Tíminn - 27.10.1977, Side 7
Fimmtudagur 27. október 1977
Þaö er hægt aö verða leiður á venjulegu
súkkulaöi, þótt gott sé, en nú geta menn fengið
svolitla tilbreytingu. Tibor Kron flýði ásamt
f jölskyldu sinni frá Búdapest í Ungverjalandi
i uppreisninni 1956.
Fjölskyldan hafði rekið súkkulaðifyrirtæki í
meira en öld, og nu opnaði hann sælgætisbúð í
Bronx, New Yorken lokaði henni 1967, er hann
hætti störfum. Þá var sonur Tibors Tom, við
læknanám. Tom sagðist ekki lengur hafa
áhuga á læknisstarfi, og 1973 stakk faðir hans
upp á því við hann að hann færi að framleiða
,,Kron-súkkulaði". Tom Kron opnaði sæl-
gætisbúðá Manhattan í New York og gekk hún
strax vel án allra auglýsinga. Og nú hefur
hann fært út kvíarnar og sett upp verzlanir út
um landið. Verzlunin á Manhattan er þannig
sett, að margt af frægu fólki heldur sig i ná-
grenninu, og það rennur á lyktina og gerir sín-
ar pantanir. T.d. pantaði Berbara Walters
súkkulaðibangsa sem hún afhenti persónulega
forsetadótturinni, Amy Carter. Kron notar
aðeins kókóbaunir sem ræktaðar eru í Suður-
Ameríku. Hann segir, að fólk fitni ekki af að
borða hans f ramleiðslu, því að hann bæti mjög
litlum sykri í. í nóvember ætlar Tom Kron í
einnar viku kynningarferðalag með 90 manna
hóp frá súkkulaðiverksmiðjum í Zúrich og
Genf. — Þá borðum við súkkulaði í 7 daga og
sjö nætur. Það verður eitthvað fyrir þá sem
aldrei fá nóg af súkkulaði! segir Kron . Fyrir-
tækið er orðið frægð fyrir brjóstmyndir og fót-
leggi, sem framleitt er í líkamsstærð, eins og
sést á myndinni sem fylgir. Ein frú pantaði
tylftaf slíkum fótleggjum handa söngfólkinu í
A Chorus Line, og annar viðskiptavinur gaf
eiginmanni sínum í gullbrúðkaupsgjöf einn
fótlegg, til að minna hann á hvernig hennar
eigin fætur litu út hér fyrrum.
Julie Nixon
Eisenhower
gefur út bók
Julie Nixon Eisenhower lætur sig ekki með
ritstörfin. Nú gefur hún út bók með titlinum
Special People (Sérstakt fólk) og fjallar hún
um 6 manneskjur sem hafa haftáhrif á hugs-
anagang hennar og fyllt hana andagift. Það
hlýtur að vera skemmtileg lesning.
li ' \\ CTikki er
CTkúrnar efu~pusund qvn
móti einum aö þetta sU ;fdusvu
sama• slæmt.)j
. Þegar ég tók Alan af "J"
henn^sá ég sjávar-
gróður á skelinni og
það var nákvæmlega
sama mynztur á
þessari.. )
Víst, ég ætlajj
, mér að komast
að þvi, =
hvar þessi
En hvers vegna heldurðu
að skjaldbakan hafi komiðM
aftur á staðinn, þar sem
Alan fann hana? ,Þetta er-l
•í 'kannski
vitleysa.en
. ,ðborgarsig<
að athuga þetta-
betur