Tíminn - 27.10.1977, Síða 8
8
Fimmtudagur 27. október 1977
Réttur minnihlutans tryggður og
komið í veg fyrir spillingu
— Olafur Jóhannesson, dóms- og viðskiptamálaráðherra mælti fyrir lagafrumvarpi um hlutafélög
Ólafur Jóhannessordoms og
viOskiptamálaráóherra mælti I
gær fyrir tveimur lagafrum’ örp-
um, i efri og neöri deild Alþ>>:igis.
Annars vegar var hér um aö ræöa
lög um hiutafélög sem fyrst var
lagt fyrir sfðasta þing, en varð
ekki útrætt þá. Hins vegar mælti
viðskiptaráöherra fyrir frum-
varpi til barnalaga i neöri deild
Alþingis, en þaö frumvarp hefur
legiö óbreytt fyrir sföustu tveim-
ur þingum en ekki veriö tekin af-
staöa til þess enn.
1 ræðu þeirri er ráðherra hélt er
hann mælti fyrir lögum um hluta-
félög sagði hann, aö ekki hafi ver-
ið til þess ætlast að það yrði af-
greitt á siðasta þingi, um væri að
ræða yfirgripsmikinn bálk, sem
nokkurn tima tæki að athuga.
„Var gert ráð fyrir þvi,” sagði
ráöherra ,,að þingmönnum gæfist
tóm milli þinga til þess að kynna
sér frumvarpið.”
Þá sagöi ólafur Jóhannesson aö
hafizt hafi verið handa um
samningu frumvarpsins á árinu
1972 á vegum viðskiptaráðuneyt-
isins. Frumdrög voru send jims-
um aðilum og stofnunum til um-
sagnar sumarið 1973 og siðan tek-
ið nokkurt tillit til þeirra um-
sagna, en samdóma álit umsegj-
enda var, að nauðsyn bæri til aö
setja ný lög um hlutafélög.
Si"ðan vék viðskiptaráöherra
nokkrumoröum að þróun löggjaf-
arum hlutafélög, fjallaði um þau
almennt og greindi frá setningu
slikra laga á Norðurlöndunum.
Fram kom i ræðu hans, aö lögin
sem Islendingar nú búa við eru
frá 1921, og voru þá mjög sniöin
eftir hinum fyrstu dönsku hluta-
félagslögum frá 1917. Danir sem
aðrar Norðurlandaþjóöir, hafa
siðan endurskoðað hlutafélög sin
og m.a. hefur norræn nefnd fjall-
að mjög um þessi mál. Niðurstöö-
ur þeirra nefnda sagði viðskipta-
málaráðherra hafa aö verulegu f
leyti verið hafðar til hliðsjónar
við samningu þessara laga.
Gervihlutafélög og spill-
ing
,,Það hefur stundum verið haft ,
á orði” sagði ráðherra ,,að i
hlutafélögum sé ýmis konar
fjármálaleg misnotkun og jafnvel
ýmis konar spilling, og að þetta
form á þeim væri haft aö hálf-
gerðu yfirvarpi og væri misnotaö.
Taiað hefur verið um gervihluta-
félög, og ern þá sjálfsagt einkum
höfð f huga fyrirtæki eða hlutafé-
lög, sem eru i eigu mjög fárra
manna, og i rauninni eingöngu
fjölskyldumeðlima. Þess: háttur
mun nokkuð hafa tiðkazt hér, og
hann hefur einnig tiðkazt erlena-
is. Þetta hefur leitt til þess, aö
sumir hafa haft hálfgerðan imi-
gust á þessum fyrirtækjum og
þessara sjónarmiða gætir að tals-
verðu leyti ennþá.”
Viðskiptaráðherra kvaðst ekki
ætla að leggja dóm á, hvort þess-
ar skoöanir manna hefðu við rök
að styðjast, en þær renndu að
minnsta kostistoðum undir nauö-
syn þess að núgildandi lög um
hlutafélög verði endurskoðuö. Þá
bentihanná aö hlutafélagsformið
við rekstur fyrirtækja yrði sfvin-
sælla og höfuðástæðan væri
sennilega ,,sú takmarkaöa á-
byrgö einstaklinganna sem þessu
félagaformi fylgir”.
