Tíminn - 27.10.1977, Blaðsíða 4
4
Fimmtudagur 27. október 1977
Eftir síðasta fund Varðar
A seinasta Var&arfundi flutti
Eyjdlfur Konráö Jónsson fram-
söguræöu sem birt var i
Morgunblaðinu laugardaginn
22. okt. Samkvæmt fyrirsögn
var markmið ræðumanns aö
skilgreina og lýsa stööu og af-
rekum einkarekstursmanna.
Ekki er óliklegt að mörgum
Varðarmanni finnist ýmislegt
hafa farið úrskeiðis á þeirra
vettvangi og hlutur einka-
rekstursmanna liggi eftir á
mörgum sviðum, og þvi þurfi að
hressa bá viö.
Sitthvaö er fróðlegt og all-
nýstárlegt i málflutningi
Eyjólfs Konráðs. Hann birtir
ýmsar tölur sem ætlað er þaö
hlutverk, aö rökstyöja þá skoð-
un hans að staða einkafram-
taksins i sjávarútvegi sé sterk
en það segir Eyjólfur vera sitt
mat.
Engu er llkara en aö framhjá
Eyjólfi hafi fariö þær umræður
sem hátt hefir borið að undan-
förnu, að ófremdarástand, kyr-
staða og samdráttur hafi rikt
hér i Reykjavik og raunar á öllu
Faxaflóasvæðinu i sjávarút-
vegi. Eru þetta þó sannarlega
þær vlgstöðvar sem einka-
reksturinn hefir talið sinn akur.
Hitt er rétt, að áhuginn til að
sinna verzlun og afla fanga eftir
þeim leiðum hefir verið vel vak-
andi hjá Varðarliðum nú sem
fyrr og á þvi sviði geta félagar
Eyjólfs státað af hlut sinum.
Það er hins vegar nauðsynlegt
þegartölur eru birtar.aö réttsé
ályktaö um, hvað þær raun-
verulega segja. A þaö skortir
nokkuð hjá Eyjólfi.
Hvað er Sambandið?
Svo viröist sem ræðumaður
teljiþað nauðsynlegtaö ráðastá
Sambandið og kaupfélögin þeg-
ar hann er á Varðarfundi að
gera úttekt á afrekum og stöðu
einkaframtaksins. Grlpur hann
til þess.að birta katla úr lögum
um samvinnufélög frá 1937, sem
virðist eiga að sýna að Sam-
bandiö sé ólögleg stofnun.
Minna má ekki gagn gera. Með
ruglingslegu tali um óllka hluti
gerir Eyjólfur tilraun til þess aö
villa um fyrir Varöarmönnum.
Það eru skýr ákvæði i lögum
um höfuðeinkenni kaupfélaga.
Þau eru félög einstaklinga og
lúta vissum reglum. Samband
isl. samvinnufélaga er hins veg-
ar ekki kaupfélag. Það er ekki
félag einstaklinga og um það
gilda aðrar reglur en þær, sem
Eyjólfur lætur 1 veöri vaka að
uppfylla þurfi til að það sé i
samræmi við lagaákvæði.
Samband Isl. samvinnufélaga
er Samband kaupfélagaog sem
slikt hefir það margvislegum
hlutverkum að gegna i þágu
kaupfélaganna og félagsmanna
þeirra. Um uppbyggingu þess
og starf gilda ákveðnar laga-
reglur sem það er I fullu sam-
ræmi við og starfar eftir. Þetta
veitogþekkir þorri landsmanna
og varla getur þaö talizt viöeig-
andi aö vel fær lögfræðingur
taki til við aö rugla um fyrir
félögum sinum I Verði I þessu
efni.
Falskenning um flutn-
ing fjármagns
Til viðbótar þvi að Eyjólfur
Konráð vill svo vera láta, að
Sambandið svlfieinhverstaðar i
lausu lofti fyrir utan lög og rétt,
heldur hann þvl fram, Sam-
bandið eitt sé liklegt til stór-
ræða, það eitt sé nokkurs
megnugt til átaka við uppbygg-
ingu atvinnulifs en kaupfélögin
ekki. Þetta stafi af þvi, aö Sam-
bandið hafi aflað sér fjár ,,af
viðskiptum við samvinnufélögin
úti um land, sem sagt með fjár-
magni sem sú stofnun hefir
dregið frá landsbyggðinni til
rekstrar slns i Reykjavlk.”
Rétter aö athuga þessa kenn-
ingu lltið eitt.
