Fréttablaðið - 13.02.2006, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 13.02.2006, Blaðsíða 20
[ ] ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir 534 1300 w w w . g l u g g a l a u s n i r . i s Góð lausn fyrir gluggann Hafðu samband og við komum heim til þín Verkfæri af ýmsu tagi geta alltaf komið sér vel. Það er nauð- synlegt fyrir jafnvel minnstu heimili að eitthvað sé til af helstu verkfærunum. Listakonan Kristín Sigfríður Garðarsdóttir í Stúdíó Subba hefur mikið unnið með ker- amik. Fyrir stuttu fékk hún þá hugmynd að hanna bolla fyrir vinkonur sínar og framkvæmdi hana með skemmtilegum árangri. „Ég hef unnið mikið með bolla, glös og nytjahluti yfirleitt. Þessi hugmynd þróaðist meðal annars út frá sýningu sem ég tók þátt í þar sem ég hannaði drykkjarílát fyrir álfa og huldufólk. Ég hugsa oft út í það hvað ég hef verið heppin í lífinu, þar á meðal hvað varðar vinkonur. Mér finnst ég til dæmis hafa eignast bestu vinkonurnar,“ segir Kristín Sig- fríður sem fékk þá skemmtilegu hugmynd að gera bolla fyrir vinkonur sínar. „Ég prófaði að hanna veltibolla sem ég setti letur á. Ég handskrifaði orðið „takk“ til að byrja með og lét það mynda hring. Hringurinn passar bollanum fullkomlega og er tákn án upphafs og endis. Ég þrykki hringjunum á í mismunandi stærðum eftir því hvort takk er hvíslað eða kallað.“ Kristín segist oft finnast sem hún gleymi að vera þakklát fyrir ýmislegt. „Ég á frábærar vin- konur og ákvað að þakka þeim fyrir allt og allt með þessum hætti,“ segir Kristín sem fer svo sannarlega frumlega leið í því að skila þökkum til vinkvenna sinna með því að gera bolla fyrir þær í Stúdíó Subba. Hún hefur þegar gefið fyrsta bollann. „Ég ákvað að gefa Rögnu Fróða fatahönnuði fyrsta boll- ann, hún er góð vinkona mín og við stofnuðum skokkklúbb saman. Reyndar eru bara tveir meðlimir í þessum klúbbi, við tölum svo mikið að það er varla pláss fyrir fleiri,“ segir Kristín sem ætlar sér heimsyfirráð með bollunum. „Ég er þegar farin að þróa þessa hugmynd áfram og ætla að þýða „takk“ á mis- munandi tungumál sem verð- ur þá „international“-bollinn. Þegar ég er búin að setja Subba group á laggirnar þá fer maður að dreifa bollum um alla ver- öld,“ sagði Kristín hlæjandi að lokum. Nú er vinkonubollinn fáan- legur fyrir allar vinkonur í Kirsuberjatrénu Vesturgötu. Á bestu vinkonurnar Vinkonubollarnir sem eru liður í útrásar- verkefni Subba group. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Kristín Sigfríður Garðarsdóttir hannaði vinkonubollana upphaflega til að þakka góðum vinkonum sínum.FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ���������������� ���������� ������������ ���������������� �������������� ����� ������ ����������������� ���������� ������������� ������������������������ ����� ����� LUMEX SELUR LJÓS OG HÚSGÖGN FRÁ HOLLENSKA HÖNNUNARFYRIRTÆKINU MOOOI. Verslunin Lumex hefur hafið sölu á vörum frá hollenska hönnunarfyrirtækinu Moooi. Hönnuðurinn Marcel Wanders, sem fékk mikið lof og athygli á Salone del Mobile í Mílanó, er listrænn stjórnandi Moooi sem hefur verið starfrækt síðan 2001. Fjöldi hönnuða hefur gengið til liðs við fyrirtækið síðan það var stofnað og má þar nefna Erwin Olaf, Li Edelkoort, Ross Lovegrove, Jurgen Bey og Joep van Lieshout. Moooi leggur áherslu á að hafa jákvæð áhrif á umhverfi fólks í lífi og starfi með hönnun sinni. Vörurnar eru einstaklega fallegar og alveg þess virði að líta við í Lumex og kynna sér þessa athyglisverðu hönnun. Moooi er athyglisverð hönnun frá Hollandi. Hollensk hönnun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.