Tíminn - 12.08.1977, Page 8
8
Föstudagur 12. ágúst 1977
Frá aöalfundi NCF i Reykja vik i júllmánufti s.l.
Frá aðalfundi NCF í Reykjavík
Ungir miðflokks
menn teknir tali
Siðastliðinn föstudag
birtust hér á siðunni
tvö af fjórum viðtölum
við unga miðflokks-
menn, sem tekin voru á
aðalfundi Nordiska
Centerungdomens För-
bund i Reykjavik dag-
ana 26. til 30. júH 1977.
Hér á eftir fara þau
viötöl, sem ekki reynd-
ist unnt að birta á
föstudaginn var.
Ritva Kontro25ára var fulltrúi
Sambands ungra miðflokks-
manna i Finnlandi (N.K.L.) á
aðalfundi N.C.F. og þeirri ráð-
stefnu sem haldin var samhliða
aðalfundinum. Hún er ritari
N.K.L. og sinnir samskiptum
Sambandsins við flokksfélögin
og sér um að senda þeim upp-
lýsingarit um stefnu og starf-
semiFinnska miðflokksins. Auk
þess skipuleggur hún ráðstefnur
og annast fræðslumál fyrir
sambandið.
— Ritva, hvernig er skipulagi
Sambands ungra miðflokks-
manna i Finnlandi háttað?
Samband ungra miðflokks-
manna i Finnlandi saman
stendur af 19 svæöafélögum, en
svæðafélögin eru mynduð af
öllum flokksdeildum á viðkom-
andi svæði. Samanlögð tala
skráöra ungra miðflokksmanna
er um 50.000. 1 stjórn sam-
bandsins sitja 11 fulítrúar, sem
eru kosnir á sambandsþingi, en
það er haldið i júni ár hvert.
— ilvaða málaflokkar eru
einkum til umræðu hjá ykkur?
Helztu viðfangsefni ungra
miðflokksmanna i Finnlandi eru
orkumál, en auk þess setja um-
ræður um byggðamál og
byggðajafnvægi svip sinn á
félagsstarfið. Við höfum lagt
mikla áherzlu á að rikisvaldið
og bankakerfið stuðli að auknu
jafnvægi i byggð Finnlands, t.d.
með þvi að örva fyrirtæki til að
fjárfesta i verksmiðjum á
svæðum, sem viðgetum sagt að
séu orðin á eftir miðað við iðn-
aðarhéruðini kringum Helsinki.
bá höfum við sett á oddinn mál
sem eiga aö bæta félagslega að-
stöðu þeirra sem búa i dreifbýl-
inu. Til dæmis höfum við barizt
Rilva Kontro
íyrir þvi að bændur fái sumar-
leyfi eins og aðrar starfsstéttir i
landinu. Það mál er komið á
nokkurn rekspöl, þvi að núna
greiðir rikið laun til þeirra, sem
leysa bændur af i sumarleyfi
þeirra. Þetta fyrirkomulag á að
gera bændum kleift að taka sér
allt að 10 daga fri, sem okkur
finnst i styttra lagi miðað við
sumarleyfi annarra. Við berj-
umst lika fyrir þvi að dögunum
verði fjölgað.
— 1 janúar 1978 eiga að fara
fram forsetakosningar i Finn-
landi. Getur þú sagt okkur eitt-
hvað frá undirbúningi þeirra?
Já, það get ég. Sex stærstu
stjórnmálaflokkarnir i Finn-
landi hafa skorað á Kekkonen
forseta að gefa kost á sér til
endurkjörs, og hefur hann orðið
við þeirri ósk. Annars er fyrir-
komulag kosninganna þannig að
kosnir verða 300 kjörmenn, en
hlutverk þeirra verður aö kjósa
forsetann. Forsetinn er þannig
kosinn af kjörmönnum á svip-
aðan hátt og forseti Bandarikj-
anna.
