Tíminn - 12.08.1977, Síða 5
Föstudagur 12. ágúst 1977
[Ilí'iiíli
5
á víðavangi
Miðjan og
kanturinn
Á undanförnutn áratugum
hefur verið mjög áberandi
meðal þeirra sem lengst
standa til hægri eða vinstri, að
þeir hafa reynt að nálgast hina
raunsæju farsælu miðju i
stjórnmálunum. Með nokk-
urra ára millibili er siðan eins
og þessi öfl reyni að hrista
veruleikann af sér og ná aftur
til liðins uppruna sins. Hvort
sem litið er til hægri eða
vinstri i islenzkum stjórnmál-
um nú er eins og þessi viðleitni
sé mjög fyrirferðarmikil um
þessar tnundir. Alþýðubanda-
lagið leitar sér „evrópisks”-
kommúnisma, en sumir Sjálf-
stæðismenn sjá i Glistrup hin-
um danska frelsara sinn.
Nú er sannleikurinn sá að
Sjálfstæðisflokknum hefur
tekizt að ná talsvert inn að
miðjunni á siðustu áratugum,
og innan fiokksins hafa starf-
aðmenn sem hafa fylgt frjáls-
lyndum sjónarmiðum. Á sama
hátt hefur flokkurinn notið
umtalsverðs fylgis meðal
launamanna og flokksmenn
hans komizt til forystu i
verkalýðsfélögum. Að sumu
leyti verður það þvi sagt um
Sjálfstæðisflokkinn, að hann
hefur getað horfzt i augu við
veruleikann og er ekki að öllu
leyti sami flokkurinn og
íhaldsflokkurinn var forðum
daga.
Þetta sést reyndar bezt af
störfum forystumanna flokks-
ins i þeirri MIÐJUSTJÓRN
sem nú situr að störfum hér á
landi, mynduð af Sjálfstæðis-
flokki og Framsóknarflokki.
Vafamálin sem nú eru frani
undan innan Sjálfstæðis-
flokksins eru þau, að vaxtar-
broddur flokksins virðist fátt
sjá annað en öfgafulla hægri-
sinnaða KANTSTEFNU, and-
hverfu þeirra villtu öfga sem
ungirsósialistar hafa sér að á-
hugaefnum. í stuttu máli er
hér um það að ræða að draga i
efa árangur félagsmála-
framsóknar islendinga á
undanförnum áratugum,
varpa rýrð á velferðarþjóðfé-
lagið og stofnanir þess og i-
klæða óánægju með rikisvald-
ið Glistrupskum búningi. Um
hið siðastnefnda er það að
segja sérstaklega að óánægja
með kerfið á fullan rétt á sér,
enda stendur þar margt til
bóta, ekki hvað sizt i Reykja-
vik þar sem skrifstofubákn
borgarinnar vex innan um rik-
isstofnanirnar. En frá heil-
brigðri raunsærri og fram-
sækinni gagnrýni er langt yfir
i slagorðið „báknið burt” og
annað í slikum dúr.
Nýtt hægra
framboð?
Dagblaðið i Reykjavik hefur
frá upphafi gerzt talsmaður
þessara sjónarmiða, og hefur
það notið til þess háværra
manna úr öðrum flokkum.
Aftur og aftur hafa menn
haldið, að nú hlyti að koma^
að þvi að fullkominn við-
skilnaður yrði af þessum sök-
um með fylgismönnum blaðs-
ins og stuðningsmönnum rik-
isstjórnarinnar innan Sjálf-
stæðisflokksins. Jafnoft hafa
menn þó séð, að Sjálfstæðis-
flokkurinn virtist þenja sig út
yfir þessar andstæður og
hjúpa þær pilsfaldi sins mikla
valds og hagsmuna.
Þrátt fyrir þetta bendir
margt til þess nú að undan-
förnu að Dagblaðið yrði knúið
til hlýðni og undansláttar.
Reyndar hefur aldrei annað
komið til inála þar en að
styðja flokkinn þegar á hólm-
inn yrði komið, en óþolinmæð-
in virðist hafa aukizt nú að
undanförnu. Ritstjóri Dag-
blaðsins hefur maldað i mó-
inn, en lengst af var það þó
einungis persónulegur pirr-
ingur og smápústrar.
