Fréttablaðið - 29.03.2006, Side 58

Fréttablaðið - 29.03.2006, Side 58
 29. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR34 FÓTBOLTI Real Madrid hefur gert sjö manna óskalista yfir þá þjálfara sem félagið vill að taki að sér þjálf- un liðsins frá og með næsta tíma- bili. Mennirnir á listanum eru Ars- ene Wenger hjá Arsenal, Jose Mourinho hjá Chelsea, Rafael Ben- itez hjá Liverpool, Sven-Göran Eriksson landsliðsþjálfari Eng- lands, Marcelo Lippi landsliðsþjálf- ari Ítalíu, Carlo Ancelotti hjá AC Milan og Fabio Capello þjálfari Juventus. „Arsene Wenger hefur áður greint fullkomlega frá stöðu sinni. Hann er ánægður hjá Arsenal og er ekkert að hugsa um að yfirgefa félagið,“ sagði talsmaður Arsenal í gær en áður hefur Rafael Benítez stjóri Liverpool ítrekað löngun sína um að vera áfram hjá Evrópumeist- urunum. „Chelsea og Mourinho eru að vinna saman að spennandi lang- tímaverkefni,“ sagði talsmaður Chelsea og útilokaði þar með að portúgalski stjórinn færi til Madr- íd. Þá hefur Fabio Capello einnig neitað að hann vilji taka við liðinu, eins og staðan væri í dag en útilok- aði það ekki í framtíðinni. Fjölmiðlar greina frá því að Carlo Ancelotti sé líklegastur og ganga sumir svo langt að segja að hann sé þegar kominn langt í samn- ingaviðræðum við Real Madrid. Real Madrid: Sjö manna óskalisti JOSE MOURINHO Ekki á leið til Real Madrid frá Chelsea. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES LOKSINS Á ÍSLENSKU RISA-POTTAR ALLA DAGA FÓTBOLTI Steve Coppell, knatt- spyrnustjóri Reading, greindi frá því í gær að hann hefði að öllum líkindum hætt sem stjóri félagsins hefði það ekki tryggt sér sæti í úrvalsdeild. „Það hefði líklega orðið stemn- ingin hjá mér og félaginu en sem betur fer hafa hlutirnir gengið upp,“ sagði Coppell sem er engu að síður samningslaus í sumar. „Við erum ekkert búnir að ræða málin en ég efast ekki um að við komumst að samkomulagi þar sem báðir aðilar vilja halda sam- starfinu áfram.“ Reading tryggði sér sæti í úrvalsdeild í fyrsta sinn í sögunni á dögunum og það þótt enn séu sex leikir eftir af tímabilinu. Með liðinu leika íslensku landsliðs- mennirnir Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson en báðir áttu þeir stóran þátt í að koma Reading upp úr 1. deildinni í vetur. Steve Coppell: Íhugaði að hætta STEVE COPPELL Gert frábæra hluti með Reading. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Það ríkti mikil eftirvænt- ing fyrir leik Arsenal og Juventus á Highbury í gær enda var Frakk- inn Patrick Vieira að snúa aftur á völlinn þar sem hann átti frábær níu ár en Vieira skráði nafn sitt rækilega í sögubækur Arsenal á tíma sínum með félaginu og var mikils virtur enda mikill leiðtogi og fyrrum fyrirliði liðsins. Gömlu félagar hans báru enga virðingu fyrir honum og þá síst hinn ungi Spánverji Cesc Fabre- gas sem hefur mátt bera uppi miðjuspil Arsenal lengstum frá því Vieira yfirgaf félagið. Vieira gat lítið í leiknum og fékk gult spjald þannig að hann verður í banni í síðari leiknum. Fabregas var gríðarlega grimmur í fyrri hálfleiknum og sjá mátti að honum var mikið í mun að sanna að hann væri síst síðri miðjumaður en Vieira. Hann tók vel á Frakkanum og tæklaði þegar tækifæri gafst. Gerði sér síðan lítið fyrir og kom Arsenal yfir með laglegu marki fimm mín- útum fyrir leikhlé. Marki þessu fagnaði hann hreint ógurlega eins og gefur að skilja. Leikur Juventus var mjög var- færnislegur og liðið var ekki að hætta sér of langt fram á völlinn. Þá sjaldan þeir það gerðu svaraði Arsenal ávallt með baneitruðum skyndisóknum þar sem hinn magn- aði Thierry Henry var í aðalhlut- verki. Oft á tíðum skall hurð nærri hælum og leikmenn Juve máttu prísa sig sæla með að vera aðeins marki undir. Sóknarlotur Arsenal þyngdust stöðugt rúmum 20 mínútum fyrir leikslok brast stíflan þegar Henry skoraði eftir stoðsendingu frá Fabregas. Arsenal hélt ágætlega sjó út leikinn á meðan leikmenn Juve pirruðust verulega og Mauro Camoranesi og Jonathan Zebina fengu báðir að fjúka af velli rétt fyrir leikslok með tvö gul spjöld á bakinu og seinni spjöldin hjá þeim báðum voru mjög heimskuleg. Í hinum leik gærkvöldsins gerðu Benfica og Barcelona markalaust jafntefli. henry@frettabladid.is Vieira féll í skuggann af spænskum arftaka sínum Allra augu áhorfenda á Highbury í gær voru á Patrick Vieira en það var spænska ungstirnið, Cesc Fabregas, sem stal senunni í leik Arsenal og Juventus. GÓÐIR FÉLAGAR Það fór vel á með vin- unum Patrick Vieira og Thierry Henry fyrir leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓR Á KOSTUM Spænska ungstirnið Cesc Fabregas fór á kostum gegn Juve og skoraði eitt mark og lagði upp annað. Hann fagnar hér marki sínu í leiknum með félögum sínum í Arsenal.FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES PÚLLARAR Þið eruð enn meistarar! Njótið þess á meðan það varir og spilið á Lengjunni MEISTARADEILDIN 28.-29. MARS 1 X 2 Upphæð Stuðull Vinningur kr. kr. 1.000 42.38 42.380 Þetta er bara eitt dæmi um hvernig þú gætir margfaldað peningana þína á Lengjunni. Arsenal - Juventus 2,20 2,60 2,45 Benfica - Barcelona 3,00 2,80 1,80 Inter - Villareal 1,40 3,20 4,50 Lyon - AC Milan 2,15 2,60 2,50 28.03 28.03 29.03 29.03 MEISTARADEILDIN er á Lengjunni. Fylltu út se›il á lengjan.is e›a á næsta sölusta› og hleyptu enn meiri spennu í leikina. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.