Fréttablaðið - 13.02.2006, Qupperneq 2
2 13. febrúar 2006 MÁNUDAGUR
Skráning fer fram á www.landsbanki.is og í Þjónustuveri bankans í síma
410 4000. Allar nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara er að finna á
www.landsbanki.is. Í boði er kaffi og veitingar. Fundargestir verða leystir
út með lítilli gjöf.
410 4000 | www.landsbanki.is
Fimmtudagskvöld
eru fjármálakvöld
Fyrirlestur í Austurbæjarútibúi Landsbankans, Laugavegi 77
16. febrúar kl. 20
- Efnahagsmál í upphafi árs
- Hvar liggja fjárfestingatækifærin?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
12
80
02
/2
00
6
JAPAN, AP Níutíu og einn Japani
lét lífið í 34 tilfellum í fyrirfram
skipulögðum sjálfsvígum í fyrra,
fleiri en nokkurn tímann áður.
Fólkið kynntist á netinu, hittist
og svipti sig lífi öll á sama tíma.
Flestir voru á milli tvítugs og
fertugs og voru karlar fleiri en
konur.
Í október síðastliðnum hófu
vefstjórar að gefa lögreglu nöfn og
heimilisföng þeirra sem virðast
vera að íhuga sjálfsvíg og í kjöl-
farið snarfækkaði hópsjálfsvíg-
um. Sjálfsvíg eru tíðari í Japan en
hjá flestum öðrum þjóðum. Árið
2004 féllu yfir 32.000 Japanar
fyrir eigin hendi. - smk
Japanar kynnast á netinu:
Fremja sjálfsvíg
í sameiningu
SPURNING DAGSINS
Magnús, er þetta ekki orðin
nokkuð dýr bíladella?
Jú, þetta er farið að vinda upp á sig. En
Toyotabílar eru góðir bílar svo þetta er
vel þess virði.
Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í
Vestmannaeyjum, keypti nú á dögunum
Bílaleiguna Hertz en áður hafði hann keypt
Toyotaumboðið. Hann sagði í samtali
við Fréttablaðið í gær að hann væri ekki
bílakóngur Íslands en væri hins vegar mikill
bíladellukarl.
Sjö ölvaðir við akstur Lögregl-
an í Reykjavík stöðvaði sjö drukkna
ökumenn aðfaranótt sunnudags og í
gærmorgun. Að öðru leyti gekk nóttin
að mestu áfallalaust fyrir sig.
Vinnupallur í höfuð Maður var flutt-
ur á slysadeild Landspítalans í Reykjavík
laust fyrir miðnætti á laugardag eftir að
hafa fengið vinnupall í höfuðið. Hann
slapp án alvarlegra áverka.
Innbrot í Þingholtunum Lögreglan
var í fyrrinótt kölluð að íbúðarhúsi í
Þingholtunum þar sem brotist hafði
verið inn. Þjófurinn, sem er ófundinn,
hafði á brott með sér hljómflutnings-
tæki en lét annað kyrrt liggja.
Mikil drykkja í Kópavogi Mikill erill
var hjá lögreglunni í Kópavogi í fyrrinótt.
Meiriháttar atvik voru svo að segja engin
en mikið var um minni háttar áfengis-
tengd útköll.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ORKUMÁL RARIK og Orkubú Vest-
fjarða ætla að vinna áfram að
stofnun raforkusölufyrirtækis
hvort sem Landsvirkjun leggur
Laxárvirkjun inn í reksturinn eða
ekki.
Tryggvi Þór Haraldsson, for-
stjóri RARIK, segir þó beðið eftir
endanlegri niðurstöðu Lands-
virkjunar. Undir það tekur Bjarni
Sólbergsson, fjármálastjóri Orku-
bús Vestfjarða.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
stjórnarformaður Landsvirkjun-
ar, segir ákvörðun stjórnarinnar
standa. Hann hugar ekki að afleið-
ingunum stöðvi Reykjavíkurborg
Landsvirkjun í fyrirætlunum
sínum. Stjórnarfundur 17. febrúar
skeri úr um framhaldið.
