Fréttablaðið - 13.02.2006, Blaðsíða 72
28 13. febrúar 2006 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JANÚAR
10 11 12 13 14 15 16
Mánudagur
■ ■ SJÓNVARP
18.30 NBA-körfuboltinn á Sýn.
Viðureign Miami Heat og Detroit
Pistons endursýnd.
20.30 Ítölsku mörkin á Sýn. Öll
flottustu tilþrifin í ítalska boltanum
um helgina.
21.00 Ensku mörkin á Sýn. Mörk
helgarinnar í ensku 1. deildinni.
21.30 Spænsku mörkin á Sýn.
Glæsileg mörk úr sterkustu knatt-
spyrnudeild heims.
22.30 Hm 2002 á Sýn. Sérvalinn
leikur úr síðustu heimsmeistara-
keppni sem fram fór í Suður-Kóreu
og Japan.
Vetrarólympíuleikarnir á Rúv verða
að sjálfsögðu á sínum stað allan
daginn og samantekt um kvöldið.
Hannes Þ. Sigurðsson spilaði á laugar-
daginn sinn fyrsta heila leik fyrir Stoke
City í ensku 1. deildinni í nokkuð lang-
an tíma en hann hefur átt við ökkla-
meiðsli að stríða. „Þessi leikur var lítið
frábrugðinn flestum öðrum leikjum hjá
okkur á tímabilinu. Við höfum verið að
spila ágætis bolta en erum ekkert vak-
andi í föstum leikatriðum og erum að
gera dýrkeypt mistök,“ sagði Hannes en
Stoke tapaði leiknum 3-0 fyrir Cardiff og
er í sextánda sæti deildarinnar. Draumar
um að komast upp á þessu tímabili eru
fjarlægir.
„Þetta var fyrsti leikurinn þar sem ég
fékk að spila í minni stöðu allan leikinn.
Hingað til hef ég aðallega verið notaður
á vinstri kantinum og einnig eitthvað á
þeim hægri. Nú lék ég í sókninni allan
leikinn og það var mjög gaman að
fá að gera það aftur. Það er bara
synd að maður hafi ekki náð að
skora. Það kemur bara í næsta
leik,“ sagði Hannes sem fékk
nokkur skotfæri sem hann
náði ekki að nýta.
Hannesi líkar lífið í Stoke
mjög vel. „Enski boltinn er
stórskemmtilegur og
það er gaman að fá
að taka þátt í honum.
Gengi liðsins hefur
reyndar ekki alveg
verið eins og við
vonuðumst eftir.
Við höfum kastað
öllum möguleikum
frá okkur í síðustu
átta til níu leikjum,“
Hannes var viðriðinn A-landslið
Íslands undir lok stjórnartíðar Ásgeirs
og Loga. Nú fer Eyjólfur Sverrisson
að tilkynna fyrsta landsliðshóp sinn
og verður spennandi að sjá hvort
Hannes verði hluti af honum. „Að
sjálfsögðu er það metnaður manns
að komast í hópinn eins og
hjá öllum öðrum. Það
eina sem ég get gert er
að reyna að standa mig
eins vel og ég get með
mínu liði og vonað það
besta,“ sagði Hannes
sem hefur verið helsti
markaskorari U21 lands-
liðsins en Eyjólfur stýrði
því eins og kunnugt er.
HANNES Þ. SIGURÐSSON HEFUR SNÚIÐ AFTUR Í LEIKMANNAHÓP STOKE EFTIR MEIÐSLI
Ég skora bara í næsta leik
FÓTBOLTI Á ársþingi Knattspyrnu-
sambands Íslands sem fram fór
um helgina var samþykkt álykt-
un þar sem mótmælt er harðlega
vinnubrögðum stjórnar Íþrótta- og
ólympíusambands Íslands að snið-
ganga hreyfinguna við úthlutun á
fjárframlagi. Eggert Magnússon,
formaður KSÍ, sagði í ræðu sinni
að svona framkoma væri gjörsam-
lega óásættanleg.
