Fréttablaðið - 10.05.2006, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 10.05.2006, Blaðsíða 40
MARKAÐURINN Fjármálaeftirlitið kann við fyrstu sýn að virðast þunglamaleg stofnun, leynd hvílir yfir starfseminni og rík trúnaðarskylda við fyrirtækin sem stofnunin hefur eftirlit með. Innandyra er hins vegar unnið að framþró- un í lifandi umhverfi alþjóðafjármála þar sem hægt þarf að vera að bregðast hratt við breytingum. Stofnunin vinnur markvisst að því að bæta starfsemi sína með innleiðingu nýrra mælikvarða á árangur og með því að nýta sér nýjustu tækni í rafrænum skilum á þúsundum skýrslueintaka sem eftirlitsskyld fyrirtæki þurfa að koma til hennar á ári hverju. Stofnunin kallar líka til sín stjórn- endur fjármálaþjónustufyrirtækja í sérstakt hæfismat, en hingað til hefur enginn fengið falleinkunn. „Ég held að fyrirkomulagið sem við höfum valið okkur varðandi eftirlit með fjármála- þjónustu sé mjög gott,“ segir Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, en heyrst hafa þær raddir að ef til vill færi betur að sameina starfsemi stofnunarinnar og Seðlabankans. „Þessi grunngerð hefur átt sinn þátt í því að hér hefur á skömmum tíma byggst upp alþjóðleg fjár- málastarfsemi og vert að athuga að ekki er langt síðan fjármála- starfsemi hér var einvörðungu inn- anlands. Núna er hún bæði þróuð og alþjóðleg. Þá er þetta sama fyrirkomulag og löndin í kringum okkur hafa valið og íslensku útrás- arfyrirtækin starfa í,“ segir hann og kveðst hafa fundið fyrir sátt og skiln- ingi á því að búa þurfi vel að starfsemi Fjármálaeftirlitsins, bæði fjár- hagslega og varðandi valdheimildir. „Þetta eru líka for- sendur þess að hér verði komið á alþjóðlegri fjármálamiðstöð líkt og stjórnvöld stefna að.“ Hann segir viðbúið að aukið umfang eftirlits- skyldrar starfsemi kalli á aukningu í fjár- heimildum á næsta ári líkt og veittar voru í fyrra. „Eignir bankannna uxu til dæmis um áttatíu prósent árið 2005 og eftirlitsstofnanir vaxa eðli máls samkvæmt aðeins á eftir.“ ÁHERSLAN Á FRAMKVÆMDINA „Fjármálaeftirlitið höfum við til að tryggja öryggi og stöðugleika í rekstri fyrirtækja í fjármálaþjónustu, svo sem fjármálafyrir- tækja, vátryggingafélaga og lífeyrissjóða. Við skoðum hvernig einstök fyrirtæki standa og reynum líka að tryggja öryggi viðskipta- manna og jafnræði fjárfesta á innlenda mark- aðnum,“ segir Jónas og bendir á að með þessari starfsemi sé komin forsenda þeirrar miklu útrás- ar sem íslensk fyrirtæki hafi staðið í allra síðustu ár. „ F y r i r - tækin sem hér eru með starfsleyfi , svo sem bank- ar og trygg- ingafélög, geta byggt á því til að koma á starf- semi í öðrum ríkjum Evrópu. Þetta tengir okkur náttúrlega við erlend eftir- lit og hefur á síðasta eina og hálfa ári gert starfsemina mjög alþjóð- lega,” segir hann og vísar til aukinnar sam- vinnu við erlend eftirlit þar sem íslensku fyr- irtækin starfa. Þá á Fjármálaeftirlitið einnig í samstarfi á Evrópuvettvangi með sambæri- legum eftirlitsstofnunum. „Meðal annars eru skýr skilaboð frá Evrópusambandinu um að þunginn verði minni á reglusmíðinni en meiri á framkvæmd reglnanna og eftirlitið. Mikil áhersla er lögð á að það sé samræmt, en það gerist ekki nema með mikilli samvinnu á milli ríkjanna, þau skiptist á skoðunum og upplýs- ingum um mál sem í gangi eru.