Fréttablaðið - 13.02.2006, Síða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
5
3
2
7
Gangi ykkur vel!
Við styðjum Ólympíulandsliðið til afreka á
Vetrarólympíuleikunum í Tórínó 10.–26. febrúar.
Íslandsbanki hefur verið í íslensku Ólympíufjölskyldunni frá
upphafi. Þannig styðjum við besta afreksíþróttafólk þjóðarinnar
í undirbúningi þess fyrir alþjóðleg stórmót og hjálpum þeim að
ná settum markmiðum og fara enn lengra.
Við óskum fulltrúum Íslands á Ólympíuleikunum í Tórínó góðs gengis.
Keppendur:
Björgvin Björgvinsson
Dagný Linda Kristjánsdóttir
Kristinn Ingi Valsson
Kristján Uni Óskarsson
Sindri Már Pálsson
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
����������
�������������������
Í möskvum alnetsins festast stundum merkilegir fróðleiks-
molar. Um daginn fann ég tilvitn-
un í breska blaðið Financial Times
sem ég átti síst von á frá því blaði.
Financial Times eða Aurasálin
fjallar eins og nafnið bendir til um
fjármál og hefur tilhneigingu til
þess að taka sig hátíðlega, eins og
títt er um aðila sem lifa og hrær-
ast í fjármálaheimi. Það kom mér
því mjög á óvart að sjá það fullyrt
í þessu helgiriti maurapúkanna, að
fráleitt sé að slá því föstu að hag-
vöxtur auki hamingju þjóða.
„HIPPAR, umhverfisverndar-
sinnar og grænmetisætur geta
álengdar hlakkað yfir peninga-
og streitusamfélagi samtímans,“
skrifaði dálkahöfundurinn Andrew
Oswald í Financial Times og hann
hikaði ekki við að gera gys að Gor-
don Brown fjármálaráðherra fyrir
að grobba af stöðugum hagvexti.
ÞAÐ er aldeilis ekki í anda Fin-
ancial Times að gera lítið úr mik-
ilvægi peninga. En svona vandað
blað verður líka að taka mark á töl-
fræðilegum upplýsingum um aðra
hluti. Því ákvað Financial Times
að lækka rostann í Gordon Brown
þegar hann var að monta sig af því
að embættistíð sín í fjármálaráðu-
neytinu væri lengsta samfellda
hagvaxtarskeið í sögu Bretlands,
allt frá árinu 1701. „Og þennan
stöðugleika viljum við vernda,“
sagði hann. Kannast einhver við
sönginn?
ÞAÐ sem fjármálaráðherran-
um yfirsást og Financial Times
fannst óhjákvæmilegt að benda á
var sú staðreynd að rannsóknir í
Bretlandi sýna að nútímafólk sem
býr við mun betri efnahag en áður
hefur þekkst lítur hreint ekki svo
á að það lifi betra lífi en næstu
kynslóðir á undan. Upplýsing-
ar um líðan fólks í fleiri löndum
leiða til svipaðrar niðurstöðu. Í
því landi þar sem glaðast er dans-
að kringum gullkálfinn er sjálfs-
morðstíðni nákvæmlega jafnhá í
dag og hún var um aldamótin 1900
þótt meðalfjárhagur einstaklinga
sé sjöfalt betri. Vonandi verður
þessi grein í helgiritinu Financial
Times til þess að slá á hagvaxt-
argortið hér á landi úr því að það
telst nú sannað sem hipparnir
héldu fram á sínum tíma: Græðgi
gerir engan hamingjusaman. Fer
ekki að koma tími á að endurskoða
gildismatið?
Hipparnir
sögðu satt!
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og
upptökur þegar þér hentar