Fréttablaðið - 10.05.2006, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 10.05.2006, Blaðsíða 78
 10. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR38 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Kvikmyndagerðarmaðurinn Ólaf- ur Jóhannesson er staddur í Nor- egi um þessar mundir þar sem hann kynnir mynd sína Africa United sem frumsýnd verður í kvikmyndahúsum þar í landi á föstudag. Kvikmyndin hlaut Eddu- verðlaunin sem besta íslenska heimildarmyndin á síðasta ári og er framleidd af Poppoli kvik- myndafélagi og Zik Zak. Blíðskap- arveður hefur verið í höfuðborg Noregs, Ósló, síðustu daga og þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til Ólafs var hann léttklæddur á rölti í 25 stiga hita í Rauða hverfi borg- arinnar. Ólafur hefur þó ekki bara verið að sóla sig í borginni því fyr- irtækið Fidalgo sem dreifir mynd- inni í Noregi hefur verið duglegt við að bóka hann í alls konar viðtöl til að kynna myndina. Til að mynda fór Ólafur í viðtal hjá God morgen Norge á TV2 sem er Ísland í bítið þeirra Norðmanna en það gekk nokkuð brösulega „Rétt áður en ég fór í loftið var mér sagt að ég ætti að tala norsku í viðtalinu. Ég tala hins vegar enga norsku en reyndi eftir bestu getu. Eftir tvær mínútur sáu þátta- stjórnendurnir að þetta var ekki alveg að ganga og skiptu yfir í ensku,“ segir Ólafur og hlær að því hversu duglegt dreifingarfyr- irtækið úti hefur verið að ljúga hann í viðtöl sem altalandi á norsku. „Líklega er þetta ágætt í kynningarskyni fyrir myndina að Norðmenn geti vælt af hlátri yfir þessum Íslendingi sem reynir að stama fornmálinu upp úr sér. Ann- ars verður spennandi að sjá hvað Norðmönnunum finnst um mynd- ina en það verður forsýning í kvöld og fyrstu dómar birtast líklega í hérlendum blöðum á fimmtudag,“ segir Ólafur sem þarf að vera kominn heim til Íslands áður en af frumsýningu verður þar sem það er í nógu að snúast hjá kvikmynda- fyrirtæki hans Poppoli. Í haust verður kvikmyndin Act normal til- búin til sýningar en hún segir frá lífi búddamúnks. Síðustu tökur standa svo yfir á The amazing truth about queen Raquela og á þeim að vera lokið fyrir mánaða- mótin en sú mynd fjallar um fil- ippínskan „ladyboy“ sem dreymir um betra líf í París en endar í frystihúsi á Íslandi. Í janúar hefj- ast svo tökur á myndinni Við fót- skör meistarans sem er leikin kvikmynd en handritið er byggt á bók eftir Þorvald Þorsteinsson. Seinnipart næsta árs hefjast svo tökur á mynd um hálfbróður Shar- on Stone, Mike Stone, sem á litrík- an feril að baki sem karatehetja og lífvörður fræga fólksins en hefur síðustu 20 árin búið í Asíu. - snæ ÓLAFUR JÓHANNESSON: KYNNIR FÓTBOLTAKAPPA SÍNA Í ÓSLÓ Neyddur til að tala norsku í sjónvarpi KOMINN TIL NOREGS Ólafur hengir upp norskt auglýsingaspjald með Africa United en myndin verður frumsýnd í Ósló á föstudaginn. NÝR STÓR HUMAR GRILLPINNAR SIGIN GRÁSLEPPA Tilbreyting að vera í fyrstu deild „Ég fer á völlinn í sumar eins og ég get. Það er alltaf ákveðin tilbreyting að vera í fyrstu deild, maður þekkir það. Maður getur skoðað landið betur og fær að sjá staði sem maður hefði annars ekki farið á eins og Ólafsvík. Maður stendur með sínum mönnum og fyrsti leikurinn er úti á móti Haukum, sem mér skilst að verði gervigrasleikur.“ JÓN ÓLAFSSON tónlistarmaður og stuðningsmaður Þróttar. Með fimm stórutær Nei, boltaíþróttir af þessu tagi heilla mig ekki. Ég get horft á úrslitaleiki en aðdragandi og þekking á leikmönnum og eitthvað varðandi uppbyggingu leiksins... þú getur alveg eins talað við mig á kínversku. Ég hef enga þekkingu á þessari íþrótt og gapi af undrun þegar fólk tjáir sig um leikmenn og þjálfara og allt það. Ég er með fimm stórutær á hvorum fæti.“ ÖRN ÁRNASON leikari. Horfir á KR og FH Já, ég fer á alla heima- leiki KR og líka á flesta heimaleiki FH. Hann tengdapabbi er fanat- ískur FH-ingur og við hittumst oft fyrir leiki og fáum okkur bjór saman. FH-ingar hafa spilað skemmtilegasta boltann undanfarin ár og svo er umgjörðin líka orðin svo góð.“ GÍSLI MARTEINN BALDURSSON stjórnmálamaður. ÞRÍR SPURÐIR ÍSLENSKI BOLTINN BYRJAR AÐ RÚLLA UM HELGINA Ætlar þú á völlinn í sumar? Leiksýningunni 100 ára hús eftir Jón Atla Jónasson hefur verið boðið að taka þátt í alþjóðlegu leiklistar- hátíðinni „Midwinters Night´s Dream“ sem borgarleikhúsið í Tall- in í Eistlandi heldur 27.