Það er staðreynd sem
Morgunblaðið hefir oft og einatt
minnt á og raunar séö ofsjónum
yfir, að kaupfélögin úti á landi
hafa mörg staðið að myndarleg-
um framkvæmdum, sem miðað
við aðstæöur eru stórfyrirtæki.
Þetta hefir þeim tekizt vegna
þess félagslega og fjárhagslega
styrks sem fjöldasamtök búa
yfir. Þau hafa lika oft notið
stuðnings frá samvinnusam-
bandinu og mtið þess trausts og
reynslu sem það hefirbyggt upp
og aflað á liðlega 75 ára tíma-
bili.
En hitt er lika rétt aö inn-
flutnings- og heildverzlun fylgir
möguleikinn tilað safna fé. Það
vita Varðar-menn mæta vel.
Það vita samvinnumenn einnig
og meöal annars þess vegna var
Sambandið stofnaö og inn-
flutningsverzlunin hefir þvi ver-
ið einn meginþáttur þess.
Sambandið hefir skilað til
kaupfélaganna gegnum árin
mörgum hundruöum milljóna i
afsláttum og sjóöatillögum en
jafnhliða haldið nokkrum hluta
tekjuafgangsins eftir til þess aö
efla eigin fjármagn á sameigin-
legum vettvangi kaupfélags-
starfsins.
Ef Sambandið hefði ekki verið
til og heildsalar einir annazt
innflutningsverzlunina myndi
önnur sýn blasa við. Heildsalar
hefðu ekki skilað til baka til
landsbyggðarinnar verulegum
hluta hagnaðar slns. Kaupfélög-
inhefðu ekki heldur getað vænzt
stuðnings þeirra til eflingar
byggðar og uppbyggingar
iðnaðar- og þjónustustöðva á
félagssvæöi þeirra.
Það er algjört öfugmæli aö
Sambandið hafi dregið frá frá
landsbyggðinni til rekstrar
sins I Reykjavik og fram-
kvæmda. Hitt er sönnu nær, að
samvinnumenn hafa með inn-
flutningsverzlun Sambandsins
forðað stórum fjármunum frá
þviaðlenda ihöndum heildsala.
Kaldar kveðjur þeirra til sam-
taka samvinnumanna eru þvi
skiljanlegar út frá þessu sjónar-
miði einu saman.
Þess er llka vert að minnast
að Sambandið hefir notið
trausts og vinsemdar utan lands
og innan og það hefir oft dugað
þvi vel tilað koma fram stórum
málum, þótt sjóðir þess hafi
ekki ætlð verið gilclir. Skulu hér
aðeins nefnd tvö dæmi þvi til
sönnunar og hið þriðja rifjað
upp til að minna á hversu fráleit
sú kenning er, að Sambandið
dragi fé frá landsbyggöinni.
Verksmiðjur sam-
vinnumanna
Ekki er um þaö deilt, að verk-
smiöjur Sambandsins eru einn
myndarlegasti þáttur Islenzks
iðnaðar. Það hefir kostað mikiö
fé að byggja verksmiðjurnar.
Það hefir þurft þolgæði og
þrautseigju til að koma þeim
upp og búa þær góöum vélum og
tækjum. Það hefir kostað ára-
tuga starf og baráttu. Þeir
peningar sem til uppbygging-
arinnar hafa gengið hafa ekki
verið „dregnir frá landsbyggð-
inni.” Iðnaöurinn hefirað mestu
orðiö að byggja sig upp sjálfur.
Fyrirgreiðsla sem Sambandið
hefir notiö úr opinberum lána-
stofnunum hefir verið of lítil og
oft komiö of seint. A seinustu
árumhefirþó nokkurbreyting á
orðið I þessu efni til batnaðar.
Saga Samvinnuiðnaðarins sýnir
hvernig farsællega má vinna að
uppbyggingu iðnaðar þegar allt
er látið vinna saman aö einu
marki, reynslan, fjármagn sem
rekstur skilar árlega og traust
og trúnaður sem fyrirtæki aflar
sér með löngu og farsælu starfi.
Oliuflutningaskipið
„Hamrafell”
Arið 1956 keypti Sambandið
ásamt Oliufélaginu oliu-
flutni ngaskipið Hamrafell.
Þetta var stórt átak. Það var
hægt aö jafna saman þessu
framtaki samvinnumanna og
byggingu Aburðarverksmiöj-
unnar i Gufunesi. Það hafði
vafizt fyrir ráðamönnum lands-
ins I allmörg ár, að leysa vand-
ann og afla fjár til að hefja inn-
lenda áburöarframleiöslu,-
Hvernig fóru samvinnumenn
að þvl að kaupa þetta stóra
skip? Var „fé dregið frá lands-
byggðinni” til að leysa málið?