— Um þessar mundir eru iiðin
tvö ár frá undirritun Helsinki
sáttmálans. Eru Finnar
ánægðir með þann árangur,
sem orðið hefur vegna sáttmál-
ans?
Að sjálfsögðu voru Finnar
mjög ánægðir með það, að það
skyldi hafa tekizt að fá alla for-
ystumenn þjóða i Evrópu og for-
seta Bandarikjanna til þess að
koma til Helsinki og ræða um
öryggi og samvinnu milli rikja i
Evrópu. Við fyrstu sýn virðist
árangur ráðstefnunnar hafa
orðið takmarkaður, en svo er þó
ekki. Menn mega ekki gleyma
þvi að Helsinki sáttmálinn er
viljay firlýsing þeirra, sem
stóðu að samkomulaginu, um
það á hvern hátt skuli stuðlað að
aukinni og betri samvinnu
Evrópurikja. Þannig að sátt-
málinn var ekki lagður fyrir
þjóðþing aðildarlandanna til
staðfestingar. Mitt mat er það,
að samkomulagið sé mikil-
vægur grunnur, sem hafi nú
þegarsannaðágætisitt. T.d. má
benda á þá staðreynd, að nú er
mun auðveldara að ferðast á
milli Austur- og Vestur-Evrópu
og einnig að samskipti æsku-
fólks i austri og vestri hafa
aukizt frá þvi sem var (fundur-
inn i Varsjá 1976). Það er þvi
óhætt að fullyrða, að við séum
ánægðir með byrjunina, en auö-
vitað vonum viö að ekki verði
látið staðar numið, heldur
haldiðáfram á þeirri braut, sem
hefur verið mörkuð sl. tvö ár.
Formaður Centerns Ung-
domsförbund (C.U.F.) iSviþjóð
er Anders Ljunggren, 26 ára
gamall. Hann var kosinn for-
maður 1976 og endurkosinn i
júni i sumar til eins árs. Eins og
aöra viðmælendur okkar, báð-
um við Anders að gera stuttlega
grein fyrir C.U.F..
Samband ungra miðflokks-
manna i Sviþjóðer samband um
1000 flokksdeilda. Félagsmenn
eru 65.000. 1 stjórn C.U.F. eru 11
menn. Að auki eiga sæti 29 svo-
kallaðir umboðsmenn sýsln-
anna, eða 1 fulltrúi fyrir hverja ;
sýslu. Umboðsmennirnir hafa
ekki atkvæðisrétt á stjórnar-
fundum. Fastir starfsmenn
sambandsins eru 16.
— Hvernig er háttað stuðn-
ingi rikisvaidsins við starfsemi
C.U.F.?
Stuðningur rikisvaldsins viö
stjórnmálafélög ungs fólks i
Sviþjóð fer eftir fjölda félags-
manna. 1 ár fær C.U.F. 1.000.000
s.kr. (44.000.000 isl. kr.) i rikis-
styrk. Að auki fáum við 110.000
s.kr. til að gefa út blöð, 60.000
s. kr. til að standa straum af út-
gáfum sérrita og 300.000 s.kr. til
að kosta ýmiss konar herferðir
t. d. gegn áfengisneyzlu.
— Afstaða Sænska mið-
flokksins til áætlunar stjórnar
jafnaðarmanna um byggingu
raforkuvera knúnum kjarnorku
hefur vakið mikla athygli, svo
og úrslit sænsku þingkosning-
anna á siðast liðnum vetri.
Hvernig hefur sænskum mið-
Anders Ljunggren
flokksmönnum gengið að efna
kosningaioforðin i sambandi við
orkumálin?
Okkur hefur gengið það bæri-
lega. Nýverið var afgreiddur
lagabálkur af sænska þinginu
um kjarnorkuver. t þessum
lagabálki er mjög mikilvægt
ákvæði, sem kveður á um, að
hver sá sem hyggist byggja
kjarnorkuver, þar með talin
kjarnorkuknúin raforkuver,
verði að sýna fram á aö geisla-
virk úrgangsefni valdi ekki
skaða eða náttúruspjöllum.