“ Jónas segir fyrstu stóru skrefin í útrásinni hafa verið tekin um mitt ár 2004 þegar Kaupþing keypti FIH banka í Danmörku og þegar Íslandsbanki keypti í Noregi undir lok sama árs. „Árið 2005 er svo stóra útrásarárið þar sem verið er að kaupa Singer og Friedlander og fleiri fjármálafyrirtæki. Við leggjum því síaukna áherslu á alþjóðavæðingu, bæði með þátttöku í Evrópunefndum og í samstarfinu við erlendu eftirlitin, og horfum meðal ann- ars til framkvæmdar erlendis þegar við túlk- um reglur hér.“ Þá hefur stofnunin tekið þátt í úttektum erlendra eftirlita á dótturfélögum íslensku fyrirtækjanna og eins heimsótt þau sjálf og kallað eftir upplýsingum. „Það er þá gert í samstarfi við eftirlitin úti, en þótt dótturfélögin heyri undir eftirlitið í viðkom- andi landi er samstæðan eftir sem áður undir okkar eftirliti.“ STÖK GAGNRÝNISRÖDD Jónas segir að ekki megi gleymast að eftirlit eitt og sér tryggi ekki að hlutir sem ekki eigi að gerast gerist ekki. „Ábyrgðin á skynsam- legum rekstri er fyrst og síðast hjá stjórn- endum sem fyrirtækin reka. Eftirlitið veit- ir hins vegar aðhald og setur starfseminni ákveðinn ramma og til þess líta meðal annars alþjóðlegu matsfyrirtækin þegar þau koma og gefa bönkunum sitt lánshæfismat.“ Hann segir þá aðila sem hingað hafi komið og metið Fjármálaeftirlitið, matsfyrirtækin og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, hafa gefið því góða einkunn. „Svo er kannski rétt að hafa líka í huga að alla jafna er ekki mikið verið að hrósa eftirlits- aðilum. Þeirra árangur er oft ekki sýnilegur þó að hann geti skipt verulegu máli.“ Í síðasta mán- uði kom út skýrsla frá greiningar- deild breska b a n k a n s JÓNAS FR. JÓNSSON Jónas, sem er forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að hjá stofnuninni séu í gangi verkefni sem bæta eigi starfsem- ina. Unnið er að stefnumiðuðu árangursmati og innan tveggja ára eiga rafræn skil að vera komin í þann farveg að miklu fljótlegra verði að vinna úr gögn- um. Markaðurinn/GVA 10. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR12 Ú T T E K T Með nútímavæðingu og skilvirkni að leiðarljósi Fjármálaeftirlitið hefur að markmiði að tryggja öryggi og stöðugleika í rekstri einstakra fjármálaþjónustufyrirtækja. Í kjölfar útrásar íslenskra fjármálafyrirtækja hefur erlent samstarf stór- aukist, unnið er að innleiðingu samhæfðs árangursmats og verið er að koma upp nýju úrvinnslukerfi fyrir rafræn skil á gögnum. Óli Kristján Ármannsson hitti Jónas Fr. Jónsson að máli. Síðan ég kom höfum við verið að klára þessa stefnumótun og markmiðasetn- ingu, en í henni höfum við sett niður megin- stefnu okkar, að stuðla hér að traustri fjár- málastarfsemi og síðan fram- tíðarsýnina um að hafa jákvæð áhrif á þróun markaðarins. Við skilgreinum svo sextán markmið í mismunandi víddum og setj- um einn til tvo mælikvarða fyrir hvert markmið. Viðskiptabankar og sparisjóðir Glitnir banki Kaupþing banki Landsbanki Íslands Sparisjóðabanki Íslands nb.is-sparisjóður Sparisjóður Bolungarvíkur Sparisjóður Hafnarfjarðar Sparisjóður Hornafjarðar og nágrennis Sparisjóður Húnaþings og Stranda Sparisjóður Höfðhverfinga Sparisjóður Kaupþings Sparisjóður Kópavogs Sparisjóður Mýrasýslu Sparisjóður Norðfjarðar Sparisjóður Norðlendinga Sparisjóður Ólafsfjarðar Sparisjóður Ólafsvíkur Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis Sparisjóður Siglufjarðar Sparisjóður Skagafjarðar Sparisjóður Strandamanna Sparisjóður Suður-Þingeyinga Sparisjóður Svarfdæla Sparisjóður Vestfirðinga Sparisjóður Vestmannaeyja Sparisjóður vélstjóra Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis Sparisjóðurinn í Keflavík Lánafyrirtæki Byggðastofnun Frjálsi fjárfestingarbankinn Greiðslumiðlun hf. - VISA Ísland Kreditkort hf.