Fréttablaðið - 12.02.2006, Qupperneq 29
Ráðgjafi á meðferðardeild
Lausar stöður tveggja ráðgjafa og starf ráðgjafa í
25% starf um helgar á Meðferðarstöð ríkisins fyrir
unglinga að Stuðlum.
Staða ráðgjafa – starfssvið. Vinna með unglinga á
meðferðardeild og eftir atvikum á lokaðri deild undir
leiðsögn deildarstjóra, hópstjóra og sálfræðinga.
Vinnan felst í þátttöku í meðferðardagskrá, tómstund-
um og einstaklingsbundnum stuðningi við unglinga í
meðferð, sem og þverfaglegri teymisvinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur. Háskólamenntun á
sviði uppeldis-, sál- eða félagsfræði eða önnur
menntun sem nýtist í starfi ó og/eða reynsla af með-
ferðarstarfi, starfi með unglingum eða önnur starfs-
reynsla sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi.
Hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi á með-
ferðarstörfum. Umsækjendur þurfa að vera stundvís-
ir, geta farið eftir verklagsreglum og jafnframt sýnt
frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Um er að
ræða vaktavinnu.
Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um mennt-
un og fyrri störf ásamt sakavottorði. Laun skv. kjara-
samningum opinberra starfsmanna. Öllum umsókn-
um verður svarað að ráðningum loknum.
Umsóknir berast til Stuðla – Meðferðarstöðvar ríkisins
fyrir unglinga, Fossaleyni 17, 112 Reykjavík eigi síðar
en 26. febrúar n.k.
Nánari upplýsingar veita forstöðumaður, deildar-
stjóri meðferðardeildar og rekstrarstjóri í síma
530-8800.
Forstöðumaður
Háaleitisbraut 58-60 • Sími: 588 7700
www.radning.is • radning@radning.is
Veitum persónulega og faglega þjónustu á sviði ráðninga
BÆJARTÆKNIFRÆÐINGUR
/ BÆJARVERKFRÆÐINGUR
Nýtt og áhugavert 100% starf bæjartæknifræðings/bæjar-
verkfræðings, er laust til umsóknar í Vogum.
Starfið innifelur m.a.:
• Gerð lóðablaða, stofnskjala og ýmissa uppdrátta
• Eftirlit með framkvæmdum
• Gerð útboðslýsinga vegna framkvæmda og innkaupa
• Aðal-og deiliskipulagsmál
• Önnur hefðbundin verk byggingafulltrúa
Hæfniskröfur eru eftirfarandi:
• Tæknifræðimenntun/verkfræðimenntun eða önnur sambærileg
menntun
• Reynsla af ráðgjafastörfum æskileg
• Mjög góð tölvukunnátta
• Góðir samskiptahæfileikar
Vogar er sveitarfélag í stöðugum vexti, stutt frá höfuðborgarsvæðinu,
aðeins í 15 mínútna akstursfjarlægð frá Hafnarfirði.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar. Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri í
síma 424-6660 og í tölvupósti johanna@vogar.is.
Bæjarstjóri Voga.
Landsbankinn er eitt stærsta
fjármálafyrirtæki landsins og
veitir alhliða fjármálaþjónustu
til einstaklinga, fyrirtækja og
stofnana.
Landsbankinn leitast við að ráða
til sín og hafa í sínum röðum
framúrskarandi starfsfólk og efla
það í störfum sínum.
Til að stuðla að vexti og arðsemi
bankans er áhersla lögð á
skemmtilegan vinnustað, starfs-
ánægju og gott starfsumhverfi,
sem og markvissa starfsþróun
og þekkingu starfsfólks.
Það er viðhorf stjórnenda
Landsbankans að starfsfólkið,
metnaður þess, kraftur og
hollusta, séu lykillinn að
farsælum rekstri bankans.
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
L†
SI
N
G
AS
TO
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
LB
I
31
32
9
0
2/
20
06
Landsbankinn – Verðbréfamiðlun
Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir að ráða sérfræðinga til starfa í
verðbréfamiðlun á verðbréfasviði Landsbankans. Helstu verkefni deildarinnar
lúta að miðlun innlendra sem erlendra hlutabréfa og skuldabréfa fyrir
viðskiptavini bankans.
Um er að ræða tvö störf, annars vegar við hlutabréfamiðlun og hins vegar við
skuldabréfamiðlun, og fela bæði störf í sér samskipti við viðskiptavini bankans
og miðlun í Kauphöll Íslands.
Menntunarkröfur og eiginleikar:
• Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða sambærilegt nám
• Brennandi áhugi og skilningur á verðlagningu hlutabréfa og skuldabréfa
• Reynsla af fjármálamarkaði kostur
• Geta til að vinna undir miklu álagi
• Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
• Frumkvæði og jákvæðni
• Samstarfshæfileikar
• Góð enskukunnátta
Nánari upplýsingar veita Steinþór Gunnarsson forstöðumaður verðbréfa-
miðlunar í síma 410 7331 og Atli Atlason framkvæmdastjóri starfsmannasviðs
í síma 410 7904.
Umsóknarfrestur er til 17. febrúar nk. Vinsamlega sendið umsókn og ferilskrá
til atlia@landsbanki.is
ATVINNA
SUNNUDAGUR 12. febrúar 2006 5