Fréttablaðið - 10.05.2006, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 10.05.2006, Blaðsíða 36
MARKAÐURINN 10. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR8 NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI Breska sjónvarpsstöðin Sky ætlar að hefja útsendingar með háskerputækni (HDTV) 22. maí næstkomandi. Frumsýningar- myndin verður lokamyndin í Stjörnustríðsbálkinum, Return of the Sith. Bæði mynd og hljóð mynda sem sendar eru út með HDTV-tækni eru sögð mun betri en nú þekkist og því ættu sjón- varpsáhorfendur að geta notið Stjörnustríðsmyndarinnar til hins ýtrasta. Sjónvörp áhorfenda þurfa hins vegar að styðja tækn- ina auk þess sem sérstök mót- tökubox þarf til að ná útsending- unum. Bretar hafa sýnt þessari nýju tækni mikinn áhuga en 40.000 manns hafa þegar skráð sig fyrir móttökutækjunum. Hægt verður að nálgast tækin sama dag og útsendingar hefjast, að sögn breska ríkisútvarpsins. Sjónvarpsstöðin Sky er ekki sú eina sem sendir út efni með þessum nýju gæðum en þjón- ustuveitan Telewest býður við- skiptavinum sínum einnig sjón- varpsefni á HDTV-gæðum í áskrift á kapalkerfi sínu. - jab Boltinn með HDTV-tækni Fastlega er búist við að árið 2010 verði búið að selja 286 milljónir ferðaspilara sem geyma tónlist á Mp3-formi, samkvæmt upplýs- ingum bandaríska mark- aðsrannsóknafyrirtækis- ins In-Stat. Þetta er tæp tvöföldun á fjögurra ára tímabili. Aukið framboð á stafrænni tónlist og lægra verð spilaranna eru helstu ástæður aukningarinnar. Í nýlegri skýrslu fyrir- tækisins kemur fram að iPod-spilarinn frá Apple er með mesta markaðshlutdeild. Hún nemur 49 prósentum og býst In-Stat við að Apple haldi mark- aðshlutdeild sinni næstu fjögur árin, sér í lagi í Bandaríkjunum. Apple mun hins vegar eiga í harðri samkeppni við önnur fyrirtæki sem hafa lækkað verð á spilurunum mikið og bjóða þá á allt að 25 dollara, jafnvirði tæplega 1.900 íslenskra króna. - jab Ferðaspilurum fjölgar IPOD-SPILARI FRÁ APPLE Bandarískt markaðsrannsóknafyrir- tæki býst við að sala á spilurunum muni tæplega tvöfaldast á næstu fjórum árum. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Tveir vísindamenn frá Bandaríkjunum og Ástralíu segjast vissir um að felubúnaður, sem fram til þessa hefur einungis verið til í skáldskap og not- aður til að fela geimskip á braut um ormagöng og stjörnuþokur í sjónvarpsþáttunum Star Trek, geti orðið að veruleika í framtíðinni. Vísindamennirnir hafa gert grein fyrir hug- myndum sínum í nýjasta tölublaði breska vís- indatímaritsins Proceedings of the Royal Society en þeir telja sig hafa lagt grunninn að því að láta hluti sýnast sem þeir hverfi með svipuðum hætti og gerist í Star Trek. Mennirnir heita Nicolae Nicorovici og Graeme Milton og eru báðir stærðfræðingar. Samkvæmt kenningu þeirra er nóg að setja hluti nálægt svo- kallaðri ofurlinsu en afbrigðilegt endurvarp ljóss verður til þess að svo virðist sem hlutirnir hverfi. Það er hins vegar ofsögum sagt að huliðshjálmur- inn sé til í raun og veru því félagarnir hafa fram til þessa einungis getað látið sýnast sem rykagnir hverfi og sett fram fræðilegar kenningar um það hvernig hægt sé að láta stærri hluti hverfa sjónum fólks. Vísindamennirnir segja að slíkt sé einungis hægt með notkun nýrra efna sem láti ljós haga sér á einkennilegan hátt. Fréttavefur breska ríkisútvarpsins hefur eftir vísindamönnunum að verði ráðist í smíði raun- verulegs felubúnaðar á borð við þann sem fram til þessa hefur einungis sést í Star Trek verði það krefjandi verkefni. Ryk virðist hverfa Vísindamenn telja sig geta gert skáldskap að veruleika og látið hluti hverfa fyrir sjónum fólks. GEIMSKIP ÚR STAR TREK Vísindamenn hafa lagt grunninn að felubúnaði líkt og notaður er í sjónvarpsþáttunum. Hátæknifyrirtækið Sony hefur frestað útgáfu fyrstu kvikmynd- anna sem koma út á blágeisla- diskum (Blu-ray diskum). Átta kvikmyndir áttu að koma út 23. maí næstkomandi og sjö til við- bótar 13. júní. Útgáfa fyrstu disk- anna hefur nú verið frestað til 20. júní en ekkert hefur verið gefið upp hvenær hinir diskarnir koma út. Þá hefur einn nýr diskur bæst í hópinn. Ákvörðunin ætti varla að koma tækni- og kvikmyndaáhugafólki illa því bæði Samsung og Sony hafa fært útgáfudag Blu-ray spilara aftur til 25. júní, fimm dögum eftir útgáfu fyrstu kvik- myndanna. Fyrstu kvikmyndirnar á Blu- ray formi, sem koma út 20. júní næstkomandi, eru af mörgum toga. Eru það myndirnar 50 First Dates, The Fifth Element, Hitch, House of Flying Daggers, A Knight’s Tale, The Last Waltz, Resident Evil Apocalypse og XXX. Níunda kvikmyndin er Underworld: Evolution en hún var í flokki þeirra mynda sem áttu að koma síðar út. Samkeppnisaðilar Sony, með Toshiba í fararbroddi, settu fyrstu HD DVD spilarana á markað í Japan í mars og í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. - jab Blágeisli í sumar BLU-RAY DISKAR OG SPILARAR FRÁ SONY Sony hefur seinkað útgáfu kvik- mynda á Blu-ray diskum fram í júní. Vagnhöfða 8 (sama gata og Bílabúð Benna)www.slattuvel.is 25% afsláttur Verð kr. 29.900.- Verð áður kr. 34.900.- Rafmagns vélsög Verð 7.900.- Bensín vélsög Verð kr. 14.900.- 18 Hö Briggs & Stratton Besta verðið í bænum kr. 249.000.- Fylgir grassafnari Bestu verðin í bænum Vorti lboð 12” án blaðs, verð 74.900.- 14” án blaðs, verð 76.900.- Steinsagir fyrir atvinnumenn ótrúlegt verð NÝTT Briggs & Stratton orf 4 gengis (þarf ekki að blanda olíu við bensín - minni hávaði) Verð nú 26.900.- Verð áður 37.900.- Viðgerða- og varahlutaþjónusta fyrir sláttuvélar og reiðhjól Opið 10 -14 laugardaga 15% afsláttur af annarri vöru í verslun (nema sláttutraktorum) 4,75 Hö án drifs með safnara Verð nú kr. 29.900.- Verð áður kr. 34.900.- Flymo loftpúðavél 25% afsláttur Verð frá 14.990.- Á TILBOÐI Nokkur eintök eftir af gamla verðinu4 Hö án drifs með safnara Verð nú kr. 27.900.- Verð áður kr. 34.900.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.