Fréttablaðið - 12.02.2006, Qupperneq 22
12. febrúar 2006 SUNNUDAGUR22
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík
Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Hafnarfjörður sími: 510 9500
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Bibione frá kr. 49.995 Portoroz frá kr. 58.595
Ein glæsilegasta sólarströnd Ítalíu
Planetarium Village að seljast upp!
Perlan við Adríahafið
Búlgaría frá kr. 29.990 Salou frá kr. 42.995
Sló í gegn - yfir 2.000 sæti seld Sólarperlan á Costa Dorada
Brottfarir í júní að seljast upp!
Bókaðu beint á www.terranova.is og fáðu lægsta verðið
Barcelona
Düsseldorf
París
München
Frá kr. 29.990
Tryggðu þ
ér
10.000 kr
. afslátt
á mann!
Tryggðu þér bestu
gististaðina og
lægsta verðið!
2006Sumar
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
20
34
1
Það reiðifár sem riðið hefur yfir byggðir múslima um víða veröld síðan danskt og síðar
fleiri evrópsk dagblöð birtu nokkr-
ar teikningar – þar á meðal fáeinar
háðslegar – af Múhameð spámanni
sýnir glögglega þá vaxandi spennu
sem nú ríkir milli hins íslamska
heims og Vesturlanda. Að baki
hamagangs síðustu daga og vikna er
margslungin umræða sem snertir
grundvallaratriði frjáls lýðræðis-
samfélags.
Með ógn hryðjuverka af hálfu
íslamskra öfgamanna sífellt vof-
andi yfir standa þjóðir Evrópu og
Vesturlanda frammi fyrir spurn-
ingum á borð við hvernig setja skuli
frelsinu hömlur, og hvaða menning-
arlegu gildi innflytjendum beri að
tileinka sér til að fá að setjast að í
nýju landi.
„Það er mjög erfitt fyrir frjálst
lýðræðissamfélag að eiga við öfl sem
vilja grafa algerlega undan sjálfum
undirstöðum hins frjálsa lýðræð-
issamfélags,“ segir Richard Whit-
man, sérfræðingur í Evrópumálum
við Chatham House-hugveituna í
Lundúnum.
Múslimum í Danmörku misboðið
Sá áberandi árekstur menningar-
heimanna tveggja sem deilan um
Múhameðsteikningarnar hefur leitt
af sér upphófst með því að músli-
mar í Danmörku, sem töldu að sér
vegið með birtingu teikninganna í
haust sem leið, tóku sig til og sendu
sendinefnd til Mið-Austurlanda með
teikningarnar úr Jótlandspóstinum
og fleiri gögn og sýndu þau trúar-
og stjórnmálaleiðtogum, í þeim til-
gangi að fá þá til að þrýsta á dönsk
stjórnvöld. Dönsku múslimarnir
voru óánægðir með að forsætis-
ráðherrann skyldi ekki vilja beita
ríkisvaldinu til að knýja ritstjórn
Jótlandspóstsins til að iðrast þess
opinberlega að hafa birt teikning-
arnar, en það var menningarritstjórn
blaðsins sem fékk teiknarana til að
teikna skopmyndirnar í því yfirlýsta
augnamiði að storka sjálfsritskoðun
listamanna þegar kæmi að því að
fjalla um málefni tengd íslam.
Ritstjórnin sætti margvísleg-
um hótunum frá því teikningarnar
birtust og vegna þeirra endurbirti
kristið norskt dagblað þær, í janúar,
í nafni tjáningarfrelsis. Síðan þá
hafa mjög mörg blöð birt myndirn-
ar í því yfirlýsta skyni að sýna sam-
stöðu um að standa vörð um tján-
ingarfrelsið. Reiði múslima hefur
þó mest beinzt gegn Dönum.
Eftir að yfirvöld í Sádi-Arabíu
létu málið til sín taka upp úr miðj-
um janúar og hvöttu fólk þar í landi
til að sniðganga danskar vörur
í mótmælaskyni við vanvirðuna
sem Danir sýndu spámanninum
varð fjandinn laus og það reiðibál
var tendrað sem enn logar stafna
á milli í múslimaheiminum – frá
Marokkó til Filippseyja og Evrópu
til Suður-Afríku. Reyndar hefur
verið á það bent að stjórnvöld í Sádi-
Arabíu, eða öllu heldur fjölmiðlar
þar í landi, létu ekkert í sér heyra
um málið fyrr en eftir slysið á Hajj-
pílagrímahátíðinni í Mekka um
miðjan janúar, þar sem á fimmta
hundrað frómra múslima tróðust
undir vegna skipulagsleysis yfir-
valda. Þá hafi ríkisstýrðir fjölmiðl-
ar landsins fengið fyrirmæli um að
flytja ítarlegar fréttir af Múhameðs-
teikningunum.
