Tíminn - 12.08.1977, Síða 4
4
Föstudagur 12. ágúst 1977
Eins og kunnugt er, hefur
Ólafur Jóhannesson dómsmála-
ráöherra, verið á ferðalagi um
tslendingabyggöir i Kanada i
boöi bjóöræknisfélags ts-
lendinga þar vestra. Timinn
hafði tal af Olafi stuttu eftir
heimkomuna, og baö hann að
segja sér, hvað hefði helzt á
daga hans drifið þegar hann
dvaldi i Kanada.
— Okkur hjónunum var boðið
til Kanada i hálfan mánuð og
gerði það tslendingadagsnefnd-
in itilefni hátiðarhaldanna, sem
haldin voru aö Gimli. Hátiðin,
tslendingadagurinn, stóð yfir i
þrjá daga, en 1. ágúst var samt
aðaldagurinn. Þessi hátiðarhöld
tókustvel að minu mati, og voru
mörg ánægjuleg. Siöan ferðaö-
ist ég viðsvegar um Manitóba
og tslendingabyggðirnar þar og
hitti margt fólk.
Sérstaklega fannst mér
ánægjulegt, þegar tslending-
arnir söfnuðust saman, eins og i
þorpinu Baldur, og hitti ég
marga þeirra saman komna i
félagsheimilinu á staðnum. Nú
sama geröist i Brandon, sem er
allstór bær. Við vorum þar aö
kvöldi til á einkaheimili, og hitti
ég þar marga. Þá feröaðist ég
um gömlu Islendingabyggðirn-
ar við Gimli og Geysi, Viðines
og Arborg.
Miklaey og Hekla
— Siöast en ekki sizt fór ég til
Heklu, sem er stór eyja i Winni-
pegvatni. Hún hétáöur Miklaey.
A þessari eyju var mannmörg
tslendinganýlenda, nálægt 500-
600 manns sem settust þar að.
Eyjan er mjög sérstæð og fögur
en henni hefur nú veriö breytt i
þjóðgarð, og allir ibúar eru
fluttir af henni, að undanskild-
um 5 eða 6 fjölskyldum.
Ferðin til Heklu fannst mér
reglulega skemmtileg. Annars
er til munnmælasaga um land-
nám tslendinga á eyjunni Hún
mun vera á þá leiö, að nokkrir
islenzkir innflytjendur hafi
verið á bát á Winnipegvatni á
leið eitthvað lengra, þegar kýr-
in, sem með var í förinni, stekk-
ur skyndilega fyrir borö, öllum
aö óvörum og syndir i land að
eynni. Eigendurnir fóru á eftir
„Kom mér á óvart hve margir töluðu isienzku.” —Timamynd Gunnar.
Þar heilsuðust
menn á íslenzku
— viðtal við Ólaf Jóhannesson, dómsmála-
ráðherra, nýkominn úr heimsókn 1
íslendingabyggðir vestan hafs
til að handsama kúna, en kunnu
þá svo vel við sig, er á land var
komið, aðþeirákváðu að setjast
þar að, og nema land. En þetta
er nú aðeins munnmælasaga.
Þá er á eyjunni kirkja og
kirkjugarður, en i honum má
lesa á bautasteina fjölmargra
Islendinga.
Þvi má svo bæta viö, að um
þessar mundir er staddur á eyj-
unni sr. Bragi Friðriksson, sem
er prestur i Garðahreppi, og
þjónar hann þar um sinn.
Einnig heimsótti ég elli-
heimilin að Gimli og Selkirk.
Töluðu islenzku betur
en ég átti von á
Ég haföi heyrtákaflega mikið
af þvi látið hve vel Vestur-ts-
lendingarnir töluðu Islenzka
tungu. Ég verð að segja, að hún
var betri en ég átti von á, og
kom mér raunar á óvart. Meira
að segja fólk, sem bjó úti á
landsbyggðinni, en hafði aldrei
komið til tslands, talaði ágæta
islenzku. Ég minnist eins
bónda, sem ég hitti á för minni,
sem átti ágætt safn islenzkra
bóka, og sumar þeirra hreinustu
dýrgripi.
