Fréttablaðið - 12.02.2006, Qupperneq 80
12. febrúar 2006 SUNNUDAGUR40
Það hefur verið lengi í umræðunni
að fjölga liðum í efstu deild karla
úr tíu í tólf. Enn sem komið er
hefur það ekki verið samþykkt. Á
ársþingi KSÍ árið 2005 var tillög-
unni vísað frá en þess í stað skip-
uð nefnd til að skoða hvað þyrfti
að gera svo að mögulegt væri að
lengja keppnistímabilið.
Nefnd þessi komst að þeirri
niðurstöðu að ekki væri hægt að
lengja keppnistímabilið án þess að
bæta keppnisvellina umtalsvert,
með hita og sjálfvirku vatnskerfi
en það myndi fela í sér mikinn
kostnað fyrir félögin.
Sigurður Jónsson, þjálfari
Grindavíkur í Landsbankadeild,
karla telur það lífsnauðsynlega
þróun fyrir íslenska knattspyrnu
að fjölga liðum í deildinni sem allra
fyrst. „Það þarf að fjölga leikjum
og lengja keppnistímabilið, við
erum að æfa alltof mikið af árinu til
þess að fá að spila aðeins í nokkra
mánuði og ég tel að það sé klárlega
grundvöllur fyrir því að lengja
tímabilið, það er það sem allir leik-
menn vilja. Það er ótrúlegt að ekki
sé búið að fjölga miðað við hversu
lítið þarf til og hversu mikil áhrif
þetta myndi hafa á knattspyrnuna
á Íslandi,“ sagði Sigurður sem
gefur lítið fyrir þær niðurstöður
að mikill kostnaður þurfi að felast í
lengingu keppnistímabilsins.
Má spila þéttar
„Það má spila leikina mun þéttar
en gert er núna. Það þarf ekki að
koma að nema fjórum leikjum til
viðbótar við þessa átján og það er
lítið mál að byrja til dæmis keppn-
istímabilið aðeins fyrr, ljúka því
aðeins seinna og sleppa því að taka
frí um verslunarmannahelgina
sem er algjörlega óþarft,“ segir
Sigurður og bendir á annan mjög
stóran kost við að fjölga leikjunum
í efstu deild.
„Fjölgun myndi þýða að liðin
yrðu að öllum líkindum með
stærri leikmannahópa sem þýðir
að ungir leikmenn fá fleiri tæki-
færi til að spreyta sig og geta þar
með komið sér á framfæri. Það eru
ekki nægilega margir ungir leik-
menn sem fá að spreyta sig og öðl-
ast reynslu sem er mjög mikilvægt
fyrir stráka á þessum aldri,“ sagði
Sigurður.
En eru vellirnir í nógu góðu ásig-
komulagi til að fjölga leikjum?
„Mín skoðun er sú að það sé ekki
hugsað nægilega vel um vellina.
Það eru margir sem ég hef rætt við
sem eru sammála mér í því að það
sé byrjað að huga að völlum fyrir
sumarið alltof seint. Það væri
hægt að hjálpa gífurlega mikið til
með því að leggja dúka yfir vellina
sem myndu hlífa þeim, vellirnir
yrðu þar með tilbúnir mun fyrr,“
bendir Sigurður á og bætir við að
tímabilið á Íslandi, sem hefst iðu-
lega um miðjan maímánuð, sé ein-
faldlega of seint.
„Það er mjög auðvelt að byrja
mótið viku til tíu dögum fyrr. Ég
er búinn að spila á völlum í Skot-
landi og Svíþjóð við svipaðar
aðstæður og það er ekkert því til
fyrirstöðu að gera slíkt hið sama
hérna heima,“ segir Sigurður sem
hefur spilað sem atvinnumaður í
Englandi, Skotlandi og Svíþjóð.
En hvað leiðir fjölgunin af sér?
„Við myndum spila fleiri leiki á
hverju ári sem væri mjög gott
fyrir knattspyrnuna í heild sinni.
Mótið er mjög stutt eins og er og
eðli málsins samkvæmt eru þjálf-
arar ekki tilbúnir til að taka miklar
áhættur í þessum fáu leikjum þar
sem það er einfaldlega of mikið í
húfi. Menn eru mjög hræddir við
að nota yngri leikmenn þar sem þú
mátt ekki við því að tapa neinum
stigum. Ég veit að ég og eflaust
fleiri þjálfarar væru tilbúnir til
að gefa fleiri ungum leikmönn-
um tækifæri með fleiri leikjum.
Það myndi án efa skili sér í betri
leikmönnum sem er ekkert nema
jákvæð þróun fyrir knattspyrnuna
á Íslandi,“ sagði Sigurður.
Útsláttarkeppni?
Til að bæta við spennuna í deild-
arkeppninni kemur Sigurður með
athyglisverða hugmynd, að taka
upp útsláttarkeppni í efstu og 1.
deild um sæti í efstu deild árið
eftir.
„Tvö lið fara sjálfkrafa niður en
síðan tæki við útsláttarkeppni um
laus sæti í efstu deild. Það myndi
halda spennunni í mótinu lengur en
raun ber vitni í dag og skapa fleiri
leiki sem skiptu máli á lokasprett-
inum,“ sagði Sigurður og tekur
dæmi um FH og Val á síðasta ári.
„FH var löngu búið að tryggja
sér Íslandsmeistaratitilinn áður en
mótið var búið og Valur var búið að
tryggja sér annað sætið. Það dró
spennuna mikið úr mótinu sem var
þar með búin á toppnum. Ef svip-
að væri uppi á teningnum í fram-
tíðinni myndi það auka spennuna
fram eftir móti sem skilar sér í
mætingu fólks á völlinn auk þess
sem það hvetur leikmenn til að
gefa allt í á lokasprettinum. Þetta
dæmi hefur sýnt sig í öðrum lönd-
um og hefur gefist vel fyrir þar,“
sagði Sigurður en fyrirkomulagið
þekkist viða um Evrópu.
Sigurður segir að góðir hlutir
gerist hægt og varlega verði að
fara í sakirnar, ekki sé hægt að
gera íslensku deildina jafn stóra
og umfangsmikla og stóru deild-
irnar á Norðurlöndunum eru en í
Danmörku, Svíþjóð og Noregi eru
fjórtán lið í efstu deildunum.
„Ég vil byrja á því að fjölga
liðum í tólf áður en skrefið upp í
fjórtán liða deild verður tekið. Það
þarf ekki að byggja nýja velli og
setja hitakerfi og fleira á vellina
til að fjölga í tólf lið, sem vissulega
væri hægt í sumar, en það gildir
annað mál ef fjölga á í fjórtán lið.
Ef á að fjölga um fjögur lið og bæta
við átta leikjum þá er klárlega þörf
á því að laga vellina en eins og stað-
an er í dag er engin þörf á því í tólf
liða deild,“ sagði Sigurður en bætti
við að fríin í kringum landsleiki
væru erfiðari en þó væri hægt að
skoða ýmsa kosti í kringum þau.
„Landsliðsfríin eru erfiðari
þar sem ungmennalandsliðið spil-
ar daginn áður en A-landsliðið og
þrátt fyrir að það séu fáir leik-
menn úr efstu deild í A-liðinu eru
oft margir í ungmennaliðinu. Það
er hugsanlegt að spila bara þegar
landsleikir eru og félög þyrftu
að taka því að missa sína menn
í nokkra daga, en þá missa þeir
hugsanlega af einum leik af 22
sem væri enginn heimsendir fyrir
félögin sem fengju lengra tímabil
í staðinn. Félögin þyrftu að sjálf-
sögðu að komast að samkomulagi
um þetta atriði en þetta myndi
einnig hugsanlega gefa yngri
leikmönnum tækifæri í staðinn,“
ítrekaði Sigurður.
Gervigrasið ekki skemmtilegt
Talað er um að hægt væri að spila
til að mynda fyrstu tvær umferðir
Íslandsmótsins inni í knattspyrnu-
höllunum en flestir eru alfarið á
móti þeirri hugmynd, þar á meðal
Sigurður sem sér einfadlega ekki
þörf fyrir það eins og staðan er í
dag. Sigurður er einnig alfarið á
móti því að félög byggi gervigras-
velli og spili á þeim í efstu deild
hér heima.
