Fréttablaðið - 13.02.2006, Síða 74
13. febrúar 2006 MÁNUDAGUR30
Fiskbúðin Hafrún
Skipholti 70
Sími 553 0003
Fiskbúðin Vör
Höfðabakka 1
sími 587 5070
Fiskbúðin Árbjörg
Hringbraut 119
Sími 552 5070
MÁNUDAGSTILBOÐ
GLÆNÝ LÍNUÝSA,
HROGN OG LIFUR
KR. 590/KG
FÓTBOLTI Kristján Guðmunds-
son, þjálfari Keflavíkur í Lands-
bankadeild karla, tekur undir
með kollega sínum og nágranna
úr Grindavík, Sigurði Jónssyni,
að ekki sé nægilega vel hugsað
um velli á Íslandi. Sigurður telur
að hægt sé að fjölga liðum í efstu
deild úr tíu í tólf strax í sumar en
til þess þurfi ef til vill að hugsa
betur um vellina.
„Það þarf að huga miklu betur
að völlunum, það er engin vinna
lögð í vellina yfirhöfuð og almennt
séð er mjög léleg umhirða á þeim.
Það er hægt að gera þetta miklu
betur en gert er í dag og það er lyk-
ilatriði að gera það áður en fjölg-
að er í deildinni. Ég vil stækka
deildina en fyrst verður að laga
þetta,“ sagði Kristján í samtali
við Fréttablaðið í gær og bætti við
að völlurinn í Keflavík væri engin
undantekning en vissulega væri
ekki hægt að alhæfa um málið.
„Það má spila deildina þétt-
ar en gert er og væri það mun
skemmtilegra. Eftir þeysireið í
júní og júlí þá er hægt of mikið á
í ágúst,“ segir Kristján sem telur
að það sé ótímabært að fjölga í
deildinni.
„Það er ekki hægt að fjölga
strax í sumar. Það eru of margir
þættir sem þarf að laga til þess
að það sé möguleiki en það ætti
þó ekki að líða á löngu áður en
það verður gert,“ sagði Kristján
að lokum. - hþh
Kristján Guðmundsson:
Illa hugsað
um leikvellina
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON Vill fjölga.
FÓTBOLTI Sigurður Jónsson, þjálfari
Grindavíkur, sagði í ítarlegu við-
tali við Fréttablaðið í gær að það
væri ótrúlegt að ekki væri búið að
fjölga í deildinni og vel væri hægt
að fjölga leikjunum úr 18 í 22 án
þess að gera stórvægilegar breyt-
ingar á völlunum. Þessu er Jóhann
ekki sammála en hann hefur gríð-
arlega reynslu af slíku enda séð
um Laugardalsvöllinn lengi.
„Ég tel að það sé ekki hægt.
Það er enginn völlur sem er það
virkilega vel byggður upp nema
hugsanlega í Vestmannaeyjum og
í Hafnarfirði en með ofnotkun er
auðvelt að skemma vellina. Það er
oft verið að fara inn á vellina án
þess að þeir séu tilbúnir sem er
virkilega slæmt og oftar en ekki
eru vellirnir ekki tilbúnir.
Það er ekki hægt að setja sama-
semmerki á milli þess að völlur
sé grænn og að hann sé tilbúinn,
liturinn á grasinu er ekki mæli-
kvarði á það að völlur sé tilbúinn
en vissulega er hægt að bæta alla
vellina með enn meiri vinnu,“
sagði Jóhann við Fréttablaðið í
gær.
„Fyrir þremur árum var keypt-
ur dúkur til að setja á Laugardals-
völl. Hann kostaði rúmar þrjár
milljónir en dúkurinn einn og
sér er engin heildarlausn. Hann
myndi virka mun betur ef hita-
kerfi væri undir vellinum líka til
að gefa yl undir grasið en ef það
á að vera hitakerfi þarf að vera
vökvunarkerfi líka til að brenna
ekki jarðveginn,“ sagði Jóhann en
það er ein aðferð sem rætt hefur
verið um að hægt sé að gera til að
lengja tímabilið á Íslandi.
