Fréttablaðið - 12.02.2006, Page 65
SUNNUDAGUR 12. febrúar 2006 25
Hann hefur leikið Mussol-ini, páfann, Winston Chur-chill, Stalín, engil Guðs og
Kölska sjálfan. Bob Hoskins er
þó kannski þekktastur fyrir hlut-
verk sitt í fjölskyldumynd Robert
Zemeckis um Kalla kanínu. Það
er augljóst þegar maður spjall-
ar við hann að honum er nokkuð
sama hvaða álit fólkið í kringum
hann hefur á honum. Hann er
mjög óheflaður í framkomu og
gjörsamlega laus við hina ýktu
siðprýði sem einkennir marga
Breta. Hann er frekar hávaða-
samur og nýtur augljóslega
athyglinnar. Hann er líka alveg
merkilega fyndinn. Maður veltir
því fyrir sér hvort það séu þess-
ir eiginleikar sem gera hann svo
fýsilegan í hlutverk hinna ýmsu
stórmenna? Hann heldur ekki.
„Ég held að það sé nú bara
vegna þess hvernig ég er í lag-
inu,“ segir Bob glottandi og gríp-
ur um maga sér. „Ég segi líka
alltaf já þegar ég er beðinn um að
leika feitan einræðisherra. Hver
annar gæti passað í svoleiðis hlut-
verk? Ég og Danny DeVito.“
Í Mrs. Henderson Presents
leikur Bob Hoskins leikhússtjór-
ann Vivian Van Damm sem svarar
auglýsingu og tekur að sér rekst-
ur Windmill leikhússins í Soho-
hverfi London á tímum seinni
heimstyrjaldarinnar. Í fyrstu
voru þar settir á svið hefðbundn-
ir söngleikir en þegar fór að halla
undan fæti fékk frú Henderson
þá söluvænu hugmynd að setja
naktar stúlkur á svið. Það var á
þeim tíma bannað með lögum og
hún þurfti að beita samböndum
sínum innan breska þingsins til
þess að koma hugmynd sinni í
framkvæmd.
Það er víst ekki mikið til af
upplýsingum um persónu þína,
Hvernig grófust þær upp?
„Sannleikurinn er sá að ég hafði
ekki hugmynd um að ég myndi
leika Vivian Van Damm fyrr en á
síðustu stundu. Það var ekki fyrr
en stúlkurnar í förðunardeildinni
báðu mig um að koma inn til þess
að prufa hárkollur sem ég frétti
það. Þegar ég mætti á settið á
fyrsta tökudegi spjallaði ég við
Stephen Frears leikstjóra og við-
urkenndi fyrir honum að ég hefði
ekki hugmynd um hvernig ég ætti
að fara að því að leika hann. Hann
sagði mér bara að slaka á og leika
sig. Þannig að ég gerði það. Allan
leik minn í myndinni er ég að apa
eftir leikstjóranum. Þannig að
hann var alltaf að leiðrétta mig á
tökustað þegar honum fannst ég
fara of fjarri hans persónuleika.“
En bíddu við? Ert þú ekki einn
af framleiðendum myndarinnar?
Hvernig er það mögulegt að þú
hafir ekki vitað af því að þú ættir
að leika eitt aðalhlutverkið?
„Það var bara aldrei talað um
það. Vinir mínir höfðu verið að
rannsaka sögu Windmill leikhúss-
ins í mörg ár, en aldrei náð að ýta
verkefninu af stað. Þeir létu mig
vita af þessu og ég hugsaði strax
með mér að Judi Dench myndi
smellpassa í hlutverkið. Ég læt
Normu Hayman vita og hún tók
að sér að framleiða myndina.
Hún vildi að ég léki Van Damm og
maður mótmælir henni ekki.“
Ertu spenntur fyrir því að sjá
viðbrögðin við þessari mynd?
