Fréttablaðið - 10.05.2006, Blaðsíða 71

Fréttablaðið - 10.05.2006, Blaðsíða 71
MIÐVIKUDAGUR 10. maí 2006 31 Kvikmyndafyrirtækið Warner Brothers ætlar að selja myndir og sjónvarpsþætti sína á netinu og mun fólk geta hlaðið þeim niður í tölvur sínar. Notuð verður sama tækni og fólk hefur notað til að hlaða niður mynd- um á ólöglegan hátt. Talsmenn Warner segja að hægt verði að kaupa myndirnar og þættina sama dag og þeir koma út á DVD. Verðið verður álíka hátt og á DVD-mynd. Myndir í tölvuna HARRY POTTER Hægt verður að kaupa kvikmyndir á borð við Harry Potter í gegnum Warner Brothers á næstunni. Sjónhverfingamanninum David Blaine tókst ekki að bæta heims- metið í því að halda niðri í sér andanum í kafi. Blaine var dreginn upp úr kúlu fullri af vatni eftir að hafa haldið niðri í sér andanum í sjö mínútur og átta sekúndur en heimsmetið er átta mínútur og 58 sekúndur. Á sama tíma hafði Blaine náð að losa hendur sínar sem höfðu verið hlekkjaðar en átti í erfiðleikum með að losa fætur sína. Blaine hafði dvalið í kúlunni í New York í heila viku og fékk hann næringu og loft í gegnum pípur. Fjöldi borgarbúa fylgdist með honum alla vikuna, auk þess sem milljónir fylgdust með björg- un hans í sjónvarpi. „Þetta var mjög erfið vika en þið hjálpuðuð mér mikið með orku ykkar og stuðningi. Takk kærlega fyrir, sagði Blaine áður en hann var fluttur á sjúkrahús til aðhlynn- ingar. Læknar höfðu áhyggjur af heilsu Blaines og töldu hættu á að hann fengi heilaskemmdir og taugaskaða. Hendur hans höfðu bólgnað upp auk þess sem húðin var tekin að flagna af. Áður en Blaine hóf þrekraun sína létti hann sig um 23 kíló til þess að líkaminn gæti nýtt súrefn- ið betur. Blaine, sem er 33 ára Banda- ríkjamaður, hefur staðið fyrir hinum ýmsu uppátækjum. Hann eyddi 61 klukkustund inni í ísklumpi og var í 44 daga í gler- kassa yfir ánni Thames í London. Metið stendur enn UPP ÚR VATNINU Sjónhverfingamaðurinn þekkti dvaldi í eina viku inni í kúlu fullri af vatni. MYND/AP FRÉTTIR AF FÓLKI Loksins hefur Britney Spears sett stopp á peningaúttekt eiginmanns sins, Kevins Federline. Hefur hún fengið nóg af glaumgosaferðum og partístandi hans á hennar kostnað. Þessari nýju reglu fékk Federline að kynnast þegar hann var að plana helgarferð til Las Vegas með félögum sínum. Þessi glaumgosi er vanur að láta frúna borga allar sínar skemmti- ferðir um heiminn en verður nú að fara að punga úr eigin vasa. Spears á samkvæmt blaðinu InTouch að hafa ráðið manneskju til að fylgjast með hennar heittelskaða á meðan hann er að ferðast. Leikkonan og fyrirsæt-an Denise Richards hefur bannað foreldrum fyrrverandi eiginmanns síns, Charlies Sheen, að hitta barnabörn sín. Fyrrverandi tengdaforeldrar hennar eru ekki af verri endanum en það er leikarinn Mart- in Sheen, sem bregð- ur sér í hlutverk for- seta Bandaríkjanna í sjónvarpsþáttaröð- inni West Wing, og kona hans Janet. Samkvæmt blaðinu New York Post eru hjónin mjög svekkt yfir því að fá ekki að hitta barnabörn sín og vonast til að Richards nái sáttum við son þeirra sem fyrst. Nicole Kidman viðurkenndi í blaðinu Ladies Home Journal að hún elskaði ennþá fyrrverandi eigin- mann sinn Tom Cruise. Hjónaband þeirra stóð yfir í tíu ár en þau skildu árið 2002 sem kom mörgum mjög á óvart. „Tom er mjög stór stjarna en fyrir mér var hann bara Tom. Þetta er yndislegur maður sem var mjög góður við mig. Ég elskaði hann og geri enn¿ sagði Nicole. Tom Cruise gengur upp að altarinu með kærustu sinni Katie Holmes, en þau eignuðust dótturina Suri fyrir ekki margt löngu, en hann hafði áður verið í tygjum við spænsku þokkadísina Penelope Cruz. �������������� ������� ���������� ���� ���������������� �������������� ������
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.