Fréttablaðið - 10.05.2006, Blaðsíða 21
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
GÓÐAN DAG!
Í dag er miðvikudagurinn
10. maí, 130. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 4.30 13.24 22.21
Akureyri 3.58 13.09 22.22
Hlíf Böðvarsdóttir er í M.Ed. námi í lýð-
heilsu- og kennslufræði í Háskólanum í
Reykjavík.
Lýðheilsu- og kennslufræði er nýtt nám í
Háskólanum í Reykjavík og Hlíf er í fyrsta
hópnum sem hóf nám síðasta haust. „Námið
tekur tvö ár og það eru kenndar þrjár annir
á ári svo við verðum í skólanum út júní,“
segir hún.
Hlíf er með BS-próf í viðskiptafræði.
„Ég var að vinna sem fjármálastjóri en
ákvað svo að skipta um stefnu og þegar ég
sá þetta nám auglýst leist mér mjög vel á
það.“
Í lýðheilsu- og uppeldisfræði er fólk úr
ýmsum geirum atvinnulífsins með ólíka
menntun og bakgrunn. „Hópurinn sam-
anstendur af kennurum, sjúkraþjálfurum,
félagsfræðingum og fólki úr öllum áttum
sem er mjög gaman því þá koma fram mis-
munandi skoðanir. Ef það væru bara heil-
brigðisstarfsmenn í hópnum væru skoðan-
irnar kannski einhæfari,“ segir Hlíf.
Í lýðheilsufræðinni er mikið fjallað um
forvarnarstarf. „Lýðheilsufræði snýst um
að ná til fólks áður en skaðinn er skeður og
við lærum hvernig á að búa til heilbrigðis-
áætlanir. Við vinnum mikla rannsóknar-
vinnu og skoðum kannski þróun á offitu
barna og þróun hreyfingarleysis og tengj-
um það saman. Við skoðum allt sem tengist
heilsu lýðsins og hvernig má bæta hana.
Ég er til dæmis að vinna hópverkefni um
það hvernig hægt er að bæta andlega líðan
barna í fimmta og sjötta bekk í grunnskól-
um.“
Hlíf er mjög ánægð með að hafa farið í
lýðheilsu- og kennslufræði. „Ég fann mig
ekki í fjármálageiranum og mig hefur
lengi langað til þess að finna leið til þess að
gera Ísland betra, en ég hef sérstaklega
mikinn áhuga á offitu barna og hreyfingu.
Draumurinn er að verða svokallaður ráð-
gjafi þar sem ég vinn rannsóknarvinnu og
nota niðurstöðurnar til að hjálpa fólki.“
emilia@frettabladid.is
Bætir heilsu lýðsins
Hlíf Böðvarsdóttir er ánægð í Háskólanum í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
TIFANDI TÍMA-
SPRENGJA
Mikilvægt er að skipta um
tímareim þegar bílar
hafa náð vissum aldri.
BÍLAR 2
LITLA STÓRBORGIN
MÜNCHEN
München er glæsileg borg sem býður
upp á allt sem ferðamenn óska eftir,
hvort sem það er fyrir augu, eyru,
bragðlauka eða til skemmtunar.
FERÐIR 4
Nýr Rover 75
lítur væntanlega
dagsins ljós á
næsta ári því
bílafyrirtækið
SAIC í Kína
sem keypti þrotabú MG-Rover í
Bretlandi í fyrra, ætlar að hefja
sölu honum. Ekki er þó víst að
SAIC megi nota Rovermerkið því
að BMW í Þýskalandi á nefnilega
Rover, MG og fleiri bresk merki.
Samningaviðræður milli SAIC og
BMW um málið standa yfir. Frá
þessu er greint á vefnum fbi.is
Fosshótel
Reykholt
sem er fyrsta
menning-
artengda
hótelið á
Íslandi hefur nú einnig opnað
heilsulind. Hún er með þremur
heitum pottum í hótelgarðin-
um sem heita Mímisbrunnur,
Hvergelmir og Urðarbrunnur.
Einnig er hugleiðslu- og nudd-
stólaherbergi, slökunarhermir
og dagljósameðferðarherbergi.
Svo hefur hótelið jógamottur og
fjallahjól til útláns.
Sænskir lögreglumenn sem
eiga að fylgjast með öðrum
ökumönnum og sjá til þess að
þeir aki í samræmi við lög og
reglur eru sjálfir ekki alltaf með
allt á hreinu, hvorki hvað varðar
ökuhæfni né kunnáttu á umferð-
arlögum. Þetta leiðir ný sænsk
skýrsla í ljós.
ALLT HITT
[BÍLAR FERÐIR]
Vagnhöfða 23 - Sími 590 2000
Seltjarnarnesi
KT verslun Akureyri
Njarðarnesi S. 466 2111
Bestu dekkin í USA
8 ár í röð Tire Review Magazine
Hágæða jeppadekk
Fínt eða gróft
munstur.
Mikið úrval af
stærðum.
Gerið gæða og
verðsamanburð