Efasemdaraddir úr borgarráði
Reykjavíkur um að stjórnin hafi
heimildir til að leggja Laxár-
virkjun inn í nýtt sölufyrirtæki
RARIK og Orkubúsins hafa borist
henni. Jóhannes segir forstjórann
þá þegar hafa kannað það og sam-
kvæmt lögfræðiáliti hafi stjórnin
allar heimildir sín megin. Borgin
hafi tíma til að gera athugasemdir
fyrir stjórnarfundinn: „Við hlust-
um á það sem eigendurnir hafa
að segja án þess að láta það stýra
okkur.“
Reykjavíkurborg á 45 prósent
í Landsvirkjun og 95 prósent í
Orkuveitu Reykjavíkur. Tryggvi
segir hagsmunaárekstra valda
ólgunni hjá þeim borgarfulltrúum
sem telji borgina bera skertan hlut
frá borði. Jóhannes segir það ljóst
af orðum borgarfulltrúanna og
segir eignarhald á fyrirtækjunum
mjög snúið sem kristallist í mál-
inu. „Mjög slæmt er að ríkið og
borgin náðu ekki saman um sölu
orkuveitunnar á sínum tíma.“
Fjögur orkufyrirtæki hafa lýst
yfir að þau væru tilbúin að greiða
mun hærra verð fyrir virkjunina
en þann rúma milljarð sem Lands-
virkjun og orkufyrirtækin tvö
meta hana á í viðskiptum sínum.
Jóhannes segir virkjunina ekki til
sölu: „Hins vegar ef einhver er til
í að greiða fjóra til sex milljarða,
eins og hæst hefur verið nefnt,
veit ég ekki hvað við myndum
gera.“
Tryggvi bendir á að Lands-
virkjun eignist tæplega 30 pró-
senta hlutdeild í sölufyrirtækinu
í stað Laxárvirkjunar. RARIK sé
ekki tilbúið að greiða meira en
milljarðinn fyrir hana. „Virkjunin
er verðmetin miðað við þá sam-
keppni sem hún á að standast og
má því ekki vera dýrari en svo að
hún ráði við hana.“
gag@frettablaðið.is
Ákvörðun stjórnar
verður ekki haggað
Stjórnarformaður Landsvirkjunar segir ákvörðun um að Laxárvirkjun renni
inn í nýtt sölufyrirtæki þess með RARIK og Orkubúi Vestfjarða standa. Málið
bíði næsta stjórnarfundar. Af samvinnu verður, með eða án Landsvirkjunar.
BARIST UM LAXÁRVIRKJUN Orkufyrirtæki berjast um Laxárvirkjun þar sem ódýrara er að
framleiða sjálfur orku til smásölu heldur en að kaupa hana í heildsölu af Landsvirkjun.
VIÐSKIPTI Sænska lággjaldaflug-
félagið FlyMe, sem er að stórum
hluta í eigu Fons eignarhaldsfé-
lags, hefur tryggt sér kauprétt
á öllum hlutabréfum Litháíska
flugfélagsins Lithuanian Airlines.
Lithuanian Airlines hefur fjörutíu
prósenta hlutdeild á litháískum
flugmarkaði. Hjá félaginu starfa
580 starfsmenn og flotinn telur
fimm Boeing þotur og tvær minni
SAAB vélar.
Aðspurður um málið segir
Pálmi Haraldsson, annar eigenda
Fons, að kaupin séu mikill sigur
fyrir íslenska flugsögu. Fons er
eigandi Iceland Express. - sh
FLyMe kaupir Lithuanian Airlines:
Haslar sér
völl í Litháen
PÁLMI HARALDSSON Er ánægður með
kaupin á litháíska flugfélaginu.
JEDDA, AP Þær Cherie Blair, for-
sætisráðherrafrú Breta, og Mary
McAleese, forsætisráðherra Ír-
lands, eru staddar í Sádi-Arabíu og
notuðu tækifærið í gær til þess að
hvetja þarlenda ráðamenn til þess
að veita konum aukin réttindi.
Þær héldu báðar ræðu á efnahags-
ráðstefnu í borginni Jedda.
„Aisha, fyrsta eiginkona spá-
mannsins, stundaði sjálf viðskipti
með miklum árangri,“ sagði
McAleese í ræðu sinni og uppskar
mikið klapp frá konum í ráðstefnu-
salnum, en þær voru um það bil
helmingur áheyrenda. Kynjunum
var þó haldið aðskildum í salnum.
Blair sagði í sinni ræðu að
Sádi-Arabía og fleiri ríki, sem
letja konur frá því að leita sér
frama í stjórnmálum eða afla
sér menntunar, væru að sóa mik-
ilvægum mannauði. Þessi sóun
hamli beinlínis frekari þróun í
heilbrigðismálum, tefji fyrir því
að tekjur hækki og haldi aftur af
tækniþróun.
