Fréttablaðið - 29.03.2006, Síða 22

Fréttablaðið - 29.03.2006, Síða 22
MARKAÐURINN 29. MARS 2006 MIÐVIKUDAGUR2 F R É T T I R G E N G I S Þ R Ó U N Vika Frá áramótum Actavis 0% 21% Alfesca 2% -1% Atorka Group -3% -6% Bakkavör -2% 3% Dagsbrún 2% 16% FL Group -16% 14% Flaga -1% -31% Glitnir -7% 2% KB banki -9% 12% Kögun 7% 11% Landsbankinn -8% 0% Marel -3% 10% Mosaic Fashions 2% -5% Straumur 4% 9% Össur -1% 1% Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn Óli Kristján Ármannsson skrifar „Það er alveg ljóst að þetta er ekki alveg í samræmi við meginlínurnar sem lagðar eru í fjarskiptarétti í Evrópu,“ segir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS), um viðræður Símans og Orkuveitu Reykjavíkur um samnýtingu, yfirtöku eða samruna grunnneta fyrirtækjanna. „Þar er fremur hvatt til samkeppni í grunnnetum en að þau séu sameinuð og einungis samkeppni í þjónustu.“ Hrafnkell segir álitamál hvort hér séu slíkar séraðstæð- ur að réttlæti önnur sjónarmið. Hrafnkell segir ljóst að því fylgi kvaðir að reka grunnnet fjarskiptaþjón- ustu, en segir um leið erfitt að tjá sig um mögulegar afleiðingar viðræðna Símans og Orkuveitunnar. „Við náttúrlega vitum ekki hvað þarna er verið að ræða um að selja og það skiptir öllu máli.“ Í febrúar í fyrra birti Hrafnkell á vef stofnunar sinnar úttekt þar sem fjallað er um sam- keppni á grunnneti Landssímans, sem þá var óseldur. Þar kemur fram að ekki liggi fyrir ein skilgreining á því hvað grunnnet er. Samkvæmt mati PFS eru þar innan heimtaugar sem tengja heimili og fyrirtæki við símstöðvar, fastasambönd á borð við ljósleiðara, kapla og radíósambönd og aðstaða fyrir hýsingu fjarskiptabúnaðar. „En það er ljóst að þær kvaðir sem við þyrftum að skoða í þessu samhengi eru í fyrsta lagi alþjónustukvöðin, í öðru lagi kvöð um lágmarksframboð á leigulínum, í þriðja lagi kvöð um heimtaugaleigu og ef mál þróast eins og útlit er fyrir verður Orkuveitan væntanlega útnefnd sem fyrirtæki með umtalsverða markaðs- hlutdeild á einhverjum mörkuðum og af þeim munu leiða ýmsar kvaðir, svo sem um kostnaðargreiningu, jafnræði, gagnsæi og fleira.“ Í tilkynningu sem Síminn og Orkuveitan sendur frá sér eftir að Fréttablaðið upplýsti um viðræður þeirra kemur fram að Orkuveitan hafi samið við Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbæ, Akraneskaupstað og Hveragerðisbæ um ljósleiðaravæðingu heimila og reki að auki ljósleiðarakerfi til fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu, meðan 4.500 kíló- metra langt ljósleiðaranet Símans nái um allt land. HRAFNKELL V. GÍSLASON Hrafnkell er forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar. EINKAVÆÐINGARNEFND Einkavæðingarnefnd kynnti söluferli Símans í apríl í fyrra. Í sölum Alþingis var hart deilt um hvort selja ætti grunnnetið með fyrirtækinu. MARKAÐURINN/HARI Ekki í samræmi við fjarskiptarétt í Evrópu Verði af yfirtöku Orkuveitunnar á grunnneti Símans eða samruna neta fyrirtækjanna breytast kvaðir sem lagðar eru á fyrirtækin. Norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software greindi frá því í gær að það hefði gert fjóra nýja samninga sem gæti tryggt mark- aðshlutdeild Opera Mini vafrans um allan heim. Samningarnir eru við bandaríska farsíma- fyrirtækið PriceRunner, High Technologies SIA í Lettlandi, Smatt Planet, sem hefur starf- semi í Rússlandi og Eystrasaltslöndunum, og danska farsímafyrirtæk- ið Unwire. Í samningun- um felst dreifing á Opera Mini í 180 löndum. Í tilkynningu frá Opera Software segir að fyrirtækin fjögur muni auglýsa og dreifa öllum gerðum Opera Mini vafr- ans fyrir allar gerðir farsíma til viðskiptavina þeirra. Gengi hlutabréfa í Opera hækkaði um 2,5 prósent í kauphöllinni í Óslo í Noregi í kjöl- far fréttanna í gær og stendur gengi þeirra í 32,60 norskum krónum á