Fréttablaðið - 13.02.2006, Síða 19
FASTEIGNASÖLUR
Ás 32-34
Árborgir 354
Bifröst 7
Draumahús 21-24
Eignastýring 19
Fasteignastofan 10
FMG fasteignasala 25
FMH fasteignasala 16
Foss 8
Fyrirtækjasala ÍSÍ 18
Hof 9
Húseign 17
Hraunhamar 11
Lundur 12-13
Lyngvík 15
Neteign 27
Nýtt 30
Remax Mjódd 6
Remax Kópavogi 27
Smárinn 28-29
Valhöll 25
X-hús 31
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 9.30 13.42 17.55
Akureyri 9.23 13.27 17.31
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
02
61
11
/2
00
5
Kynntu þér kostina við fasteignalán Landsbankans.
Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina
sem hentar þér best. Með faglegri ráðgjöf og
fjölbreyttum fasteignalánum hjálpum við þér að
eignast þitt draumaheimili. Hafðu samband í síma
410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is
410 4000 | landsbanki.is
Fasteignalán
Við hjálpum þér
að eignast
draumaheimilið
Draumahús kynnir sex herbergja
einbýlishús með innbyggðum bílskúr við
Lækjarberg í Hafnarfirði.
Húsið er 228,7 fermetrar með 33,1 fermetra
bílskúr og er teiknað af Sigurði Þorvarðar-
syni. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar úr
eik og á gólfum er gegnheilt eikarparket frá
Húsavík og marmari.
Gengið er inn í forstofu með góðum fata-
skápum. Á neðri hæð er herbergi sem notað
er sem skrifstofa í dag og baðherbergi með
sturtuklefa og aðstöðu fyrir þvottavél og
þurrkara. Úr baðherberginu er útgengt
á suðurverönd. Innangengt er í bílskúr
sem er innréttaður sem herbergi og inn af
honum er geymsla.
Upp á efri hæð liggur stigi með gegn-
heilu parketi og og innfelldri lýsingu í
þrepum. Á efri hæð eru stofa og borðstofa
með eikarklæðningu í lofti með innfelldri
lýsingu. Úr stofu er útgengt á norðursvalir
með stiga niður í garð. Eldhús er með eik-
arinnréttingum, stáltækjum, gaseldavél og
góðum borðkróki. Úr eldhúsi er útgengt á
suðursvalir með ágætu útsýni.
Sjónvarpshol er rúmgott. Hjónaher-
bergi er er rúmgott og inn af því er fata-
herbergi með miklu skápaplássi og sér bað-
herbergi með sturtuklefa. Barnaherbergi
er með góðum fataskápum. Baðherbergi
er flísalagt í hólf og gólf með hornbað-
kari, innréttingu með tveimur handlaug-
um og sturtuklefa með innbyggðu nuddi
og sauna.
Tólf volta lýsing er í öllu húsinu og hreyfi-
skynjarar eru á ljósum. Í húsinu er innbyggt
ryksugukerfi. Lokað snjóbræðslukerfi er í
bílaplani, bílskýli og svölum og falleg lýs-
ing er í þakkanti og á svölum. Garðurinn
í kringum húsið hefur vakið mikla athygli
en hann er hannaður af Pálma Guðjónssyni
skrúðgarðyrkjumeistara.
Eignin er í alla staði mjög glæsileg.
Óskað er eftir tilboðum.
Glæsilegt hús með
fallegum garði
Lækjarberg 1 í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÍSLENDINGAR ÆTLA AÐ
BYGGJA 330 ÍBÚÐIR Í
LONDON Á ÞESSU ÁRI.
Fjárfestingafélagið Saxbygg
hefur keypt landsvæði í
iðnaðarhverfinu Walthamstow
í London og hefur gert
samning um að byggja þar
230 eins og tveggja herbergja
íbúðir. Í framhaldinu er
áformað að byggja 100
litlar íbúðir til viðbótar
þannig að samtals er um
330 íbúðir að ræða sem
reistar verða af félaginu þar
ytra. Framkvæmdir hefjast
í vor. Gert er ráð fyrir að
söluverðmæti íbúðanna verði
á bilinu 5 til 8 milljarðar króna.
Saxbygg er í eigu Saxhóls
og Byggingarfélags Gylfa og
Gunnars. Framkvæmdastjóri
þess er Björn Ingi Sveinsson.
Byggja litlar íbúðir í London
Húsin sem Íslendingarnir ætla að
byggja í Walthamstow verða víst
ekki í stíl við þinghúsið.
GRAFARVOGUR
Gott er að búa í Grafar-
vogi segir Valmundur
Ingi Pálsson.
FASTEIGNIR 10
GÓÐAN DAG!
Í dag er mánudagurinn
13. febrúar, 44. dagur
ársins 2006.