Fréttablaðið - 13.02.2006, Qupperneq 8
8 13. febrúar 2006 MÁNUDAGUR
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00-18.00 og laugardaga kl. 12.00-16.00
SKIPT_um væntingarX-TRAIL ELEGANCE
TILBOÐSVERÐ / SJÁLFSKIPTUR
RÍKULEGUR STAÐALBÚNAÐUR
2.790.000 kr.
NISSAN
Veiðikortið 2006 fylgir
öllum 4x4 Nissan bílum
Öllum Nissan X-TRAIL sem keyptir eru
í febrúar fylgja vetrardekk og dráttarbeisli
17" álfelgur, litað gler, 6 diska geislaspilari, 3 drifstillingar,
rafstýrð leðursæti, loftkæling, sjálfskipting, útvarpsfjarstýring
í stýri, sóllúga.
Mataræði grunnskólanema
Betri námsárangur - meiri hreyfing - betri svefn – lífsgleði
Fræðslunefnd Náttúrulækningafélags Íslands efnir til
málþings á Hótel Loftleiðum, þingsal 1 þriðjudaginn
14. febrúar 2006 kl. 20:00.
Frummælendur:
Sigurveig Sæmundsdóttir, skólastjóri Flataskóla
Dr. Laufey Steingrímsdóttir, Lýðheilsustöð
Dr. Erlingur Jóhannsson, dósent, KÍ
Dr. Ingibjörg Gunnarsdóttir dósent, HÍ og LSH
Jón Gnarr foreldri
Fundarstjóri. Svandís Svavarsdóttir
Berum ábyrgð á eigin heilsu!
Allir velkomnir. Verð kr. 700
VEISTU SVARIÐ
1 Hvar eru vetrarólympíuleikarnir haldnir?
2 Hvaða skákmenn háðu einvígi í Landsbankanum á laugardag?
3 Hvað skoraði Heiðar Helguson mörg mörk í leik Fulham og West
Bromwich Albion?
SVÖR Á BLS. 34
KJARAMÁL Slökkviliðs- og sjúkra-
menn gengu af fundi launanefnd-
arinnar í Karphúsinu fyrir helgina
og frá tilboði um 24 prósenta launa-
hækkun, þar sem hækkunin var
einungis tveimur prósentum meiri
en meðalhækkun í þeim samning-
um sem launanefndin hefur gert
síðasta ár, segir Vernharð Guðna-
son formaður samninganefndar
þeirra. „Með hækkuninni hefðu
byrjunarlaun slökkviliðsmanna
orðið 105 þúsund krónur.“
Vernharð segir slökkviliðs-
menn ekki sætta sig lengur við að
vera illa launaðir. Þeir geri hvað
sem þurfi svo þeir fái þau laun sem
þeir telji viðunandi. Hann segir
væntingar manna miklar vegna
launaráðstefnu sveitarfélaganna
og hærri launa í kjölfar hennar.
Tilboðið launanefndarinnar hafi
því valdið þeim vonbrigðum.
Tilboðið hljóðaði upp á 4,5
hækkun á launatöxtum, þriggja
prósenta hækkun vegna starfs-
heitatilfærslna, eins prósents út
af leiðréttingu á yfirvinnupró-
sentu og hækkað framlag í lífeyr-
issjóð eins og aðrir starfsmenn
sveitarfélaganna hafa fengið, sem
og 5,6 prósenta hækkað framlag í
símenntunarsjóð, samkvæmt for-
manni launanefndarinnar. Samn-
inganefndirnar koma saman á
fundi í dag. - gag
Slökkviliðsmenn eru ósáttir við tilboð launanefndarinnar:
105 þúsund eru ekki nóg
SLÖKKVILIÐ AÐ STÖRFUM Slökkviliðs- og
sjúkraflutningamenn ætla að neyta verk-
fallsréttar síns náist ekki samkomulag um
viðunandi laun.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Íbúar Gaul-
verjabæjarhrepps, Villingaholts-
hrepps og Hraungerðishrepps
samþykktu með yfirgnæfandi
meirihluta, eða tæpum 70 prósent-
um atkvæða, sameiningu hrepp-
anna þriggja í kosningum í fyrra-
dag.
Mjótt var þó á munum í Hraun-
gerðishreppi en þar var munurinn
aðeins sjö atkvæði. „Skýringuna
er sennilegast að finna í því að
hér eru það tvær fylkingar sem
eru á móti sameiningu,“ segir
Guðmundur Stefánsson, oddviti í
Hraungerðishreppi. „Það eru ann-
ars vegar þeir sem kysu frekar að
sameinast Árborg og svo hinir sem
vilja bara halda þessu áfram eins
og þetta er.“
Árið 2003 sameinuðu hrepp-
arnir þrír grunnskóla sína og var
þá stofnaður Flóaskóli sem er í
Villingaholtshreppi. 8., 9. og 10.
bekkingar sækja hins vegar skóla
í Árborg.