„Mannréttindi og þróun haldast
í hendur. Að mennta stúlkur er
meðal mikilvægustu fjárfestinga
sem nokkurt land getur gert fyrir
framtíð sína. - gb
CHERIE BLAIR Hvatti leiðtoga í Sádi-Arabíu til þess að efla réttindi kvenna. MYND/AP
Cherie Blair og Mary McAleese á efnahagsráðstefnu í Sádi-Arabíu:
Hvetja til aukinna kvenréttinda
VÍSINDI Vísindasiðanefnd er enn að
afla gagna um nefúðarannsóknir
sem gerðar voru á vegum Lyfja-
þróunar hf.
Nefndinni bárust ábendingar
um að hugsanlega hefði verið átt
við niðurstöður rannsóknar sem
sneri að bólusetningu með nefúða,
en rannsóknirnar fóru fram á
árunum 2001 til 2005. Þeim var þá
hætt, þar sem niðurstöður rann-
sóknarinnar voru ekki eins góðar
og vonast var eftir í fyrstu.
Nefndin hefur að undanförnu
rætt við fagfólk sem vann við
rannsóknirnar auk þess sem Lyfja-
þróun hf. hefur veitt alla þá aðstoð
sem nefndin hefur óskað eftir. - mh
Nefúðarannsókn til skoðunar:
Enn verið að
afla gagna
MANSTON, AP „Ég var virkilega
heppinn að hafa komist hingað í
dag, það gekk heilmikið á,“ sagði
ævintýramaðurinn Steve Foss-
ett á laugardaginn á flugvelli í
Bournemouth á Englandi eftir að
hafa flogið samfleytt í 76 klukku-
stundir, eða rúmlega þrjá sólar-
hringa.
Fossett var býsna ánægður
með tilveruna, því með þessu
flugi hafði hann sett nýtt met í
langflugi. Honum tókst að fljúga
hringinn í kringum jörðina, og
gott betur, án þess að lenda og án
þess að taka eldsneyti á leiðinni.
Samtals lagði hann að baki
42.467,5 kílómetra og sló þannig
eldra metið frá 1986, sem var
40.210 kílómetrar.
Síðasti hluti ferðarinnar
reyndist erfiðastur og Fossett
neyddist til þess að lenda flugvél
sinni örlítið fyrr en hann hafði
ásett sér.
Það var auðjöfurinn Richard
Branson sem fjármagnaði flug-
ið og fagnaði hann ákaft þegar
Fossett lenti.
Fossett lenti í margvíslegum
erfiðleikum á leiðinni, missti til
að mynda mikið eldsneyti strax
við upphaf ferðarinnar í Banda-
ríkjunum. Einnig lenti hannn
í miklum sviptivindum yfir
Indlandi. ■
BRANSON KYSSIR FOSSETT Richard Branson
fagnaði ákaft þegar Steve Fossett hafði lent
heilu og höldnu eftir lengsta flug sögunnar.
MYND/AP
Ævintýramaðurinn Steve Fossett setti met í langflugi:
Á flugi í þrjá sólarhringa
TRYGGVI ÞÓR HAR-
ALDSSON Forstjóri
RARIK
JÓHANNES GEIR
SIGURGEIRSSON
Stjórnarformaður
Landsvirkjunar
LÖGREGLA Farþegi var handtekinn í
Leifsstöð í gær eftir að hafa verið
staðinn að því að reykja um borð
í flugvél Flugleiða. Vélin var að
koma frá Kaupmannahöfn og á
miðri leið urðu flugfreyjur þess
áskynja að reykjarlykt var á einu
salerninu.
Venju samkvæmt var lögregla
kvödd á staðinn og fór maðurinn
frá borði í fylgd lögreglumanna.
Maðurinn á yfir höfði sér fjársekt
vegna athæfisins.
Að sögn lögreglunnar gerist
það alltaf af og til að flugfarþegar
séu gripnir við reykingar en slíkt
er stranglega bannað. - hvá
Lögregla beið flugfarþega:
Reykti um
borð í flugvél
FLUGVÉL FLUGLEIÐA Farþegi braut reglur og
reykti á salerni vélar sem var að koma til
landsins frá Kaupmannahöfn.