„Já, ég held að ég sé spenntari
fyrir þessari mynd en nokkurri
annarri sem ég hef gert. Það er
vegna þess að það að gera þessa
mynd var með því ánægjulegra
sem ég hef gert um ævina. Við
byggðum eftirmynd af leikhús-
inu, með skrifstofurnar á efri
hæðinni og búningsherbergin á
þeirri neðstu. Við bjuggum innan
veggja þess og urðum eins og
alvöru leikhús. Fólk mætti á stað-
inn þegar það átti frídag. Þetta
var eins og annað heimili okkar.
Þegar tökum lauk var það mjög
dapurlegt að þurfa að kveðja
staðinn. Svo þegar Stephen sagð-
ist þurfa að taka nokkur atriði
upp aftur mættu allir á staðinn.“
Þannig að þú hefur haft það
strax á tilfinningunni að það væri
mikið varið í þessa mynd?
„Já, tvímælalaust. Það sem
var líka alveg magnað var að
nokkrar af upprunalegu Windmill
stúlkunum komu, þær eru allar
á níræðsaldri nú. Þær mættu á
svæðið og gengu um sviðsmynd-
ina og rifjuðu upp hitt og þetta
frá þessum tíma. Þegar þær svo
sáu myndina sögðu þær við mig
að ég væri nákvæmlega eins og
Van Damm hefði verið. Ég sagði
þeim þá að ég hefði verið að leika
Stephen, en þær sögðu þá að hann
væri nákvæmlega eins persóna
og Van Damm var.“
Myndin gerist á tíma stöðugra
sprengjuárása, þegar enginn
Lundúnarbúi gat verið viss um að
vakna í sama rúmi og hann sofn-
aði í. Hoskins man örlítið eftir
þessum tíma.
„1942 var ófrísk móðir mín
send til Suffolk. Svo þegar ég
var tveggja vikna gamall vorum
við send aftur til London þegar
sprengjuárásirnar voru í hámarki.
Ég eyddi því þremur fyrstu árum
ævi minnar undir eldhúsborðinu
heima. Ég man ekki vel eftir því,
en ég man eftir tilfinningunni.
Ég man eftir því að leikvöllur-
inn okkar var sprengdur og fullt
af húsum í götunni okkar. Það er
eitthvað í mér, sem er kannski
gamaldags en mjög breskt. Ég sé
England fyrir mér eins og smá-
vaxna gamla konu með hjálm og
kústskaft að berjast á móti Hitler.
Það er andi Englands fyrir mér.“
biggi@frettabladid.is
www.apollo.is • 5 100 300
Búlgaría
á blússandi ferð!
Bókaðubesta verðiðá heimasíðunniwww.apollo.is
Holtasmára 1 • 201 Kópavogur
Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309
Netfang: langferdir@langferdir.is
Heimasíða: www.apollo.is
Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00
Bókaðunúna!
*Barnaverðið gildir á fyrirfram ákveðnum stöðum. Sjá nánar á www.apollo.is. Barnaverðið gildir ef
börnin eru á sömu bókun og a.m.k. 2 fullorðnir sem greiða skv. verðlista og búa í sömu vistarveru.
Ef bókað er á söluskrifstofunni bætist við 2.500 kr. bókunargjald á mann. Kynningarafsláttur nær
ekki til Barnaverðanna.
Barnaverðin okkar eru frá
Netklúbburinn...
Skráðu netfangið þitt í netklúbbinn okkar
á forsíðu heimasíðunnar www.apollo.is.
Það marg borgar sig.
Kynningarafsláttur á þrotum
Nú eru síðustu forvöð að tryggja sér besta
verðið með kynningarafslætti
Búlgaríu-bæklingurinnkominn út!
19.900 kr.
í eina viku. Sjá nánar á www.apollo.is.
BOB HOSKINS
Í leit að bresk-
um geirvörtum
Leikarinn Bob Hoskins framleiðir og leikur annað
aðalhlutverkið í kvikmyndinni Mrs. Henderson
Presents.