Um þessar mundir finnst
honurn loks að farið sé að
þrengjast iskyggilega um sinn
hag. Nú er komið að beinum
hótunum. Siðastliðinn mið-
vikudag segir Dagblaðið
þannig i forystugrein eftir
Jónas Kristjánsson um óá-
nægju hægrisinnaðra inanna
með flokka sina:
„Sama gildir um svik hægri
stjórna við sinn málstað. Þau
leiða oft til framboðs hópa yzt
á hægri væng. Það siðara gæti
orðið uppi á teningnum f þetta
sinn. Akveðin refsing getur
fylgt þessum flokkum. Nokkur
hundruð atkvæði sem tekin
eru frá stórum flokki geta leitt
til þess, að hann missi einn
uppbótarþingmann og
hugsanlega kjördæmakosna
þingmenn.”
Siðar i leiðaranum segir:
„í landinu er fullt af hæfum
mönnum sem rúmast ekki vel
innan gömlu flokkanna, en
ættu heima á alþingi utan
flokka.”
— Verður að segja að hótun
Jónasar er ekki vel dulbúin ef
hann ætlaði þá að tala nokkra
tæpitungu til flokksbræðra
sinna i Sjálfstæðisflokknum
yfirleitt.
Lífhöfnin
En loks slær hann þó athygl-
isverðan varnagla i þessari
sömu forystugrein, og má
segja að hann tryggi sig þann-
ig bæði i bak og fyrir. Hann
segir:
„En ákveðnastur allra i að
hagnast á óvinsældum rikis-
stjórnarinnar er þó Alþýðu-
flokkurinn. Þar er kosninga-
undirbúningurinn i fullum
gangi, enn er flokkurinn göm-
ul lifhöfn óánægðra sjálf-
stæðismanna.”
Svo mörg voru þau orð, og
hefur Alþýðuflokknum ekki
lengi verið gefin fullkomin
skilgreining og nafn i jafn
stuttu máli. JS
„Auglit til auglits”
— norræn myndlistarsýning, sem væntanleg
er á Kjarvalsstaði
Kás-Reykja vik. Norræna
myndlistarsýningin „Auglit til
auglits” er væntanleg hingað til
lands i haust. Hún mun standa
yfir á Kjarvalsstöðum dagana
10. - 25. september að báðum
meðtöldum. Sýningin kemur
hingað á vegum Norræna
myndlistarbandalagsins og Fé-
lags islenzkra myndlistar-
manna, sem er aðili að þvi, seg-
ir i fréttatilkynningu, sem blað-
inu hefur borizt.
A aðalfundi myndlistar-
bandalagsins árið 1974 var end-
anlega ákveðið að fela Staffan
Gullberg, listfræðingi i Stokk-
hólmi , að setja saman norræna
samsýningu myndlistarmanna
af nýrri gerð. Þessi sýning Gull-
bergs (hann hefur verið algjör-
lega einráður um skipulagningu
hennar, val verka og höfunda
þeirra) var lengi i mótun. Hann
ferðaðist milli landanna fimm
árin 1975 og 1976, kynnti sér
stefnur og leiðir i myndlist,
skoðaði sýningar og heimsótti
marga myndlistarhöfunda.
Hingað til lands kom hann tvi-
vegis i þessu skyni. Arangurinn
af starfi Gullbergs varð sýning-
in: „Auglit til auglits”. Með
sýningunni vill Gullberg sýna
okkur myndlist og formmótun i
viðara samhengi en tiðkazt hef-
ur , vikja frá hinum sérfræði-
legu sjónarmiðum og tekur þá
um leið mið af umhverfisvanda-
mákim siðustu ára og áratuga.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um sýninguna á hinum Norður-
löndunum, og eru menn ekki á
einu máli um listrænt gildi
hennar eða hittni boðskaparins,
ef hann er þá einhver einn Og
sérstakur. 1 norskum blöðum er
talið, að sýningin eigi einkum að
kenna mönnum að sjá og upp-
götva að nýju hluti eða stað-
reyndir, sem þeir eru fyrir
löngu hættir að skynja sakir
hraða og vélvæðingar nútimans.
tslenzkir þátttakendur i sýn-
ingunni „Auglit til auglits” eru
þessir: Agúst Petersen, Hildur
Hákonardóttir, Hringur Jó-
hannesson, óskar Magnusson,
og Blómey Stefánsdóttir. Auk
listaverka þeirra er sýnt is-
lenzkt hraungrjót, bárujárns-
plötur, ljósmyndir af torfbæjum
og bárujárnshúsum.
