Fréttablaðið - 13.02.2006, Blaðsíða 62
13. febrúar 2006 MÁNUDAGUR44
Íbúðalánum fækkaði milli
mánaðanna desember og
janúar og meðallánsfjárhæð
lækkaði einnig.
Ný íbúðalán íslenskra innláns-
stofnana í janúar sl. námu tæpum
7,8 milljörðum króna. Það er innan
við helmingur þess sem þau voru
að jafnaði á hverjum mánuði síð-
asta árs, en þá námu þau tæplega
17 milljónum.
Í desember voru ný lán tæpir
12,4 milljarðar. Samdrátturinn
stafar bæði af fækkun lána og
einnig því að meðal lánsfjárhæð
lækkaði lítillega og endurspeglar
þetta þá þróun að dregið hefur úr
hækkunum fasteignaverðs upp á
síðkastið. Til dæmis nemur sam-
dráttur í fjölda kaupsamninga á
höfuðborgarsvæðinu milli desem-
ber 2005 og janúar 2006 17 pró-
sentum. Heildarútlán bankanna
vegna nýrra íbúðalána eru nú
ríflega 330 milljarðar króna.
Lánum fækkar
og lánsfjár-
hæð lækkar
Enn er byggt og byggt.
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
30/12-
5/1
108
23/12-
29/12
104
6/1-
12/1
88
13/1-
19/1
93
20/1-
26/1
131
27/1-
2/2
180
Steinunn Vala Sigfúsdóttir, stigavörður í
Gettu betur, segir að draumahúsið henn-
ar hafi breyst aðeins eftir að hún varð
móðir. „Mig dreymdi alltaf um að eign-
ast íbúð í miðbænum en núna langar
mig meira að eignast hús í rólegu hverfi
nálægt góðum skóla,“ segir Steinunn en
Seltjarnarnesið heillar hana mjög mikið
og hún gæti vel hugsað sér að búa þar.
Steinunn segir að ef hún gæti byggt
sitt eigið draumahús þá myndi hún fá
fagfólk til liðs við sig til þess að búa til
þægilegt heimili. „Stærðin á húsinu
skiptir mig ekki öllu máli en ég vil að
heimilið sé bjart og þægilegt.“
Steinunn segir að draumahúsið yrði
að vera mjög vel skipulagt. „Mér finnst
skipta miklu máli að hver hlutur eigi sinn
stað á heimilinu. Það verður að vera gott
skápapláss og geymslurými í húsinu svo
hægt sé að koma öllu fyrir á ákveðnum
stöðum því annars er allt úti um allt hjá
mér.
Steinunni finnst eldhúsið líka mikil-
vægt. „Ég og mín fjölskylda höfum alltaf
eytt miklum tíma í eldhúsinu. Ég myndi
vilja eldhús sem væri þægilegt að vinna
í því mér finnst mjög gaman að elda og
svo yrði að vera hægt hafa það notalegt
þar, drekka kaffi og lesa blöðin og svo-
leiðis. Eldhúsið yrði svo náttúrulega að
vera með fullt af skápum til þess að ég
gæti falið öll ljótu eldhústækin mín í
þeim,“ segir Steinunn og hlær.
DRAUMAHÚSIÐ MITT STEINUNN VALA SIGFÚSDÓTTIR STIGAVÖRÐUR Í GETTU BETUR
Hver hlutur verður að eiga sinn stað
Steinunn Vala gæti vel hugsað sér að
búa á Seltjarnarnesinu.
Háteigsskóli á merka sögu að baki.
Hann tók til starfa 15. nóvember
1968 en þá hét hann Æfinga- og
tilraunaskóli Kennaraskólans.
Háteigsskóli var rekin sem æfinga-
deild við Kennaraháskólann allt
frá árinu 1908. Það var ekki fyrr en
1968 að hann hlaut veigameiri sess
en frá 1934 hafði það verið draumur
Kennaraskólafólks að stofna skóla
sem gegndi hlutverki æfinga- og
tilraunaskóla. Draumurinn rættist
með stofnun Háteigsskóla en hann
þjónaði einnig sem skyldunámsskóli
í sínu hverfi.
Frá 1988 til 1999 var skólinn mið-
stöð æfingakennslu í landinu auk
þess að vera helsta þróunarstofnun
í kennslu á grunnskólasviði. Í kjölfar
yfirtöku sveitarfélaga á rekstri
grunnskóla 1996 breyttist hlutverk
Háteigsskóla og var hlutverki hans
sem þróunarstofnun lokið árið
1999. Skólinn heldur þó enn í sterkt
samband sitt við Kennaraháskólann
og fjölmargir framtíðarkennarar
stíga fyrstu spor sín í æfingakennslu
í Háteigsskóla.
HÁTEIGSSKÓLI