Fréttablaðið - 13.02.2006, Qupperneq 22
13. febrúar 2006 MÁNUDAGUR4
Hjá versluninni S. Guðjónsson
þar sem seldur er ýmiss konar
raf- og ljósabúnaður var nýlega
opnaður nýr sýningarsalur.
Verslunin er í Auðbrekku í
Kópavogi.
Það má með sanni segja að hvergi
hér á landi má finna eins fullkom-
inn raf- og ljósabúnað og í S. Guð-
jónssyni. Í nýja sýningarsalnum
má heldur betur fá forsmekkinn
af því. Þar má meðal annars finna
uppsetta rofa, dyrasímakerfi og
mikið úrval af lömpum og ljósum.
Lydía Ósk Óskardóttir er kynn-
ingarfulltrúi S. Guðjónsson en
hún segir að auk þess sem finna
megi í nýja sýningarsalnum bjóði
fyrirtækið einnig upp á raflagnar-
og lýsingarefni, fjarskiptalausnir,
ýmsar smávörur fyrir rafvirkja en
umfram allt býður fyrirtækið upp
á heildarlausnir fyrir raflagnir í
hús. Slíkar heildarlausnir bjóða
upp á fjölbreytta og skemmtilega
möguleika. Þannig má tengja allt
rafkerfi heimilisins saman, til
dæmis rafmagn, ljósabúnað, hita
íbúðarinnar, dyrasíma, hljóðkerfi
og jafnvel sjónvarp.
Lydia segir að þróunin hafi
verið mjög mikil á undanförn-
um árum. Hita og ljósum er sem
dæmi hægt að stjórna í gegn-
um tölvu og þannig má breyta
hitastigi íbúðar með SMS. Birtu
íbúðarinnar má einnig stilla eftir
mismunandi skapgerðum. ,,Það
má hanna ákveðnar ljósasenur
í kveikibúnaðinum. Þú kallar til
dæmis eina stillingu ,,kósí“ og
þá er hægt að ýta á einn takka
og fá hana fram. Einnig er hægt
að fá fjarstýringu á rimlagardín-
ur og hafa þær með sólskynjara,
til dæmis til að vernda leðurhús-
gögn. Þannig má stilla allt raf-
kerfi heimilisins og stjórna því
hvernig það virkar.“
Öll þróun á þessu sviði snýst
um að einfalda og gera lífið þægi-
legra enda segir Lydia að það sé
krafa viðskiptavinanna. ,,Það
eina sem þú þarft er lófatölva
og þannig getur þú, hvar sem
er í heiminum, stillt birtu, hita
og hvaða rafmagnsinnstungur
og annað rafmagn sé í notk-
un,“ segir Lydia Ósk að lokum
og vonar að það uppfylli kröfur
sinna viðskiptavina.
steinthor@frettabladid.isEnn meiri
afsláttur!
miki› úrval
af gjafavörum
og sængurgjöfum
Laugavegi 67 • Sími: 551 8228
Í sýningarsalnum má einnig finna lampa og ljós. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Raf- og ljósabúnaður
framtíðarinnar
Nýi sýningarsalurinn hjá S. Guðjónssyni er stórskemmtilegur og þar getur maður verið viss um að finna eitthvað nýtt. FRÉTTABLAIÐ/STEFÁN
Í þessari stjórnstöð má í raun stjórna allri
starfsemi heimilisins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Rofar frá hinu virta merki Gira eru eitt af því sem finna má í nýja sýningarsalnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Á heimasíðu Orkuveitunnar
má finna gagnlegar upplýsing-
ar um eðlilega notkun á heitu
vatni og hvaða leiðir má fara
til að spara heita vatnið.
Til að draga úr kostnaði heita-
vatnsnotkunar þarf að huga vel að
einangrun, réttum innihita og still-
ingum. Einnig er ágætt að átta sig
á hvað telst eðlileg notkun á heitu
vatni og er þá gott að styðjast við
viðmiðunartölur. Í meðalstórum
einbýlishúsum telst varmanýting
góð þegar notuð eru 1,2 til 1,7 tonn
(rúmmetrar) af heitu vatni fyrir
hvern rúmmetra húsnæðis á ári. Í
stórum húsum þarf að öllu jöfnu
hlutfallslega minna vatn en í litlum
húsum en í fjölbýli ætti notkun til
dæmis að vera hlutfallslega mun
minni, vegna færri útveggja íbúða.
Eldri hús þurfa yfirleitt meira vatn
til upphitunar en ný hús og helst
vatnsnotkun í hendur við hitastig
úti.
Einangrun
Varmatap húsa helst í hendur við
einangrun glers og veggja. Vel ein-
angrað húsnæði þarf minni varma
til upphitunar og ofnar nýtast þá
betur. Tvöfalt gler í gluggum spar-
ar mikinn varma. Spara má mikinn
varma án mikils tilkostnaðar með
því að auka einangrun í þaki en því
er oft ábótavant í eldri húsum.
Þegar kalt er í lofti skaltu loft-
ræsta rými daglega í stuttan tíma
og lækka stillingu á ofnloka í leið-
inni.
Réttur innihiti
Innihiti hefur áhrif á varmanotk-
un, því hærri sem hitinn er því
meiri verður orku- og heitavatns-
notkunin. Orkuveitan áætlar að
upphitunarútgjöld hækki um allt
að sex prósent fyrir hverja gráðu
sem innihiti er stilltur yfir 20°.
Þægilegur innihiti í húsum er
um 20°. Vísbending um að þú sért
að sóa fjármunum í hita er þegar
ofnar eru ekki kaldir eða volgir
neðst við snertingu. Góð regla er
að þreifa á ofnunum reglulega.
Réttar stillingar
Ef hitakerfi er ekki í jafnvægi fer
of mikið vatn um suma ofna og
varmanýting þeirra verður slæm.
Einstaka ofnar verða út undan og
fá ekki nægjanlegt vatn sem leiðir
af sér að misheitt verður í húsinu.
Takmarka verður hámarksrennsli
til allra ofna eftir afkastagetu og
að bakrásarhiti sé álíka frá öllum
ofnunum. Oft vantar nokkuð upp
á að hitakerfi séu rétt stillt. Skyn-
samlegt er að fá fagmann til að
athuga hitakerfin leiki grunur á að
þau sé vanstillt.
Heita vatnið sparað
Er kominn tími til að hreinsa eða endurnýja
sængina og koddann?
Gott er að aðgæta alla ofna og athuga
hvort þeir eru rétt stilltir.
Tvöfalt gler í gluggum sparar verulega
heitavatnsnotkun.
Til umhugsunar
Hægt er að læsa ofnlokum og
koma þannig í veg fyrir yfirstill-
ingar.
Nýjar gerðir af framlokum vinna
mun hraðar og nákvæmar en þær
eldri og nýta vatnið betur.
Stilla þarf bakloka og þrýstijafnara
eftir árstíðum svo þeir sói ekki
vatni.
Hægt er að fá stjórnloka sem er
sérstaklega gerður til að stjórna
neysluvatnsnotkun þinni og með
því fæst besta nýtingin á heita
vatninu.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI