Fréttablaðið - 29.03.2006, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 29.03.2006, Blaðsíða 4
4 29. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR SKOÐANAKÖNNUN 83 prósent þeirra Reykvíkinga sem afstöðu tóku í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðs- ins telja að nýtt tónlistarhús við Austurhöfn muni efla miðborg Reykjavíkur. Einungis 17 prósent telja að tónlistarhúsið muni ekki efla miðborgina. Það er fyrirtækið Portus Group sem reisir tónlistarhúsið við Aust- urbakkann og hljóðaði tiboð þess upp á tólf milljarða. Hönnunar- stjórn hússins er í höndum Batter- ísins, HLT og verkfræðistofunnar Rambøll Danmark A/S, en útlit hússins er að miklu leyti verk listamannsins Ólafs Elíassonar. Þá hefur Vladimir Ashkenazy verið ráðinn sérlegur listrænn ráðgjafi Portus Group varðandi dagskrá fyrstu árin. Byggingin kemur til með að rúma 1.800 sæta tónleikasal, ráð- stefnusal með 750 sætum ásamt sýningaraðstöðu, kammermúsíks- al fyrir 450 áheyrendur og minni sal sem tekur um 200 manns. Þar verða jafnframt fundarherbergi, forsalir og veitingaaðstaða. Sam- tengt hótel verður 250 herbergja. Húsið á að verða tilbúið árið 2009. Innan skamms munu fram- kvæmdir hefjast vegna byggingar tónlistarhússins. Geirsgata verð- ur tímabundið flutt og hluti brúar- innar á Tollstöðvarhúsinu verður brotin niður, auk þess sem gamla Ziemsen húsið verður fært. Lítill munur er á afstöðu kynj- anna á því hvort tónlistarhúsið muni efla miðborgina. Heldur fleiri konur en karlar telja þó að tónlistarhúsið muni gefa miðborg- inni aukið líf. Rúm 85 prósent kvenna segjast samþykk þeirri fullyrðingu að tónlistarhúsið efli miðborgina, en tæp 15 prósent eru því ósammála. 81 prósent karla eru fullyrðingunni sammála, en 19 prósent eru henni ósammála. Hringt var í 600 Reykvíkinga á kosningaaldri laugardaginn 25. mars og skiptust svarendur jafnt eftir kyni. Spurt var: Mun tónlistarhús við Austurhöfn efla miðborgina? 92, 2 prósent tóku afstöðu til spurning- arinnar. svanborg@frettabladid.is NÝTT TÓNLISTAR- OG RÁÐSTEFNUHÚS VIÐ AUSTURHÖFN Svona er áætlað að ímynd Austur- hafnar verði þegar tónlistarhúsið hefur verið byggt árið 2009. Tónlistarhús mun efla miðborgina Mikill meirihluti Reykvíkinga virðist vera á þeirri skoðun að nýtt tónlistar - og ráðstefnuhús, sem fyrirhugað er að rísi við Austurhöfn, muni efla miðborgina. Áætlað er að húsið muni verða tilbúið árið 2009. MUN TÓNLISTARHÚS VIÐ AUSTUR- HÖFN EFLA MIÐBORGINA? Nei 17,0% Já 83,0% Bandaríkjadalur 71,73 72,07 Sterlingspund 125,4 126,0 Evra 86,51 86,99 Dönsk króna 11,592 11,66 Norsk króna 10,897 10,961 Sænsk króna 9,23 9,284 Japanskt jen 0,6141 0,6177 SDR 103,38 104,00 GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 27.3.2006 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA Gengisvísitala krónunnar 121,1571 Ófærð og útafkeyrsla Bíll lenti út af veginum í Langadal í fyrrakvöld. Engin slys urðu á fólki og bíllinn skemmdist lítið en talsverð ófærð og hálka var á veginum þegar óhappið átti sér stað. LÖGREGLUFRÉTT FRAKKLAND, AP Allt að þrjár millj- ónir Frakka lögðu niður störf og söfnuðust saman á götum úti í gær í eins dags verkfalli sem verka- lýðsfélögin boðuðu til vegna fyrir- hugaðra breytinga á vinnulöggjöf. Af ótta við óeirðir juku frönsk yfirvöld löggæslu í flestum borg- um, og lá umferð strætisvagna, lesta og flugvéla víða niðri. Mót- mælin fóru yfirleitt friðsamlega fram en lögregla handtók nokkra tugi manna, aðallega í París. Breytingunum er ætlað að minnka atvinnuleysi meðal ungs fólks, sem er að jafnaði um 22 pró- sent í Frakklandi en nær allt að fimmtíu prósentum í fátækari hverfum stórborga. En