Tíminn - 17.07.1977, Side 18

Tíminn - 17.07.1977, Side 18
18 Sunnudagur 17. júli 1977 menn og málefni Jón Rafnsson og Kjartan og Evrópukommúnisminn Jón Rafnsson Trú Jóns Rafnssonar Þaö var aö ýmsu leyti fróölegt aö fylgjast meö útvarpslestrinum á endurminningabók Jóns Rafns- sonar. Vorar i verum. Þar kynntust hlustendur manni, sem geröist kommúnisti á árunum milli 1920-1930 og varö sföan einn af stofnendum Kommúnista- flokksins, sem nú heitir Alþýöu- bandalagiö. 1 framhaldi af þvf varö Jón einn helzti baráttu- maöur flokksins um talsvert skeiö. Aöurnefnd bók Jóns segir frá þessari iöju hans. Þaö er ljóst af frásögn Jóns, aö trú hans á kommúnismann hefur veriö svo sterk á þessum árum, aö þar hafa aldrei komizt aö nein- ar efasemdir. Marx og Lenin og Stalfn voru óskeikulir læri- meistarar. Verkamannarfkiö i austri myndi sanna þaö f verki. Þar væri aö risa mesta sæluriki veraldar sem myndi sanna kenn- inguna i verki. Vilji menn fá meiri vitneskju um takmarka- lausa trú islenzkra kommúnista- leiötoga á óskeikulleika sósial- ismans, geta þeir flett upp f Verkalýösblaöinu og Þjóöviljan- um frá þessum árum. Raunar hélzt þessi trú alveg óslitiö fram á siöasta áratug. Má f þvf sam- bandi minna á mörg skrif Þjóö- viljans um Stalin fyrstu árin eftir fráfall hans. Efasemdir Kjartans Nú rfkir oröiö talsvert annar andi á ritstjórnarskrifstofum Þjóöviljans.Nokkurt vitni um þetta er sföasta áramótagrein Kjartans Ólafssonar, sem birtist i Þjóöviljanum 31. desember siöastliöinn. Þar sagöi m.a. á þessa leiö: ,,Viö sem köllum okkur sósial- ista, skulum varast aö hreykja okkur hátt viö höfum ekki upp á aö bjóöa auöveldar lausnir viö öllum vanda og saga sósialiskrar hreyfingar á svo sannarlega til bæöi bjarta og dimma þætti.” Enn sagöi Kjartan: „Sannleikurinn er sá, aö allt viröist nú óvissara en fyrir 70-80 árum um þaö, hvernig niöur- stööur aldarinnar ráöast.” Og enn sagöi Kjartan: „Viö skulum ekki horfa fram á veginn i trú á einfaldar lausnir i flókinni veröld. Viö skulum efast um flest.” Vissulega er mikiö bil milli trú- ar og bjartsýni Jóns Rafnssonar annars vegar og efasemda og svartsýni Kjartans ólafssonar hins vegar. Kjartan trúir þó ber- sýnilega á hinar sósialisku kenn- ingar Marx, en treystir sér hins vegar ekki til aö játa þá trú sina, nema meö margvislegum efa- semdum og fyrirvörum. Kjartan ólafsson Reynslan af Marx- ismanum 1 eðli sinu er Kjartan Ólafsson vafalitiö sizt minni trúmaöur en Jón Rafnsson, sennilega miklu meiri. Bók Jóns ber þess viöa merki, aö hann býr yfir góöri kimnigáfuog dettur þvi stundum af „linunni’ ’ og gerir gys aö sér og félögum slnum. Kjartan er þvilik- ur alvörumaður, aö slikt kemur ekki fyrir hann. En hvaö veldur þvi þá, aö Jón er fulltrúi trúarinn- ar, en Kjartan fulltrúi efasemd- anna? Skýringin er einfaldlega sú, aö Kjartan getur ekki komizt hjá þvi aö draga ályktanir af reynslunni, sem ekki var fyrir hendi, þegar trúarhiti Jóns var mestur. Verkamannarlkiö i austri hefur ekki oröiö slikt sælu- riki og Jón og félaga hans dreymdi um. Þvert á móti eru mannréttindi þar miklu tak- markaöriog lifskjörin mun lakari enilöndum.sem búa viö svonefnt vestrænt lýöræöi. Þetta hefur ekki aöeins oröiö reynslan i Sovétrikjunum, heldur öllum öör- um rikjum, sem hafa reynt aö framfylgja kenningum Karls Marx. Marx er þvi aö veröa einn mesti falsspámaöur sögunnar. í vestrænum löndum er oröiö von- laust aö ætla aö afla kenningum hans fylgis. Þess vegna telur sá ritstjóri Þjóöviljans, sem er nú mestur kennimaöur flokksins, aö ekki tjái aö prédika þær af sama trúarhita og áöur, heldur veröi aö klæöa þær búningi alls konar efa- semda og fyrirvara. Stefnuskráin Þaö er I samræmi viö framan- greinda reynslu af hinum sósla- lisku kenningum Marx, að Al- þýöubandalagiö hefur eftir 10 ára erfitt undirbúningsverk sett sér nýja stefnuskrá, sem er þó enn ekki fulllokiö, heldur er tilkynnt, aö hún sé I stöðugri endurskoöun. Stefnuskrá þessi er einhver mesta grautargerð, sem sögur fara af. Hún er i senn bæði marxistisk og ómarxistisk, borgaraleg og óborgaraleg. Af henni er útilokað aö ráöa, hvort Alþýöubandalagið er heldur rót- tækur kommúnistaflokkur eöa ihaldssamur krataflokkur. Stefnuskráin rúmar þetta hvort tveggja og allt, sem þar er á milli. Þetta er afleiöing þess, þegar sjálf grundvallarstefnan, sem trúaö var á, hefur beöiö skipbrot, en samt er reynt aö byggja á henni og halda i hana eins konar dauöahaldi. En til þess, aö þaö sé hægt verður aö beita fyrirvörum og efasemdum likt og Kjartan Ólafsson gerir, og villa þannig á sér heimildir. Evrópu- kommúnismi Alþýðubandalagiö er hins veg- ar ekki eini flokkurinn, sem hefur komizt I slikar raunir. Þetta gildir um alla kommúnistaflokka Vestur-Evrópu, sem hafa aflaö sér verulegs fylgis. Þeim er ljóst, aö hinar sósialisku kenningar Marx hafa beðiö skipbrot I Austur-Evrópu. Þaö dugir ekki lengur vestan tjalds aö boöa sósialiskar kenningar á sama háttogáöur. Þaö veröur aö draga úr tengslum viö Moskvu og helzt aö slita þau aö mestu. a.m.k. opinberlega, ef fylgiö á ekki aö glatast. Þess vegna eru kommún- istaflokkar Vestur-Evrópu nú sem óöast aö klæöast borgaraleg- um búningi og undirbúa samstarf sitt viö borgaralega flokka. Umþaö er deilt, hvort hér sé um raunverulega skoöanaskipti aö ræöa eöa aöeins nýja vinnuaöferö til að koma i veg fyrir fylgistap. Reynslan á eftir aö skera úr þvi. Hitt er hins vegar óumdeilanlegt, að þessi breyting stafar af skip- brotisósialismansi þeimlöndum, þar sem hann hefur veriö reynd- ur. Þetta skipbrot hefur knúið vestræna kommúnistaflokkana til aö breyta a.m.k. um vinnuaöferö, og ef til vill um stefnu. Banda- menn þeirra haga málflutningi sinum likt og Kjartan Ölafsson, sem heldur enn i hinar sósialisku kenningar Marx, en meö fyrir- vara og efasemdum, sem stafa af þvi, hvernig þær hafa reynzt I verki. Einn munur Vert er aö vekja athygli á þvi, aö þótt málflutningi Alþýöu- bandalagsins og kommúnista- flokkanna I Vestur-Evrópu svipi nú mjög saman er einn megin- munurá afstöðunni. Hún er sú,aö kommúnistaflokkarnir f Vestur- Evrópu hafa lagt niöur aö sinni a.m.k. haröa andstööu gegn At- lantshafsbandalaginu og hafa einnig dregiö úr áróöri sinum gegn Bandarikjunum. Hér skilur hvaö mest á milli þeirra og leiö- toga Sovétrikjanna. Alþýöu- bandalagiö hefur hins vgar fylgt áfram fyrri afstööu i þessum efn- um og er þvi enn á sömu „linu” og kommúnistaflokkur Sovétrikj- anna. Formaöur Alþýöu- bandalagsins, Ragnar Arnalds, hefur hins vegar bent á,aö þessi andstaöa gegn Atlantshafsbanda- laginu risti ekki djúpt. Alþýöu- bandalagiö hefur tvivegis tekiö þátt I rikisstjórn, án þess aö setja nokkurt skilyröi um brottför úr bandalaginu. Þá hefur Ragnar Arnalds bent á, aö italski kommúnistaflokkurinn hafi lýst yfir þvi, aö hann geti sætt sig viö ameriskar herstöövar á Italiu, svo að hugsanleg stjórnarsam- vinna hans og kristilega flokksins þurfi ekki aö stranda á þvi. Ekki var annaö aö skilja á þessari frá- sögn Ragnars en aö hann heföi ekkineittviö þessa afstööu aö at- huga, heldur lét hann miklu frek- ar vel yfir. Það má þvi vera, aö hér sé ekki neinn efnismunur I af- stöö Alþýöubandalagsins og italska kommúnistaflokksins, þótt Alþýöubandalagiö haldi áfram i oröi kveönu aö vera á móti hersetunni fram yfir næstu kosningar. Eöa meö öörum orðum: Hersetan myndi ekki standa neitt i vegi nýrrar ný- sköpunarstjórnar, ef á þaö reyndi. Skipbrot kapi- talismans Þótt reynslan hafi valdið fylgj- endum Marxismans miklum von- brigöum, hafa vonbrigði fylgis- manna kapitalismans oröiö sizt minni. Fyrst Ihaldsflokkurinn og slðar Sjálfstæöisflokkurinn voru byggöir a' grundvelli þessarar stefnu. Kjarni hennar var sá, aö þaö ætti að gefa hinum sterku og dugmiklu einstaklingum, sem bezttækifæritilaö njóta slnÞetta eru aflaklærnar, var sagt, sem tryggja ekki aöeins sjálfum sér, heldur öllum öörum góð lifskjör. Þess vegna mátti ekki þrengja neitt að þeim, t.d. meö opinberum afskiptum eða samhjálp. Þaö var treyst blint á forsjón þeirra. Þess vegna sagði talsmaöur Sjálf- stæöisflokksins, þegar fyrst var rætt um verkamannabústaöina á Alþingi, aö hiö bezta, sem hið opinbera gæti gert, væri aö gera ekki neitt. Reynslan af hinni skefjalausu samkeppni varö sú, aö auöurinn safnaöist á fáar hendur, meöan allur almenningur var blásnauöur. Skipulagsleysiö og handahófiö, sem fylgdi hinni óheftu samkeppni, leiddi svo til þess ójafnræöis, sem orsakaöi heimskreppuna miklu. Siöan hafa Ihaldsflokkar, sem byggöu á kap- italismanum, orðiö aö afneita honum meira og minna I verki, ef þeir hafa þurft aö stjórna. Þetta hefur Sjálfstæöisflokkurinn iöu- lega oröiö aö reyna. Þráttfyrir öll vonbrigöin, sem kapitalisminn hefur valdiö, er aö finna menn innan Sjálfstæðisflokksins, sem eru aö reyna aö endurreisa hann sem stefnu flokksins. Fremstir eru þar fjáraflamennirnir sem gefa út Dagblaðið og VIsi, og svo nokkrir ungir menn. Þrátt fyrir óhjákvæmilegar efasemdir, sem lærzt hafa af reynslunni, reyna þeir aö halda áfram að trúa, al- veg eins og Kjartan Ólafsson. Þrjár stefnur Fyrir sextiu árum bar þrjár stjórnmálastefnur hæst á Islandi. Það var róttækur sósialismi, sem fyrst var borinn fram af Alþýöu- flokknum og siöar af Kommún- istaflokknum. Þaö var kapital- isminn, sem var stefna Sjálf- stæöisflokksins. Þriöja stefnan var hins vegar þjóöleg umbóta- stefna, sem Framsóknarflokkur- inn beitti sér fyrir. Bæði kapital- isminn og róttækur sóslalismi hafa siöan beöiö stórfellt skip- brot. Umbótastefnan hefur hins vegar stööugt haldiö áfram aö sýna gildi sitt. Hún hafnar jafnt byltingu og kyrrstööu. Hún er stefna hinnar stööugu fram- þróunar. Takmark hennar er aö vinna stööugt aö þvl aö bæta það sem fyrir er. Engin umbót eöa framför er I sjálfu sér lokamark, heldur skapar oft þörf fyrir aöra og þannig koll af kolli. Framsóknarflokkurinn þarf þvi ekki aö kvarta undan þvi eins og flestir flokkar, sem lengi hafa starfaö, aö stefna hans sé oröin úrelt. Umbótastefnan er sigild. í rauninni veröur hún alltaf ung og hvatning tilstærriátaka og dáöa. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.