hlut. Opera Mini vafrinn hefur notið mikilla vinsælda en hann er hægt að nota á flestum gerðum farsíma, jafnt dýrari gerðum sem ódýrari. - jab Opera Mini í fleiri farsíma Þrátt fyrir að KB banki hafi boðað komu sína til Suðurnesja, þar sem fyrir eru tveir viðskipta- bankar, óttast forvígismenn Sparisjóðsins í Keflavík ekki samkeppnina. Á aðalfundi spari- sjóðsins greindi Geirmundur Kristinsson sparisjóðsstjóri frá því að sparisjóðurinn skoði land- vinninga utan heimasvæðis. „Mikill uppgangur hefur verið á svæðinu og við höfum átt fullt í fangi með að sinna því verkefni. Við höfum þar af leiðandi ekki verið í miklum útrásarhugleiðingum á meðan,“ segir Geirmundur en tekur þó fram að óvissan vegna breytinga á högum varnarliðsins sé mikil og gæti tekið þungt í á svæð- inu. Sparisjóðurinn keypti útibú Landsbankans í Sandgerði á síð- asta ári og hefur því hringnum verið lokað eins og Geirmundur orðar það. Sparisjóðurinn rekur því útibú á öllum þéttbýliskjörn- um á Suðurnesjum. Á fundinum voru gerðar breytingar á samþykktum að stofnfjárbréf væru veðsetjanleg með heimild stjórnar og rafræn skráning þeirra heimiluð. „Þetta er liður í því að gera stofnfjár- eigendum auðveldara að koma bréfum sínum á markað þótt við höfum ekki gengið þá leið að stofna sérstakan markað utan um bréfin.“ Geirmundur segir að lítil hreyfing hafi verið á stofnfjár- bréfum í sparisjóðnum í eitt ár. Hagnaður SpKef nam 1.150 milljónum króna á síðasta ári sem var það besta í sögu sjóðs- ins. - eþa REYKJANESBÆR Sparisjóðurinn í Keflavík hefur haft sig allan við að halda utan um þann mikla vöxt sem hefur orðið á Suðurnesjum. SpKef óttast ekki aukna samkeppni Samþykktum breytt til að liðka fyrir viðskiptum. Væntingavísitala Gallup lækkaði í mars eftir að hafa náð hámarki í febrúar en vísitalan mælist nú 127,7 stig. Mat neytenda á efna- hagslífinu er nú lægra en áður og á stærstan þátt í lækkun vísi- tölunnar ásamt því sem dregið hefur verulega úr væntingum þeirra til efnahagslífsins eftir sex mánuði. Að sögn greiningardeildar Glitnis banka virðist ljóst að neikvæð umfjöllun um íslenskt efnahagslíf og gengislækkun krónunnar hafi skilað sér í auk- inni svartsýni á meðal neytenda. Þrátt fyrir það segir greiningar- deildin það athyglisvert að mat neytenda á núverandi efnahags- aðstæðum hefur sjaldan verið hærra og endurspeglar það mik- inn hagvöxt og lítið atvinnuleysi um þessar mundir. Telur greiningardeildin að framundan séu aukin viðskipti með íbúðarhúsnæði, bifreiðar og utanlandsferðir ef marka má könnun Gallup. Fyrirhuguð hús- næðiskaup neytenda hafa aukist umtalsvert og hefur vísitalan fyrir þau ekki reynst hærri frá því mælingar hófust. - jab Lægri væntingavísitala Mat fólks á núverandi aðstæðum sjaldan hærra. Færeyingar geta sofið rólegir Þær hræringar sem hafa orðið í íslensku efnahagslífi upp á síðkastið hafa vakið mikla athygli í Færeyjum. Færeyski Landsbankinn hefur beðið fær- eyska fjölmiðla um að sýna stillingu þegar þeir bera saman fréttir af íslensku efnahagslífi og áhrifum þeirra á færeysk verðbréf. Fellst bankinn ekki á að tauga- veiklunin á Íslandi eigi að hafa áhrif á skráð færeysk verðbréf en færeyski verðbréfamarkað- urinn VMF er í samstarfi við Kauphöll Íslands. „Það er lítið samhengi milli íslenska hagkerfisins og fær- eyskra verðbréfa sérstaklega sem snýr að íslenska verðbréfa- markaðnum ICEX og VMF- markaðnum, þar sem færeysk verðbréf eru skráð í dönskum krónum en ekki íslenskum,“ segir Landsbanki Færeyja. Olíuleitarfélagið Atlantic Petroleum er eina færeyska hlutafélagið sem er skráð í Kauphöll Íslands en það er algjörlega óháð íslenskum aðstæðum. - eþa ÞÓRSHÖFN Krampaköst á íslenska fjár- málamarkaðnum eiga ekki að hafa áhrif á færeyska verðbréfamarkaðinn.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.