Fréttablaðið - 10.05.2006, Blaðsíða 34
MARKAÐURINN 10. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR6
Ú T L Ö N D
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Stjórn samevrópska hlutabréfamarkaðarins
Euronext hefur staðfest að hún eigi í samruna-
viðræðum við eigendur þýsku kauphallarinnar
Deutsche Börse AG. Viðræðurnar eru skammt á
veg komnar, að sögn Euronext.
Stjórnir kauphallanna áttu í samrunaviðræðum
á síðasta ári en þær runnu út í sandinn þegar Reto
Francioni, forstjóri Deutsche Börse, gerði það að
skilyrði að höfuðstöðvar Euronext í París, sem
hefur útibú í Brussel í Belgíu, Lissabon í Portúgal
og Amsterdam í Hollandi, yrðu fluttar til Frankfurt
í Þýskalandi. Þessi krafa er ekki uppi á borðinu í
viðræðunum sem nú standa yfir, að sögn fréttavefs
breska ríkisútvarpsins, BBC.
Samrunatilraunir kauphalla eiga sér stað í
fleiri löndum, en Nasdaq hlutabréfamarkaðurinn
í Bandaríkjunum greindi frá því í síðustu viku
að hann hefði aukið hlut sinn í kauphöllinni í
Lundúnum í Bretlandi (LSE) úr fimmtán prósent-
um í 18,7. Nasdaq keypti fimmtán prósent í LSE
fyrir 447,7 milljónir punda, jafnvirði 61,2 milljarða
íslenskra króna, fyrr á árinu og gerði í kjölfarið
yfirtökutilboð í markaðinn upp á 9,50 pund á hlut.
Meirihluti hluthafa í LSE hafnaði því í mars síðast-
liðnum og í kjölfarið dró Nasdaq tilboðið til baka.
Markaðurinn hélt áfram kaupum í LSE og varði
í síðustu viku jafnvirði 16,2 milljarða íslenskra
króna til að auka hlut sinn í bresku kauphöllinni í
18,7 prósent.
Fjármálastofnanir víða um heim hafa lengi haft
augastað á LSE en ástralski bankinn Macquarie
gerði yfirtökutilboð í kauphöllina í febrúar síðast-
liðnum. Meirihluti hluthafa LSE samþykkti það
hins vegar ekki. Þá mun Euronext einnig hafa haft
áhuga á yfirtöku í LSE.
Gengi hlutabréfa í LSE hækkaði gríðarlega á
síðasta ári vegna aukins áhuga erlendra markaða
á kauphöllinni og hækkaði það úr 458,25 pensum í
12,47 pund á hlut. Eftir aukningu Nasdaq í síðustu
viku hækkaði gengi LSE um þrjú prósent og stóð
það í 12,59 pundum við vikulokin.
Að sögn BBC horfa kauphallir til þess að með
samruna takist þeim að lækka ýmsan aukakostnað í
viðskiptum með hlutabréf.
Samruni kaup-
halla í vændum?
Möguleiki er á að kauphallir í Evrópu og Bandaríkjunum
sameinist í nánustu framtíð.
DEUTSCHE BÖRSE OG EURONEXT Stjórnir kauphallanna eiga í
samrunaviðræðum og gæti svo farið að þær renni saman í eina. Þá
hefur Nasdaq aukið hlut sinn í LSE.
Stjórn bandaríska útgáfuris-
ans Hollinger International,
sem gefur út fjölda dagblaða í
Bandaríkjunum, vill breyta nafni
fyrirtækisins og heita fram-
vegis Sun-Times Media Group
Inc. Kosið verður um breyting-
una á árlegum hluthafafundi
útgáfufyrirtækisins í New York
í Bandaríkjunum 13. júní næst-
komandi.
Nokkuð hefur hallað undan
fæti hjá Hollinger International
síðustu misserin en það hefur
selt dagblöð í Kanada, Bretlandi
og Ísrael undan fyrirtækjahatti
sínum.
Með breytingunni horfa
stjórnendur fyrirtækisins til
þess að hreinsa slyðruorðið sem
fylgt hefur fyrirtækinu eftir að
Conrad Black, fyrrum forstjóri
og stjórnarformaður þess, var
ákærður ásamt þremur fyrr-
verandi framkvæmdastjórum
fyrirtækisins fyrir fjársvik og
misnotkun á fríðindum. Eru
svikin talin nema 2,1 milljarði
Bandaríkjadala. Þeir hafa allir
lýst yfir sakleysi í málinu. - jab
Útgáfufélag vill nýtt nafn
CONRAD BLACK, FYRRUM FORSTJÓRI
HOLLINGER INTERNATIONAL Fyrirtækið
vill breyta um nafn til að hreinsa slyðru-
orðið af því eftir að Black var kærður fyrir
fjársvik og misnotkun fríðinda.
Danskir húsgagnaframleiðendur
eru uggandi um hag sinn vegna
áætlana nokkurra aðildarríkja
Evrópusambandsins (ESB) sem
vilja láta setja takmarkanir á inn-
flutning á húsgögnum frá Kína
til sambandsins. Telja þeir að
innflutningshömlur geti hamlað
framleiðslu þeirra þar sem þeir
fá smáhluti til húsgagnafram-
leiðslu sinnar að langstærstum
hluta frá Kína.
