Fréttablaðið - 25.03.2006, Page 57
Tónlist með hljómsveitinni Radiohead verður
að finna í kvikmyndinni A Scanner Darkly
sem skartar Keanu Reeves í aðalhlutverki.
Meðal annars verður þar nýtt lag með
söngvaranum Thom Yorke sem er tekið af
væntanlegri sólóplötu frá honum. Engar
frekari fregnir hafa borist af sólóplötunni
en Radiohead er um þessar mundir að vinna
að sinni næstu plötu. Sveitin hefur þegar
bókað sig á tónleikahátíðir í Ungverjalandi,
Englandi og Tennessee í Bandaríkjunum.
A Scanner Darkly, sem kemur í bíó í
sumar, er byggð á samnefndri vísindaskáldsögu
Philips K. Dick. Leikstjóri er Richard
Linklater, sem á m.a. að baki Before
Sunrise og School of Rock. ■
Sjónvarpsmaðurinn sérstaki Buzz
er kominn aftur í tölvuleiknum vin-
sæla Buzz!: The Big Quiz, sem er
kominn út fyrir Playstation 2 leikja-
tölvuna.
Buzz!: The Big Quiz byggir á
hinum gríðarlegu vinsældum tón-
listarspurninganna í fyrsta leikn-
um, en nú á að reyna á hvað þátttak-
endur vita í raun. Að þessu sinni
geta spurningarnar verið um hvað
sem er. Þeim geta fylgt myndir,
hljóð eða myndbönd og koma spurn-
ingarnar inn á svið á borð við kvik-
myndir, íþróttir og tónlist. Auk þess
eru nokkrar spurningar sem fjalla
um undarlega þekkingu Buzz.
Buzz snýr
aftur
Radiohead í bíó
Bandaríski tónlistarmaðurinn
Nathan Amundson sem kallar sig
Rivulets heldur tónleika í Kaffi
Hljómalind í dag og á Grand Rokk
annað kvöld. Með honum í för er
Michael sem spilar á rafmagnsgít-
ar en sjálfur spilar Nathan á
kassagítar. Trúbadorinn Þórir mun
eitthvað verða þeim innan handar.
Þetta er fjórða heimsókn Nat-
hans hingað til lands á fimm árum.
Í þeirri fyrstu tók hann upp stutt-
skífuna Thank You Reykjavík í
hljóðveri Rásar 2 og haustið 2000
spilaði hann á óopinberum loka-
tónleikum Hljómalindar á Grand
Rokki.
Nathan, sem hefur verið á tón-
leikaferð um Evrópu, segist líka
mjög vel við Ísland eins og tíðar
heimsóknir hans hingað gefa til
kynna. „Þetta er uppáhaldslandið
mitt í heiminum og ég myndi
flytja hingað ef ég gæti,“ segir
Nathan. „Landslagið er undurfag-
urt og fólkið er mjög vingjarn-
legt. Landið er líka ekki eins upp-
tekið af markaðsmálum eins og
Bandaríkin þar sem McDonalds
er á hverju horni,“ segir hann.
Hann segir tónlistina sína vera
rólega þó svo að hún sé eitthvað
farin að hressast upp á síðkastið.
Textarnir séu persónulegir, en þó
ekki endilega um hann sjálfan.
„Ég syng um persónuleg sambönd
á milli fólks og eiginlega um lífið
og tilveruna.“
Eftir tónleikana hér heima
heldur hann aðra tónleika í Banda-
ríkjunum með hljómsveitinni Low
sem hefur verið áberandi í jaðar-
tónlistinni þar í landi. Hefur hann
spilað með sveitinni einu til tvisv-
ar sinnum á ári undanfarin ár.
Rivulets hefur gefið út tvær
plötur og sú þriðja er væntanleg
síðar á árinu hjá nýju hljómplötu-
fyrirtæki. Á tónleikunum um helg-
ina verða plötur og stuttermabolir
merktir Rivulets til sölu og hvetur
hann sem flesta til að láta sjá sig.
Ísland er uppáhaldslandið
NATHAN OG MICHAEL Þeir félagar ætla að halda tvenna tónleika hér á landi um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
RADIOHEAD Hljómsveitin vinsæla á
nokkur lög í myndinni A Scanner Darkly.
Sænska söngkonan Lisa Ekdahl,
sem hélt tónleika fyrir fullu húsi í
Háskólabíói í gærkvöldi, ætlar að
dvelja hér á landi fram á mánu-
dag.
Ætlar hún að nýta tækið og fara
á hestbak og í Bláa lónið ásamt
syni sínum sem er með henni í för.
Skömmu eftir komuna til landsins
á fimmtudag fékk hún sér kaffi á
Kaffitári og snæddi síðan um
kvöldið dýrindismáltíð á Þremur
frökkum. Ljóst er að hún ætlar sér
að njóta veru sinnar hér á landi til
fullnustu.
Slappar af á Íslandi
LISA EKDAHL Sænska söngkonan ætlar að
njóta verunnar á Íslandi.
BUZZ Sjónvarpsmaðurinn sérstaki snýr aftur
í nýjum tölvuleik.