Þetta ákvæði stöðvar byggingu
kjarnorkuvera i bili, þar sem
ekki eru til aðferðir til að gera
geislavirkúrgangsefni óskaðleg
eða að geyma þau þannig að
óyggjandi sé, að þau valdi ekki
skaða. Fyrri áætlanir gerðu ráð
fyrir að árið 1980 væru 13 kjarn-
orkuknúin raforkuver komin i
notkun. Nú eru 6 tilbúin og ég
geri mér góðar vonir um að 1980
verði ekki nema 5 starfrækt. Þá
höfum við unnið ötullega að þvi
að framkvæma það atriði i
orkustefnu okkar, sem gerir ráð
fyrir að árleg aukning orku-
neyzlu verði ekki meiri en 1%.
Allt útlit er fyrir að stjóminni
takist að ná þessu markmiði,
einkum vegna þess að húseig-
endur hafa verið hvattirámarg-
vfslegan hátt til að bæta ein-
angrun húsa. Einnig hefur verið
rannsökuð hagkvæmni þess að
nýta hitaorku í kælivatni og
reyk verksmiðja.
— Annað mál, sem þið hafið
lagt mikla áherzlu á, er aukin
valddreifing i sænska þjóðfélag-
inu. Hefur ykkur orðið ágengt á
þvi sviði eftir stjórnarskiptin?
1 bigerð eru breytingar á
sænsku sveitarstjórnarlögun-
um. Hugmyndiner að fulltrúar i
sýslunefndum, sem hafa verið
kosnir af rikinu, verði kosnir af
heimamönnum. C.U.F. telur að
þetta sé mikilvægt skref i átt til
valddreifingar, þar sem sýslu-
nefndir eru valdamikill aðili.
— Jafnframt aðalfundi
N.C.F. hér i Reykjavik, hafa
verið umræður um jafnari
skiptingu auðæfa heimsins. Get-
ur þú lýst i fáum orðum stefnu
Sambands ungra miðflokks-
manna i þvi máli?
C.U.F. er þeirrar skoðunar,
að ef áfram verði haldið á sömu
braut i samskiptum þróunar og
þrdaðra landa á sviði verzlunar
og viðskipta, leiði það til þess að
kalt strið hefjista milli þeirra.
Við viljum koma i veg fyrir að
þetta gerist. Það er hægt á
margan hátt, til dæmis með þvi
að þróuðu þjóðirnar auki aðstoð
við þær sem minna mega sfn,
greiði hærra verð fyrir hráefni
frá vanþróuðum þjóðum, að-
stoði þær við að koma upp kaup-
skipaflota o.s.frv. Auk þess hef-
urC.U.F.samþykkttillögu, sem
felur i sér viðurkenningu á rétti
þróunarlanda til að þjóðnýta
erlend fyrirtæki sem starfa á
yfirráðasvæði þeirra.
— Hvaðviltusegja aðlokum?
Ég er mjög ánægður meö
aðalfundN.C.F. og ráðstefnuna,
sem haldin var samhliða hon-
um. Ég er þeirrar skoðunar, að
stjórnmálaumræðurnar hafi
verið á mjög háu plani og ég tel
að öll skilyrði séu fyrir
árangursriku samstarfi i
framtiðinni milli þeirra aðila
sem stóöu að fundahöldum hér.
Að lokum vil ég þakka Sam-
bandi ungra framsóknarmanna
fyrir allan undirbúning fyrir
ráðstefnuna og aðalfundinn og
framkvæmd, sem var til fyrir-
myndar.
G.K.
Illllllliinlf
lllllllllllllllllUlllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllnHlllllllllllll
Umsjónarmenn: Pétur Einarsson
Ómar Kristjánsson