Fréttablaðið - 20.03.2006, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 20. mars 2006
Sá stærsti af þremur sölum hússins. Hann mun rúma 1.800 gesti.
Í síðustu viku undirrituðu Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir borgar-
stjóri og Gunnar Sverrisson, for-
stjóri Íslenskra aðalverktaka,
samning um framkvæmdir vegna
lóðar við Austurhöfn í Reykjavík.
Í haust hefjast svo framkvæmd-
ir á lóðinni við byggingu tónlistar-
og ráðstefnuhúss sem á að vera
lokið haustið 2009. Húsið verður
átta hæðir og auk þess að verða
stærsti samkomustaður sinnar
tegundar á landinu verður þar
aðstaða fyrir stórar ráðstefnur og
gert er ráð fyrir að hótel, sem
meðal annars geti hýst ráðstefnu-
gesti, rísi við hlið hússins. Þá mun
Sinfóníuhljómsveit Íslands hafa
aðsetur í húsinu, sem er í raun
þrjú aðskilin hús sem standa undir
sama þakhjúpnum.
Mikið verður lagt upp úr list-
fengi og útliti hússins. Meginhug-
myndin með byggingunni er að
skapa kristallað form með fjöl-
breyttum litum sem sóttir eru í
nærliggjandi náttúru sem gefur
þeim er þess nýtur síbreytileg til-
finningaleg áhrif.
Byggingin stendur ein og sér
eins og stöpull, sem endurspeglar
breytingar í himinblámanum
bæði hvað varðar þéttleika og lit-
brigði, eftir veðri, árstíma og
mismunandi tímum sólarhrings-
ins. Sólskinið mun auka á áhrif
minnstu einkenna í ljósi og skugg-
um.
Byggingin mun endurspegla
glóandi hraunbreiður þegar hún
lýsir gullrauðum loga en jökla
þegar hún verður ísblá.
Styttist í tónlistar-
og ráðstefnuhús
Framkvæmdir á lóð munu hefjast á næstu dögum eða vikum.
Húsið og umgjörð þess verða sérlega glæsileg.
Rýmum fyrir garðhúsgögnunum
50% afsláttur af öllum borðstofusettum
og sýningarsófum til laugardags