„Gervigrasið tekur þetta óvænta
og skemmtilega úr fótboltanum,
það geta verið þúfur á vellinum og
undirlagið mismunandi að gerð og
mýkt. Auk þess gerir bleytan gras-
völlum mönnum oft erfitt fyrir en
fótboltinn missir þann eiginleika á
gervigrasinu þar sem undirlagið
er nánast alltaf eins,“ sagði Sigurð-
ur og bætti við að mikil óánægja
væri með að gervigrasvellir væru
notaðir í efstu deild í Svíþjóð þar
sem hann spilaði.
Deildabikar inn í Íslandsmótið?
Sigurður kom með aðra athyglis-
verða hugmynd sem gengur út á
að láta Deildabikar KSÍ fá meira
vægi en hann er spilaður alfarið í
knattspyrnuhöllunum.
„Það væri einnig hægt að ræða
hvort Deildabikarinn mætti fá
meira vægi og láta hann koma
inn í Íslandsmótið. Þannig gætu
úrvalsdeildarliðin verið saman
í riðlum og fengju ákveðin stig
eftir árangri í Deildabikarnum.
Þannig væri hægt að gefa fleiri
leikjum aukið vægi enda eru
margir leikmenn á launum allan
ársins hring.
Til dæmis gæti efsta liðið feng-
ið nokkur stig inn í Íslandsmót-
ið en eins og staðan er í dag er
Deildabikarinn ekkert annað en
æfingamót þar sem engin verð-
laun eru í boði. Fjögur til fimm
stig inn í Íslandsmótið gætu verið
góð verðlaun fyrir hvaða lið sem
er,“ sagði Sigurður sem er ekki
mjög jákvæður á að fjölgað verði
á næstunni en það getur úr þessu í
fyrsta lagi gerst sumarið 2008.
Verðum að láta verkin tala
„Ég er ekkert mjög jákvæður úr
því að þetta er enn ekki komið.
Það virðist vera sú skoðun að það
þurfi gervigrasvelli og upphitaða
velli til að hægt sé að fjölga og ég
sé það ekki gerast nærri því strax,
ekki á meðan skoðun forystu-
manna knattspyrnusambandsins
er þessi. Ég hefði viljað sjá þetta
samþykkt í tólf liða deild fyrir
löngu síðan en þetta hefur verið í
umræðunni í langan tíma.
Menn hafa verið að tala meira
en að láta verkin tala. Ég myndi
halda að það að ekki sé búið að
fjölga í deildinni, hefti framþró-
un íslenskrar knattspyrnu og þeir
sem stjórna hljóta að bera ein-
hverja ábyrgð á því. Ég er mjög
undrandi á því að það sé ekki til-
laga um þetta á ársþingi KSÍ um
helgina,“ sagði Sigurður og sendi
knattspyrnukveðju að lokum.
hjalti@frettabladid.is
������������������������
�������� ���������
�����������������
�������������������������������������
����������������������������������
���������������������������������
����������������������������������
SUNNUDAGSVIÐTALIÐ: SIGURÐUR JÓNSSON
Ótrúlegt að enn sé ekki búið að fjölga
Athygli vakti að á ársþingi KSÍ sem fram fór í gær barst ekki tillaga um að fjölga liðum í efstu deild karla úr tíu í tólf. Sigurður Jóns-
son, þjálfari Grindvíkinga, er mjög undrandi á þessu og í viðtali við Hjalta Þór Hreinsson lýsir Sigurður áhyggjum sínum af fram-
þróun íslenskrar knattspyrnu og staðhæfir að vel sé hægt að fjölga strax í ár úr tíu í tólf lið án stórvægilegra breytinga.
SIGURÐUR JÓNSSON Er ekki mjög jákvæður á að fjölgað verði úr því sem komið er.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SIGURÐUR JÓNSSON Segir að löngu sé orðið tímabært að fjölga liðum í efstu deild úr tíu í tólf. Á ársþingi KSÍ í gær var samþykkt að fjölga
liðum í 1. deild en engin tillaga um fjölgun í efstu deild barst og því er fjölgun í deildinni ekki á dagskrá á næstunni.FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN