Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.02.2006, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 13.02.2006, Qupperneq 4
4 13. febrúar 2006 MÁNUDAGUR GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 10.2.2006 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 63,09 63,39 Sterlingspund 110,25 110,79 Evra 75,5 75,92 Dönsk króna 10,112 10,172 Norsk króna 9,347 9,403 Sænsk króna 8,151 8,199 Japanskt jen 0,5364 0,5396 SDR 90,81 91,35 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 106,0024 DÓMSMÁL Maður sem tekinn var fyrir að aka ölvaður á 159 kíló- metra hraða um Austur-Húna- vatnsýslu hefur verið dæmdur í Hæstarétti í sex mánaða skilorðs- bundið fangelsi til þriggja ára. Við handtöku lögreglunnar framvísaði maðurinn skilríkj- um annars sem var í kjölfarið ákærður fyrir aksturinn. Sá kom fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og greindi frá því að veskinu hans hafi verið stolið á veitingastað í miðbænum. DNA rannsókn í Nor- egi skar úr um hver ók bifreiðinni og komst maðurinn því ekki hjá dómi, en þar sem hann var aðeins 19 ára þótti skilorð við hæfi. - gag Réttindalaus lygalaupur: Drukkinn á ofsahraða DANMÖRK Árásir tölvuþrjóta úr röðum múslima á danskar vefsíð- ur hafa margfaldast undanfarna daga. Ekkert bendir til að fárið sem yfir Dani hefur riðið á netinu vegna Múhameðsteikningamáls- ins sé í rénun. Þvert á móti séu tölvuþrjótaárásir á heimasíður og vefi danskra fyrirtækja, stofnana og einstaklinga að færast sífellt í vöxt. Þetta hefur fréttavefur Politiken eftir tölvumálafrétta- vefnum ComOn, sem fékk netör- yggisfyrirtækið FortConsult til að kanna umfang tölvuþrjótaárás- anna. Mest beri á slíkum árásum frá Tyrklandi og Nígeríu. ■ Múhameðsteikningafárið: Vaxandi árásir tölvuþrjóta Rangt var farið með nöfn Sigríðar Rósu Magnúsdóttur og Kristins Guðlaugsson- ar í frétt blaðsins um prófkjör Sjálfstæðis- flokksins á Álftanesi. LEIÐRÉTTING Fjórir fluttir á slysadeild Fjórir krakkar á tvítugsaldri keyrðu út af á Kjalarnesi, snemma í gærmorgun, með þeim afleiðingum að bíllinn lenti á staur og stórskemmdist. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu voru áverkar ung- mennanna minni háttar. LÖGREGLUFRÉTT LYFJAMÁL Skilgreindum dag- skömmtum á ofvirknilyfinu rítalíni hefur farið fjölgandi á undanförnum árum og þeir farið stækkandi. Lyfseðlum þar sem ávísað er á það fækkaði hins vegar á sama tíma, svo og einstakling- um sem notuðu þetta umrædda lyf. Þetta kemur fram á heima- síðu Landlæknisembættisins. Áhyggjur sumra vegna vax- andi notkunar ritalíns eru skilj- anlegar þar sem um er að ræða lyf sem meðal annars er gefið börnum og það virkar á mið- taugakerfið, að því er fram kemur hjá Matthíasi Halldórs- syni aðstoðarlandlækni. Að auki er lyfið stundum misnotað af fíklum og þá oftast sprautað í æð. Slík misnotkun er vel þekkt hér á landi. „Hafa ber í huga að þegar lyfið er notað í meðferðarskyni er um miklu minni skammta að ræða en þá sem fíklar nota til að komast í vímu,“ segir aðstoðarlandlæknir á heimasíðu embættisins. Engin sérstök vellíðunarkennd fylgir lyfinu í þeim sköm mt u m sem notað- ir eru til meðferðar. Rannsóknir benda til þess að börn- um með ofvirkni og athyglisbrest sé hættara við lyfjamisnotk- un en öðrum þegar fram í sækir. Hins vegar eigi það síður við þau börn sem fengið hafa viðeigandi lyfjameðferð. Landlæknisembættið hefur skipað starfshóp til að skerpa á verklagsreglum varðandi ávísanir á rítalín. - jss MATTHÍAS HALL- DÓRSSON Landlæknisembættið skipar starfshóp til að skerpa á verklagsreglum: Notkun rítalíns fer vaxandi NOTKUN RÍTALÍNS Ár Einstaklingar 2002 1.800 2003 3.200 2004 3.500 2005 3.300 PRÓFKJÖR Engar kærur hafa borist kjörnefndum þeirra þriggja próf- kjöra Sjálfstæðisflokksins sem haldin voru á laugardag. Anna Þóra Baldursdóttir, for- maður kjörnefndar á Akureyri, segir engar