- EUROPAY Ísland Lánasjóður sveitarfélaga Lýsing MP Fjárfestingarbanki Sjóvá fjármögnun SP-Fjármögnun Straumur - Burðarás fjárfestingarbanki VBS fjárfestingarbanki Innlánsdeildir samvinnufélaga Kaupfélag Austur-Skaftfellinga Kaupfélag Skagfirðinga Verðbréfafyrirtæki og -miðlanir Arion verðbréfavarsla A.R.E.V. Íslensk verðbréf Jöklar - Verðbréf NordVest Verðbréf SPRON Verðbréf Verðbréfaþjónusta Sparisjóðanna Virðing H.F. Verðbréf Íslenskir fjárfestar Vaxta verðbréfamiðlun Rekstrarfélög verðbréfasjóða Landsvaki Rekstrarfélag ÍSB Rekstrarfélag Kaupþings banka Rekstrarfélag Sparisjóðsins Rekstrarfélag SPRON Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV Kauphallir og verðbréfamiðstöðvar Kauphöll Íslands Verðbréfaskráning Íslands Lífeyrissjóðir Almenni Lífeyrissjóðurinn Eftirl.sjóður F.Í.A. Eftirl.sjóður Reykjanesbæjar Eftirl.sjóður Sláturfélags Suðurlands Eftirl.sjóður starfsm. Hafnarfjarðar Eftirl.sjóður starfsm. Íslandsbanka Eftirl.sjóður starfsm. Olíuverslunar Ísl. Eftirl.sjóður starfsm. Útvegsbanka Ísl. Frjálsi lífeyrissjóðurinn Gildi - Lífeyrissjóður Íslenski lífeyrissjóðurinn Lífeyrissj. Akraneskaupstaðar Lífeyrissj. Austurlands Lífeyrissj. bankamanna Lífeyrissj. Bolungarvíkur Lífeyrissj. bænda Lífeyrissj. Flugvirkjafélags Ísl. Lífeyrissj. Hf. Eimskipafélags Íslands Lífeyrissj. hjúkrunarfræðinga Lífeyrissj. Mjólkursamsölunnar Lífeyrissj. Neskaupstaðar Lífeyrissj. Norðurlands Lífeyrissj. Rangæinga Lífeyrissj. starfsm. Akureyrarbæjar Lífeyrissj. starfsm. Áburðarverksmiðjunnar Lífeyrissj. starfsm. Búnaðarbanka Íslands Lífeyrissj. starfsm. Húsavíkurkaupstaðar Lífeyrissj. starfsm. Kópavogsbæjar Lífeyrissj. starfsm. Reykjavíkurapóteks Lífeyrissj. starfsm. Reykjavíkurborgar Lífeyrissj. starfsm. ríkisins Lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga Lífeyrissj. starfsm. Vestmannaeyjabæjar Lífeyrissj. Suðurlands Lífeyrissj. Tannlæknafélags Ísl. Lífeyrissj. verkfræðinga Lífeyrissj. verslunarmanna Lífeyrissj. Vestfirðinga Lífeyrissj. Vestmannaeyja Lífeyrissj. Vesturlands Lífeyrissj.inn Lífiðn Lífeyrissj.inn Skjöldur Sameinaði Lífeyrissjóðurinn SamvinnuLífeyrissjóðurinn Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda Vátryggingafélög European Risk Insurance Company (ERIC) Íslensk endurtrygging KB líftryggingar Líftryggingafélag Íslands Líftryggingamiðstöðin Sjóvá-Almennar líftryggingar Sjóvá-Almennar tryggingar Trygging hf. Tryggingamiðstöðin Vátryggingafélag Íslands Viðlagatrygging Íslands Vörður-Íslandstrygging Vátryggingamiðlarar Árni Reynisson DDF Vátryggingamiðlun Fjárfestingamiðlun Íslands Nýja vátryggingaþjónustan Olaf Forberg Tryggingamiðlun Íslands Tryggingamiðlun Reykjavíkur Tryggingar og ráðgjöf Aðrir eftirlitsskyldir Íbúðalánasjóður Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta Tryggingasjóður sparisjóða M E Ð Þ E S S U M H E F U R F J Á R M Á L A E F T I R I L I T I Ð E F T I R L I T :
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.