Bjarki Reynisson, oddviti Vill-
ingaholtshrepps, og Valdimar
Guðjónsson, oddviti Gaulverjabæj-
arhrepps, segja að nú verði farið í
það að ráða sveitarstjóra í nýja
sveitarfélaginu. „Sennilega verður
fenginn utanaðkomandi maður til
starfans því við gömlu oddvitarnir
þrír erum allir bændur og getum
kannski ekki sinnt þessu að fullu.
Sveitarstjórinn getur þá unnið að
hagsmunum okkar en þeir eru eig-
inlega þeir sömu í þessum þrem-
ur landbúnaðarhreppum,“ segir
Bjarki en stuðningur við tillöguna
reyndist hvergi meiri en í Villinga-
holtshreppi en þar þar sögðu tæp
90 prósent kjósenda já.
Valdimar segir að það sem
brenni mest á íbúum í sínum
hreppi sé að bæta samgöngur og
að kannaðar verði möguleikarnir
á hitaveitu. Hann segir þetta tvö
af brýnustu verkefnum framtíðar-
innar í nýju sveitarfélagi.
Guðmundur segir að með sam-
einingunni verði þetta nýja sveit-
arfélag það sveitarfélag í Árnes-
sýslu sem sé með flestar kýr og
hross. Einnig sé hvergi í sýslunni
hey og korn í meira mæli en í nýja
sveitarfélaginu.
Ekki hefur verið ákveðið nafn á
þetta nýja sveitarfélag en væntan-
lega verður gerð skoðanakönnun á
því um leið og sveitarstjórnarkosn-
ingarnar fara fram í vor.
jse@frettabladid.is
Með flestar
kýr og hross
Gaulverjabæjarhreppur, Villingaholtshreppur og
Hraungerðishreppur renna saman í eitt sveitarfélag
eftir kosningar sem fram fóru um helgina.
SAMEININGARKOSNINGAR Í ÞREMUR FLÓAHREPPUM
Já Nei Samtals
Gaulverjahreppur 41 19 60 Samþykkt með 68,3 prósentum
Hraungerðishreppur 58 51 110 Samþykkt með 53,2 prósentum
Villingaholtshreppur 84 10 94 Samþykkt með 89,4 prósentum
Tillagan samþykkt með 69,6 prósent greiddra atkvæða
KOSIÐ UM SAMEININGU Á SUÐURLANDI Jón Kristjánsson, bóndi í Villingaholti, lét ekki sitt
eftir liggja en í hans heimahreppi var mesta fylgið við sameininguna. MYND/EGILL BJARNASON
ATVINNUMÁL „Það eru væntanleg-
ir til okkar tíu starfsmenn, aðal-
lega frá Póllandi,“ segir Einar
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
Pósthússins, en starfsmennirn-
ir munu meðal annars vinna við
blaðaútburð.
Einar segir að erfiðlega hafi
gengið að fá Íslendinga til að sinna
dreifingu og því hafi þeir auglýst
eftir fólki á meginlandi Evrópu.
Ráðningin er því ekki í gegnum
starfsmannaleigu. „Þetta er ekk-
ert nýtt ég veit að það eru margir
útlendingar í þessum störfum nú,
til dæmis hjá samkeppnisaðilum
okkar,“ bætir Einar við. - jse
Pósthúsið ehf:
Flytja inn
blaðbera
MALASÍA, AP Sextug malasísk ekkja
hefur afneitað einum af þrem-
ur sonum sínum til að losna við
innheimtuaðgerðir ólöglegra lán-
adrottna. Mennirnir höfðu lánað
syninum fé til fjárhættuspila.
Í fyrra greiddi konan lána-
drottnunum allt það fé sem hún
hafði safnað á langri ævi, en í stað-
inn lofaði sonurinn að hætta allri
spilamennsku. Hann stóð ekki við
loforð sitt og er nú í felum. Síðan
hann hvarf hefur ágangur inn-
heimtumanna neytt konuna til að
loka matvöruverslun sinni. Hún
ákvað að afneita syninum. ■
Móðir afneitar syni:
Spornar við
lánadrottnum
Þrír slösuðust Þrír voru fluttir á slysa-
deild Landspítalans eftir harðan árekstur
sem varð á gatnamótum Nýbýlavegar og
Dalvegar í Kópavogi á laugardag. Meiðsl
fólksins ekki talin alvarlegs eðlis. Báðir
bílar eru gjörónýtir.
LÖGREGLUFRÉTT