Fréttablaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 51
Öryggi og flutningar
Starfsmenn
Verkstjóri og tæknimaður óskast til starfa hjá
sjúklingaflutningum. Deildin sér um flutninga á
sjúklingum innanhúss, milli deilda. Æskilegt að
umsækjendur hafi reynslu af umönnunarstörfum.
Áhersla er lögð á lipurð í mannlegum samskiptum og
góða þjónustulund.
Öryggisvörður og vaktmaður óskast hjá öryggis-
og flutningadeild. Öryggisverðir sjá um eftirlit og
gæslu, ásamt flutningum og ýmsum öðrum
verkefnum. Unnið á vöktum. Vaktmenn sjá um að
sinna flutningum á LSH ásamt ýmsum öðrum
verkefnum. Dag- og/eða vaktavinna.
Áhersla er lögð á lipurð í mannlegum samskiptum
og góðaþjónustulund.
Umsóknir berist fyrir 27. febr. nk. til Pálma Þórs
Ævarssonar, öryggisstjóra og veitir hann jafnframt
upplýsingar í síma 543 1806, 824 5230, netfang
palmiaev@landspitali.is.
Hjúkrunarfræðingar
óskast til starfa frá og með 1. maí nk. á meltingar- og
nýrnadeild 13E við Hringbraut. Starfshlutfall og
vinnutími samkomulag en fastar næturvaktir koma
vel til greina. Deild 13E er ný 20 rúma legudeild auk
dagdeildarrýmis sem tekur til starfa í byrjun maí n.k.
eftir endurhönnun húsnæðis. Deildin mun þjónusta
sjúklinga með bráða og langvinna sjúkdóma í
meltingarfærum og nýrum. Lögð verður áhersla á að
skapa gott uppbyggjandi starfsumhverfi og veita
einstaklingshæfða hjúkrun. Við deildina hafa nú
þegar ráðið sig hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar
sem hafa langa reynslu í hjúkrun þessara sjúklinga.
Boðið verður upp á þriggja vikna markvissa aðlögun
með reyndum hjúkrunarfræðingi. Mikið skipulags-
og mótunarstarf verður í gangi á árinu og verður það
í höndum hjúkrunarfræðinga deildarinnar. Hér er því
kjörið tækifæri fyrir metnaðarfulla hjúkrunarfræðinga
að takast á við spennandi og krefjandi verkefni.
Umsóknir berist fyrir 27. febr. nk. til Hildar Þóru
Hallbjörnsdóttur, deildarstjóra 13E Hringbraut, sími
862 3617, netfang hildurha@landspitali.is og veitir
hún upplýsingar ásamt Herdísi Herbertsdóttur,
sviðsstjóra, sími 543 6430, netfang
herdish@landspitali.is.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjár-
málaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og
Hringbraut, skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á heimasíðu
www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í
störf á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali –
háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður.
VILTU SLÁST Í HÓPINN ?
SJÚLRALIÐAR !!
Sjúkraliðar óskast til starfa nú þegar eða eftir
samkomulagi til lengri tíma og til sumarafleys-
inga. Vaktir og starfshlutfall eftir samkomulagi.
UMÖNNUNARSTÖRF!!
Starfsfólk óskast til aðhlynningarstarfa nú þegar
til lengri tíma og til sumarafleysinga.
Starfshlutfall er samkomulagsatriði.
Við leitum að áhugasömu og duglegu
starfsfólki. Gott starfsumhverfi, þar sem góður
starsandi er í heiðri hafður. Að vinna við hjúkrun og
umönnun aldraðra er dýrmæt og góð reynsla.
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Vilhjálmsdóttir,
hjúkrunarforstjóri (alla@skjol.is) virka daga í síma
522 5600.
K ALIÐAR !
Hefur þú áhuga á lifandi starfi,
mannlegum samskiptum, sjálfstæði í
starfi og góðum tekjum? Ef svo er þá
erum við rétti vinnustaðurinn fyrir þig.
Hjá fasteignasölunni RE/MAX Stjörnunni starfar duglegt
og metnaðarfullt fólk sem hefur það að markmiði sínu
að veita viðskiptavinum sínum ætíð topp þjónustu.
Ef þú hefur áhuga þá vinsamlegast sendu inn
umsókn á tölvufangið gudrun@remax.is merkt
„Frábær starfskraftur“
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Fasteignasalan RE/MAX Stjarnan
Bæjarhrauni 6
220 Hafnarfirði.
TRÉSMIÐIR
ÓSKAST
VEGNA NÝRRA VERKEFNA ER ÓSKAÐ EFTIR
TRÉSMIÐUM TIL VINNU Á TRÉSMÍÐAVERK-
STÆÐI OKKAR VIÐ INNRÉTTINGASMÍÐAR
FYRIR FYRIRTÆKI OG HEIMILI.
UPPLÝSINGAR VEITIR SIGURÐUR Í SÍMA 898 4698.
