-
fallið milli þeirra brota sem eru
framin inni á skemmtistöðum og
þeirra sem framin eru úti virðist
vera nokkuð jafnt og nú ætlum
við að reyna að koma á samstarfi
við dyraverði og aðra sem vinna á
skemmtistöðunum til að reyna að
ná þessu enn frekar niður,“ segir
yfirlögregluþjónn.
Hættan ekki mikil í raun
Þennan laugardag sem tvímenn-
ingarnir voru í bænum bárust
lögreglunni sjö tilkynningar um
líkamsárás, þar af var ein úr
Breiðholti en hinar úr miðbænum.
Blaðamaður varð vitni af einni
þeirra en þá réðust fimm menn á
einn sem slasaðist á hné og hlaut
höfuðáverka.
Geir Jón segir þennan fjölda
tilkynninga nærri meðaltali fyrir
laugardagskvöld. „Yfir helgina eru
þessar tilkynningar oftast á bilinu
10 til 15 en af þeim eru venjulega
ekki nema fjögur til sex tilfelli
þar sem fórnarlambið fylgir mál-
inu eftir með kæru þannig að hitt
virðist vera frekar minniháttar. Ef
við tölum svo um líkamsárásir þar
sem alvarleg meiðsl hljótast af eru
þær svona ein til tvær yfir helgi,“
segir Geir Jón.
En hvað segir þá yfirlögreglu-
þjónn um miðbæinn; er hann í
raun hættulegur staður til að vera
á? „Ef einhver fer þangað og er
ekkert að skipta sér af illindum
né að stofna til þeirra þá er harla
ólíklegt að menn verði fyrir ein-
hverjum brotum. Tilefnislausar
líkams árásir eru sárafáar en þær
eiga sér þó stað. Venjulega verða
þær seint um nótt eða þegar komið
er undir morgun og iðulega eru þá
árásarmennirnir illa á sig komnir
vegna neyslu fíkniefna,“ segir Jón
Geir.
Ávallt komnir innan þriggja
mínútna
„Það eru um það bil tíu til tólf lög-
reglumenn sem sinna miðbænum
sérstaklega á laugardagskvöldum
og svo koma fleiri þar að ef þurfa
þykir,“ segir Guðmundur Pétur
Guðmundsson sem var aðalvarð-
stjóri þetta laugardagskvöld. „Þessi
nótt hefur ekki verið neitt sérlega
viðburðarík en þó eru nokkrir sem
gista fangageymslur eftir viðburði
næturinnar. Þar af einhverjir fyrir
líkamsárásir.“
Lögreglan telur að um fimm til
sjö þúsund gestir séu venjulega í
miðbænum á laugardagskvöldi.
En er þetta nægur mannsafli til
að stemma stigu við ofbeldinu sem
hlýtur að fylgja slíkum mannfjölda
sem safnast saman um vín og
glaum? „Í flestum tilfellum erum
við nógu margir. Þó koma fyrir
álgaspunktar þar sem einhver
töf verður á afgreiðslu útkalla og
er þá reynt að forgangsraða eftir
mikilvægi þeirra. En við erum
venjulega með það mikinn viðbún-
að að við eigum að vera komnir á
vettvang innan við þrjár mínútur
eftir að tilkynningin berst en auð-
vitað reynum við alltaf að koma
eins fljótt og hægt er,“ segir aðal-
varðstjórinn.
Lögreglan er ekki lengur með
fótgangandi lögregluþjóna í mið-
bænum heldur hafa myndavélarn-
ar leyst þá af hólmi. Miðbæjar-
gestir verða þó lögreglunnar varir
þar sem hún fer um bæinn á bílum
sínum, ýmist þeim stóru sem í eru
fjórir til fimm lögreglumenn eða
minni bílunum sem í eru aðeins
tveir.
Ari Schröder, sem rekur ásamt
öðrum krána Amsterdam við
Tryggvagötu, segir hins vegar að
þegar lokað sé á stöðunum þar í
kring klukkan hálf sex væri æski-
legt að hafa lögreglu sýnilega þar
um slóðir þar sem margmenni
safnist þar fyrir og oft komi þá til
slagsmála.
Í eftirlitsferð
Jón Sigurður og Haraldur slógust
því næst í för með tveimur lög-
regluþjónum sem voru í eftirlits-
ferð um miðbæinn um fjögurleyt-
ið. Ekki bar til sérstakra tíðinda
enda segja lögreglumenn að tíminn
frá hálf fjögur til hálf sex sé venju-
lega nokkuð rólegur. Þó voru höfð
afskipti af tveimur ökumönnum
og þeir látnir blása í alkóhólmæli.
