Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.03.2006, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 25.03.2006, Qupperneq 40
 25. mars 2006 LAUGARDAGUR40 Jón Birgir Valsson, formaður Glímu- sambands Íslands, byrjaði sjálfur að glíma fjórtán ára. Hann hefur brenn- andi áhuga á íþróttinni og fagnar útkomu bókarinnar. „Hún hefur mikla þýðingu fyrir menningu glímunnar og mun nýtast okkur glímumönnum sem og almenningi sem hefur áhuga á að kynna sér glímuna.“ Fyrir Jóni er glíman ekki bara íþrótt heldur skipar hún veigamikinn sess í þjóðlífinu. „Glíman er stór partur af Íslandssögunni. Hún kom með víking- unum og var, ásamt ísknattleik, sú íþrótt sem víkingarnir stunduðu sér til dægrastyttingar og þjálfunar.“ Glíman hefur risið og fallið en Jón formaður segir framtíðina bjarta. „Við höfum lagt mikla áherslu á að halda unglingunum við efnið. Ég hef séð marga efnilega unglinga byrja en hætta fljótlega aftur af einhverjum ástæðum.“ Glímusambandið hefur meðal ann- ars gefið út margmiðlunardisk með upplýsingum um íþróttina og telur Jón að útgáfa bókarinnar geti haft sín áhrif á frekari útbreiðslu og áhuga. Þá nefn- ir hann að sífellt fjölgi í svonefndum úrvalshópi Glímusambandsins. „Fyrir fjórum árum komu 15-20 krakkar á æfingu úrvalshópsins en í haust voru 50 þátttakendur. Ég horfi því björtum augum til framtíðar.“ Glíman á sér bjarta framtíð JÓN BIRGIR VALSSON Formaður Glímu- sambands Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Jes Einar Þorsteinsson, eitt tíu barna Þorsteins Einarssonar, var að vonum kátur á útgáfudaginn enda aðdrag- andi útgáfunnar langur. „Pabbi vann að þessu af alefli í á fjórða áratug.“ Glímuáhuginn og söguskrifin fóru ekki framhjá fjölskyldunni. „Það var árviss viðburður að hann lokaði sig af á páskum og vann að því sem hann hafði safnað saman það árið.“ Þessi háttur fór misjafnalega í fjölskylduna. „Móðir mín sýndi því mikla þolin- mæði en við börnin ekki alltaf. Páskar eru jú páskar en þetta var hans hjart- ans mál.“ Jes segir föður sinn hafa aflað heimilda um fangbrögð í öðrum lönd- um, til dæmis í Englandi, Frakklandi og á Kanaríeyjum, og ferðast þangað í leit að upplýsingum. Og hann segir bókina nálgast að vera doktorsrit- gerð. Að sögn Jes fékk Þorsteinn ungur áhuga á glímu, hann glímdi á sinni tíð en hætti snemma vegna náms og af öðrum aðstæðum. Þungu fargi er nú létt af fjölskyld- unni. „Sérstaklega því þetta var komið í algjöra kyrrstöðu á tímabili. Handrit- ið var til þegar hann dó en við stóðum frammi fyrir að ekki væru til peningar til að gefa þetta út. Þetta er því mikill léttir.“ Páskarnir fóru í söguskrifin JES EINAR ÞORSTEINSSON Sonur Þor- steins Einarssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Jón M. Ívarsson er landskunnur glímu- áhugamaður og fyrrum formaður Glímusambandsins. Hann sat í útgáfu- nefnd Glímusögunnar og ritar for- mála. Jón segir bókina hafa ótvírætt gildi. „Í henni er í fyrsta sinn hægt að sjá hvernig glíman er til komin. Hún var búin til á Íslandi og er því eina íslenska íþróttin.“ Jón telur glímuna hafa haft sín áhrif á sam- félagið og nefnir að fyrr á öldum hafi hún verið alþýðuleikur. „Hvar sem tveir menn komu saman gátu þeir tekið glímu. Hvort sem var uppi á heiðum, við sjó eða í fjár- réttum glímdu menn sér til gamans eða til hita.“ Á 20. öld varð glíman að keppnisíþrótt. „Það væri virkilega gaman ef enn væri glímt eins og forðum. En tímarnir breytast og nú er allt fært í keppnisbúning. Annars hefur glíman þá sérstöðu að vera í senn keppnisíþrótt, sýningar- íþrótt og menningararfur.“ Og Jóni finnst forn gildi glímunnar merk. „Ég furða mig á hvernig það gerðist að upp kom íþrótt sem leggur svona mikla áherslu á drengskap og að ekki megi sýna þjösnaskap eða valda meiðslum. Glímunni lýkur með byltu og hún á að gerast á réttan hátt. Af mörg hundruð fangbragðaíþrótt- um er glíman sú eina sem ekki má bolast í eða vera í keng. Menn verða að vera sem beinastir.