Þvert á vonir danskra hús-
gagnaframleiðenda hafa starfs-
bræður þeirra í Þýskalandi,
Belgíu og Ítalíu farið fram á
að dregið verði úr innflutn-
ingi Kínverja á húsgögnum og
munum til ESB, sem jókst um
helming á síðasta ári.
Keld Korsager, formaður
samtaka danskra húsgagnafram-
leiðenda, segir að danskir hús-
gagnaframleiðendur reiði sig
að miklu leyti á innflutning frá
Kína og hafi verið undir það
búnir að hann myndi aukast.
Muni aðgerðir kollega þeirra í
öðrum aðildarríkjum ESB því
koma harðast niður á dönskum
húsgagnaframleiðendum, að
hans mati. - jab
KÍNVERSKUR VERKAMAÐUR Nokkur
aðildarríki Evrópusambandsins krefjast
þess að hömlur verði settar á innflutning
kínverskra húsgagna til ESB-landa.
Danir uggandi
Hafa áhyggjur af innflutningshömlum.
Bill Gates, stofnandi og stjórnar-
formaður bandaríska hugbúnað-
arrisans Microsoft, segir að hann
vildi óska þess að hann væri ekki
ríkasti maður í heimi.
„Ég vildi að ég væri ekki sá
ríkasti því það skilur ekkert
eftir sig,“ sagði hann í samtali
við bandarísku sjónvarpsstöðina
CNBC og bætti við að honum
líkaði ekki öll athyglin sem hann
fengi vegna ríkidæmisins.
Þá sagðist Gates hafa lært mest
um viðskipti af landa sínum, auð-
kýfingnum Warren Buffett, sem
um áraraðir hefur verið ofarlega
á lista yfir ríkustu menn í heimi.
Sér í lagi hafi hann lært að vera
heiðarlegur. „Hann hefur ferska
og einfalda sýn á hlutina og þess
vegna set ég hann ofarlega á
lista,“ sagði Bill Gates. - jab
BILL GATES Stjórnarformaður Microsoft
hefur um árabil verið á meðal ríkustu
manna í heimi.
Vill ekki ríkidæmi
L A U N A H Æ S T U F O R S T J Ó R A R S T Ó R F Y R I R T Æ K J A
Nafn Fyrirtæki Laun 2005*
Ray Irani Occidental Petroleum 4.630
Lee Raymond Exxon Mobil 3.520
Lew Frankfort Coach 3.319
Terry Semel Yahoo 3.154
Bruce Karatz KB Home 3.110
* Laun, bónusar og áunnir kaupréttir árið 2005
Verðmæti olíufyrirtækja hefur
rokið upp úr öllu valdi og njóta
forstjórar félaganna góðs af
því. Fimm forstjórar olíu- og
orkufyrirtækja eru í hópi sex-
tán launahæstu forstjóra þeirra
492 bandarísku félaga sem eru
yfir þrír milljarðar dala að
markaðsvirði. Þetta
kemur fram í athug-
un Graefs Crystal,
dálkahöfundar hjá
Bloomberg News.
Efst á listanum situr
Ray Irani, forstjóri
Occidental Petroleum
Corporation, sem
fékk 64 milljónir dala
(4,6 milljarða króna) á
síðasta ári auk bónusa
og kauprétta á árinu,
en næstur er Lee
Raymond, fyrrver-
andi forstjóri Exxon
Mobil, stærsta olíufyrirtækis
heims, með 49 milljónir dala.
Laun forstjóra þessara fyrir-
tækja hækkuðu að meðaltali um
9,9 prósent á milli áranna 2004
og 2005, sem er töluvert meiri
launahækkun en hjá hinum
venjulega launamanni.
Crystal bendir þó á að
verulega hafi dregið
úr launaskriði for-
stjóra. Meðallaun for-
stjóra í hópi þessara
verðmætu fyrirtækja
voru sex milljónir
dala á síðasta ári, 430
milljónir króna.
Rannsókn Crystals
sýndi einnig að fyrir-
tækin 492 skiluðu að
jafnaði þrettán pró-
sentum betri ávöxtun
árið 2005 en S&P 500
vísitalan. - eþa
RAY IRANI, LAUNA-
HÆSTI FORSTJÓRINN
Olíuforstjórar eru ofar-
lega á lista yfir launa-
hæstu forstjóra.
Irani leiðir lista
ofurforstjóranna
Ríkissjónvarpið hefur sýningar
á tólf þátta seríu um ævintýri
Tonys Soprano og vandamanna
hans 28. september næstkom-
andi. Þeir sem vart geta haldið
vatni af spenningi geta slegið
á eftirvæntinguna með því að
spila tölvuleik um fjölskyld-
una, sem væntanlegur
er í verslanir í sumar.
Sýningar á þáttunum
hófust í Bandaríkjunum
í mars.
Bandaríski tölvu-
leikjaframleiðandinn
THQ vinnur að hönn-
un leiks eftir þáttunum
til að slá á óþreyju aðdáenda.
Leikarar þáttanna ljá persónum
leiksins raddir sínar, sem verður
fyrir PlayStation 2 leikjatölv-
ur frá Sony og Xbox 360 frá
Microsoft.
Í leiknum getur viðkomandi
sett sig í spor nokkurra persóna
þáttanna og verður að
hafa sig allan við að berja
á öðrum mafíufjölskyld-
um, verja yfirráðasvæði
sitt og græða fúlgur fjár
til að eygja von um að
klífa valdastigann. - jab
JAMES GANDOLFINI Í hlut-
verki Tonys Soprano.
Í skóm Sopranos