Hvorugur reyndist vera ölvaður.
Í talstöðinni mátti þó heyra
að sitthvað gekk á hér og þar um
bæinn, til dæmis var kallað eftir
lögreglubíl til að huga að gangi
mála í heimahúsi en þar hafði karl-
maður verið sleginn í gólfið.
Ekki urðu tvímenningarnir
varir við fleiri ofbeldisverk þessa
nótt en heyrðu þó af því síðar að
til slagsmála hefði komið ofar-
lega á Laugavegi. Til allrar lukku
slasaðist þó enginn.
Í FANGAGEYMSLU Að sögn varðstjóra var
vaktin ekki sérlega annasöm en þó fengu
nokkrir að gista fangageymslur, meðal
annars fyrir líkamsárásir. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
STUMRAÐ YFIR ÞEIM SÆRÐA Allt er afstaðið og lögreglumenn huga að hinum særða og
koma honum svo undir læknishendur. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
VALDÍS ÓSK VALSDÓTTIR Valdís er hér að segja frá þeirri óhuggulegu reynslu sem hún
hafði upplifað fyrir utan vinnustaðinn nokkrum mínútum áður. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
LÖGREGLUMAÐUR HLEYPUR Á EFTIR JÁRNHNÚFUÐUM OFBELDISMANNI Lögreglumaður er hér á hlaupum á eftir vopnuðum árásarmanni sem hvarf svo í mannþröngina. Á meðan náðu
hinir ofbeldismennirnir fjórir að berja fórnarlambið enn frekar. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
FJÖLDI OF-
BELDISBROTA
Á SVÆÐI 101
REYKJAVÍK
1997 352
1998 381
1999 409
2000 429
2001 380
2002 368
2003 337
2004 265
Klukkan þrjú kemur til deilna fyrir utan
skemmtistaðinn Pravda. Fimm ungir
menn byrja svo að ógna manni um
tvítugt sem er einn á ferð. Hann hring-
ir í félaga sinn og segist vera í vanda
staddur en leggur svo á flótta. Fimm-
menningarnir hlaupa hann uppi á
Austurvelli og ganga í skrokk á honum.
Tveir árásarmannanna eru vopnaðir
hnúajárnum. Hringt er á lögreglu sem
er komin um mínútu síðar og eltir hún
þá vopnuðu. Blaðamaður sér annan
þeirra hverfa inn í mannþröngina við
Bankastræti en veit ekki hvað varð um
hinn. Hinir árásarmennirnir þrír fara
þá á eftir fórnarlambinu sem hugðist
koma sér undan en þeir ná honum fyrir
utan skyndibitastaðinn Quizno‘s Subs
við Lækjargötu.
Þar var Valdís Ósk Valsdóttir að
afgreiða og varð vitni að því þegar
þeir náðu fórnarlambi sínu. „Þeir kýldu
endalaust í hausinn á honum og spörk-
uðu í hann þegar hann lá niðri. Ég
hringdi strax á lögregluna og hún kom
eftir svona þrjár mínútur. En áður en
þeir komu birtust þrír vinir fórnarlambs-
ins og þá hurfu árásarmennirnir á brott
og félagarnir á eftir þeim. Ég veit ekkert
hvað varð úr því. Svo komu menn að
stumra yfir stráknum og þegar hann
hífði upp buxnaskálmina þá stóð bara
hnéskelin út,“ segir Valdis og hryllir við.
Samkvæmt upplýsingum sem
blaðamaður fékk frá kunningja fórn-
arlambsins reyndust meiðsl hans ekki
alvarleg en lögregla kom honum undir
læknishendur.
„Ég hef ekki oft séð svona áður þótt
reyndar hafi ég séð einhverja fara fram
hjá alblóðuga,“ segir Valdís eftir þessa
óskemmtilegu reynslu.
Hnéskelin stóð út
TILKYNNINGAR UM LÍKAMS-
ÁRÁSIR Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR
AÐFARANÓTT SUNNUDAGS 5.
FEBRÚAR
03.35 Austurstræti: Fimm menn ráðast á
einn sem slasast á hné og fær höfuðáverka
04.12 Lækjargata: Deilur leiða til slags-
mála
04.13 Lækjargata: Önnur slagsmál
06.10 Austurstræti: Slagsmál verða í bið-
röð við skemmtistað (sem á að vera búinn
að loka lögum samkvæmt)
06.21 Tryggvagata: Sést á myndavél að
maður er sparkaður þrisvar í höfuðið. Þiggur
ekki aðstoð þegar lögregla kemur á vett-
vang
06.30 Aðalstræti: Minni háttar pústrar
Glaumur og glæpir Reykjavíkurnætur