Fyrirtækið H.B.Harðarson ehf er alhliða verktaki sem tekur að sér verk-
efni fyrir fyrirtæki, skip og heimili. Stofnár er árið 1999 og starfa um
45 starfsmenn við fyrirtækið við fjölbreytt verkefni á trésmíðaverkstæði
og við almennar trésmíðar úti og inni. Með fyrirtækinu starfar einnig
vaskur hópur undirverktaka þannig að fyrirtækið er vel í stakk búið til
að taka að sér heildarverk.
Skógarhlíð 10 • 105 Reykjavík
Sími: 553 3322 • Fax: 551 2003
Vélstjórnendur.
Stórt iðnfyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða í eftir talin störf.
1 Vélstjórnandi.
Vélstjórnanda á stóra og flókna vélasamstæðu.
Reynsla af véla-tækja vinnu nauðsinleg. Vélstjóra mentun æskileg.
Vinnutími Mán-Fimtud. 8,00-16,30 Föstud. 8,00-13,00.
2 Vélstjórnandi.
Keyrsla á stórri vél og stjórna áhöfn.
Reynsla af véla-tækja vinnu nauðsynleg.
Vaktavinna. Dagvakt Mán-Fimtud. 8,00-16,30 Föstud. 8,00-13,00
Kvöldvakt Mán-Fimtud. 16,30 -01,00 Föstud. 13,00-18,00.
Umsóknir sendist til afgreiðsu Fréttablaðsins eða á box@frett.is merkt
„Vélstjórnandi – 14“
Hjúkrunarforstjóri
Laust er til umsóknar starf
hjúkrunarforstjóra við Dvalar- og
hjúkrunarheimilið Silfurtún í Búðardal, Dalabyggð.
Á heimilinu eru 17 vistmenn. Hjúkrunarforstjóri veitir
heimilinu forstöðu.
Frekari upplýsingar um starfið veitir sveitarstjóri
Dalabyggðar í síma 434-1132
Umsóknum skal skila til sveitarstjóra Dalabyggðar,
Miðbraut 11, 370-Búðardal, fyrir 1. mars 2006.
Fjáröflunar- og markaðsstjóri
Krabbameinsfélag Íslands óskar eftir að ráða fjáröflunar- og mark-
aðsstjóra. Starfið felst í því að stýra fjáröflunar- og markaðssviði fé-
lagsins, skipuleggja fjáraflanir og styrkja tengsl við fyrirtæki, stofn-
anir, félög og einstaklinga er vilja styðja þau málefni sem Krabba-
meinsfélagið vinnur að. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi menntun
og starfsreynslu á sviði fjáröflunar- og markaðsmála. Leitað er að
sjálfstæðum einstaklingi með góða hæfileika til samskipta og ríkt
frumkvæði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um náms- og starfsferil skulu sendar
til forstjóra Krabbameinsfélagsins, Guðrúnar Agnarsdóttur, Skógarhlíð
8. Pósthólf 5420, 125 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 21. febrúar.
Öllum umsóknum verður svarað.
Krabbameinsfélagið er áhugamannafélag sem sinnir m.a. forvörnum,
fræðslu, krabbameinsleit, vísindarannsóknum og stuðningi við sjúk-
linga. Hjá félaginu starfa um níutíu manns í rúmlega sextíu stöðu-
gildum.
Industria er framsækið og leiðandi fyrirtæki í ljósleiðaratækni
Meðal verkefna okkar er lagning ljósleiðara í Reykjavík
Við leitum að rafvirkameistara, rafvirkjum,
símvirkjum og verkamönnum.
Starfið hentar vel þeim sem vilja kynnast fjarskiptatækni
framtíðarinnar. Mikil og góð vinna framundan.
Áhugasamir sendi umsóknir á jobs@industria.com
Uppl. um störfin eru veitt í símum 822-2590 og 822-2561
Industria
Powering digital living©
NÝTT FYRIRTÆKI
Í ORKUGEIRANUM
vantar starfsmann í bókhald.
Um er að hálfsdags starfs með sveigjanlegum vinnutíma. Mikilvægt
að umsækjandi hafi reynslu af bókhaldsstörfum, launaútreikningum,
almennum skrifstofustörfum og geti unnið sjálfstætt. Færni í bókhalds-
kerfinu Navision er mikilvæg sem og MS – Office.
Vinsamlegast sendið starfsferilskrá á eftirfarandi netfang:
vorka@simnet.is í síðasta lagi 19. febrúar n.k.
Hrafnista Reykjavík og Hafnarfirði.
Hjúkrunarfræðinar.
Okkur á Hrafnistuheimilunum vantar
hjúkurnarfræðinga til starfa.Starfshlutfall
og vinnutími samkomulag.
Nánari upplýsingar veitir Alma Birgisdóttir,
aðstoðarhjúkrunarforstjóri, sími 585 3000
netfang: alma@hrafnista.is.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
ATVINNA
SUNNUDAGUR 12. febrúar 2006 15