Fréttablaðið - 20.03.2006, Page 72

Fréttablaðið - 20.03.2006, Page 72
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 10 Öll von virðist úti fyrir aðdáendur Spice Girls um að sjá þær aftur á sviði en breska götublaðið The Sun greinir frá því að tónleikum sem fyrirhugaðir voru hafi nú verið slegið á frest. Mel C og Vict- oria Beckham er sagðar áhuga- lausar um verkefnið og vilja sem minnst af því vita. Á þessu ári eru liðin tíu ár frá því að smáskífan Wannabe sló öll met á vinsældalistum um allan heim og áttu tónleikarnir að vera í tilefni afmælisins. Var ráðgert að stúlkurnar myndu ferðast um Evr- ópu í nóvember og desember en lítið hefur gengið hjá „kryddun- um“ eftir að sveitin lagði upp laup- ana. Heimildarmaður The Sun sagði að Melanie hefði aldrei verið neitt sérstaklega hrifin af hugmyndinni um að endurreisa sveitina. „Hún er stolt af því sem var gert fyrir tíu árum en vill horfa fram á veg- inn,“ hefur blaðið eftir honum. „Hún vill einbeita sér að sínum eigin ferli og Victoria er sama sinnis. Hún hefur verið að gera góða hluti í tískunni og gerir sér fyllilega grein fyrir því að tón- leikaferðin gæti orðið hneyksli,“ bætir heimildarmaðurinn við. Ofan á þetta bætist að Geri Halli- well á von á sér í sumar og hefði því ekki getað tekið þátt í neinum æfingum. Ekkert krydd framarFRÉTTIR AF FÓLKIBreska Idol-stjarnan Will Young segist fara í ballett þrisvar í viku og notar það sem líkamsrækt en þetta kemur fram í breska blaðinu The Sun. „Líkamsræktarsalurinn er svo leiðinlegur en ball- ett heldur mér við efnið og ég nýt hans út í ystu æsar,“ sagði söngvarinn í samtali við blaðið. „Ég er eini strákurinn og þegar ég er í hvítu legghlífunum og ball- ettskónum líður mér eins og Billy Elliot.“ Susan Sarandon vill ekki sjá Hillary Clinton í Hvíta húsinu af því hún kaus ekki á móti stríðinu í Írak. Sarand- on finnst Hillary hafa misst sjarma sinn og getur ekki hugsað sér að hún verði fyrsti kvenforsetinn í Bandaríkjunum. „Hillary hefur valdið mér mikl- um vonbrigðum og hún segir alltof sjaldan sína eigin skoðun,“ sagði Sar- andon við PageSix.com. „Hún er ekkert verri en hver annar stjórnmála- maðurinn en hún er heldur ekkert betri,“ lýsti Sarandon yfir. „Bandaríkin þurfa fólk sem trúir á eitthvað en ekki stjórnmálamenn sem bara vilja láta kjósa sig.“ Daniel Craig heldur áfram að hrella aðdáendur James Bond en hann ætlar ekki að vera í svörtum smóking sem lengi hefur verið einkennisbún- ingur leyniþjónustumannsins. Craig segir að hann muni ekki klæðast fínu fötunum heldur verði alltaf í venjulegum fötum. „Einu skiptin sem þið sjáið mig klæddan á þann hátt verður við einhverjar kynningar,“ sagði Craig. Forsvarsmaður Bond-aðdáendaklúbbs- ins var ekki lengi að senda Craig tóninn og sagði að Bond án smókings væri eins og Leður- blökumaðurinn án skikkjunnar sinnar. SPICE GIRLS Vinsælasta stúlknasveit allra tíma. Vonir stóðu til að þær myndu hittast aftur í haust en það hefur verið blásið af. FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.