Tíminn - 12.08.1977, Side 3
Föstudagur 12. ágúst 1977
3
Tillögu sátta-
nefndar hafnað
af fuUtmum rikisvaldsins og því því slitnaði
upp úr samningaviðræðum við rafvirkja
gébé Reykjavik — Aftur slitnaði
upp úr samningaviðræðum við
raf-virkja hjá Raf magnsveitum
rikisins, sem nú hafa verið i
verkfaili tæpar þrjár vikur. —
Fulltrúar rikisvaldsins neituðu að
ræða sáttatillögu sáttanefndar-
innar og þvi slitnaði upp úr
samningaviðræðunum, sagði
Magnús Geirsson, formaður
Félags isl. rafvirkja i gær.
Fundurinn hafði þá staðið siðan
ki. 14 á miðvikudag og samkomu-
lag náðst um öryggismál.
— Það hefur staðið til um árabil
hjá Rafmagnsveitu rikisins að
koma með öryggisreglur, þar
sem m.a. er kveðið á um vinnu
við háspennuvirki. Nú hefur verið
ákveðið að fylgja settum
norskum reglum um öryggismál,
en þær reglur hafa verið þýddar á
islenzku, þangað til Rafmagns-
eftirlitið lætur verða að þvi að
koma með þær á islenzku, sagði
Magnús Geirsson.
Samningaviöræðurnar hafa þvi
strandað á kaupgjaldsmálunum,
en eins og áður segir neituðu við-
semjendur rafvirkja að ræða til-
lögur sáttanefndar. — Við vorum
tilbúnir að nota þessar tillögur
sem viðræðugrundvöll, sagði
Magnús. Þar sem viðræðurnar
eru á mjög viðkvæmu stigi eins og
er, fékkst ekkert uppgefið um
kaupgjaldsmálin né tillögu sátta-
nefndar, hvorki frá rafvirkjum né
viðsemjendum þeirra.
Nýr sáttafundur i deilu þessari
hefur ekki verið boðaður.
12 mánaða
ábyrgð á inn-
fluttar vörur
— er ætlun viðskipta-
ráðuneytisins
Enn ein bílasalan:
| Borgarbílasalan
|við Grensásveg
gébé-Reykjavik — Nýlega tók til
Istarfa ný bilasala i Reykjavík, og
nefnist hún Borgarbilasalan og er
i húsi Málarans við Grensásveg.
Eigendur eru þeir Guðmundur Þ.
Halldórsson og ólafur Ilafsteins-
son, en þeir ráku árum saman
bilasölu Garðars i Borgartúni.
Húsnæði Borgarbilasölunnar er
mjög rúmgott, nokkur hundruð
fermetra innirými og nær ótak-
markað rými úti fyrir bilastæði.
Borgarbilasalan verður opin
frá kl. 9 til 19 virka daga og kl. 10
til 19 á laugardögum. Meðfylgj-
andi mynd sýnir þá félaga, Guð-
mund og Ólaf fyrir framan
Borgarbilasöluna.
gébé Reykjavik — Það er ætlun
viðskiptaráðuneytisins að
breyta þeim lagaákvæðum
varöandi ábyrgö á keyptum
innfluttum vörum, þannig að
ábyrgðin gildi eigi skemur en 12
mánuði, sagöi Björgvin Guð-
mundsson i viðskiptaráðuneyt-
inu í gær. Björgvin hefur, ásamt
Georg Ólafssyni verðlagsstjóra
og Gylfa Knudsen lögfræðingi,
samið frumvarp til laga um
verðlagsmál, samkcppnishöml-
ur og óréttmæta viöskiptahætti.
Frumvarp þetta mun nú vera
til athugunarhjá ráðherra, sem
Heimilis-
tíminn
kemur
1. sept.
Eins og áður hefur verið skýrt frá
i blaðinu er Heimilis Timinn i
sumarfrii um þessar mundir.
Hann mun aftur fylgja blaðinu frá
og með 1. september næstkom-
andi.
tekur ákvörðun um, hvort það
verður lagt fyrir alþingi i haust,
eða hvort það verður athugað
nánar. Þegar hefur frumvarp
þetta verið sent til umsagnar
nokkurra aðila, og athugasemd-
ir verið við það gerðar frá ýms-
um hagsmunasamtökum.
Siðasta ákvæðið i nefndu
frumvarpi, óréttmætir við-
skiptahættir, á við varanlegar
neyzluvörur eingöngu, þ.e. til
dæmis heimilistæki, húsgögn
o.f 1., sem mikið er keypt af með
afborgunarskilmálum. Kaup-
endur vara sig oft á tiðum ekki
á, að seljandinn hefur sett það
ákvæði i kaupsamning, að
ábyrgð gildi aðeins t.d. 6 mán-
uði. Dæmi munu einnig til að
ábyrgð sé aðeins i 3 mánuði, en
munu þó sjaldgæf núorðið.
— Viðskiptaráðuneytið hefur
átt viðræður við samtök inn-
flytjenda og hafa þeir tekið til-
mælum um 12 mánaða ábyrgð
vel. Það er ætlun ráðuneytisins
að breyta lagaákvæðum varð-
andi þetta atriði, en skv. gild-
andi kauplögum, er ábyrgðin 1
ár, nema um annað sé samið,
þ.e. ef kaupandi skrifar undir
samning þar sem styttri
ábyrgðartimi er tilgreindur,
sagði Björgvin Guðmundsson.
Munum leita
réttar okkar
— segir formaður leigutaka Fnjóskár
gébé Reykjavik — Við niunum
að sjálfsögðu leita réttar okkar i
þessu máli og þá gagnvart
bændum eða landeigendunum,
sem munu þá sennilega aftur
leita sins réttar gagnvart þvi
opinbera, sagði formaður
Stangaveiöifélagsins Flúða á
Akureyri, Siguröur Ringsted
bankastjóri i viðtali við Timann
i gær. Sigurður kvaðst hafa rætt
við menn, sem veriö hafa við
Fnjóská nýlega, og fengiö það
staðfest, eins og skýrt var frá i
Timanum á miövikudag, að
dauð laxaseiði flvtu niður alla
Fnjóská og önnur væru mjög
illa haldin.
Sigurður Ringsted kvað engar
formlegar viðræður hafa farið
fram milli landeigenda
Fnjóskár og Stangaveiðifélags-
ins Flúða enn sem komið væri.
Hann staðfesti einnig þá frétt,
sem sagt var frá i Timanum s.l.
miðvikudag, að einn laxveiði-
manna i Fnjóská, hefði séð er-
lendu visindamennina sprengja
á veiðistað einum ofarlega i
ánni, og hefðu vatnsstrókar
stigið hátt i loft upp.
Siguröurkvaðst þó ekki búast
við, að neitt yrði gert i máli
þessu fyrreni næstu viku. Sagði
hann að félagsmenn i Stanga-
veiðifélaginu Flúðum væru að
vonum mjög óhressir yfir
þessum spjöllum og út i visinda-
mennina fyrir að skerða svo
veiðina i ánni.
Olgeir Lúthersson að Vatns-
leysu, hafði nýlega sleppt
nokkru magni af seiðum, sem
hann kvað hafa verið hin hress-
ustu þegar hann sleppti þeim,
en sennilegt er að það séu ein-
mitt þessi seiði auk annarra i
ánni, sem drápust við
sprengingarnar.
— Siðustu sprengingar
visindamannanna voru i siðast-
liðinni viku sagði Sigurður, en
það stangast heldur betur á við
það sem Stefán Sigurmundsson
hjá Orkustofnun sagði um það
að þeim hefði lokið fyrir þrem
vikum siðan. Að lokum skal hér
itrekað, að einstakir landeig-
endur hafa enga heimild til að
gefa leyfi til spreninga i ánniog
reyndar ekki stjórn Veiöifélags
Fnjóskár heldur, nema i
samráði við Stangaveiðifélagið
Flúðir, sem hefur haft Fnjóská
á leigu i mörg ár.
S^Atvinnulíf
F.I. Reykjavik. — Það er mjög
gott hljóðiö i okkur nú, sagði
Brynjólfur Sveinbergsson,
m jólkurbúst jóri á Hvamms-
tanga, þegar Timinn talaði við
hann i gær. Það er kannske fyrst
frá þvi að segja, að nú i vikunni
samþykkti hreppsnefndarfundur
aö láta leggja oliumöl á fyrstu
göturnar hér i bæ. Er áætlað að
leggja um 1250 metra i götur fyrir
miöjan september. Má segja aö
þessi framkvæmd muni skapa
okkur mannsæmandi lif um leið
og við losnum við rykið. Oliumöl-
in er flutt til okkar af Suðurlandi
og er hér um að ræða um 1300
tonn eða heilan skipsfarm.
Brynjólfur gat þess, að þetta
væri annað sumarið i röð, sem
Skákmótið á
Lækjartorgi
f dag ef veður leyfir
MÓL-Reykjavik — Mótið verður
haldið á morgun (þ.e. föstudag)
svo framarlega sem veður leyfir,
sagði Kristinn Á. Friðfinnsson,
hjá skákfélaginu Mjölni, er Tim-
inn ræddi við hann i gær um
undirbúning útiskákmóts félags-
ins, sem áætlað er að verði sett kl.
