Tíminn - 17.07.1977, Page 37

Tíminn - 17.07.1977, Page 37
Sunnudagur 17. júli 1977 37 bað er sjaldgæft að geta minnzt 95 ára aldurs þeirra manna, sem enn eru meðal okkar og eru þess megnugir aö tala við þá sem nærri eru og geta heyrt hvað við þá er sagt, en enn mun þvi vera svo háttað um afmælisbarnið, sem hér verða sögð nokkur orö um. Vlgdlser i hópi þeirra kvenna i Borgarfjarðarhéraöi, sem dug- mestar og merkastar eru og verð- skuldað hafa að eftir þeim væri tekiö. Vigdis er fædd i Deildar- tungu 18. júli 1882 eða i byrjun þess mikla harðinda og erfið- leikatimabils sem náði yfir ára- tuginn 1881-1890 og feður okkar og mæður, afar og ömmur urðu að berjast við, litt búnir af varnar- tækjum og fátækir. Þetta vor er Vigdis fæddist hefir hlotið heitið „Mislingavorið,” þvi að þá gengu mislingar yfir landið allt og lögðu fjölda manna i valinn, einkum ungar konur er börn ólu. Sumarið þetta hefir verið talið eitt hið mesta úrfellasumar og hafis var við landið, en veturinn 1881 var hinn mikli frostavetur og fanna, sem engan jafningja á siðan. Náttúrufar landsins okkar var þvi allt annað en hlýlegt er unga stúlkan sá fyrst dagsins ljós, þótt 1 júlimánuði væri og foreldrar og systkini hafa fagnað komu hennar. En þrátt fyrir kuidann og sólarleysið varð hún sigurvegar- inn I bardaganum fyrst eins og jafnan siöan. Foreldrar Vigdisar voru hin merku hjón i Deildar- tungu, Vigdis húsfreyja og ljós- móðir Jónsdóttir og Hannes Magnússon bóndi og hreppát jóri. Að þeim stóðu merkar borg- firzkar ættir. Afi Vigdisar var Jón Þorvaldsson, en kona hans og amma Vfgdisar var Helga Hakonardóttir, en frá þeim er hin fjölmenna og merka „Deildartunguætt” talin, en móðir Vigdisar ljósmóöur var Guðrún dóttir Böövars Siguröar- sonar bónda og smiðs á Skáney i Reykholtsdal. Hannes hrepp- stjóri var einn hinna fimm þjóö- kunnu sona Magnúsar auðga, bónda á Vilmundarstöðum og konu . hans Astriðar Hannesd. ■ Astriöar Hannesdóttur frá Stein dórsstööum. Börn þeirra Hannesar og Vigdfsar i Deildar- tungu voru ellefu, en fjögur þeirra létust á barnsaldri og einn sonur, Magnús, drukknaði i Grimsá innan viö tvitugt, en hann þótti mikiö mannsefni. Sex börn þeirra komust til fulloröinsára, en eru nú öll dáin nema Vigdis á Oddsstööum. Auk eigin barna ólu þau upp mörg fósturbörn. 1 Deildartungu var jafnan fjöl- mennt heimili og mikið umleikis og stjórn heimilisins, bæði innan húss og utan, eins og bezt gerðist. Hannes lézt 28. sept. 1903, en Vigdís 15. júli 1914. Við jaröarför Vigdisar flutti Þórhallur biskup húskveðju og gat þess meöal annars að hann heföi unniö sitt fyrsta prestverk þarerhann skirði Hallfriðidóttur hjónanna. Þórhallur var prestur i Reykholti 1884-1885. Deildartunga er mér minnis- stæð frá bernskuárum er ég fyrst fór aö gera mér grein fyrir þvi umhverfi, sem næst mér var, en heimili mitt stóö andspænis Deildartungu, sunnan megin Reykjadalsár. Þaö vakti fljótt athygli að bæjarhús voru þar af annarri gerð en á öðrum heimilium. Þar var komið háreist timburhús og stórt, en annars staðar torfbæir og lágreistari. Þetta var raunveruleiki þvi timburhús járnvariö haföi verið reist 1894, þaö fyrsta i Reykholts- dal. Þarna I grenndinni var hinn stóri og vatnsmikli hver meö miklum gufumekki, einkum þegar kalt var i veöri og