Fréttablaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 26
ATVINNA
2 12. febrúar 2006 SUNNUDAGUR
Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 11,
101 Reykjavík, sími: 411 5000, fax: 411 5009,
netfang: itr@itr.is, vefslóð: www.itr.is
Umsjónarmaður frístundaheimilisins
Denna dæmalausa við Seljaskóla
100% starf.
Ábyrgð/starfssvið umsjónarmanns
• Umsjón með frístundaheimili fyrir 6-9 ára börn
• Stuðla að því að börn á frístundaheimilinu fái að njóta sín
og þroska félagslega færni í samskiptum í gegnum leik og
starf eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur
• Önnur verkefni tengd tómstundastarfi í hverfinu
Menntunar og/eða hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á uppeldissviði eða önnur
sambærileg menntun
• Góð reynsla af starfi með börnum
• Áhugi á frítímauppeldi/frístundastarfi
• Skipulögð og fagleg vinnubrögð
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Að vera fær um að skapa liðsheild í starfsmannahópi
• Góð almenn tölvukunnátta
Umsóknum skal skilað til frístundamiðstöðvarinnar Miðbergs,
Gerðubergi 1, 111 Reykjavík eða á neðangreint netfang, merkt
„Umsjónarmannastarf, mars 2006”. Umsóknarfrestur er til
26. febrúar n.k. Nánari upplýsingar veitir Sóley Tómasdóttir,
deildarstýra barnastarfs í Miðbergi, s: 557-3550, netfang:
soley.tomasdottir@reykjavik.is
Frístundaráðgjafi í félagsmiðstöðina
Miðberg
100% starf.
Ábyrgð/starfssvið frístundaráðgjafa í félagsmiðstöð
• Umsjón með félagsmiðstöðvarstarfi fyrir unglinga
• Skipulagning starfs í samráði við unglinga og starfsfólk
félagsmiðstöðvarinnar
• Samskipti og samstarf við skóla, foreldra og annað
starfsfólk sem kemur að starfi með unglingum
• Ýmiss konar upplýsinga-, forvarnar- og kynningarstarf
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á uppeldissviði eða önnur sambærileg
menntun
• Góð reynsla af vinnu með börnum og/eða unglingum
• Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, frumkvæði og
framtakssemi
• Að vera fær um að skapa liðsheild í starfsmannahópi
• Almenn tölvukunnátta auk skipulags-
og stjórnunarhæfileika
Umsóknum skal skilað til frístundamiðstöðvarinnar Miðbergs,
Gerðubergi 1, 111 Reykjavík, eða á neðangreint netfang, merkt
„Félagsmiðstöðvastarf, mars 2006”. Umsóknarfrestur er til 3.
mars n.k. Nánari upplýsingar veitir Kristrún Lilja Daðadóttir,
deildarstjóri unglingastarfs í Miðbergi í síma 557 3550,
netfang: kristrun.lilja.dadadottir@reykjavik.is.
Nánari upplýsingar um laus störf á frístundaheimilum ÍTR er
að finna á www.itr.is og á skrifstofu ÍTR í síma 411 5000.
Laun eru skv. Kjarasamningi Reykjavíkurborgar við
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar.
Spennandi störf hjá
frístundamiðstöðinni
Miðbergi í Breiðholti