ungt fólk óttast að þær muni þvert á móti valda frekara atvinnuleysi, því nýja löggjöfin heimilar atvinnu- rekendum að segja fólki undir 26 ára aldri upp starfi án ástæðu fyrstu tvö ár þeirra í starfi. Dominique de Villepin forsæt- isráðherra telur breytingarnar auka líkurnar á því að atvinnurek- endur ráði ungt fólk og hefur neit- að að draga þær til baka, en æ fleiri þingmenn hafa sívaxandi áhyggjur af hinum víðtæku mót- mælum. Talsmenn fimm stærstu verkalýðshreyfinga landsins neit- uðu að halda fund með Villepin í dag. - smk Mótmæli í Frakklandi vegna fyrirhugaðrar vinnulöggjafar: Hundruð þúsunda í verkfalli FJÖLMENN MÓTMÆLI Gríðarmargir Frakkar mótmæltu fyrirhugaðri breytingu á vinnu- löggjöf í gær og lögðu niður vinnu í einn dag. Myndin er tekin í Marseille. FRÉTTABLAÐIÐ/AP NOREGUR, AP Norðmaðurinn Arne Treholt, sem best er þekktur fyrir að hafa hlotið dóm fyrir njósnir í kalda stríðinu, kom heim til Noregs með sjúkraflugi í gær, en hann hefur legið alvarlega veikur í öndunar- vél á Kýpur í tvær vikur. Hann var þegar í stað lagður inn á sjúkrahús í Ósló, en talið er að hann hafi fengið blóðeitrun. Treholt, sem nú er 63 ára gamall, var embættismaður á framabraut í norsku utanríkisþjónustunni þegar hann var handtekinn árið 1984 og sakaður um njósnir fyrir Sovétríkin og Írak. Hann neitaði sök, en var þó ári síðar dæmdur í 20 ára fangelsi. Hann hefur búið á Kýpur síðan árið 1994. - smk Dæmdur njósnari: Arne Treholt alvarlega veikur ARNE TREHOLT BANASLYS Maðurinn sem lést í vinnuslysi við Desjarárstíflu við Kárahnjúka í fyrra- dag, hét Eilífur Hammond og var hann fæddur 23. desember 1979. Eilífur var tuttugu og sex ára að aldri, til heimil- is að Egilsgötu 30 í Reykjavík. Eilífur lætur eftir sig unnustu. -mh Sá sem lést í vinnuslysi: Hét Eilífur Hammond EILÍFUR HAMMOND „Mér finnst þetta ánægjuleg niður- staða. Hún sýnir að fólkið í borginni er sammála borgaryfirvöldum og öðrum opinberum aðilum í því að fara í þessa uppbyggingu. Þetta staðfestir það sem ég hef sagt lengi að tónlistarhús mun gerbreyta ásýnd og upplifun fólks af miðborginni,“ segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri og telur ánægjulegt að finna hvað stuðning- urinn er afgerandi. „Það er ekki oft sem skoðanakannanir sýna svona mikla sátt um eina framkvæmd og ég er mjög ánægð með það. Vonandi sýnir þetta að við höfum unnið vel og skynsamlega að undirbúningi þessarar framkvæmdar.“ „Mér finnst þetta mjög eðlileg og glæsileg niðurstaða. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að tónlistarhús muni efla miðborgina,“ segir Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar-TR. „Það verður mikil aukning á starfsmönnum í mið- borginni. Þessi starfsemi styður við samgöngur og það verður samnýting á bílastæðum þannig að ég held að þetta séu réttar niðurstöður.“ Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri í Reykjavík: Ánægjuleg niðurstaða Stefán Hermannsson, fram- kvæmdastjóri Austurhafnar-TR: Glæsilegar niðurstöður BANDARÍKIN AP George W. Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær um starfsmannastjóraskipti í Hvíta húsinu og tekur Joshua Bolten við af Andy Card. Stjórnmálaskýrendur setja þessar mannabreytingar í innsta ráðgjafahring forsetans í beint samhengi við að vinsældir forset- ans hafa dvínað verulega í síðustu skoðanakönnunum. Þá hafa áhrifamenn í þingliði repúblikanaflokksins þrýst á um slíkar mannabreytingar að undan- förnu, enda eru menn þar á bæ farnir að ókyrrast þar sem kosið verður til þings síðar á þessu ári. - aa Uppstokkun í Hvíta húsinu: Bush skiptir um ráðgjafa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.