Fréttablaðið - 10.05.2006, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 10.05.2006, Blaðsíða 70
 10. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR30 Hlíðar Esjunnar eru eitt vin-sælasta útivistarsvæði höfuðborgarinnar og á góðviðrisdögum eru þar hundruð göngumanna. Um helgina lagði fjöldi fólks leið sína á fjallið enda viðraði afar vel til gönguferða, bæði á laugardag og sunnudag. Ferðafélag Íslands hefur verið duglegt við að laga aðstöðu fyrir göngumenn á fjallinu bæði með því að bæta göngustíga og merk- ingar á leiðinni. Að sögn Páls Guð- mundssonar, framkvæmdastjóra félagsins gengu um sjö þúsund manns á Esjuna frá júní til sept- ember í fyrra en sennilega eru það um 10.000 manns sem ganga á fjallið á hverju ári. „Ástandið á stígunum yfir höfuð er viðunandi en þó mætti vissulega laga göngustíginn á ákveðnum hluta leiðarinnar,“ segir Páll og bætir við að Ferðafé- lagið hafi áhuga á því að koma upp aðstöðu við bílaplanið þar sem fólk getur gert teygjuæfingar að gönguferð lokinni. Í fyrra stóð Ferðafélagið fyrir Esjuhappdrætti þar sem allir þeir sem skrifuðu nafn sitt í gestabók félagsins við útsýnisskífuna á Þverfellshorni gátu átt von á veglegum göngu- skóm í vinning. Happdrættið held- ur áfram í sumar en þess má geta að Ferðafélagið mun einnig standa fyrir göngutúrum á Esjuna á fimmtudagskvöldum frá og með júní. - snæ Esjan – alltaf jafn vinsæl RUSL Á BÍLASTÆÐINU Það er skrítið hversu fáa rusladalla er að finna við rætur Esjunn- ar. Rusladallarnir, sem eru pínulitlir, eru alltaf fullir og vellur ruslið úr þeim og fýkur um svæðið. GÖNGUFÓLK Á ESJUNNI Esjan er ein vin- sælasta gönguleiðin í nágrenni Reykjavíkur og ganga að jafnaði hundruð manna á fjallið í hverri viku yfir sumartímann. VINSÆL MEÐAL HUNDAEIGANDA Hundar eru afar hrifnir af Esjunni og eru þeir ófáir sem hafa klifið hana, m.a. þessi ungverski vizla sem heitir Hugo. FEÐGAR Á FERÐ Feðgarnir Auðunn Hálfdánarson og Hlynur Þór Auðunsson kvittuðu sam- viskusamlega í gestabókina á toppnum en 140 manns höfðu þá skráð sig í bókina þann daginn og fleiri voru á leiðinni upp. GÓÐUR DAGUR Skotinn Struan Grant og þjóðverjinn Birgit Splitt, sem hafa verið búsett á Íslandi í nokkur ár, nutu sumarblíðunnar á toppi Esjunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/SNÆFRÍÐUR ÞYNNKUBANI Vinkonurnar Nanna María Elvarsdóttir, Hrefna Guðmundsdóttir og Jóhanna Kolbrún Sigurjónsdóttir æfa fót- bolta saman. Þær segja að það sé gott að skella sér á Esjuna daginn eftir tjútt. Stökktu til Rimini 17. eða 24. maí frá kr. 29.995 Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð til Rimini í maí. Njóttu lífsins á þessum vinsælasta sumarleyfisstað Ítalíu. Bókaðu sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Verð kr. 29.995 í viku Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í viku. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Aukavika kr. 10.000. Verð kr. 39.990 í viku Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/íbúð í viku. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Aukavika kr. 10.000. Síðustu sætin rifka, Make-Up School, Hjallabrekku 1, 200 Kópavogi Hafðu samband í síma 565-2300, sendu póst á: skoli@rifka.is eða skráðu þig á www.rifka.is Spennandi förðunarnám Skráning er hafin á sumar- og haustnámskeið Förðunarskóla rifka. L jó sm . B al du r K ris tjá ns so n Fö rð un :M ar ía S ve in s Fö rð un :H ei ðd ís R ós R ey ni sd ót tir Fö rð un :G uð la ug B jö rg Þ ór ar in sd ót tir Veldu nám við þitt hæfi: • Tísku- og ljósmyndaförðun 6 eða 14 vikur • Kvikmynda- og leikhúsförðun • Úðaförðun/brúnkumeðferðir • Kvöldnámskeið í dag- og kvöldförðun Afar lifandi og áhugavert nám sem býður upp á mörg spennandi atvinnutækifæri. Förðunarskóli rifka var áður þekktur undir nafninu Förðunarskóli NO NAME, hefur nú starfað óslitið í 10 ár. Á þessum tíma hefur skólinn útskrifað yfir 1000 förðunar- fræðinga sem margir eru starfandi við fagið og allan þennan tíma hefur skólinn verið í fararbroddi í förðunarkennslu. Tísku- og ljósmyndaförðun, 14 vikur. Sumarnámskeið 15. maí 2006. Morguntímar eingöngu. Haustnámskeið 11. september 2006. Morgun- og kvöldtímar. Útlitsnámskeið fyrir 13-16 ára. Á vefnum Silvianight.com er greint frá því að formleg kvörtun hafi borist Silvíu um að breyti hún ekki textanum og sleppi því að nefna orðið fuck verði henni vikið úr keppni. Á vefsíðunni er hægt að lesa afrit af bréfinu. Viðbrögð Silvíu eru á einn veg. Hún svarar hástöfum: „Fucking say what I fucking want,“ sem útleggst á íslensku, segi bara það sem ég vil, skreytt með dónalegum orðum. Lögfræðingar Silvíu Nætur fara yfir skjalið. Silvía er komin til landsins eftir gríðarlega annasama ferð til Evrópu. Hún heldur svo af stað til Aþenu á morgun, fimmtudag. Þeir sem vilja berja stjörnuna augum fyrir þann tíma ættu að fylgjast með því hún gefur eiginhandaráritanir í dag. Á morgun hefjast æfingar í Ólympíuhöllinni í Aþenu. Þá æfir fyrsti hópurinn úr undankeppninni. Fyrsta æfing Silvíu á sviðinu er á föstudaginn. Þá verða hljóðprufur gerðar og fleira. Keppendurnir týnast til Aþenu á síðustu stundu. Strákabandið Cosmos þarf svo sem ekki að flýta sér. Þeir eiga sitt sæti í aðalkeppninni. Þeir sungu opnunarlag á svona míni-heimsmeist- aramóti í íshokký í borginni Riga í gær. Cosmos flytur lag sem er eingöngu sungið. En að allt öðru. Eurovision-kepp- andinn Steve Bender lést á sunnu- daginn. Hann var 59 ára og lést úr krabbameini. Steve kom fram með hjómsveitinni Dschinghis Khan sem keppti fyrir Þýskaland árið 1979 og varð í fjórða sæti. Hann lætur eftir sig konu og dóttur, samkvæmt síðunni oikotimes.com. Dóttir hans, Melanie, keppti fyrir Þýskaland árið 1995 með stúlkna- bandinu Mekado. Þær sungu lagið Wir geben ‚ne Party. EUROVISION 2006 GUNNHILDUR A. GUNNARSDÓTTIR SKRIFAR UM SILVÍU OG KEPPINAUTANA Silvíu hótað brottrekstri úr keppninni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.