lyngt. Deildartunga var þá og er enn eitt af höfuöbólum Borgarfjaröar, sem stjórnaö hefur verið með festu og skörungsskap. Þar voru stundum haldnir stórir fundir og fjölsóttir. Þar var Kaupfélag Borgfiröinga stofnað I ársbyrjun 1904 og aðalfundir þess voru þar fyrstu árin. Nokkru fyrir aldamótin siðustu var stofnuö þar Góð- templarastúka, sem mun hafa starfað þar nærri áratug. Hún varð aö visu ekki fjölmenn en i henni störfuöu öll systkinin og fleira af ungu fólki þar og viöar að. Þar var og stofnað Ungmenna- félag Reykdæla á fyrsta sumar- dag 1908 og þar voru fyrstu fundir Níu tíu og fimm ára Vigdís Hannesdóttir fyrrum húsfreyja á Oddsstöðum þess haldnir. Meginhluti ungs fólks i sveitinni voru stofnendur ogþará meðal Deildartungusyst- kinin, og formaður þess kosinn Jón Hannesson, yngstur systkin- anna. Félagið reisti sér sam- komuhúser það var ársgamalt og gengu félagsmenn allir aö störfum þar af fórnfýsi, áhuga og dugnaði. Þeir unnu þar kauplaust en einhver smiðalaun voru greidd og að sjálfsögðu allt efni til byggingarinnar, en einhvern veginn tókst aðstandendum að komast sómasamlega fram úr þvi fljótt. Nú er hús þetta mikið stækkað og breytt og orðið að veglegu félagsheimili með nafn- inu Logaland. Þar eru sjónleikir sýndir á hverjum vetri og aðrar skemmti- og menningarsam- komur eru þar haldnar. Ung- mennafélag Reykdæla er nú á sjötugusta ari og hefir allan sinn aldur starfað af þrótti og vilja- festu eins og vonir stóðu til i byrjun. A fyrsta tug þessarar aldar steig þjóðin mörg spor fram á við, miklu stærri og mikil- vægari en fyrr, þar á meöal er, að ungmennafélögin festu hér rætur og urðu að kalla samstundis sterkt afl i þjóöfélaginu, sem unnu sér virðingu og traust. Arið 1912 uröu timamót eöa þáttaskil I ævi starfi Vigdisar. Þá flytur hún burt frá æskuheimili og æskustöðvum. Þá giftist hún unnusta sinum og frænda Sigurði Bjarnasyni frá Hæli i Flókadal. Frændsemi þeirra hjóna, Vig .- disar og Sigurðar, var þannig að móðir Siguröar, Ingibjörg Odds- dóttir frá Brennistööum átti aö móöur Helgu Böövarsdóttur frá Skáney, sem var hálfsystir Guörúnar I Deildartungu, móöur- ömmu Vigdisar. Faðir Sigurðar var Bjarni bóndi og oddviti á Hömrum i Reykholtsdal Sigurðs- son Bjarnasonar, en báöir voru bændur þar. Ungu hjónin hófu búskap á Oddsstööum I Lundarreykjadal. Þar hafði búið áður næst þeim Arni Sveinbjarnarson hreppstjóri og forustumaður sveitar sinnar lengi, en hann lézt þetta vor á Oddsstöðum. Ungu hjónin fengu þarna mikiö verkefni að leysa. Bæjarhús og aðrar byggingar voru gamlar og úr sér gengnar og hæföu ekki þeim nýja tima sem varað ganga i garö. Var þvl fljótt hafizt handa um framkvæmdir margs konar. Ibúðarhús úr varanlegu efni og vel gert var reist, svo og öll önnur hús er bújörð og búið þurfti, risu af grunni hin næstu ár. Jörðin var vel i' sveit sett og gat tekið um- bótum.enda voru þær I té látnar. Ræktaða landið stækkaði með Ástriður gift Kristjáni Davlðssyni en Hanna Vigdis gift Ragnari Olgeirssyni. Báöir eru þeir bændur þar. Maður Ingibjargar er Guðjón Bjarnason bifreiða- stjóri og heimili þeirra er á Akra- nesi. Hjá þeim Vigdisi og Sigurði ólst upp að mestu systurdóttir hennar Asta Torfadóttir, sem búsett er á Akranesi. Búskapur er þvi rekinn á Odds- stöðum ennþá og verður vonandi með