athugasemdir hafa borist en kjörnefnd muni funda á næstu dögum. Ársæll Hauks- son, formaður kjörnefndarinnar á Álftanesi, og Óðinn Gestsson, for- maður kjörnefndar á Ísafirði, taka í sama streng og segja allt með felldu. - sh Prófkjör Sjálfstæðisflokksins: Engar athuga- semdir borist WASHINGTON, AP Condoleezza Rice kom fram í gær í bandarísku spjallþáttunum Face the Nation og This Week, þar sem hún sagð- ist meðal annars hafa ákveðnar efasemdir um framtíð lýðræðis í Rússlandi. „Við höfum miklar áhyggjur, ekki síst af ákveðnum þáttum í lýð- ræðisþróuninni sem virðist stefna í vitlausa átt,“ sagði hún í þættin- um Face the Nation, og nefndi sem dæmi miklar takmarkanir sem rússnesk stjórnvöld settu starf- semi frjálsra félagasamtaka nú í byrjun ársins. Hún taldi einnig vafasamt hvernig Rússar notuðu gasveitu sína sem vopn í deilu við Úkraínumenn í vetur. Vladimír Pútín, forseti Rúss- lands, hefur oft verið gagnrýndur fyrir að efla miðstjórnarvaldið á kostnað lýðræðis. Hún tók þó fram að Rússland væri ekki það sama og Sovétríkin. „Við skulum ekki gera of mikið úr þessu,“ sagði hún. Hún sagðist einnig hafa áhyggj- ur af mótmælum múslima víða um heim vegna skopmyndanna af Múhameð spámanni. Hún sagði að mótmælin gætu sem hægast „farið úr böndunum“ ef stjórnvöld neita að haga sér með ábyrgum hætti. „Allir hafa skilning á því að fólki sé ofboðið, að þessar teikni- myndir voru óviðeigandi í heimi múslima,“ sagði hún. „En menn tjá ekki hneykslan sína með því að fara út og brenna sendiráð. Menn láta hneykslun sína í ljós með friðsamlegum hætti.“ Ekki líst henni heldur á þróun mála í Íran. Hún segir ekki hægt að treysta Írönum fyrir kjarnorku sem þeir geti beitt í ófriðsamlegum tilgangi. „Enginn treystir þeim fyrir slíku því þeir hafa verið að ljúga að alþjóðasamfélaginu í átján ár.“ Utanríkisráðherra Banda- ríkjanna sagðist hins vegar ekki hafa minnstu áhyggjur af Osama bin Laden, þrátt fyrir að honum hafi tekist að fela sig með góðum árangri til þess. „Hann er ekki sami maður og sá sem sat allan tíunda áratuginn í Afganistan, með þjálfunarbúðir og fær um að stjórna aðgerðum.“ gudsteinn@frettabladid.is CONDOLEEZZA RICE, UTANRÍKISRÁÐHERRA BANDARÍKJANNA Hefur áhyggjur af lýðræði í Rússlandi, mótmælum gegn dönsku skopmyndunum og kjarnorku í Íran, en lætur Osama bin Laden ekki raska ró sinni. MYND/AP Segir lýðræðisþróun Rússa á villigötum Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir lýðræðisþróun í Rússlandi vera á villi- götum. Hún hefur einnig áhyggjur af því að mótmælin gegn dönsku skopmynd- unum geti orðið stjórnlaus. MARSERAÐ Á RAUÐA TORGINU Pútín þykir of hallur undir miðstjórnarvald. MYND/AP KANADA, AP Ákveðið hefur verið að stofna nýtt 65 þúsund ferkíló- metra friðland við strönd Kyrra- hafsins í suðvesturhluta Kanada. Í regnskóginum, sem heitir Stóru- bjarnaskógurinn er fjöldi grá- bjarna, svartbjarna, úlfa, hjartar- dýra og annarra dýrategunda, og jafnframt er skógurinn heimkynni fjölmargra indjánaþjóðflokka. Þar er auk þess að finna einu heim- kynni hvítra svartbjarna, sem eru í útrýmingarhættu. Innan garðsins verða 18 þús- und ferkílómetrar af friðuðu landi, en til samanburðar má nefna að bandaríski Yellowstone- þjóðgarðurinn nær yfir 8.900 ferkílómetra. - smk Náttúrufriðland í Kanada: Lífríki regn- skóga friðað GRÁBIRNIR Birnir sem þessir eiga ekki lengur á hættu að missa heimkynni sín í regnskógum Kanada. EVRÓPUMÁL Stjórn félags ungra framsóknarmanna í syðra Reykja- víkurkjördæmi telur að aðildar- viðræður við Evrópusambandið séu réttur vettvangur til að láta reyna á hvort hagsmunum Íslend- inga sé betur borgið innan sam- bandsins eða utan þess. Félagið skorar á stjórnvöld að hefja viðræður um aðild Íslands að ESB ekki seinna en á næsta kjörtímabili. - sh Ungir framsóknarmenn: Vilja viðræður um ESB-aðild
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.