Kvenfólk í ábyrgðarstöð-
um þingar á íslandi
Dagana 12.-15. ágúst halda
Zontaklúbbar á Norðurlöndum
svæðismót sitt að hótel Loft-
leiðum i Reykjavik.
Zonta eru alþjóðleg félagssam-
tök kvenna, sem gegna ábyrgðar-
störfum i þjóðfélaginu. Aðal-
stöðvar samtakanna eru i Chi-
cago.
Sambandið skiptist i 16 svæði
með starfssvið viða um heim.
Norðurlöndin fimm mynda
þrettánda svæði með 59 klúbba,
þar af 3 á Islandi, og samtals um
2200 félagskonur.
Á mótinu verða rædd félagsmál
samtakanna. Ennfremur mun
Sigurður bórarinsson prófessor
flytja erindi um náttúru landsins,
og Stefán Karlsson mag. art, um
handritin. Farnar verða skoð-
unarferðir um Reykjavik og til
rtálægra staða.
Zoptaklúbbar starfa að ýmiss
konar menningar- og mannúðar-
málum. T.d. má geta þess, að
Zontaklúbbur Reykjavikur hefur
með námsstyrkjum og tækjagjöf-
um beitt sér fyrir umbótum i mál-
um heyrnarskertra, Zontaklúbb-
ur Akureyrar stofnaði og starf-
rækir Nonnasafnið á Akureyri og
Zontaklúbbur Selfoss vinnur að
málum sjúkrahússins. 1 alþjóð-
legu samstarfi Zontaklúbba hefur
verið lögð megináherzla á aðstoð
við konur i þróunarlöndum.
Um 200 þátttakendur verða á
mótinu.
Starfsfólk óskast
Timinn óskar að ráða fólk til eftirtalinna
starfa:
1. til auglýsingasöfnunar.
2. til vélritunar, móttöku auglýsinga og
umsjá með spjaldskrá.
3. til innheimtustarfa.
Nánari upplýsingar hjá auglýsingastjóra
simi 86-300 eða 86-396.
Siðumúla 15.
Gullsmiðurinn s.f.
Þjónusta
fyrir landsbyggðina
Sendið okkur (i ábyrgð) þá skartgripi
sem þér þurf ið að láta gera við, ásamt
smálýsingu á því sem gera þarf,
heimilisfangi og símanúmeri. Að af-
lokinni viðgerð, sem verður innan 5
daga frá sendingu, sendum við ykkur
viðgerðina í póstkröf u. Allar viðgerðir
eru verðlagðar eftir viðgerðaskrá
Félags ísl. Gullsmiða.
Stækkum og minnkum hringi (sendum
málspjöld), gerum við armbönd,
nælur, hálsmen, þræðum perlufestar.
Sendum einnig í póstkröfu allar gerðir
skartgripa.
Fljót, góð og örugg þjónusta. Hringið
og leitið upplýsinga.
Gullsmiðurinn s.f.
Frakkastíg 7 101
Reykjavík
Sími (91) 1-50-07.
Alternatorar og
startarar
i Chevrolet, Ford, Dodge,
Wagoneer, Fiat o.fl. í stærð
um 35-63 amp. 12 & 24 volt.
Verð á alternator frá
kr. 10.800.
Verð á startara frá
kr. 13.850.
Amerísk úrvalsvara.
Viðgerðir á alternatoruiyi
og störturum.
Póstsendum.
Lausar stöður við
w skólana ó Sauðórkróki
Staða Hjúkrunarfræðings við Gagnfræða-
skóla, Barnaskóla og Leikskóla
Matreiðslumaður i heimavist Gagnfræða-
skóla og Iðnskóla.
Ráðsmaður i heimavist Gagnfræðaskóla
og Iðnskóla.
Húsvörður i Gagnfræðaskóla.
Þessar stöður eru lausar frá 1. september,
eða eigi siðar en 1. október n.k.
Umsóknarfrestur er til 17. ágúst, og skulu
skriflegar umsóknir berast á bæjarskrif-
stofurnar við Faxatorg fyrir þann tima.
Upplýsingar verða gefnar af skrifstofu-
stjóra og bæjarstjóra i sima 95-5133.
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki.
BÍLARAF H.F.
Borgartúni 19
Simi 24-700