Fréttablaðið - 29.03.2006, Síða 15
SAMKEPPNISMÁL Talsmaður neyt-
enda, Gísli Tryggvason, hyggst
kalla hagsmunaaðila saman til
fundar gangi ákvörðun Sam-
keppniseftirlitsins eftir að gefa
hámarkstaxta leigubíla frjálsan
frá og með fyrsta maí.
Fram til þessa hefur Sam-
keppniseftirlitið þurft að sam-
þykkja allar hækkanir á taxta
leigubíla en frá og með 1. maí
verður slíkt í höndum hvers og
eins bílstjóra. Hefur ákvörðun-
inni verið skotið til áfrýjunar-
nefndar samkeppnismála af hálfu
Frama, félags leigubílstjóra, og er
niðurstöðu að vænta í næsta mán-
uði.
Gísli Tryggvason segir að hags-
munaaðilar allir hafi lýst yfir
áhyggjum í hans eyru vegna þessa
og geri áfrýjunarnefnd engar
athugasemdir muni hann kalla þá
saman á fund til að fara yfir stöð-
una með það fyrir augum að hags-
muna neytenda verði gætt. „Á
þeim fundi munum við fara yfir
hvaða leiðir séu færar svo ekki
halli á neytendur þegar breyting-
arnar taka gildi.“ Ekki er langt
síðan gjaldtaka leigubílstjóra var
gefin frjáls í Svíþjóð með slæm-
um afleiðingum og hafa reglur
verið hertar þar að nýju. - aöe
BÍLSTJÓRAR RÁÐA GJALDINU Frá og með fyrsta maí gætu leigubílstjórar makað krókinn í
hvert sinn sem eftirspurn er eftir bílum og hækkað taxta sinn upp úr öllu valdi og það væri
með öllu löglegt. Myndin tengist ekki greininni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELMM
Hámarkstaxti leigubílstjóra gefinn frjáls:
Hagsmuna
neytenda gætt
NJARÐVÍK Tíu ár eru liðin frá því að
víkingaskipið Íslendingur var sjó-
sett við Miðbakkann í Reykjavík
og kom áhöfn skipsins af því til-
efni saman í Njarðvík í boði skip-
stjórans Gunnars Marels Eggerts-
sonar en frá þessu greinir vf.is.
Sigling Íslendings vakti mikla
athygli á sínum tíma þegar honum
var siglt til Ameríku en eftir að
siglingunni lauk lenti skipið á
hrakhólum þar til Reykjanesbær
ákvað að velja því stað við Stekkj-
arkot þar sem gestir og gangandi
geta virt herlegheitin fyrir sér.
Meðal þeirra sem heiðruðu
áhöfnina með nærveru sinni var
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, en hann negldi
einmitt fyrsta naglann í skipið
þegar smíði þess hófst árið 1996.
- fgg
Víkingaskipið Íslendingur:
Skipið sjósett
fyrir tíu árum
ÍSLENDINGUR Ferð skipsins vakti mikla
athygli á sínum tíma en það er nú geymt
við Stekkjarkot í Njarðvík.
FRÉTTABLAÐIÐ / MYND: REUTERS
REKSTUR Núverandi rekstraraðilar
gó-kartbrautarinnar á Reykjanesi
hyggjast opna nýja og glæsilega
braut sem leysir þá gömlu af hólmi
strax í haust en nýja brautin verð-
ur á sama stað og sú gamla er nú
en hinum megin við Reykjanes-
brautina.
Núverandi braut verður að
víkja frá og með haustinu þar sem
reisa á verslunarmiðstöð á lóð-
inni. Starfsemi þar er engu að
síður í fullum gangi og er stefnt að
því að nýja brautin verði tilbúin
þegar núverandi braut verður
lokað þannig að ekki komi til lok-
unar. - aöe
Gó-kartbrautin á Reykjanesi:
Flutningur
í haust
SVEITARSTJÓRNARMÁL Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna í hinni nýju
Fjarðabyggð hefur stillt upp fram-
boðslista sínum fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar í vor.
Miklar breytingar eru á fram-
boðslistanum frá síðustu kosning-
um þar sem báðir núverandi bæj-
arfulltrúar flokksins gáfu ekki
kost á sér á lista. Fjögur efstu
sætin skipa Valdimar O. Her-
mannsson, Jóhanna Hallgríms-
dóttir, Jens Garðar Helgasson og
Pétur Gauti Hreinsson. - shá
Fjarðabyggð:
Nýtt fólk í
efstu sætum
HER Í NÝRRI HÖFUÐBORG Dagur hersins
var haldinn hátíðlegur í gær í Búrma
(Myanmar), eins og jafnan þann 27. mars
ár hvert þegar þess er minnst að herinn
gerði uppreisn árið 1945 gegn japanska
hernámsliðinu. Þetta er í fyrsta sinn sem
hátíðahöldin fara fram í hinni nýju höfuð-
borg landsins, Pjinmana. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MIÐVIKUDAGUR 29. mars 2006 15