15-20 þús. manns á ís-
lendingadeginum
íslendingadagurinn var vel
heppnaður eins og ég var búin
að nefna. Þarna voru saman
komin 15-20 þús. manns, fólk-
viðs vegar að, og auðvitað fleiri
en tslendingar. Þetta virðist
vera vinsæl samkoma þar
vestra. Fyrirmenn Manitóba-
fylkis sýndu hátiðinni virðingu
með þvi að vera viðstaddir
hana, fylkisstjóri Manitóbafylk-
is og forsætisráðherra, sem
báðir ávörpuðu gesti. Einnig
voru þarna fulltrúar borgar-
stjóra og dómsmálaráðherrann,
sem ég átti nokkrar viðræður
við.
Það var ýmislegt að gerast
þarna, og mörg boð i tengslum
við hátiðina.
Ég heimsótti Manitóba-
háskóla og islenzkudeildina i
honum, sem Haraldur Bessason
prófessor veitir forstöðu. í
deildinni er mjög gott islenzkt
bókasafn, og er það annað
stærsta Islenzka bókasafnið
utan tslands.
Lögberg-Heimskringla
ákaflega mikilvægur
hlekkur
t för með mér voru aðallega
forseti Þjóðræknisfélagsins,
Stefán J. Stefánsson og kona
hans, sem sáu um og skipulögðu
ferðina mina,en Stefán er fógeti
i Winnepeg.
Aftur á móti voru Ted Ama-
son og frú á ferðalagi á tslandi
mestan hluta heimsóknartima
mins, og hitti ég þau ekki fyrr en
i lok ferðarinnar. Ted er m.a.
formaður blaðstjórnar Lög-
bergs-Heimskringlu.
Vitaskuld heimsótti ég Lög-
berg-Heimskringlu en ég tel
blaðið ákaflega mikilvægan
hlekk I samskiptum tslendinga
austan hafs og vestan, og einnig
innbyrðis milli íslendinga þar
vestra. Ég tel það skyldu okkar
aö hlynna sem bezt að þessu
starfi og stuðla að framgangi
þess.
Skil ýmislegt betur en
áður
Auðvitað sá ég ótal margt,
sem ástæða væri að nefna hér,
enda heimsótti ég staði og,.
fjöldamargt fólk, en ég læt það
ógert.
Þó vil ég nefna Jóhann
Sigurðsson varaforseta Þjóð-
ræknisfélagsins og Ernest
Stefánsson forseta tsiendinga-
dagsins. Hann er sonur Stefáns
J. forseta Þjóðræknisfélagsins,
en Ernest er lyfsali þarna i
Gimli.
Gimli fannst mér skemmti-
legur bær, og þar margt sem
minnir á Islenzka bæi. T.d.
heilsuöust menn sem ég hitti á
götu á íslenzku, „komdu sæll”.
Sem sagt ég er ánægður með
förina, og þakklátur þeim sem
sáu um hana og skipulögöu. Þó
dvöl mín hafi verið stutt, finnst
mér ég skilja ýmislegt betur en
áður. En það fer ekki fram hjá
neinum að margir tslendingar
hafa komizt vel áfram i
Kanada.
Kás.
Utsala í Hofi
Til að rýma fyrir nýjum vörum er útsala á
hannyrðavörum og garni. T.d. Bulky,
Jumbo quick, Zareska, Nevada, Peter
Most, Cabel sport, Dala og gamla Hjarta-
garnið.
Hof
Ingólfsstræti 1, á móti Gamla BIó.
Flugleiðir:
Farþegaflutningar aukast
innanlands _“fandauflutningar
Kás-Reykjavik. Heildarflutning-
ar með flugvélum Flugleiöa voru
svipaðir fyrstu sex mánuði þessa
árs og á sama tima I fyrra. Þó
hefur átt sér stað fækkun á
farþegum I millilandaflugi
félagsins, en umtalsverð aukning
i vöruflutningum. t innanlands-
flugi hefur farþegum aftur á móti
fjölgað mjög.
Fyrstu sex mánuði yfirstand-
andi árs flugu 152.580 farþegar
með millilandavélum Flugleiða.
Er það 2% fækkun frá sama tima-
bili i fyrra. Hins vegar höfðu
vöruflutningar félagsins milli
landa aukizt um 48.5%, og póst-
flutningar um 12.44%. Farþega
flutningar innanlands jukust
verulega á fyrstu sex mánuðum
þessa árs miðað við sama tímabil
i fyrra, eða um 19,2% Vöruflutn
ingar innanlands drógust samar
um 4,2% .