Fréttablaðið - 13.02.2006, Page 20
[ ]
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
534 1300
w w w . g l u g g a l a u s n i r . i s
Góð lausn
fyrir gluggann
Hafðu samband og við
komum heim til þín
Verkfæri af ýmsu tagi geta alltaf komið sér vel. Það er nauð-
synlegt fyrir jafnvel minnstu heimili að eitthvað sé til af helstu
verkfærunum.
Listakonan Kristín Sigfríður
Garðarsdóttir í Stúdíó Subba
hefur mikið unnið með ker-
amik. Fyrir stuttu fékk hún þá
hugmynd að hanna bolla fyrir
vinkonur sínar og framkvæmdi
hana með skemmtilegum
árangri.
„Ég hef unnið mikið með bolla,
glös og nytjahluti yfirleitt. Þessi
hugmynd þróaðist meðal annars
út frá sýningu sem ég tók þátt í
þar sem ég hannaði drykkjarílát
fyrir álfa og huldufólk. Ég hugsa
oft út í það hvað ég hef verið
heppin í lífinu, þar á meðal hvað
varðar vinkonur. Mér finnst ég
til dæmis hafa eignast bestu
vinkonurnar,“ segir Kristín Sig-
fríður sem fékk þá skemmtilegu
hugmynd að gera bolla fyrir
vinkonur sínar. „Ég prófaði að
hanna veltibolla sem ég setti
letur á. Ég handskrifaði orðið
„takk“ til að byrja með og lét það
mynda hring. Hringurinn passar
bollanum fullkomlega og er tákn
án upphafs og endis. Ég þrykki
hringjunum á í mismunandi
stærðum eftir því hvort takk er
hvíslað eða kallað.“
Kristín segist oft finnast sem
hún gleymi að vera þakklát fyrir
ýmislegt. „Ég á frábærar vin-
konur og ákvað að þakka þeim
fyrir allt og allt með þessum
hætti,“ segir Kristín sem fer svo
sannarlega frumlega leið í því
að skila þökkum til vinkvenna
sinna með því að gera bolla fyrir
þær í Stúdíó Subba. Hún hefur
þegar gefið fyrsta bollann.
„Ég ákvað að gefa Rögnu
Fróða fatahönnuði fyrsta boll-
ann, hún er góð vinkona mín
og við stofnuðum skokkklúbb
saman. Reyndar eru bara tveir
meðlimir í þessum klúbbi, við
tölum svo mikið að það er varla
pláss fyrir fleiri,“ segir Kristín
sem ætlar sér heimsyfirráð með
bollunum. „Ég er þegar farin
að þróa þessa hugmynd áfram
og ætla að þýða „takk“ á mis-
munandi tungumál sem verð-
ur þá „international“-bollinn.
Þegar ég er búin að setja Subba
group á laggirnar þá fer maður
að dreifa bollum um alla ver-
öld,“ sagði Kristín hlæjandi að
lokum.
Nú er vinkonubollinn fáan-
legur fyrir allar vinkonur í
Kirsuberjatrénu Vesturgötu.
Á bestu vinkonurnar
Vinkonubollarnir sem eru liður í útrásar-
verkefni Subba group. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kristín Sigfríður Garðarsdóttir hannaði vinkonubollana upphaflega til að þakka góðum
vinkonum sínum.FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
����������������
����������
������������
����������������
��������������
����� ������
�����������������
����������
�������������
������������������������
����� �����
LUMEX SELUR LJÓS OG HÚSGÖGN FRÁ HOLLENSKA
HÖNNUNARFYRIRTÆKINU MOOOI.
Verslunin Lumex hefur hafið sölu á vörum frá hollenska
hönnunarfyrirtækinu Moooi. Hönnuðurinn Marcel
Wanders, sem fékk mikið lof og athygli á Salone del
Mobile í Mílanó, er listrænn stjórnandi Moooi sem
hefur verið starfrækt síðan 2001. Fjöldi hönnuða hefur
gengið til liðs við fyrirtækið síðan það var stofnað og
má þar nefna Erwin Olaf, Li Edelkoort, Ross Lovegrove,
Jurgen Bey og Joep van Lieshout. Moooi leggur áherslu
á að hafa jákvæð áhrif á umhverfi fólks í lífi og starfi
með hönnun sinni. Vörurnar eru einstaklega fallegar
og alveg þess virði að líta við í Lumex og kynna
sér þessa athyglisverðu hönnun.
Moooi er athyglisverð
hönnun frá Hollandi.
Hollensk hönnun