Aukin harka
En hvað sem líður pólitískri misbeit-
ingu málsins líta milljónir múslima,
innan sem utan Evrópu, á teikn-
ingarnar sem vísvitandi móðgun.
„Víglínan“ milli íslam og Evrópu, ef
svo má að orði komast, hefur verið
að harðna til muna á síðustu árum.
Orsakirnar fyrir því liggja víða og
ná bæði til þróunar á alþjóðasviðinu
og heima fyrir.
Í niðurníddum úthverfablokkum
Parísar, í hinu fjölmenna samfélagi
pakistanskra innflytjenda í Leeds
á Englandi og víðar þar sem fjöl-
mennir hópar múslima hafa setzt
að í Evrópu, hefur atvinnuleysi,
misrétti og vonleysi ræktað þá til-
finningu meðal þessa fólks að það
sé óvelkomið og utangátta. Reiði
vegna hernaðar Bandaríkjamanna
og bandamanna þeirra í múslima-
löndunum Afganistan og Írak, hörð
afstaða Evrópumanna til kjarnorku-
áætlunar Írana og hin viðvarandi
óleysta deila Palestínumanna og
Ísraela kynda undir þessari kraum-
andi óánægju.
Ótvírætt er jafnframt að öfga-
öfl hafa gripið tækifærið og kynt
undir múgæsingu vegna teikning-
anna, svo sem í Sýrlandi og Pak-
istan. Lögregla stóð aðgerðalaus
hjá þegar múgur kveikti í danska
sendiráðinu í Damaskus. Í Afgan-
istan og Írak leikur ekki vafi á því
að uppreisnarmenn reyna að nýta
sér reiði múslima vegna Múha-
meðsteikninganna til að espa fólk
til ofbeldisverka gegn erlendum
hermönnum. Í Íran nýta ráðamenn
sér reiðina til að undirstrika óvin-
aímynd Vesturlanda. Svipað geng-
ur einræðisstjórninni í Sýrlandi til
þegar hún lætur hömlulaus skríl-
slæti viðgangast gegn sendiráðum
vestrænna ríkja. Og þannig mætti
lengi telja.
Hófsamir áhyggjufullir
Hófsamir múslimar hafa hins vegar
skiljanlega áhyggjur af því að þessi
skrílslæti ýti enn undir þá neikvæðu
ímynd sem margir Vesturlandabúar
hafi af íslam og múslimum.
„Það er nógu slæmt að við séum
stimplaðir hryðjuverkamenn,“
hefur AP-fréttastofan eftir Farah
al-Bahili, tvítugum námsmanni í
Sádi-Arabíu. „Hvers vegna vilja
þessir mótmælendur að fólk á
Vesturlöndum klíni á okkur öðrum
stimpli: villimenn?“
Magnus Ranstorp, sem hefur
stundað rannsóknir á því hvernig
al-Kaída-hryðjuverkanetið virkjar
nýja menn til liðs við sig í Evrópu,
tjáði AP: „Þessar bylgjur alþjóð-
legra átaka sem eru óleyst kynda
undir þessari reiði, ásamt því að
innflytjendur hafa ekki aðlagast
nýjum heimkynnum sínum sem
hefur leitt til „gettóíseringar“
stórra hópa múslima í Evrópu.“
Myndirnar hafa vakið óhug: æstur múgur gengur
berserksgang í brunarústum dansks sendiráðs. Þús-
undir reiðra múslima brenna danska fána og kalla
eftir hryðjuverkum í Kaupmannahöfn. Á spjaldi sem
breskur múslimi veifar stendur: „Hálshöggvum þá
sem móðga íslam.“ Auðunn Arnórnsson skoðar árekst-
ur menningarheima.
REIÐI Í GARÐ VESTURLANDA Reiðir múslimar í Teheran brenna þjóðfána Danmerkur og Bandaríkjanna í mótmælum vegna Múhameðsteikninganna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Árekstur Evrópu og íslams ágerist