þeim hætti er hlutaö- eigenaum hentar og breyttir timar krefjast. Frú Vigdis sem náð hefur þessum háa aldri hefur lengst af notið góörar heilsu, en siðustu árin hafa verið þyngri og erfiðari sem von er, en hún mun þó fram á siðust ár hafa innt ýmis störf af hendi og ekki unað ööru en gott lag væri á öllu, hvar sem hún var. En allir dagar eiga kvöld, einnig ævidagar. Þeir sem háum aldri ná finna þrekið og áhugann dofna, þótt sumum endist hvort- tveggja lengi. Niutiu og fimm ára aldri ná ekki margir, en aö eiga aö baki mikið starf, mikið þrek andlegt og likamlegt eru miklar og dá- samlegar gjafir og mikillar þakkar verðar. Ég votta Vigdisi innilegar þakkir fyrir vinsemd hennar og hlýleik mér til handa og biö þess að ævikvöldið verði henni bjart, hlýtt og blessunarrikt. Jón tvarsson. hverju árinu svo og allur hey- fengur fékst bráðlega á ræktuöu landi. Jafnframtjókst búpeningur og afrakstur varö verömeiri, og hngg ég aö hjónin bæöi hafi reynzt búhöldar og góöir er nutu trausts, virðingar og vinsælda. Heimili þeirra hjóna bar vott um rausn og myndarskap hvar- vetna og var mikið sótt af gestum og öörum feröamönnum, enda gestrisnimikil bæöi um veitingar og aöra aöbúö. Voru hjónin sam- hent um þetta sem annaö i rekstri heimilisins og sambúö þeirra hin bezta. Þau hafa tekiö þátt í allri félagsstarfsemi I sveitinni og ekki gleymt að hlynna að Ungmenna- félaginu Dagrenning, en þaö var stofnað einu ári fyrr en þau fluttu að Oddsstööum og er þvi nú sextiu og sex ára. Ég hefi verið gestur á afmælissamkomum félagsins er það varð fjörutiu, fimmtiu og sex- tiu ára og alltaf séð þau þar bæði meðan Sigurður var lifs. Ég hefi veitt þvi athygli hvers u fram- koma Vigdisar hefir verið lik þvi, sem hún var á fundum Ung- mennafélags Reykdæla á fyrstu árum þess. Hreyfingar allar, handatiltdctir og andlitsdrættir þeir sömu og tilsvörin ákveðin sem þá. Vigdis á Oddsstööum missti mann sinn áriö 1960 eftir fjörutiu og átta ára sambúð og jafnlangan búskap á Oddsstöðum. Þau eignuðust þrjár dætur er heita, Astriður, Ingibjörg og Hanna Vigdis. Astriöur og Hanna Vigdis eru húsfreyjur á Oddsstööum, i- Termel oliufylltir raf magnaof nar Þessir ofnar eru landsþekktir fyrir hinn mjúka og þægilega hita og sérlega hagkvæma raf magnanýtingu. Barnid finnur — reynslan stadfestir gædi þessara ofna. Kjölur sf Kef lavik Simar (92) 2W1 og 2041. Sólarferð til Mallorca fyrir dúUcvbocQjDon Félagsstarf eldri borgara efnir til 26 daga orlofsdvalar á Mallorca i október n.k. i samvinnu við Ferðaskrifstofuna Úrval. Farið verður héðan þann 30. september. Allar nánari uppiýsingar veröa veittar á miðvikudaginn 20. júli kl. 4:09 til 7:00 e.h. I Norðurbrún 1. Allir þeir, sem hafa áhuga og þeir, sem nú þegar hafa haft samband við skrifstofu Félagsstarfs eldri borgara, og hafa hug á þátttöku, eru vinsamlegast beðnir aö koma þangað og staðfesta umsókn sina þar. IIIJ Felagsmalastofnun Reykjavíkurborgar 'l’ Vonarstræti 4. — Simi 25-500 ^gg^gg Til að tryggja viðskiptavinum okkar sem bezta þjónustu höfum við flutt þungamiðju starfsemi okkar yfir i ibúðahótelið SANTA CLARA Costa del Sol þar sem okkar eigið starfsfólk mun sjá um að halda vistarverum hreinum. Samvinnuferöir VERIÐ VELKOAAIN! ^gg ^gg^gg ^gg

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.