Um frumvarpið sagöi ráðherra
siðan: „Frumvarp þetta er alls
160 greinar en gildandi lög eru i 60
greinum. Þessi lengd og itarleiki
er i samræmi við þá þrdun sem-
orðið hefur í þessum efnum. Það,
sem einkum veldur þvi, að frum-
varpið er svo miklu meira að
vöxtum esi gildandi lög er aö i /
frumvarpinu er fjallaö um ýmis <
þau málefni, sem litið eða ekkert
er minnzt á I gildandi lögum, og
einnig er fjallað mun itarlegar
um ýmis þau atriði og raunar
flest þau atriði sem gildandi lög
hafa fá ákvæöi um.
Frumvarpið er I 19 köflum. 1
fyrsta kaf la eru ákvæði um gildis-
sviö frumvarpsins skilgreiningar
á hugtakinu hlutafélag og fjallaö
um svokallaðar samstæður hluta-
félaga. Þriöji kafli hefur að
geyma ákvæöi um greiðslu hluta-
fjár. I fjórða kafla eru ýmis á-
kvæöi er snerta hlutafé, hlutabréf
og hlutabréfaskrá. Sérstaklega er
fjallaö um hækkun og lækkun
hlutafjár, svo og eigin hlutabréf
hlutafélags I 5.-7. kafla. Um fé-
lagsstjórn og hluthafafundi eru
settar itarlegar reglur i h,og 9.
ólafur Jóhannesson
kafla og eru þær flestar nýmæli. I
10. og 11. kafla eru ákvæði um
endurskoðun og ársreikninga
hlutafélaga, og er hér um ná-
kvæm ákvæöi að ræða sem að
flestu leyti eru nýmæli. Um arös-
úthlutanir, varasjóði o. fl. eru
settar reglur i 12. kafla. Þrettándi
og 14. kafli fjalla um slit hlutafé-
laga og samruna þeirra. Um
skaðabótaskyldu stofnenda,
stjórnarmanna og annarra gagn-
vart hlutafélagi er fjallað i 15.
kafla. Sextándi til 19. kafli hafa
að geyma ákvæöi um erlend
hlutafélög og skráningu, hlutafé-
laga, refsingar og önnur atriöi.”
Mörg nýmæli og breyt-
ingar
Fjallaði ráöherra þessu næst
um helztu breytingar sem i frum-
varpinu felast. Hann vakti fyrst
athygliá þvi, aðfrumvarpið gerir
ráð fyrir aö lágmarksfjárhæð
hlutafjár verði 1 milljón króna i
stað 2000 kr. áður og hluthafar
veröi ekki færri en 10. ,,en sam.
kvæmt gildandi lögum skulu hlut-
hafar vera fimm hið fæsta. Til-
gangurinn með þessu er m.a. sá,
að hamla gegn þvi, að stofnuð séu
þau hlutafélög sem ég hef áður
nefnt og hefur stundum verið gef-
ið nafnið gervihlutafélög. En það
er að sjálfs’göu eins með þetta at-
riði og hið fyrra, að álitamál er,
hve stofnendur eöa hluthafar i
hlutafélagi skulu vera margir.”
Eftir að hafa fjallað nokkuð um
skilgreiningu á hlutafélagi og
svokallaðar hlutafélagssamstæö-
ur og ákvæði um þetta i frum-
varpinu, sagði ráðherra: ,,1 gild-
andi lögum er það skilyrði að
stofnendur skuli vera einstakling-
ar. Er fyrir löngu oröið tímabært
að breyta þessu þannig, aö auk
einstaklinga geti ymsir lögaðilar
veriö stofnendur svo sem riki,
sveitarfélög, samvinnufélög,
hlutafélög og fleiriaöilar. Er lagt
til hér, að svo verði gert.”
Þá sagði ráðherra, aö lög um
stofnun hlutafélaga væru itar-
legri og strangari i frumvarpinu
en nú gilda og ástæðan væri, að
mest hætta væri á misferli við
stofnunina. Þá eru ákvæði um
greiðslu hlutafjár itarlegri en
samsvarandi ákvæði gildandi
laga og er m.a. ákvæði um að
hlutafé skuli greiða i siöasta lagi
innan eins árs frá skráningu fé-
lags.en engin ákvæði eru um slikt
i gildandi lögum „Tvær mikl-
ar brevtingar eru gerðar frá giid-
andi lögum að þvi er varðar eig-
alþingi
Graskögglafram-
leiðslan í hættu
Þar sem innflutt kjarnfóöur .
er greitt niður um tæpar 15 þús.
kr. hver lest i útflutningslönd-
unum, þá er verð á fóöurblönd-
un meö þvi lægsta, sem það
hefur nokkurn tima verið hér á
landief miðað er við afurðavérð
t.d. mjólkina.