„Það þarf sérstakar aðstæð-
ur til þess að dúkurinn virki og
það er ekki hægt að hafa hann á
vellinum allan ársins hring. Það
krefst mikillar vinnu að festa
dúkinn niður en hann er settur á
eftir aðstæðum, yfirleitt um miðj-
an apríl en við höfum ekki mikið
sett hann á um haustið nema þá
kannski ef stutt er í landsleik og
völlurinn er í slæmu ásigkomu-
lagi,“ segir Jóhann og bætir við að
akrýldúkar sem settir hafa verið
yfir Laugardalsvöll yfir sum-
artímann hjálpi líka til en þurr
norðanvindur sé helsti óvinur
vallarins.
Á mörgum völlum i Evrópu
hefur það tíðkast að sauma gervi-
gras ofan í grasvelli og hefur sú
tækni hlotið mikið lof. Jóhann
segir að það væri mjög góður
kostur en hann yrði afar kostn-
aðarsamur. Flytja þyrfti sérstaka
vél til landsins og það myndi ekki
standa undir sér nema fleiri vell-
ir en Laugardalsvöllur íhuguðu
svipaða tækni.
„Ég vonast að sjálfsögðu til
þess að framtíð Laugardalsvallar
sé að hita- og vökvunarkerfi verði
sett á völlinn en engin afstaða
hefur verið tekin til þess enn sem
komið er,“ sagði Jóhann og bætti
við að lokum að með slíkum velli
væri hægt að lengja keppnistíma-
bilið um allt að fjórar vikur.
hjalti@frettabladid.is
Nægir ekki að hugsa bara vel um
knattspyrnuvellina okkar
Jóhann Kristinsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, telur að ekki sé hægt að fjölga í efstu deild karla um tvö
lið einungis með því að hugsa betur um vellina en gert er í dag en almennt er talið að umhirða þeirra sé
ekki eins og best sé á kosið.
JÓHANN KRISTINSSON Veit hvað hann syngur þegar rætt er um gras á íslenskum knatt-
spyrnuvöllum.
Fréttablaðið stóð fyrir könn-
un á meðal fyrirliða, þjálfara og
forráðamanna liða í efstu deild á
Íslandi um hvort það ætti að fjölga
liðum í efstu deild. Eins og sjá má
hér að neðan er mikill meirihluti
með því að fjölga liðum.
ÞJÁLFARAR
BJARNI JÓHANNSSON, BREIÐABLIK NEI
ÓLAFUR JÓHANNESSON, FH JÁ
LEIFUR GARÐARSSON, FYLKI JÁ
SIGURÐUR JÓNSSON, GRINDAVÍK JÁ
ÓLAFUR ÞÓRÐARSON, ÍA JÁ
GUÐLAUGUR BALDURSSON, ÍBV JÁ
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON, KEFLAVÍK JÁ
TEITUR ÞÓRÐARSON, KR JÁ
WILLUM ÞÓR ÞÓRSSON, VAL JÁ
MAGNÚS GYLFASON, VÍKINGI JÁ
FYRIRLIÐAR
HJÖRVAR HAFLIÐASON, BREIÐABLIK JÁ
AUÐUN HELGASON, FH JÁ
ÓLAFUR STÍGSSON, FYLKI JÁ
ÓLI STEFÁN FLÓVENTSSON, GRINDAVÍK JÁ
ÞÓRÐUR GUÐJÓNSSON, ÍA JÁ
PÁLL HJARÐAR, ÍBV JÁ
GUÐMUNDUR STEINARSSON, KEFLAVÍK JÁ
GUNNLAUGUR JÓNSSON, KR NEI
SIGURBJÖRN HREIÐARSSON, VAL JÁ
HÖSKULDUR EIRÍKSSON, VÍKING JÁ
FORRÁÐAMENN
STEINI ÞORVALDSSON, BREIÐABLIK JÁ
PÉTUR STEPHENSEN, FH NEI
HÖRÐUR ANTONSSON, FYLKI NEI
JÓNAS ÞÓRHALLSSON, GRINDAVÍK JÁ
EIRÍKUR GUÐMUNDSSON, ÍA JÁ
GÍSLI HJARTARSON, ÍBV JÁ
RÚNAR ARNARSSON, KEFLAVÍK NEI
JÓNAS KRISTINSSON, KR NEI
BÖRKUR EDVARDSSON, VAL NEI
RÓBERT AGNARSSON, VÍKING JÁ
SAMMÁLA Auðun Helgason fyrirliði FH og
Ólafur Jóhannesson þjálfari liðsins voru
sammála um að fjölga liðum í efstu deild
úr tíu í tólf. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR