Fréttablaðið - 12.02.2006, Page 66
12. febrúar 2006 SUNNUDAGUR26
Smitandi lífsgleði og heil-
brigð fegurð geislar af
smáskammtalækninum
Kristínu Kristjánsdóttur
sem einnig er starfsmaður
heilsufyrirtækisins Maður
lifandi, þar sem margir
vinsælustu lærifeður þeirra
sem leita í óhefðbundin
heilsuúrræði taka á móti
skjólstæðingum sínum.
Kristín segir sjálfshjálp
orðna vinsælli en áður og
hóp þeirra sem vilja bera
ábyrgð á eigin heilsu ört
stækkandi.
„Að sumu leyti má tala um nýjan
lífsstíl þeirra sem meira hafa á
milli handanna en áður, því með-
ferðarúrræði af þessu tagi eru
fremur dýr og ekki niðurgreidd
af Tryggingastofnun, en á móti
kemur að með þessu fyrirbyggir
fólk heilsubrest seinna á ævinni
og fjárfestir í sjálfu sér. Mörgum
þykir dýrt að fara til heilara og
borga 5.000 krónur fyrir skiptið, á
sama tíma og það veigrar sér ekki
við að borga sömu eða hærri upp-
hæð fyrir lyf sem engin trygging
er fyrir að lækni það, en læknir-
inn mælti með,“ segir Kristín, en
algengt verð fyrir þjónustu með-
ferðaraðila í óhefðbundna heilsu-
geiranum er frá 5.000 krónum og
upp úr.
Heilsa á eigin ábyrgð
Að sögn Kristínar koma þeir sem
stunda reglulegar heimsóknir til
heilsugúrúa úr öllum þjóðfélags-
hópum, enda mikil hvatning til
almennings að bera ríkari ábyrgð
á eigin heilsu.
„Í nútímaþjóðfélagi eru kröfur
á vinnumarkaði miklar og margir
sem sinna störfum þar sem þeir
verða að halda dampi. Þá er ein-
faldlega ekki í boði að vera orðinn
þreyttur og lúinn seinnipartinn,
enda lítt spennandi að eiga sér ekk-
ert líf eftir vinnu þegar loks gefst
stund til að komast í ræktina og
sinna börnum, heimili og maka,“
útskýrir Kristín og fullyrðir að
enginn þurfi að vera orkulaus.
„Enda kemur á daginn að þeir
sem leita úrræða hjá heilsugúrúum
smita út frá sér og láta í sér heyra,
sem svo fær hina þreyttu til að
hugsa: „Hví getur mér ekki liðið
svona líka?“ Öll viljum við vera
hamingjusöm og sjálfsskoðun af
þessu tagi tel ég byggja mjög á
þeirri staðreynd,“ segir Krist-
ín sem þekkir af eigin raun hve
gefandi og auðvelt er að hlúa að
sjálfum sér.
„Um leið og maður tekur ábyrgð
á eigin heilsu kemst maður í betra
jafnvægi og öðrum fer að líða betur
í kringum mann líka. Maður hefur
í forgangi hvað maður setur ofan
í sig, hversu mikið maður hreyfir
sig og hvaða fólk maður umgengst
upp á gefandi en ekki slítandi nær-
veru, en allt þetta spinnst saman
og verður að hringrás sem gerir
alla að betri manneskjum,“ segir
Kristín brosandi.
Lífsstíll til að ánetjast
Hingað til hefur stærsti hluti
þeirra sem leita sér óhefðbund-
inna læknisúrræða verið sjúk-
lingar sem leitað hafa allra leiða
en ekki fundið lækningu annars
staðar, en með því blanda þeir
saman austrænum og vestræn-
um læknavísindum. Kristín segir
hópinn nú fara ört stækkandi og
vera fjölbreyttari.
„Ef við lítum til Bandaríkjanna
má sjá að allar þær stjörnur sem
byggja framtíðina á útliti sínu eru
með heilsugúrúa á sínum snærum;
leita til næringaþerapista, í jóga,
nudd og til stjörnu- og talnaspek-
inga til að gera sér lífið léttara.
Flestir vita líka að þegar þeim
líður illa í sálartetrinu fer margt
annað úrskeiðis, enda tengjast lík-
amlegir og andlegir kvillar,“ segir
Kristín sem viðurkennir að nafla-
skoðun af þessu tagi geti hæglega
farið út í öfgar.
„Til er fólk sem þræðir á milli
lækna og finnur endalaust einhver
vandamál til að leggja fyrir þá,
og óhefðbundni heilsugeirinn fer
ekki varhluta af því, en slíkt til-
heyrir þó algjörum undantekning-
um. Vinsælir leiðbeinendur taka
fólk í tíma en vísa þeim frá aftur
þegar nóg er komið. Meðferðar-
úrræðin ganga enda út á það að
fólk taki sjálft ábyrgðina. Vinna
gúrúanna er heildræn; í upphafi er
farið yfir lífsstíl fólks og stundum
tilfinningalíf, en eftir tímann held-
ur sjálfshjálpin áfram heima. Það
eru því ekki gúrúarnir sjálfir sem
bóka skjólstæðinga sína áfram út
í það óendanlega, nema síður sé,
en kannski má segja að hægt sé að
ánetjast slíkum heimsóknum þar
sem menn finna fljótt hversu vel
þeim líður og hve gott það gerir
manni að sækja til þeirra.“
Viðurkennd menntun skilyrði
Ásókn í óhefðbundnar lækningar
fer vaxandi og æ fleiri sem hafa
þrjá eða fleiri gúrúa í sinni þjón-
ustu, sem hver með sínum hætti
hlúir að ólíkum þáttum andlegrar
og líkamlegrar heilsu.
„Auðvitað eru tískubólur í
þessu eins og öðru og innan viss
hóps eru menn varla með mönnum
nema þeir hafi aðgang að gúru í
sínu lífi. Hins vegar styð ég heils
hugar þá sem leita sér hjálpar,
því ólík úrræði henta ólíku fólki.
Niðurstöður rannsókna hafa sýnt
fram á samspil mataræðis og lík-
amlegra kvilla. Menn eru það sem
þeir borða og auðveldlega hægt
að kalla yfir sig sjúkdóma og van-
heilsu með röngu mataræði, rétt
eins og bæta má heilsu og jafnvel
lækna með réttu mataræði. Mér
finnst því eðlilegt að fólk leiti sér
óhefðbundinna lækninga meðfram
þeim vísindalegu og vestrænu,“
segir Kristín en bætir við að fólk
skyldi ávallt velja viðurkennda
aðila áður en haldið er blint áfram
í leit að bættri heilsu.
„Í Bandaríkjunum gerast
kröfur um viðurkennda menntun
sífellt háværari og jafnvel farið
fram á þeir sem stundi nálastung-
ur hafi einnig lokið gráðum í lækn-
isfræði. Þeir sem starfa í þessum
geira myndu sjálfir aldrei fara til
neins sem hefði aðeins helgarnám-
skeið að baki og þess vegna hafa
verið stofnuð ýmis félagasamtök
á bak við þessar starfandi stéttir,
þar sem enginn gerist meðlimur
né fær skírteini án tilskilinnar
menntunar, sem tryggir öryggi
skjólstæðinga okkar.“
Eftirtaldir aðilar hafa notið mikilla vinsælda
meðal þeirra sem vilja taka aukna ábyrgð á
eigin heilsufari og leita með því á náðir nátt-
úrulækninga.
Eftir áberandi umræðu um ýmiss konar
fæðuóþol leita æ fleiri til meðferðaraðila sem
greina óþol líkamans við ákveðnum fæðuteg-
undum og í kjölfarið ráðleggja skjólstæðingum
sínum að forðast eða draga úr neyslu vissra matartegunda en velja hollari
kost í staðinn.
Þá njóta nálastungur vaxandi vinsælda meðal Íslendinga, sem og áheyrn
á púls líffæra, tungulestur og lithimnugreining, en með slíku má finna hulin
mein líkamans, næringarskort og fleira.
Hómópatía, eða smáskammtalækningar, sem og grasalækningar eru
kostir sem sífellt fleiri velja þegar kemur að náttúrulegri lækningu í stað
hefðbundinna lyfja, auk þess sem hverskyns nudd, heilun, höfuðbeina- og
spjaldhryggsmeðferð, rolfing, ásamt fleiri óhefðbundnum heilsuúrræðum
njóta sívaxandi vinsælda.
Þess má geta að óhefðbundnir meðferðaraðilar taka aldrei fram fyrir
hendur lækna í heilbrigðisstétt, heldur veita sína hjálp meðfram öðrum
lækningum.
Vinsælustu heilsugúrúar landsins eru meðal annars þessir:
Þorbjörg Hafsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og næringarþerapisti.
Matthildur Þorláksdóttir, náttúrulæknir sem meðal annars vinnur með
greiningarvél sem greinir mataróþol.
Þuríður Hermannsdóttir, hómópati, ráðleggur meðal annars um makró-
bíótískt fæði og greinir mataróþol.
Kristján Ívar Ólafsson, nuddari og heilari, hefur einnig menntað sig í
nálastungum, rolfing og fleiru.
Birna Imsland, hómópati og meðferðaraðili við höfuðbeina- og spjald-
hryggsmeðferð.
Þórunn Birna Guðmundsdóttir; austurlenskar nálastungur og nudd, les í
tungu og lithimnu.
Sigurður Sigurðsson, nudd og austurlenskar nálastungur.
Örn Jónsson, sjúkranudd og austurlenskar nálastungur.
Vinsælir gúrúar
HAMINGJAN UPPMÁLUÐ ENDA HEILSAN Í ÖRUGGRI STJÓRN Kristín Kristjánsdóttir smáskammtalæknir er ein fjölmargra sem sækja til mismunandi heilsugúrúa til að ná enn betri tökum á
heilsu og lífshamingju, en slíkt gerist æ vinsælla meðal Íslendinga.FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Hringrás hamingju og hreysti