Fréttablaðið - 29.03.2006, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 29.03.2006, Qupperneq 52
 29. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR28 Lesendur karlatímaritsins FHM hafa valið kynþokka- fyllstu konu heims í árlegri kosningu tímaritsins og komu niðurstöðurnar mörg- um á óvart. Scarlett Johansson hefur verið valin kynþokkafyllsta kona heims af lesendum karlatímaritsins FHM og veltir hún þar með sjálfri Angelinu Jolie sem vermt hefur efsta sætið um nokkurt skeið úr sessi. Hvort ástarblossinn sem kviknaði á milli Jolie og Pitt hafi eitthvað með það að gera skal ósagt látið en þær voru vissulega funheitar senurnar sem Johans- son sást leika í kvikmynd Woody Allen, Match Point. Johansson var að vonum ánægð með þennan titil enda sagði hún að þetta væri eitt það fallegasta sem nokkur maður gæti sagt við konu. „Ég vil þakka lesendum blaðsins fyrir hrósið,“ sagði leikkonan þegar henni var tilkynnt um þennan heiður. Angelina Jolie hefur látið fara lítið fyrir sér að undanförnu og hefur að mestu ein- beitt sér að sam- bandi sínu og hjarta- knúsarans Brads Pitt en það sam- band hefur verið með eindæm- um vinsælt á síðum slúður- blaðanna. Leikkonan Jessica Alba hreppti þriðja sætið í þessari árlegu könnun og barmgóða söng- konan Jessica Simpson hafnaði í fjórða. Af öðrum stórstjörnum á topp tíu-listann má nefna óskars- verðlaunaleikkonuna Halle Berry og Keiru Knightley. Brynjólfsmessa eftir Gunnar Þórðarson Í Grafarvogskirkju miðvikudagskvöld 29. mars, kl 20.30. Kirkjukórar Keflavíkurkirkju, Skálholtskirkju og Grafarvogskirkju og barna- og unglingakórar kirknanna flytja Brynjólfsmessu. Einsöngvarar eru Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran og Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór. Kammersveitin Jón Leifs Camerata leikur undir Kórstórar eru Hilmar Örn Agnarsson, Hörður Bragason, Oddný Jóna Þorsteinsdóttir og Helga Magnúsdóttir. Stjórnandi er Hákon Leifsson. Aðgöngumiðar á tónleikana verða til sölu hjá kórfélögum og hjá kirkjuvörðum í Grafarvogskirkju frá kl. 16-19 og í anddyri fyrir tónleika. Þrítugur Indverji að nafni Aftab Anari, gerði eiginkonu sinni, Sohelu, óþægilegt rúmrusk á dögunum og hefur verið gert að yfirgefa hana eftir að hann skildi við hana fyrir slysni í svefni. Aftab muldraði orðið „talaq“, sem þýðir skilnaður á úrdu-máli, þrisvar sinnum í svefni, en samkvæmt lögum múslima þarf eiginmaður aðeins að segja „ég skil við þig,“ þrisvar sinnum til að tryggja sér skilnað. Atvikið spurðist út eftir að Sohela deildi áhyggjum sínum með vinum sínum. Í kjölfarið komust þorps- öldungarnir á snoðir um málið og álykt- uðu að Aftab hafi sannarlega skilið við konu sína til ellefu ára, þótt rænulaus væri. Aftab getur hins vegar ekki hugsað sér að vera fjarri hlýju hjónasængur og segist hafa verið undir áhrifum svefnlyfja þegar hann mælti óheillaorðið í þrígang. Áður en hjónaleysin geta gift sig á ný verða þau lögum samkvæmt að vera aðskilin í að minnsta kosti hundrað daga og Sohela þarf þar að auki að rekkja hjá öðrum manni. Að sögn hefur parið neitað að verða við úrskurði öld- unganna og eiga yfir höfði sér að vera útskúfað. HJÓNARÚM Aftab kveðst hafa verið í lyfjamóki þegar hann mælti orðið skilnaður í hjónarúminu. Skildi við eigin- konuna í svefni JESSICA SIMPSON Barmgóða söngkonan skildi við eiginmann sinn Nick Lachey fyrir nokkru og þeir eru ófáir sem vildu hugga stúlkuna. JESSICA ALBA Leikkonan var flott í gæða- myndinni Sin City en fátt annað gladdi augað í Into the Blue. ANGELINA JOLIE Hefur lengi vermt efsta sætið en nú hefur henni verið velt úr sessi. Ástar- samband hennar við Brad Pitt hefur átt þar einhvern hlut að máli. SCARLETT JOHANSSON Var valin kynþokka- fyllsta kona heims af lesendum FHM og var að vonum mjög þakklát fyrir kosninguna FRÉTTABLAÐIÐ /GETTY IMAGES Scarlett kynþokkafyllst Lífsstíls-og hönnunarþátturinn Veggfóður var á ferð í París á dög- unum. Afraksturinn verður sýndur í þættinum í kvöld þar sem lysti- semdir Parísar verða kynntar. Vala Matt og Hálfdán Steinþórsson voru alsæl með ferðina og sér í lagi mat- armenningu þeirra Frakka. „Við hittum nokkra Íslendinga sem búa í París og fengum þá til að mæla með bestu stöðunum í borg- inni. Mér fannst þrír veitingastaðir algerlega standa upp úr og það var hreint ævintýri að skoða þá. Þar sem ég elska að fara á skemmtilega veitingastaði með góðum mat þá finnst mér gaman að geta mælt með veitingastað sem er efst uppi á Pompidousafninu. Hann er ofboðs- lega flottur og speisaður. Maturinn var mjög léttur og góður og hönnun- in öll óskaplega sérstök, þetta var eins og að vera á geimskipi. Út af staðnum er hægt að ganga út á risa- stóran pall og þaðan er útsýni yfir alla París. Svo skoðuðum við Hótel Costef sem er í þessum rómantíska gamla Parísarstíl. Veitingastaður- inn á hótelinu er ótrúlega vinsæll og oft má rekast á stórstjörnur á borð við Johnny Depp og Vanessu Parad- is,“ segir Vala himinlifandi með ferðina. Hún nefnir líka veitinga- staðinn Kong sem hannaður er af Phillip Stark en atriði úr þættinum Beðmálum í borginni var tekið upp á staðnum þegar Carrie Bradshaw elti ástina til borgar ástarinnar. ■ Vala veggfóðrar París VALA MATT Í PARÍS KEIRA KNIGHTLEY Er oft á topp tíu-lista yfir kynþokkafullar konur en stúlkan barnunga fagnar nú 21 árs afmæli sínu með drykkju- ferð um Bandaríkin. HALLE BERRY Þykir æði fögur og hefur sjaldan eða aldrei verið ófeimin við að sýna glæsilegan vöxt sinn. Hún hefur oftar en ekki verið ofar á listanum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.