“ Menn glímdu sér til hita JÓN M. ÍVARSSON For- maður útgáfunefndar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÍSLENSK GLÍMA 2006 Í hófi sem efnt var til við útkomu bókarinnar sýndu ungir og efnilegir glímumenn fangbrögðin eins og þau þekkjast í dag. Góður rómur var gerður að aðförum unga fólksins og var það mat manna að framtíð glímunnar á Íslandi væri björt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þorsta fólks í upplýsingar um sögu og þróun íslenskr- ar glímu fæst nú svalað því bókin Þróun glímu í íslensku þjóðlífi eftir Þor- stein Einarsson kom út við hátíðlega athöfn á miðviku- dag. Björn Þór Sigbjörnsson var viðstaddur ásamt fjölda annarra áhugamanna um þessa ævafornu þjóðar- íþrótt Íslendinga. Þorsteinn Einarsson var flestum Íslendingum fróðari um íþróttir og skrifaði nokkrar bækur um íþróttir um ævina. Hann var íþróttafulltrúi ríkisins frá 1941 til 1981 og hafði sem slíkur mikla sýn yfir allar þær íþróttagreinar sem stundaðar voru í landinu. Áhugi Þorsteins á glímu var þó sýnu mestur en hann hóf glímuiðkun á unglingsaldri. Rúm sextíu ár eru liðin síðan Þorsteinn kom fyrst að ritun bókar um glímu og vann hann að því hugðarefni sínu meðfram öðrum störfum, allt fram á síðasta dag. Þorsteinn lést í byrjun árs 2001. Í Þróun glímu í íslensku þjóðlífi er rakin saga glímunnar frá land- námi til okkar daga og geymir bæði sagnfræði og fróðleik um þekktustu glímu- og fangbrögð veraldar. Rakin eru sögubrot um fangbrögð í Íslendingasögunum og svo lið fyrir lið, aldir fyrir aldir, uns greint er frá nýjustu breyting- um sem gerðar voru á glímulög- um. Nokkuð var skrifað um stöðu glímunnar á fyrri hluta síðustu aldar og ekki báru öll skrifin íþróttinni fagurt vitni. Frá þessu er greint í bókinni. „Nú er íslenzka glíman að verða olnbogabarn þjóð- arinnar. Nú er hún hrakyrt af mörgum og fáir leggja henni liðsyrði,“ sagði ónefndur bréfrit- ari í Vetrarblaðinu 1916. Og áfram hélt hann. „Láta margir gildlega gegn henni og vinna henni það ógagn er þeir mega. Reyna þeir að koma þeirri flugu í munn fávísum mönnum, að hún sé hættuleikur og lítt fallin til gamans, því stór meiðsl geti hlotist af. Þar að auki sé hún ljót og leiðinleg íþrótt.“ Þorsteinn Einarsson gerir athuga- semd við bréfið og segir þennan harða dóm ekki sanngjarnan þó í honum hafi verið sannleikskorn. Miðist umrætt ástand við Reykja- vík en glíman hafi lifað góðu lífi víða á landsbyggðinni. Árið 1944 skrifaði Arnór Sigur- jónsson skólastjóri í Suður-Þing- eyjarsýslu grein um glímuna og lét í ljós þá skoðun sína að eðli hennar væri gamanleikur, kapp- leikur, hreyfingarþörf og baráttu- hvöt. Að rækt við glímu væri orðin ófullkomnari en áður. Að fegurð- arglíma gerði íþróttina að skap- lausum leik. Að glímumenn væru alltaf öðru hvoru á fjórum fótum, en þó taldir uppistandandi, viður- eignir væru dræmt og dólgslegt hnoð. Og að byltulögum hefði verið breytt til ósamræmis við eðli glímu, að gilda ætti „fallinn er sá, sem fótanna missir.“ Enn gerir Þorsteinn athugasemdir í bókinni og hrekur þessar skoðanir Arn- órs. Á þessum tímum var raunar mikið rætt og ritað um ýmsa anga glímunnar og deilt um túlkun laga. Fall, bylta og níð var meðal þess sem tekist var á um. Þrátt fyrir ólíkar skoðanir á tæknilegri útfærslu og stöðu glímunnar á hverjum tíma má fullyrða að flest- ir unnendur glímu geti tekið undir orð Gunnars M. Magnúss rithöf- undar í Skinfaxa árið 1932. Slíkt gerir Þorsteinn Einarsson í það minnsta í bók sinni. „Glíman felur í sér það bezta, sem samæfingar í leikfimiskerfum henta, elur drengskap og göfugar hugsanir. Glíman á að vera einn þáttur í því uppeldi að leita sannleikans, gera aldrei vísvitandi rangt.“ Glíman elur drengskap og göfugar hugsanir ÞORSTEINN EINARSSON Bókarhöfundur, hlaut Stefnuhornið fyrir bestu glímu á Íslandsglímunni 1932. SNIÐGLÍMA Á LOFTI/LAUSAMJÖÐM Í Þróun glímu í íslensku þjóðlífi eru meðal annars myndir af glímubrögðum samkvæmt glímulögum frá 1990. Gunnar Karlsson teiknaði myndirnar eftir ljósmyndum og birtust þær upphaflega í bókinni Glímu sem kom út 1968. HERMANN JÓNASSON Glímukóngur Íslands 1921 og síðar forsætisráðherra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.