14 i dag.
Ef að likum lætur verður þetta
eitt sterkasta skákmót, sem lengi
hefur verið haldið, þvi meðal
þátttakenda verða fjölmargir
landsliðsmenn. Má þar m.a.
nefna stórmeistarana okkar, þá
Friðrik Ólafsson og Guðmund
Sigurjónsson og sterka skákmenn
eins og Helga Ólafsson, Jon L.
Árnason, Ingvar Asmundsson,
Björn Þorsteinsson, Margeir
Pétursson að ógleymdri Guð-
laugu Þorsteinsdottur, Norður-
landameistara kvenna.
Að sögn Kristins, verður mót-
inu frestað til næsta föstudags
setji veðurguðirnir strik i reikn-
inginn i dag.
í blóma | Álafoss var kyrr
ficlri or lanHoJS fil colfficlrcimrlrii»-»
I þegar Kronborg
, sigldi á hann
fiski er landað til saltfisksverkun
ar á Hvammstanga, en i fyrra
voru liðin 25 ár frá þvi að slikur
atburður hafði gerzt. veiðarnar
byrjuðu í lok júlimánaðar og hafa
gengið vel. Tveir bátar eru gerðir
út og hafa þeir landaö 60-70 tonn-
um af slægðum fiski. Þar af 23
tonn s.l. mánudag og þriðjudag.
Sagöist Brynjólfur þakka þennan
góða afla meiri fiskgengd vegna
friðunar, en aflinn er sóttur norð-
ur á Hornbanka um 30 milur
norður af Horni. Er um 10 tima
sigling frá Hvammstanga og
norður fyrir Horn.
Við spurðum Brynjólf um
heyskapinn og kvað hann siðustu
viku hafa verið bændum mjög
hagstæð. Viku sólskin hefði
bjargað geysilegum heyjum, en
fyrirþann tima hafði varla komiö
þurr dagur.
— 1 dag er verið að skipa upp
salti úr skipi til sláturhúsanna,
sagði Brynjólfur, og gengur
uppskipunin hægt, þvi að erfitt er
að fá mannskap.
Brynjólfur Sveinbergsson sagði
að lokum, að i siðustu viku hefði
veriö lokið við smiði viðlegu-
bryggju og viðlegukants I höfn-
inni. Hafnaraðstaða hefði stór-
batnað og nú vonuðust menn til
þess að fá meiri fisk til þess aö
lifga upp á.
— áreksturinn virðist vera ferjunni
eingöngu að kenna
gébé 5eykjavik — Alafoss
skcmmdist við áreksturinn, cn
það hefur engin áhrif á sjóhæfni
skipsins, þar sem skemmdirnar
eru ofan við efsta þilfar. Skipið
fór frá Helsingborg i gær til
Noregs þar sem það lestar og
kemur siðan heim. Þá verður
ákvörðun tekin um það, hvort
frain fari á þvi bráöabirgöar- eða
fullnaðarviðgerö, sagöi V'iggó
Maack, skipa verkfræðingur
Eimskipafélags lslands i gær.
Það var laust eftir hádegi
á miðvikudag, að Alafoss var á
leið til hafnar i Helsingborg og
var lóðs eða hafnsögumaður um
borð i skipinu. Hann hafði sent
itrekaðar viðvaranir um ör-
bylgjustöð, um að skipið væri á
leið inn i hafnarmynnið, en það
mun vera óformlegt samkomu-
lag, aö skip sem eru að koma til
hafnar, hafi forgang fyrir þeim
sem eru að fara úr höfn. Þétt
þoka var á þessum slóðum. —
Skipstjóra okkar og hafnsögu-
manninum, ber saman um að
Alafoss hafi verið kyrr, þegar
Kronborg, járnbrautarferjan,
kom skyndilega út úr þokunni og
skipti það engum togum að
árakstur varð, sagði Viggó.
Alafoss var með bakborðs-
akkerið uppi og það olli skemmd-
unum á ferjunni og reyndar
einnig á Alafossi lika.ensiðan féll
akkerið i sjóinn. Ferjan er mun
meira skemmd en Alafoss, en um
eins til eins og hálfs metra rifa
kom á skipið, um 70 cm á hæð og
gapir um ca. 20 cm.
Engin slys urðu á mönnum svo
vitað sé, en farþegar ferjunnar,
sem voru á fimmta hundraö urðu
flemtri slegnir.