-30. desem- ber annað hvert ár. Leikhópurinn Frú Emilía frumsýndi verkið 30. apríl síðastliðinn í gömlu hersjúkrat- jaldi á ylströndinni í Nauthólsvík. Sýningin hlaut mikið lof leiklistar- gagnrýnenda og var útsendari frá hátíðinni staddur hér á landi í síð- ustu viku og óskaði eftir að sýningin kæmi á hátíðina. Einnig var Vest- urporti boðið að taka þátt í hátíðinni og sýna Brim, en það verk er líka eftir Jón Atla og hefur sú sýning farið víða og var hún tilnefnd til leiklistarverðlauna Norðurlandaráðs. Að því er höfundurinn segir er hátíðin mjög virt og eru það aðal- lega sýningar frá Eystrasaltslönd- unum sem taka þátt og er þetta því mikill heiður fyrir leikhópinn en heimsfrægir leikhúsmenn á borð við Frank Casdorf frá Þýskalandi, Anatoly Vassilyev og Kamas Ginkas frá Rússlandi hafa allir heiðrað hátíðina með nærveru sinni. Það er dýrt að ferðast með heila sýningu milli landa og því eru Jón Atli og hans fólk að athuga hvort þeim tak- ist að útvega fjármagn til ferða- rinnar en það er ekki enn komið í ljós hvernig það mun ganga. Jón Atli segir að líklegast verði leitað til styrktaraðila í þessum efnum og að þau séu staðráðin í að koma sýn- ingunni út. Sýningar eru enn í full- um gangi en næsta sýning er í kvöld klukkan 10 og er hægt að nálgast miða á 100arahus@blogspot.com. Boðið á erlenda hátíð í Tallinn JÓN ATLI JÓNASSON Er vonandi á leiðinni til Tallin með sýningu sína 100 ára hús. HRÓSIÐ ...fær hljómsveitin Ampop sem hitar upp fyrir bresku hljómsveit- ina The Zutons á tvennum tónleikum í Sviss í byrjun júní. FRÉTTIR AF FÓLKI Kosningabaráttan fyrir sveitastjórn-arkosningarnar er komin á fullt og frambjóðendur flokkanna eru óþreyt- andi við að koma málefnum sínum á framfæri í blaða- og sjónvarpsauglýs- ingum. Baráttan í Reykjavík er ákaflega hörð og nú hafa Sjálfstæðisflokkurinn, vinstri grænir og Frjálslyndi flokkurinn tekið nýjustu tækni í sína þjónustu. Á heimasíðu OgVodafone má nú nálgast raddir þeirra Gísla Marteins Baldursson- ar, Ólafs F. Magnússonar og Svandísar Svavarsdóttur í líki hringitóns þar sem þau hvetja kjósendur til að svara en á eftir fylgir stutt ræða um hvaða stefnumál eru flokkunum efst í huga. Varla þarf að taka það fram að Ísland er í hópi þeirra þjóða sem nota farsímann af hvað mestum þrótti og borgin gæti því fyllst af fólki með kosningaáróður í símunum sínum. Annars vekur það athygli að hvorki Björn Ingi Hrafnsson né Dagur B. Eggertsson taka þátt í þessu uppátæki en leiðtogar Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar eru báðir af yngri kynslóðinni og ættu því að þekkja áhrifamátt farsímanna í þessu nútíma- þjóðfélagi. Þá er einnig athyglisvert að Gísli Marteinn er notaður sem rödd Sjálf- stæðisflokksins og spurning hvort ung- gæðislegt fas þessa fyrrum sjónvarps- manns á eftir að virka hvetjandi á yngri kjósendur þegar gengið verður að kjörborði 27.maí. Fréttablaðið hefur að undanförnu birt spár veðbanka um gengi Silvíu Nætur í Eurovsion keppninni sem fram 18. og 20.maí á Grikklandi. Silvía hefur verið á flakki um Evrópu og spilað fyrir forvitna Eurovision-aðdáendur sem flestir reka upp stór augu þegar hin hrokafulla og sigurvissa sjónvarpsdrottn- ing stígur á stokk. Breska sjónvarpsstöð- in Sky hefur um árabil rekið veðbanka um gengi landanna í þessari „merki- legu“ söngvakeppni og þokast Silvía hægt og bítandi upp listann. Enn sem fyrr er reiknað með því að Grikkir og Svíar berjist um sigurinn en líkurnar á því að Silvía komi með keppnina heim eru taldar 33 á móti einum. -fgg LÁRÉTT 2 óskiptu 6 hæð 8 sægur 9 yfir rúm 11 frú 12 flott 14 smápeningar 16 nafnorð 17 fjór 18 tunnu 20 golf áhald 21 gort. LÓÐRÉTT 1 líkamshluti 3 í röð 4 sendir 5 dýra- hljóð 7 skemmtun 10 frostskemmdir 13 bein 15 eyja 16 lík 19 tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2 öllu, 6 ás, 8 mor, 9 lak, 11 fr, 12 smart, 14 klink, 16 no, 17 fer, 18 ámu, 20 tí, 21 raup. LÓÐRÉTT: 1 háls, 3 lm, 4 loftnet, 5 urr, 7 samkoma, 10 kal, 13 rif, 15 krít, 16 nár, 19 uu. 1 George W. Bush 2 Michael Hayden 3 Danmörku VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum bls. 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.