Þetta hefur leitt til þess, að
erfiðara hefur gengið að selja
grasköggla i ár. Verð á kúafóð-
urblöndun er allbreytilegt, eða
frá 38 þús kr. og upp i tæpar 50
þús kr lestin en framleiðsluverð
á graskögglum er 52 þús kr.
lestin.
Heildarframleiðsla á gras-
kögglum i ár var 8.174 lestir en
starfandi voru 5 verksmiðjur á
siðastliðnu sumri, mest var
framleitt i verksmiðjunni i
Gunnarsholti 2,799 lestir.
Með iblöndun er fóðurgildi
graskögglanna aukið verulega
og þegar einnig er farið að
blanda i þá steinefnum, þá er
fengið fóöur, sem stenzt full-
komlega samanburð viö fóður-
blöndur og hafa oft á tiðum
reynzt öllum betra fóður.
Tilraunaniðurstöður, sem
fengizt hafa með fóðrun á gras-
kögglum i samanburði við er-
lent fóður, hafa sannað að nýt-
ing graskögglanna er mjög góð,
þannig að fóðurgildið reynist
vera um 10% meira en fóöur-
efnagreiningar segja til um.
Fyrstu tilraunir hér á landi með
grasköggla voru gerðar i
Laugardælum um eða eftir 1960.
Þvi miður hefur litið verið birt
af niðurstöðum þessara til-
rauna sem allar hafa sýnt að
graskögglar eru úrvalsfóður.
Verö á innfluttu fóðri
niðurgreitt um 30%
Þrátt fyrir að ýmsir telji að
verð á graskögglum sé mjög
hátt, þá er það hagstætt miðað
við grundvallarverð á mjólk.
Fyrir hvern lítra af mjólk sem
framleiðandinn leggur inn i
mjólkursamlag á hann að geta
keypt sem svarar 1 1/2 Fe I
graskögglum.
Það er óraunhæft að miöa
verðið við innflutt niðurgreitt
fóður, en auðvitað er sam-
keppnisaðstaða verksmiðjanna
ákaflega veik, þegar bændum
gefst kostur á að kaupa þetta
ódýr^erlenda fóður. Ef innflutt
fóður væri ekki niðurgreitt þá
mundi kúafóðurblanda kosta
um 55 þús. kr. hver lest, miðað
við þetta verð væri verulega
hagstætt fyrir bændur að kaupa
innlenda grasköggla á 52 þús kr.
lestina.
Allar rekstrarvörur, sem
keyptar eru til graskögglaverk-
smiðjanna svo og vélar og tæki,
eru með álögðum söluskatti og
tollum, ennfremur er verð a raf-
orku mjög hátt, hver kwst. kost-
ar svipað og hún er seld til ljósa-
notkunar.
Ef engar breytingar verða
gerðar á rekstraraðstööu verk-
smiðjanna, og að verð á inn-
fluttu fóðri verði áfram hér
langt undir framleiðslukostn-
aði, þá er ekki annað fyrirsjáan-
legt en að graskögglafram-
leiðslan stöðvist, þegar á næsta
ári. Sá iðnaður er ekki til hér á
landi sem gæti staðið það af sér,
að þurfa að keppa á markaðn-
um við vörur, sem eru niður-
greiddar erlendis um og yfir
30% eins og á sér stað með er-
lenda fóðrið, sem hér er selt i
samkeppni við innlenda fóður-
framleiðslu.
inhlutabréf félags. Lagt er til, aö
heimild til að veita hlutafélagi
leyfi til að eiga sjálft meira en
10% af greiddu hlutafé slnu veröi
felld niður. Sú venja hefur skap-
azt í þessum efnum, að hlutafé-
lögum hefur verið leyft að eiga
allt að 30% af eigin hlutafé, ef
fjárhagur félaganna leyfir síikt.
Þessi venja er að ýmsu leyti ó-
heppileg og er þvi rétt að afnema
hana, en halda því ákvæði að
hlutafélögum sé heimilt að eiga
allt að 10% af greiddu hlutafé.
Siðari breytingin er, að atkvæðis-
réttur skal ekki fylgja eigin hluta-
bréfum félags, en gildandi lög
leyfa þaö, og fer félagsstjóm yfir-
leitt meö atkvæöisrétt fyrir slik
bréf.”