„Ég er mjög ósáttur við það
að þeir fjármunir sem koma frá
ríkisvaldinu og eiga að renna til
íþróttastarfs á Íslandi skuli ekki
vera skipt rétt. Ég er í forsvari
fyrir langstærsta íþróttasamband
á Íslandi og við höfum verið að
reka það mjög vel í mörg ár. Það
er fáránlegt að verið sé að refsa
okkur fyrir það. Ef við hefðum
meiri fjármuni á milli handanna
þá gætum við gert mun meira,
spilað fleiri landsleiki og sinnt
grasrótarstarfinu betur,“ sagði
Eggert í samtali við Fréttablaðið.
Í ræðu sinni talaði Eggert um
að í raun væri verið að verðlauna
skussana. „Ég er þó ekki að tala
um alla. Sumir eru að vinna mjög
gott starf,“ sagði Eggert sem vill
breytingar í þessum málum sem
allra fyrst. „Ég er búinn að vera
að tala um þetta í mörg ár og ÍSÍ
hefur haft nægan tíma til að leið-
rétta þetta ef vilji væri til þess.
Það kom þrjátíu milljóna króna
framlag frá menntamálaráðherra
til sérsambandanna og þar fékk
KSÍ ekki krónu. Við munum senda
mótmæli til menntamálaráðherra
og spyrja hvort það hafi verið
hennar hugsun að stærsta íþrótta-
hreyfingin myndi ekki njóta neins
af því.“
Eggert var endurkjörinn for-
maður á þinginu ásamt allri
stjórn sambandsins. Hann sagði
í ræðu sinni að fjárhagsstyrkur
KSÍ hefði vaxið síðustu ár með
markvissum vinnubrögðum en
ekki verið í fjárstyrkjum frá
UEFA eða FIFA eins og margir
virðast halda. Hann er sannfærð-
ur um að fá vilja sínum framgengt
varðandi þessi fjárframlög þó það
gæti tekið tím. „Að lokum vinnum
við sigur, ég er sannfærður um að
ríkisvaldið hafi eitthvað um þetta
að segja,“ sagði Eggert. - egm
Mjög ósáttur við vinnubrögð ÍSÍ
Eggert Magnússon, formaður KSÍ, lét í sér heyra á ársþingi sambandsins um helgina og í ræðu sinni gagn-
rýndi hann stjórn ÍSÍ harðlega vegna úthlutunar á fjárframlagi frá menntamálaráðherra.
EGGERT ÓSÁTTUR Eggert Magnússon er allt annað en sáttur við framkomu ÍSÍ.
> KR fær flestar stjörnur
Á ársþingi KSÍ um helgina var samþykkt
tillaga þess efnis að félög megi setja
eina stjörnu á búning sinn fyrir hverja
fimm Íslandsmeistaratitla sem þau
hafa unnið til. Fimm félög geta fengið
stjörnur í búninga sína en þau eru KR,
Valur, Fram, ÍA og Víkingur. KR getur
fengið flestar stjörnur eða fjórar talsins
en Vesturbæjarfélagið hefur unnið alls
24 Íslandsmeistaratitla en þann síðasta
vann það árið 2003. Valur gæti fengið
þrjár stjörnur en félagið hampaði síðast
Íslandsmeistaratitli árið 1987. Fram og
ÍA gætu einnig fengið þrjár
stjörnur en hvort félag
hefur unnið 18 titla, Fram
síðast 1990 og ÍA árið 2001.
Víkingar gætu fengið sér
eina störnu fyrir sína
fimm Íslandsmeistar-
atitla en hann unnu
þeir síðast árið
1991.
Fyrsti hópurinn
Snemma á morgun mun Eyólfur Sverr-
isson tilkynna sinn fyrsta landsliðshóp
og verður spennandi að sjá hverjir hljóta
náð fyrir hans augum. Ívar Ingimarsson,
leikmaður Reading, gefur kost á sér á
nýjan leik en hann vildi ekki leika fyrir
landsliðið undir stjórn Ásgeirs og Loga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
TL
I