Nei, slður en svo. Sambandiö
hafðistarfað I liðlega 50 ár. Þaö
átti að vlsu ekki gilda sjóði en
það átti annað sem vel dugði
þegará reyndi. Sambandið naut
trúnaðar og trausts erlendra
bankastofnana. Seljendur
skipsins fengu upplýsingar um
að Sambandinu mætti treysta.
Sambandiö gat útvegað fé er-
lendis til kaupanna án rlkis- eöa
bankaábyrgðar. Þannig hefir
oft verið að málum staðið hjá
samvinnumönnum þegar stór-
málum hefir þurft að koma i
höfn.
163 milljónir króna
Það er ekki langt slðan Inn-
flutningsdeild Sambandsins hóf
rekstur og vörudreifingu frá
Birgöastöðinni I Reykjavik til
kaupf élaganna. Þaö var minnt á
það i seinustu ársskýrslu Sam-
bandsins, að hún ásamt
Vefnaöar- og búsáhaldadeild
hafa skilað til kaupfélaganna
163 milljónum króna I afslætti af
viðskiptum á árunum f rá 1968 til
1976. Það munarum minna. Það
er kannski þetta sem á Varðar-
fundi er látið heita að Sam-
bandið hafi „dregiö (fé) frá
landsbyggðinni til rekstrar si'ns
I Reykjavik.”
íli"kar greiðslur hafa kaup-
félögin ekki fengið frá heildsöl-
um. Það er rétt, að viö þá eiga
félögin ailinikil viðskipti. Að
miklu leyti byggjast þau við-
skipti á þvi aö kaupfélögin og
Sambandið skortir rekstrarfé
en ekki á þvl ,,að kaupfélögin
vildu ekkisiðurskipta við heild-
sala en Innflutningsdeild SIS”
einsog ræðumaðurinn lætur þaö
heita.
Samvinnumaður.
Hamrafell, olluskip Sambands islenzkra samvinnufélaga.
Húsvörður
Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra, óskar
að ráða húsvörð við ibúðarálmu Sjálfs-
bjargarhússins Hátúni 12, Reykjavik.
Ráðgert er að húsvörðurinn hefji störf um næstu áramót.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf og meðmæl-
um, sendist fyrir 7. nóvember n.k. merkt Sjálfsbjargar-
húsið, húsvarzla, R. 5 pósthólf 5147 Reykjavik.
Utboð
Tilboð óskast i að fullgera annan áfanga
gagnfræðaskólahúss á Selfossi. Húsíð er
nú fokhelt. Verkinu skal lokið að hluta 1.
júli, og öllu 15. september 1978.
Útboðsgögn verða afhent gegn 25 þús. kr.
skilatryggingu á skrifstofu Selfosshrepps,
Eyrarvegi 8, Selfossi, og hjá undirrit-
uðum. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Sel-
fosshrepps þriðjudaginn 8. nóvember 1977
kl. 11.
Arkitektastofan s.f.
Ormar Þór Guðmundsson,
örnólfur Hall,
Slðumúla 23, Reykjavlk.
Nýr viðskipta-
fræðingur hjá
Iðnaðarbank-
anum
Július Snæberg Ölafsson, við-
skiptafræðingur hefur nýlega tek-
ið við starfi hjá Iðnaðarbankan-
um sem skrifstofustjóri Iðnlána-
sjóðs. Július er fæddur 20. marz
1943 og lauk kandidatsprófi frá
Viðskiptadeild Háskóla íslands
vorið 1969. Undanfarin átta ár
hefur hann starfaö sem fram-
kvæmdastjóri Félags Islenzkra
stórkaupmanna og Bilgreina-
sambandsins.
Tilboð óskast
óskast I nokkrar fólksbifreiðar, jeppabifreiðar og I nokkr-
ar ógangfærar bifreiðar er verða sýndar að Grensásvegi
9, þriðjudaginn 1. nóvember kl. 12-3.
Tilboðin verða opnuð I skrifstofu vorri kl. 5.
SALA VARNALIÐSEIGNA
Tilboð óskast
i Caterpillar jarðýtu D8-H árgerð 1967,
hjólaskóflu H-100, árgerð 1965 og Fergu-
son dráttarvél með skóflu, árgerð 1963. er
verða til sýnis á afgreiðslu vorri á Kefla-
vikurflugvelli mánudaginn 31. október og
þriðjudaginn 1. nóvember kl. 1-6 báða
dagana. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu
vorri föstudaginn 4. nóvember kl. 11 ár-
degis.
SALA VARNALIÐSEIGNA