Tryggður réttur minni-
hlutans
Siðar sagði ráðherra: „Ég" vil
þá minna á mikilvæg nýmæli,
sem e.t.v. eru iþyngjandi, en það
er skyldan til að ráða fram-
kvæmdastjóra i stærri félögum. 1
gildandi lögum er það algerlega
frjálst hvort ráðinn er fram-
kvæmdastjóri eöa ekki.
Mörg nýmæli eru um hluthafa-
fund og ýmsi ákvæði kaflans
miða að þvi að auka og afmarka
réttindi hinna einstöku hluthafa.
Þar eru og ákvæði sem eiga að
tryggja minnihluta hluthafa á-
kveöna vernd. Reglur um vernd
minnihlutans eru viða I frum-
varpinu, og tel ég rétt aö gera
greinfyrirhelztuákvæðunum um
þetta hér. Þar má fyrst nefna, að
minni hlutanum er veittur réttur
til aö krefjast frestunar á helztu
aðalfundarmálefnum. Einnig
getur minnihluti hluthafa krafizt
aukafundar. Nefna má aðminni-
hluta er veittur réttur til að ráða
vali eins endurskoðanda, og enn-
fremur til að krefjast sérstakrar
rannsóknar á ýmsum atriðum
varðandi félagið og starfsemi
þess. Með ákveönum skilyrðum
er minnihluta tryggður réttur til
að krefjast arögreiðslna. Einnig
getur minnihluti krafizt félags-
slita þegarsvo stendurá, aö hlut-
hafar hafa misnotað aðstöðu
sina.”
Sfðar f jallaði ráðherra um end-
urskoöun og könnun reikninga en
ákvæði frumvarpsins i þeim efn-
um eru að mestu leyti nýmæli.
Verður hér ekki nánar greint frá
þvi né mörgum öðrum atriðum er
ráðherra drap á.
Ráöherra óskaði þess að lokum,
að frumvarpið fengi afgreiðslu á
þessu þingi, sjálfsagt væri að at-
huga það rækilega en á hitt væri
að benda, að það var fyrst lagt
fram á siðasta þingi, og þing-
mönnum ættí að hafa gefizt tóm
til aö kynna sér innihald þess. Þá
gat hann þess, að gert væri ráð
fyrir þvi, ,,að ákvæði frumvarps-
ins taki til eldri hlutafélaga með
vissum undantekningum þó, t.d.
verðandi lágmarkshlutafé og lág-
marksfjölda hluthafa.”
Frumvarpinu var að lokinni
ræöu ráðherra visað til annarrar
umræöu og fjárhags- og við-
skiptanefndar.
Sinfóníutón-
leikar á ný í
Háskólabíó
Sinfóniuhljómsveit Islands
heldur tónleika i Háskólabiói
fimmtudagskvöld kl. 20.30.
Einsöngvari er Sieglinde Kah-
mann og stjórnandi Karsten
Andersen.
Efnisskráiner eins og hér seg-
ir:
Mozart: Sinfónia nr. 38, „Prag-
sinfónian”. Dvorak: Aria úr op.
„Rusalka”. Weber: Aria úr
„Freischutz”, Alban Berg: Sieb-
en fruhe Lieder. Tsjaikovsky:
Capriccio Italien.
Tónleikar þessir eru áskriftar-
tónleikar og koma i stað þeirra er
féllu niöur 20. október vegna
verkfalls.
Sieglinde Kahmann er þýzk aö
uppruna og hlaut fyrstu menntun
sina i Stuttgart við tónlistarhá-
skólann þar. Þá var hún ráðin að
rikisóperunni þar i borg og var
lengi þar fastráðinn söngvari.
Siðar var hún I Kassel, Graz,
Wien og Miinchen. Sieglinde
hefur sungið viða um Evrópu,
m.a. á listahátið I Salzburg og
Edinborg Einig hefur hún komið
viöa fram i útvarpi og sjdnvarpi.
Sieglinde er nú búsett hér á Is-
landi og kennir við Söngskólann I
Reykjavik og Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar.
Óþarfi er að kynna Karsten
Andersen.Hann er islenzkun tón-
leikagestum vel kunnugur og var
fastráöinn hljómsveitarstjóri við
Sinfóniuhljómsveit Islands I 4 ár
og kemur nú hingað sem gestur.