Fréttablaðið - 12.02.2006, Page 82

Fréttablaðið - 12.02.2006, Page 82
 12. febrúar 2006 SUNNUDAGUR OPNUNARTÍMI: Laugardag kl.11.00–18.00 Sunnudag kl.11.00–18.00 MIÐAVERÐ: 1500 kr.(6–12 ára 500 kr.) Helgarpassi 2250 kr. Ó ly m pí ua ka de m ía n Flugferðir og uppihald eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Leitað er eftir einstaklingum sem náð hafa mjög góðum árangri í íþróttagrein (-greinum) og/eða sinnt kennslu/þjálfun/félags- störfum innan íþróttahreyfingarinnar, ásamt því að sýna málefnum Ólympíuhreyfingarinnar sérstakan áhuga. Þeir skulu hafa gott vald á ensku og/eða frönsku og vera fyrirmynd annars æskufólks í hvívetna. Námskeið í Ólympíu Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, konu og karli, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum Alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 19. júní til 3. júlí n.k. Umsóknarfrestur er til 3. mars n.k. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á skrifstofu ÍSÍ eða á heimasíðu sambandsins, www.isisport.is Nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri Fræðslusviðs, Andri Stefánsson í síma 514-4000 og einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið: andri@isisport.is HANDBOLTI „Við spiluðum ekki nægilega vel í þessum leik, Hauk- ar voru einfaldlega betri og áttu sigurinn skilinn,“ sagði Guð- mundur Guðmundsson, þjálfari Fram, eftir undanúrslitaleikinn gegn Haukum. Leikurinn var kaflaskiptur og liðin skiptust á að raða inn mörkunum án þess að andstæðingurinn fengi rönd við reist en Haukar höfðu að lokum þriggja marka sigur. „Við byrjuðum leikinn vel en náðum ekki að fylgja því eftir. Varnarleikurinn var góður að stórum hluta en á öðrum köflum var hann að sama skapi slakur og þannig missum við niður for- ystuna okkar. Það var grátlegt að jafna í 20-20 og fá tvö tækifæri til að jafna en nýta þau ekki. Auk þess náðu lykilmenn í liðinu sér ekki á strik, þetta er ungt lið og það má lítið út af bregða ef ekki á illa að fara og við áttum ekki skil- ið að vinna leikinn,“ sagði Guð- mundur og bætti við að fjölmargt hefði þurft að ganga upp til að sigra feikisterkt lið Hauka. Það var þó aðeins markvarsla Birkis Ívars Guðmundssonar sem hélt Haukum inni í leiknum til að byrja með en Framarar mættu mjög ákveðnir til leiks með dygg- an stuðning fjölmargra stuðnings- manna sinna. Liðið spilaði frá- bæra vörn og Egidijus Petkevicius markmaður varði alls sextán skot í leiknum auk þess sem Magnús Erlendsson átti góða innkomu og varði sex skot, þar af fjögur víta- köst. Það dugði þó ekki til þar sem óskynsamur sóknarleikur var allsráðandi hjá gestunum á Ásvöllum á meðan Haukar léku af mikilli skynsemi og yfirvegun og kláruðu leikinn örugglega. „Það var ekki mikið sem skildi á milli liðanna í dag. Mér fannst við vera að spila mjög slakan varnarleik í 55 af 60 mínútum í leiknum en sem betur fer gekk sóknarleikurinn okkar ágætlega upp og það bjargaði okkur í þess- um leik,“ sagði Birkir Ívar, mark- maður Hauka, eftir leikinn en hann varði þrettán skot í markinu og boltarnir sem hann varði úr dauðafærum vógu þungt gegn Frömurum. „Þetta var mjög erfiður leikur og Framararnir eru með gott lið og við vorum að hluta til heppnir að vinna leikinn miðað við þá slöku vörn sem við vorum að spila. Við lögðum okkur alla fram, það er ekki hægt að taka það af okkur en það gerðu Framararnir líka og það skilaði sér í þesum hörkuleik. Við erum með aðeins betra lið og sýnd- um það í dag,“ sagði Birkir Ívar að lokum en bætti við að það kæmi ekkert annað til greina en að hirða bikarinn. hjalti@frettabladid.is Áttum einfaldlega ekki skilið að vinna leikinn Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Fram, segir að of margt hafi brugðist til að Fram hafi getað lagt sterkt lið Hauka að velli. Haukar unnu leikinn 30-27 og mæta Stjörnunni í bikarúrslitaleik karla þann 25. nóvember í Laugardalshöll. MYND Andri Stefan leikmaður Hauka skorar hér eitt af fimm mörkum sínum í leiknum án þess að Þorri Guðmundsson og Stefán Stefánsson komist til varnar FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HANDBOLTI „Við byrjuðum leikinn mjög vel og höfðum svör við öllu sem þeir gerðu. Þeir buðu okkur velkomna í skot og við hittum vel þannig að ég er hæstánægður,“ sagði Patrekur Jóhannesson eftir að Stjarnan tryggði sér í úrslita- leik SS-bikars karla með 36-32 sigri gegn ÍBV á heimavelli sínum í gær. Stjarnan hafði forystuna allan tímann, voru yfir 19-14 í hálf- leik og unnu á endanum með fjög- urra marka mun. Eyjamenn tóku Tite Kalandaze og Patrek báða úr umferð á kafla í seinni hálfleik en það skilaði ekki tilætluðum árangri. „Við vorum mjög vel undirbúnir og allir sinntu sínu hlutverki. Öfugt við þá héldum við kjafti og það skil- aði sér. Þeir svekkja sig líklega á því núna að hafa verið að rífa kjaft allan leikinn,“ sagði Patrekur en hann var markahæstur í leiknum með ellefu mörk. Leikmenn ÍBV létu mótlætið fara í taugarnar á sér og voru mikið að svekkja sig á dómgæslunni. „Í byrjun vorum við alltof hátt stemmdir andlega og vorum að láta reka okkur af velli á klaufalegan hátt. Svo vorum við að pirra okkur út í dómarana og þeir borga það margfalt til baka í leiknum. Til að byrja með vorum við að gera slæm mistök í sókninni en svo komst það í gang. Vörnin hjá okkur var alveg hrikaleg og þar af leiðandi var erf- itt fyrir Bjögga að standa í mark- inu. Stjarnan er með þrusugott lið og ef maður ætlar að ná að sigra Stjörnuna þá verður maður að spila vörn,“ sagði Kristinn Guðmunds- son, þjálfari ÍBV, í leikslok. Mladen Cacic var bestur í liði gestanna í gær og skoraði tíu mörk. Fjölmenni var á leiknum í gær og stuðningsmenn Stjörnunnar létu vel í sér heyra og gáfu leiknum skemmtilegan lit. „Það er að mynd- ast góð stemning hérna og stuðn- ingsmennirnir eiga stóran þátt í þessum sigri í dag,“ sagði Patrekur sem var hæstánægður með stuðn- inginn sem liðið hefur fengið. - egm Stjarnan komst í gær í úrslit bikarsins með dyggum stuðningi í Ásgarði: ÍBV átti fá svör gegn Stjörnunni GÓÐUR LEIKUR Tite Kalandadze átti góðan leik og skoraði 6 mörk.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.